þriðjudagur, júlí 29, 2003
Jæja, gott að eiga góða að sem sjá um skítverkin fyrir mann... Takk Anna fyrir að nenna að vesenast í síðunni fyrir mig eftir að ég rústaði henni með fiktinu í mér... Gott samt að það endaði ekki eins og þegar ég var að fikta í rafmagninu um daginn... ;)
Fékk litla frænku í morgun, í Svíþjóð. Það var semsagt ekki strákabarn eins og Soffía var víst búin að biðja um...
Verslunarmannahelgin nálgast óðum og hugurinn strax mættur til eyja... Er hinsvegar að fara til Súðavíkur í fyrramálið og verð þar um helgina, allavega fram á sunnudag eða mánudag. Vinnuhelgi á ættaróðalinu. Fínt þar sem buddan leyfir ekki Þjóðhátíð ofan á allt flakkið í sumar...

Þetta er ekki alveg að takast, kannski ég sé ekki með teljarann réttann, þ.e. nafnið á síðunni... Athugaðu það dúllan mín.
Svefnkindin...
Svefnkindin...
Veit ekki alveg hvað er í gangi. Teljarinn vill ekki inn og nú opnast síðan ekki öll. Pæli betur í þessu í dag.
Svefnkindin...
Svefnkindin...
mánudagur, júlí 28, 2003
það er svo gaman að fikta í annarra manna bloggi!
Svefnkindin...
Svefnkindin...
miðvikudagur, júlí 23, 2003
úbbs... Var að enda við að gera stórkostlega tilraun til að stúta sjálfri mér... Búin að eyða deginum í að ögra sjálfri mér... Tókst að framlengja hátalarasnúru og troða henni í gegnum örlítið gat innst í mjórri hillu uppundir lofti (já, grilltangir eru til margs nýtar...)... Er líka búin að framleiða millistykki og snúrur í loftljós. Er reyndar bara búin að koma einu ljósi upp, og það kostaði sko bló, svita og tár í orðsins fyllstu merkingu... en það tókst... !!! :) Komst að því að gatið á ljósinu var of þröngt fyrir snúruna (en í gegn skyldi hún fara!) þannig að ég eyddi óhemju tíma og allri þolinmæðinni og þrjóskunni í það en það hafðist á endanum!!! Ég meina, ég fer ekkert að hætta í miðju kafi... ;) Á þessu stigi var ég líka búin að stinga mig til blóðs með skærunum sem ég notaði við þessa tilraunastarfsemi... Já, ég veit að ég vel skemmtileg verkfæri... ;) Þá átti eiginlega bara eftir að tengja blessað ljósið... Og já, það tókst reyndar að lokum eftir að hafa fengið rækilegt stuð (datt samt ekki niður af stólnum og mamma og Sólveig voru held ég heppnar að skrúfjárnið flaug á bak við ofninn en ekki í þær...). Var reyndar dáldið skjálfhent eftir stuðið þannig að ég missti tengið og skrúfjárnið hvað eftir annað í gólfið og ætlaði aldrei að geta klárað verkið... En hér er ég, enn á lífi... ;) Spurning bara hvort ég verði það enn annað kvöld en ég ákvað að geyma hitt ljósið þangað til á morgun... ;)
Vá... Var ekki með neitt í bakhöndinni í sambandi við vinnu í sumar þegar ég kom heim úr flakkinu... Það hefur nú samt heldur betur ræst úr og ég er að vinna bara næstum út í eitt þessa dagana... Kemur sér ágætlega fyrir fátæka flökkukind... Þó það sé nú voða notalegt að vera bara heima og gera ekki neitt... Það er bara ekkert sérlega hagkvæmt... ;)
Á samt frí eftir hádegi í dag og ætla að nota daginn til að reyna að klára að gera "stofuna" mína nothæfa... Það er svosem ekki svo mikið sem á eftir að gera... Ráðast á einn eða tvo kassa og flokka draslið úr þeim og finna einhvern stað fyrir það..., setja kall á sjónvarpsloftnetið svo það sé hægt að stinga því í samband og kaupa perustykki svo ég geti föndrað loftljósin mín... Held þetta sé ekki svo hræðilega mikið...
Þarf annars líka að lesa meira í Harry Potter... Hræðilegt að hafa svona mikið að gera því ég hef svo lítinn tíma fyrir Harry... Honum hundleiðist örugglega hjá mér... ;)
Skrapp að heimsækja Gunnu í vinnuna eftir vinnu í gær... Gaman að horfa á hana klifra upp á hól og renna sér niður á rassinum aftur og aftur... ;)
Hélt svo áfram til Keflavíkur og heimsótti Önnu og Kolbrúnu. Hafði ekki hitt Önnu síðan við komum heim frá Ítalíu... Það er ekki hægt að láta líða svona langt á milli...

sunnudagur, júlí 20, 2003
Fór í útilegu um helgina. Langt síðan ég fór síðast í svona ALVÖRU útilegu... Æ, svona sem er ekki á merktu tjaldstæði með hreinlætisaðstöðu og búð, heldur bara úti í guðsgrænni náttúrunni... ;) Komum okkur vel fyrir, umkringd íslenskum skógi, með einkaströnd og "heitan pott" og fyrsta flokks náttúrulegt lúxusklósett með útsýni að eigin vali... ;) Nú kom sér vel að hafa verið 6 vikur í sól í útlöndum og vera komin með góðan grunn fyrir sólina... Var nefnilega eiginlega sú eina sem ekki brann... Það var því farið í neyðarbíltúr í næstu búð til að kaupa AloaVera á mannskapinn... En allavega, þetta var akkúrat það sem mig vantaði, alvöru aflsöppunar útilega...
föstudagur, júlí 18, 2003
Jæja, er farin að halda að ég hafi klárað sólbaðsþolið í öllum útlöndum í sumar... Nenni allavega ekki að liggja úti í 25 stiga hita... Finnst hér um bil ómannúðlegt að hafa svona heitt hérna dag eftir dag... Fór í sund í fyrradag, var rosa dugleg og synti heila 200 metra... En þá var líka hitaþolið búið og ég lufsaðist uppúr lauginni... Finnst samt soldið asnalegt að hanga inni í svona veðri, en það er bara svoooo erfitt að vera úti... Er annars að fara í útilegu um helgina og þá neyðist ég til að vera úti í hitanum... Ætlum allavega að elta hitann og sólina... ;)
miðvikudagur, júlí 16, 2003
Held að frægðarsól mín gæti kannski farið að rísa á næstunni... Var allavega mynduð í bak og fyrir í dag... Hef möguleika á að verða kvikmyndastjarna... ;) Soldið kúl... ;) En samt, kannski verð ég ekkert valin og verð þá engin kvikmyndastjarna og þá verð ég ekkert fræg... En vá, hver vill svosem verða frægur... ? Hlýst nokkuð nema slæmt af frægð...? Jæja, þetta er allavega búið og gert og það er bara spennandi... Nú er bara að bíða og sjá hvað gerist... ;)
sunnudagur, júlí 13, 2003
meeeeeeeee
loksins jarma ég eftir langa þögn... ;)
Búið að vera vesen með bloggið hjá mér og ég nenni ekki að skrifa einhverja ritgerð ef hún týnist svo bara einhversstaðar og kemst ekki á síðuna...
Eyddum síðustu dögum ferðarinnar hjá Stebba, Jónu, Soffíu og bumbunni í Lundi í Svíþjóð. Mamma var reyndar líka hjá þeim til að byrja með en hún fór heim á fimmtudaginn. Á miðvikudaginn skruppum við Sólveig með henni yfir til Köben. Við skoðuðum Kristjaníu þar sem allt angaði af ákveðinni lykt og Sólveig var að spá í að bjóða okkur upp á "súkkulaðiköku" í "súkkulaðikökugötunni" þar... ;) Plömpuðum svo Strikið á leiðinni aftur upp á brautarstöð.
Á föstudaginn fórum við með Jónu og Soffíu í bæinn. Við skoðuðum okkur um og kíktum í nokkrar búðir og höfðum svo pikknikk í garði í miðbænum, voða kósí. Fórum svo með Stebba að skoða Kulturen, svona byggða-minjasafn, að hluta til í líkingu við Árbæjarsafnið. Þar lærðum við nú margt mjög fróðlegt og skemmtilegt... já, ég má ekki gleyma að segja pabba frá því að í messum var sérstakur maður sem sá um að pota í fólk með priki ef það sofnaði í miðri messu... ;) Eins gott að það var í Svíþjóð en ekki hér... ;)
Já, allavega þá er ég komin heim í heiðardalinn... Ég hélt að Sólveig væri búin að undirbúa sig fyrir þetta þriggja tíma flug með því að sitja í lestum í heilan mánuð, en hún var gjörsamlega að spila út þarna í vélinni í dag. Það endaði með því að ég sagði henni að hún myndi enda eins og flugdólgurinn þarna um árið og aldrei aftur fá að fljúga með Iceland Express... Hún glotti nú bara og hélt áfram að trufla mig þannig að á endanum gafst ég upp á að lesa Harry Potter...
Það var nú soldið gott að koma heim. Fékk samt hálfgerðan tremma þegar við mér blasti ekkert nema kassar og annað dót sem ég kláraði einmitt að bera hingað inn daginn áður en við lögðum af stað í ferðina... Er semsagt búin að eyða kvöldinu í að taka upp úr kössum og reyna að koma einhverri mynd á þetta... Þetta verður verkefni vikunnar... ;)

þriðjudagur, júlí 08, 2003
Já já, ég er á lífi...
Lenti í vandrædum med þýskar tölvur, þær vildu ekki hleypa mér á bloggið...
Fór semsagt til Ilku (Wuppertal i Þýskalandi) á eftir Svenju. Gerðum margt og mikið þar... Sáum t.d. "Max & Moritz" húsið... Fórum í schwebebahn... Sáum "Voldemort" í ævintýraskóginum... Fórum og skoðuðum Cristopher Street day í Köln, en það er svona gaypride...
Tókum svo næturlest til Odense í nótt, en þar var ekki mikið sofið... Fengum svona klefa með 6 sætum sem var ekki hægt að leggja niður og vorum 5 í klefanum með hellings farangur, lokaður gluggi og engin loftræsting... mmmmm... Skoðuðum svo H.C.Andersen safnið (sem var dáldið breytt síðan ég fór þangað fyrir 13 árum...). Sáum líka skemmtilega búð sem var auðvitað lokuð og komumst svo að því að búðin sem ég ætlaði í (og var eiginlega ástæðan fyrir því að við stoppuðum í Odense ) var ekki þar og allt í rugli... Hef þá bara 2 góðar ástæður til að koma aftur til Danmerkur fljótlega... ;) Héldum því bara áfram til Stebba og Jónu í Lundi þar sem Soffía, Jóna og mamma tóku á móti okkur á lestarstöðinni. Ætlum svo að skreppa með mömmu yfir til Köben á morgun.
Jæja, er orðin dáldið þreytt...

föstudagur, júlí 04, 2003
Jaeja, fattadi tad nú ekki tegar ég bloggadi í fyrrakvöld en eg er núna med svotil edlilegt lyklabord... Erum í Tyskalandi (rétt hjá Hannover) hjá Svenju tar sem vid erum búnar ad vera sídan á tridjudagskvöld. Kisan sem vildi ekki vera vinur minn er eitthvad farin ad slaka á, en hún er búin ad tefa nokkrum sinnum af mér í dag án tess ad hvaesa og klóra... Tad passar, vid erum ad leggja af stad til Ilku í Wuppertal á eftir... ;)
Fórum í dýragard í gaer. Tad var rosa gaman en vedrid var ógedslegt! Erum búnar ad vera í sól og 25-30 stiga hita hvar sem vid komum í 20 daga, en tegar vid komum til Svenju byrjadi ad rigna. Tad er reyndar ekki rigning í dag og ég vona bara ad tad haldist svoleidis.
Já, vid erum líka búnar ad laera alveg helling hérna hjá Svenju... Á tridjudagskvöldid laerdum vid ad pissa í bleikan kamar tar sem er ekki haegt ad sturta nidur (hjá nyja húsinu teirra Svenju og Achims). Í fyrradag laerdum vid svo hvernig hljólreidamenn í keppnum eins og Tour de France pissa. Heyrdum tad sko í útvarpinu í svona taetti tar sem fólk getur hringt inn og spurt ad hverju sem er og útvarpsmadurinn reynir ad svara öllum spurningum. Svo í dýragardinum í gaer sáum vid hvernig apar pissa á fólk sem er ekki ad fylgjast nógu vel med... ;) Sáum apana reyndar líka stela fatapoka frá konu, en hún nádi honum aftur...
Tad er semsagt búid ad vera baedi fródlegt, skemmtilegt og dáldid haettulegt ad vera hjá Svenju. Nú er bara spurning hvad gerist tegar vid komum til Ilku í kkvöld... ;)

miðvikudagur, júlí 02, 2003
Komum til Svenju i gaerkvold, beint i reisugillid hja teim... Tad var rosa gaman ad sja husid sem tau eru ad byggja, tad verdur rosa flott :)
Er lika buin ad komast ad tvi ad tad eru ekki allir kettir vinir minir... Svenja og Achim eiga sko tvo ketti. Annar er ordinn vinur minn en hinn er ekki alveg sattur... er buinn ad merkja mig med stael... vaknadi i nott vid tad ad hann stokk framan i mig... ;)