sunnudagur, ágúst 31, 2003
Var að koma úr afslöppunarafmælissumarbústaðaferð... Átti alveg orðið skilið góðan mat, ammæliskökur, afslöppun, ótakmarkaða legu í heitum potti og að hitta endalaust af ættingjum sem er misjafnlega langt síðan maður hefur hitt... ;) Rosalega notaleg og skemmtileg helgi!
Er alltaf að læra eitthvað nýtt... Hefur annars einhver heyrt um KRAFT-syndrom? Er að vissu leiti soldið skemmtilegur sjúkdómur...
Vá, langt síðan ég hef planað helgi með svona löngum fyrirvara. Er búin að bóka næstu helgi sko... Ætla sko að skella mér til Keflavíkur á Ljósanótt! Það verður flott sko... vonandi...

fimmtudagur, ágúst 28, 2003
Ég er svoooooo dugleg!
Dauðþreytt eftir daginn dreif ég mig í yoga og svo í sund beint eftir kvöldmatinn. Synti reyndar ekki í þetta sinn... en þau eiga eftir að verða fleiri... Fjárfesti sko í afsláttarkorti í sund! Ákvað líka í dag að láta Atla frænda bjóða mér á áframhaldandi yoganámskeið í september... við erum sko rosa góðir vinir núna, við Atli... enda er hann minn helsti sponsor þessa dagana... ;)
Verð bara að monta mig meira fyrst ég er byrjuð á annað borð...
-er ekkert kók búin að drekka síðan á sunnudag (ekki lítið afrek...)!
-á morgun eru 11 vikur síðan ég hætti að naga neglurnar (ekki slæmt þar sem fyrra met var ca. 6 vikur)!
Sólveig með flotta takta í gærkvöldi... alræmdur "bonecollector" sko... ;) Gerði sko heiðarlega tilraun til að drepa sig á fiskibeini... Mætti halda að hún væri skyld mér... ;) hmmmm....

miðvikudagur, ágúst 27, 2003
Vá
tilraun ÞRJÚ til að setja eitthvað inn hérna á rúmum hálftíma... Mamma var sko að elda á ónýtu hellunni og sló út rafmagninu, ekki einu sinni heldur TVISVAR!!! Bætti það upp að hún var að elda fisk og kakósúpu... ;)
Allir mjög uppteknir þessa dagana og nánast slegist um að elda ekki... Pálína búin að leysa vandann fyrir okkur og fyrir Birnu í leiðinni... Birna vill sko að við tökum annan köttinn sem hún er með og ég vil það líka. Mamma vill það aftur á móti ekki, aðallega held ég því það er aldrei neinn heima... Og af því það er aldrei neinn heima eru matartímar soldið vandamál... En Pálína benti okkur á að fá okkur bara au-pair! Skemmtileg hugmynd, sérstaklega þar sem þá væri einhver heima til að hugsa um kött... ;) Ekki samt vinsælt að ræða þetta við mömmu...

þriðjudagur, ágúst 26, 2003
Jæja, þá er fyrsti kennsludagurinn afstaðinn! Held svei mér þá að ég sé bara hetja... Komst allavega lifandi frá þessu öllu saman án teljandi vandræða... Finn það samt núna þegar ég er komin heim og farin að slaka aðeins á hversu örmagna ég er eftir daginn. Get samt ekki leyft mér að gera eins og þegar ég vann á leikskólanum því ég á eftir að fara út í búð og elda matinn... Maður verður víst að reyna að sýna smá húsmæðratakta öðru hvoru... ;)
sunnudagur, ágúst 24, 2003
hæ hó, hæ hó, ég hef nú fengið nóg...
...það sem maður gerir ekki fyrir peninga... Steikti hamborgara í 22 og hálfan tíma um helgina! Hef ekki gert það í 4 ár en það var samt eins og ég hefði bara verið þarna alltaf... ;) En úthaldið kannski samt ekki það sama... er dauð í löppunum, að labba um hálfa evrópu var sko pís of keik miðað við þessa helgi! Mæti þokkalega fersk í skólann á morgun... ;)
Gerði heiðarlega tilraun í gær til að fjármagna íbúðakaup! Fjárfesti í lottómiða...en það virkaði ekki... Er semsagt ekki að fara að kaupa hús á morgun... En það mátti reyna!

fimmtudagur, ágúst 21, 2003
LOKSINS LOKSINS koma interrailmyndirnar sem ég er búin að vera á leiðinni að setja inn síðan ég veit ekki hvenær...
Fjárfesti í Lykla-Pétri í dag þannig að ég þorði loksins að fara að nota tölvuna mína... Átti alveg 17 pósta, þar af 12 sem innihéldu vírusinn! En ég opnaði auðvitað ekkert þá pósta sko, ég er ekki alveg græn... held ég...
Er annars lítið búin að gera síðustu daga nema vinna og sofa, sleppti meira að segja joga í dag! Shame on me...

sunnudagur, ágúst 17, 2003
Ekki fiskur í matinn í kvöld... damn... Sit með sveittan skallann og hamast við að reyna að setja eitthvað niður á blað til að létta aðeins á næstu viku. Það verður víst samt nóg að gera, bæði í vinnunni og skólanum. Fannst reyndar soldið fyndið að skipta yfir í fjarnám... Hafði ekki mikið álit á tölvukerfi KHÍ áður, en það batnaði sko ekki við að fara í fjarnámið... Kerfið allt í rúst og heimasvæði kennaranna lokuð svo þeir geta ekki sótt námsefnið okkar... Voða gaman... ;)
Fór á menningar"nótt" í gær. Plampaði með mömmu um allan bæ, voða menningarlegar í höfuðborginni. Fórum svo á tónleikana á hafnarbakkanum þar sem var endalaust fólk! Svo byrjaði flugeldasýningin og við vorum alveg sammála um að hún væri bara prump á við áramótasýninguna í Hveragerði... En það rættist nú heldur betur úr og hún var bara flott! Tróðumst svo í gegnum mannhafið borgina nánast á enda til að komast í bílinn sem við héldum að við hefðum lagt á hentugum stað til að komast burtu án vandræða. Þar skjátlaðist okkur... Þurftum að byrja á því að taka u-beygju útúr stæðinu því það var allsstaðar búið að leggja bílum þannig að göturnar voru orðnar einstefnugötur. Svo var bara að sýna hörku og gefa ekkert eftir til að komast eitthvað áfram... Það tók t.d. rúman hálftíma að komast út úr stæðinu og um 100 metra áfram! En það hafðist nú á endanum og við komumst heim seint og um síðir...

föstudagur, ágúst 15, 2003
Ég er meistari!!!!! Held kannski að fiskurinn í gær hafi kannski haft eitthvað að segja... Tókst að búa til myndaalbúm og setja það inn á síðuna, alveg sjálf!!!
Púff, held ég verði að fara að borða fisk tvisvar í viku svo ég verði gáfaðri... Búin að fara tvo daga í skólann og verkefnin hlaðast upp. Skóli aftur á morgun en svo ekki meir í bili. Bætast samt örugglega fleiri verkefni við á morgun... Vinnan svo á mánudag, enn meira að gera. Er orðin drullustressuð yfir þessu öllu saman. Reyni samt Pollýönnuaðferðina: þetta getur ekki orðið verra en fullt nám í dagskóla + 4 vinnur...
Fann soldið skemmtilega síðu um daginn. Einhver töffari að dissa þekkta bloggara með því að reyna að verða vinsælasti bloggari landsins á 2 vikum... Flott framtak að mínu mati!

fimmtudagur, ágúst 14, 2003
Brrrrr... Byrjaði aftur í skólanum í dag. Held að það sé ástæðan fyrir þessu ömurlega haustveðri hérna núna... Ekki samt skamma mig, það voru líka fleiri að byrja í skólanum... ;)
Gærdagurinn var eitthvað skrýtinn. Það gerðist svo mikið sem ég þurfti að segja frá að ég gleymdi að skrifa um alla strákana sem voru berir að ofan að vinna í Lækjargötunni... Þeir virtust reyndar frekar niðursokknir í vinnuna, allavega tóku þeir ekki eftir þessum tveimur beibum sem löbbuðu þarna framhjá þeim aftur og aftur...
En já, skrýtinn dagur. Tölvan þeirra mömmu og pabba fór að haga sér vægast sagt undarlega... Hún semsagt slökkti alltaf á sér þegar við reyndum að ræsa hana. Ræstum út tölvukall sem lagaði hana eitthvað. Fór svo með mömmu um hálfa Reykjavík í dag í leit að Lyklapétri sem virðist vera mjög vinsæll þessa dagana... Jæja, þegar við sáum fram á það að komast ekki í tölvuna (mömmu og pabba) var ákveðið að horfa á Hafið (Hilmi Snæ sko...) í mínu sjónvarpi. Komumst þá að því, okkur til mikillar skelfingar, að það bara kviknaði ekki á tækinu sama hvað við reyndum. Var frekar fúl enda tækið ekki nema 18 mánaða. Fór með það í viðgerð í morgun og frétti þá að þetta væri örugglega bara öryggi, það væri frekar algengt í þessum tækjum... Takk fyrir að segja mér það núna...

miðvikudagur, ágúst 13, 2003
Ég fór í túristatripp í dag. Anette, pennavinkona Sólveigar og pabbi hennar voru í heimsókn og við tókum þau í almennilegt túristatrítment... Reyndar voru þau líka dugleg að tríta okkur, en það er önnur saga.
Byrjuðum í Bláa lóninu þar sem við græddum 2400 krónur því við áttum svona 2 fyrir 1 miða. Já, það kostar sko orðið 1200 kall í lónið!!! Eins gott að við fengum bjútítrítment í góða veðrinu, mökuðum á okkur kísilnum eins og okkur væri borgað fyrir það (en reyndar vorum það við sem borguðum...) og komumst að því að bragðið er eiginlega verra en lyktin... Jæja, feðginin buðu okkur í mat á veitingastaðnum þarna, mmmmm... rosa gott.
Næsta stopp Hafnarfjörður. Skildi þau þrjú eftir hjá Fjörukránni á meðan ég tók bensín...
Áfram í Perluna þar sem sögusýningin var skoðuð. Var reyndar búin að heyra rosa gott af henni en bjóst samt ekki við því sem ég sá. Hún var hreint út sagt frábær!!! Fólkið var svo raunverulegt að ég stóð sjálfa mig oftar en einu sinni að því að standa frosin og góna á kallana, bíðandi eftir því að þeir hreyfðu sig... En allavega þá mæli ég með sögusýningunni í Perlunni!
Túristaferð í Kringluna næst á dagskrá. Hópferð í Islandica, Bónus (íslenskt nammi auðvitað...) og Skífuna (íslensk tónlist auðvitað...). Fjárfesti í Hafinu, verst að typpið á Hilmi Snæ er líklega ekki í sömu stærð í sjónvarpinu eins og það var í bíóinu... ;)
Skiluðum svo túristunum okkar á "Sjóminnilið Órkin" og röltum eftir það tvær niðrí bæ í góða veðrinu. Langaði allt í einu að setjast niður á Austurvelli eins og allir hinir og fá okkur Kjörís. Komumst þá að því, okkur til mikillar skelfingar, að það virðist aðeins vera ein búlla í miðbænum sem selur Kjörís! Eftir vettvangsferð þangað ákváðum við að okkur langaði ekki lengur í Kjörís á Austurvelli... Enduðum á því að fara í Álfheimaísbúðina í Fákafeninu... Það er sko hin eina sanna Álfheimaísbúð!
Þetta var semsagt síðasti sumarfrísdagurinn minn :( Byrja í skólanum í fyrramálið og svo að vinna á mánudaginn. Er frekar stressuð yfir þessu öllu saman... Vona bara það besta ;)

mánudagur, ágúst 11, 2003
Skrapp í bæinn í dag. Fór reyndar fýluferð niðrí miðbæ en reddaði því samt. Fór í staðinn og skoðaði myndasýninguna á Austurvelli. Sé ekki eftir einum og hálfum tíma þar... Myndirnar eru hreint út sagt ótrúlega stórkostlegar! Hefði getað eytt enn lengri tíma þarna en þurfti að huga að stöðumælamálum... Langaði ekki að fá aftur tvær sektir á sama bílinn í sama stæðinu sama daginn...
Finnst samt frekar fúlt að einhver fífl útí bæ séu ástæðan fyrir því að það var búið að taka niður nokkrar af myndunum. Skamm skamm!!!
Ég er hetja! Ég háði áðan hetjulegan bardaga við kónguló sem hafði algjörlega óumbeðin búið vel um sig í stofunni hjá mér. Auðvitað endaði bardaginn með sigri ryksugunnar undir ótrúlega styrkri stjórn minni... Er samt ekki enn búin að hafa mig í að kanna aðstæður þarna inni... Langar mest til að loka öllum gluggum fram á haust... En það virkar víst ekki svoleiðis... En allavega, þá er ég hetja!!!

sunnudagur, ágúst 10, 2003
Fór á ball í gær. Ekki hægt að sleppa Sálinni á Selfossi... Var að rifja upp hvenær ég fór síðast á djammið, komst að því að síðasta djamm (er samt búin að gera eitthvað í millitíðinni þó ég kalli það ekki djamm) var einmitt Sálin á Gauknum í mars... Það var semsagt kominn tími til að endurtaka leikinn... Drakk mínar 3 áfengiseiningar (nú er er ég farin að hljóma eins og Bridget Jones...), plús rauðvín með matnum. Það hefði örugglega farið að leka út um gatið á maganum ef ég hefði fengið eitthvað meir... eða ekki... ;) Annars var bara mikið stuð. Hef reyndar á tilfinningunni að fólk hafi haldið að bakið á mér væri eitthvað skotmark, en ég var hætt að telja fljúgandi flöskur, dósir og glös sem lentu aftan á mér með tilheyrandi skvettum og sulli, mér til mikillar gleði... eða ekki... En Sálin stendur alltaf fyrir sínu!
Fletti mogganum áðan. Er farin að halda að Víkverji sé andlega skyldur mér... Talaði í dag um hundruðir kóngulóa sem eru búnar að koma sér vel fyrir utan á húsinu hans, honum til ómældrar ánægju... eða ekki... Hann gekk reyndar lengra en ég og gerði smá tilraun til að sjá hvað kóngulær og vefir þeirra eru sterkir...

föstudagur, ágúst 08, 2003
Átti svona týpískt Sigrúnarmóment áðan... Þetta var sko ekta svona "þetta getur bara komið fyrir Sigrúnu og engan annan" atriði... Ég semsagt meiddi mig aðeins - en það var alveg óvart sko... Ég nefnilega stakk mig í magann með bréfahníf... alveg óvart. Ég var sko að nota hann og missti hann svo en þegar ég ætlaði að grípa hann rak ég hendina í skaftið svo oddurinn stakkst í magann... ég endurtek - þetta var óvart! Mamma spurði hvort það hefði komið gat. Það er bara lítið... Sólveig spurði þá hvort ég hefði verið að reyna að tappa af og minnka bumbuna... Ég var ekki að reyna það! Þetta var óvart! Svo er bumban líka ennþá jafn stór...
Var að vafra á veraldarvefnum og rakst þá á þessa síðu. Held svei mér þá að hér sé komin ástæðan fyrir því að ég er enn ólofuð... Eða hvað?
fimmtudagur, ágúst 07, 2003
Ég bý í kóngulóahúsi. Það eru allavega óteljandi kóngulær utaná því. Mér er illa við kóngulær. Þær eru mín versta martröð. Það var meira að segja eiginlega útaf kónguló sem ég drap mig næstum því við að tengja loftljósið um daginn. Það er svo mikið af kónglóm utan á húsinu að ég er farin að taka tilhlaup inn og út úr því... Samt vill pabbi ekki eitra. Hann segir nefnilega að þá komi flugur. Skítt með nokkrar flugur. Þær eru í kring um mig hvort sem það eru kóngulær eða ekki. Hann segir að ef ég vilji að það verði eitrað fyrir kóngulónum geti ég gert það sjálf. Ég kem ekki nálægt þessum kvikindum. Þannig að það er enn fullt af kóngulóm utan á húsinu... Býður sig einhver fram í eitrun?
Fékk mér brauð með Nutella í morgunmat. Fletti Mogganum í leiðinni. Rakst á Víkverja í miðju súkkulaðiátinu. Fannst það mjög fyndið því hann var einmitt að tala um súkkulaði. Samkvæmt honum eru bara til tvær gerðir af fólki - þeir sem borða súkkulaði og þeir sem geyma súkkulaði... Hann segist borða súkkulaði, það sé tilgangslaust að geyma það til betri tíma, t.d. ef það koma gestir... Það sé aldrei svo langt í næstu sjoppu til að kaupa meira súkkulaði ef það koma óvænt gestir... Ég er að vissu leyti sammála Víkverja og að vissu leyti ósammála honum. Ég borða súkkulaði. En ég geymi líka súkkulaði. Mér finnst nefnilega vissara að eiga alltaf til nóg súkkulaði til að borða NÚNA...
Fékk bréf í póstinum áðan. Frá tryggingunum. Þeir voru svo vinsamlegir að tilkynna mér að fartölvutryggingin mín félli úr gildi um næstu mánaðamót... Tölvan mín er nefnilega sko úrelt samkvæmt einhverjum stöðlum... Mér finnst að þegar maður fær tilkynningu um að tölvan manns sé úrelt eigi maður að fá nýja...
Annars er ég búin að fá fleiri skrýtin bréf undanfarið. Skrýtna launaseðla sem ég skil ekki alveg og er ekki viss um að séu réttir... Þarf að tékka á því. Fékk líka ljótan álagningarseðil sem segir að ég skuldi 93 þúsund. Langaði mest til að láta hann hverfa í ruslið... Held samt að það virki ekki þannig... Því miður...

miðvikudagur, ágúst 06, 2003
sætir strákar - júhúúúú!!!
Er aftur á bókasafninu og aftur búin að sökkva mér í lestur tímarita. Fann mjög athyglisverða grein í Mannlífi. Þar veltir Auður Haralds m.a. fyrir sér hvernig sætur strákur líti út og hvort sætir strákar séu heimskari en ófríðir strákar... Mjög skemmtileg lesning semsagt...;) Hún kemst líka að því að of sætir strákar eru einnota og að "stelpur vilja sæta stráka en þær giftast þessum góðu".
Endirinn finnst mér samt eiginlega bestur, en þar segir:
"Það fyrsta sem flestar nefndu þegar þær áttu að lýsa útliti sætra stráka voru augun. Falleg augu, lifandi augu, neistandi augu, blik í auga, með glampa í augunum. Spegill sálarinnar, augun. Er ekki rétt að minna á að þau geta líka verið greindarleg?
Jafnréttið fyrir öllu; að síðustu spurði ég nokkra unga menn hvernig sætur strákur væri. Meira en helmingur þeirra svaraði: Svona eins og ég! Enginn þeirra fengi fyrirsætustarf. Allir þeirra fengju kvöldverð og morgunverð og aftur kvöldverð. Þeir voru brosandi glaðir með glampa í auga og gátu hlegið að sjálfum sér. Öllum fannst sjálfsagt að gera eitthvað fyrir útlitið, bara engar öfgar og umfram allt að vera maður sjálfur.
Gildin hafa ekkert breyst. Það er ekki líkamsræktin, heldur sjálfsræktin sem skilar vinsældunum. Líkamsræktin fæst svo meðfram þegar matur er borinn heim, þvottur þveginn og börn jafnhent."
Er búin að spá soldið í þetta og finnst mjög mikið til í því sem hún segir þarna. Útlitið er nefnilega ekki aðal málið þó það virðist skipta máli samkvæmt þessari kenningu sem sett hefur verið fram um fallegt fólk... "Það hefur meiri möguleika á að verða gott af því að það mætir stöðugt betra viðmóti en ófríðir".
"Þegar við hittum nýjan einstakling metum við hann á sekúndubroti. Matið er framið með eðlisviðbrögðum en ekki hugsun. Þess vegna virðist falleg manneskja geðugri og við sýnum henni/honum samstundis vinalegt viðmót. Ófríða manneskjan þarf að sanna sig áður en við skrúfum frá vinsemdinni og það getur tekið allt frá 15 sekúndum upp í 15 daga, allt eftir hversu geðug manneskjan er og hvað hindranir innra með okkur eru stórar".
Mér finnst svo mikið til í þessu, ég vildi helst setja alla greinina hérna inn... en það er hægt að lesa hana í júlíhefti Mannlífs 2003!!! Og ég mæli eindregið með því!!!

þriðjudagur, ágúst 05, 2003
Ég er bókaormur.
Er að vinna á bólasafninu í dag og finnst það bara fínt. Var reyndar einu sinni að spá í að fara í bókasafnsfræðina í háskólanum... en það var bara eitt af mörgu sem ég var að spá í að gera... Svo gerði ég bara það eina sem ég var búin að ákveða að gera ekki... Nefnilega sko að verða kennari... ;)
En allavega, ég fann mjög skemmtilegt tímarit hérna... Vera. Er búin að sitja frosin yfir mjög skemmtilegri og fróðlegri grein um blogg! Þar er fjallað um mismunandi tegundir bloggs, karla- kvenna- og unglingablogg, af hverju fólk bloggar og hvers vegna konur lesa blogg...
Þessi grein fékk mig soldið til að hugsa... Nefnlega þegar ég byrjaði að blogga þá var ég ekkert viss um að þetta ætti aftir að virka. Ég meina, ég er ekki þessi týpa sem hefur þörf á að tjá sig opinberlega á netinu. Punktur. Svo bara gerðist eitthvað, ég veit ekki enn hvað, en allt í einu var ég farin að blogga upp á hvern dag og fannst hræðilegt ef ég komst ekki í tölvu einhvern daginn.
Fatta þetta ekki ennþá...
Blogga samt ennþá...

mánudagur, ágúst 04, 2003
Jæja, long time no see...
Fór til Súðavíkur með familíunni á miðvikudaginn. Við vorum rosa dugleg og það er núna búið að setja nýtt gólf á næstum alla neðri hæðina, við gerðum algjörlega nýtt eldhús og svo var líka málað helling, bæði uppi og niðri. Held að þetta séu alveg sko metafköst miðað við þennan stutta tíma sem við höfðum í þetta... En það var nú líka sko alveg kominn tími á að gera eitthvað þarna...
Flaug heim í gærmorgun (á undan öllum hinum). Soffía Helga sótti mig á flugvöllinn og ég fór heim með þeim. Þar lágum við í makindum okkar í sólbaði þangað til Sólveig kom og sótti mig. Ég var orðin svo þreytt þegar við komum hingað heim að ég fór að sofa í staðinn fyriri að fara með stelpunum í sund... letibykkja... En þær komu svo aftur í gærkvöld og við grilluðum saman og sötruðum bjór og spiluðum teiknispilið, geðveikt stuð sko... Það besta var að við Rakel unnum... ég vil meina að það hafi verið vegna þess að ég er svo dugleg að lesa orðabækur áður en ég fer að sofa sko... ;) Ég meina, það tók mig ekki nema 3 sekúndur að fatta "vafningsjurt"... En það var allavega rosa stuð hjá okkur... Stelpurnar fóru svo frekar snemma heim og þá bjó ég um svefnsófann í "stofunni minni" og við Sólveig enduðum kvöldið þar að glápa á vídeó... er einmitt á leiðinni þangað aftur því ég fann Simpsons spólur sem ég er ekki búin að sjá lengi...
Mig er eiginlega farið að klæja soldið í puttana þessa dagana... allt að fyllast af börnum í kringum mig... Stebbi bróðir fékk aðra stelpu á þriðjudaginn og svo í gær fékk systir hennar mömmu lítinn strák...
En jæja, Hómer og fjölskylda bíða...