<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, september 29, 2003

Jamm, veit að ég er búin að vera löt... Hef bara ekki haft snefil af orku undanfarið. Er búin að vera að druslast á hálfum afköstum í vinnunni alltof lengi og þegar ég kom heim á föstudaginn var ég bara búin með kvótann og svaf í tvo og hálfan tíma! Er svo ekki búin að gera neitt nema snýta mér, hósta og hnerra síðan þá... Jú annars, ég fór með familíunni í leikhús á laugardagskvöldið! Fórum að sjá Með fulla vasa af grjóti. Hreint út sagt frábært stykki!!! Stefán Karl og Hilmir Snær fóru svo sannarlega á kostum, ótrúlegt hvernig þeir hoppuðu bara úr einu hlutverki í annað með stæl! Átti samt soldið bágt undir lokin (byrjaði sko í voða dramatískri senu þar sem hefði mátt saumnál detta)... Allt í einu byrjaði sko stöðugt nefrennsli og hnerrar svo ég var í fullri vinnu við að sjúga upp í nefið og bæla niður hnerra... ;) Samt bara gaman að þessu sko ;) Lá svo í rúminu í gær og missti af skírninni hjá Elísabetu og Gunna. Frekar fúlt en maður fær víst ekki allt sem maður vill...

mánudagur, september 22, 2003

Jæja, daman loksins að lifna við...
Byrjuð aftur í yoga af fullum krafti...loksins...
Er líka að taka mig á í heimilisstörfunum...viðurkenni alveg að það var löngu kominn tími á það... :/ Bakaði í gær "veiðikökuna" mína frægu við mikinn fögnuð heimilismanna! Fann í leiðinni uppskriftina að góðu tómatpastahvítvínssúpunni sem ég verð nú bara að fara elda...
Hef þetta ekki lengra í kvöld, þarf að skella mér í pönnukökubakstur!!!

laugardagur, september 20, 2003

Home sweet home...
Viðburðaríkir dagar að baki. Kenndi á fimmtudagsmorguninn til kl.11, þá var hlaupið upp í rútu sem fór með okkur í Herjólf. Þegar til Eyja var komið höfðum við rétt tíma til að henda töskunum upp á gistiheimili áður en við áttum að vera mætt í Höllina þar sem beið okkar kaffi og allt of langur fyrirlestur... Höfðum svo smá frítíma en áttum að vera mætt aftur í Höllina kl. hálf níu. Biðum í hálftíma eftir rútunni þangað um kvöldið og gáfumst þá nokkrar upp og löbbuðum á staðinn! 2 mínútum eftir að við mættum uppeftir birtist svo auðvitað rútan með alla hina... Fengum gott að borða og gott að drekka, léleg skemmtiatriði en skemmtilegt ball. Fór reyndar snemma "heim", sem betur fer... Í gærmorgun komst ég nefnilega að því á óskemmtilegan hátt að það er ekki gáfulegt að blanda saman bjor og hvítvíni, borða seint og fara að sofa áður en almennilega er runnið af manni... Lék samt hetju og mætti á allt sem ég átti að mæta á!!! Herjólfsferðin heim í gær var samt frekar döpur... Aðeins of mikill öldugangur fyrir veikan maga... Er samt hetja því ég ældi ekki!!! Skemmtileg og fróðleg ferð, en var samt MJÖG glöð þegar ég kom heim, því heima er best!!!

miðvikudagur, september 17, 2003

Aaaaaaaaaaaaaahhhhhhhh
Mikið var gott að fara aftur í yoga, bjargaði alveg deginum! Var reyndar næstum búin að ákveða að fara bara ekkert meir í yoga því ég hef ekki komist svo lengi... en ég vil meina að örlögin hafi tekið í taumana... Já, það er margt búið að "ske" síðustu daga...
Var í þessu líka sólskinsskapi þegar ég kom heim úr vinnunni í gær. Fékk þá póstinn minn og skapið flaug langt út um gluggann... Var að því komin að pakka mér inn í sæng í sófanum og gera ekki neitt allt kvöldið þegar mamma ákvað eiginlega að draga mig með á Selfoss. Ég keyrði semsagt mömmu í einhvern leshring eða eitthvað á Selfossi og fór og heimsótti Dóru Hönnu á meðan. Spjölluðum helling, meðal annars um yoga og ég sagði henni að ég héldi að ég kæmi bara ekkert meir. Fór svo og sótti mömmu, sem var ekki alveg tilbúin að fara heim svo mér var boðið þarna inn. Þar hitti ég svo enga aðra en yogakennarann! Svo það fór þannig að eftir erfiðan dag mætti ég í yoga í dag og keypti mér kortið sem ég ætlaði að kaupa fyrir hálfum mánuði...
Meiri örlög (eða forlög eða hvað sem þetta getur kallast)... Var í gær að hugsa um stelpurnar sem ég kynntist í Belgíu fyrir 3 árum og ákvað að ég yrði nú að fara að hafa samband við þær... Svo kemur pósturinn í dag og með honum bréf frá einni þeirra! Ótrúlegt... Hafði reyndar enga trú á einhverju svona forlaga/örlaga/sjá fyrir/einhverju dóti þangað til Axel fæddist í nóvember í fyrra... Þá sá ég að það hlyti eitthvað svona að vera til. Var búin að vera á flakki með Soffíu Helgu í heilan dag og vaknaði svo morguninn eftir sömu mínútu og Axel fæddist, án þess að vita að Soffía væri komin á fæðingadeildina...
Spurning bara hvort það gerist eitthvað svona skemmtilegt í Eyjum á morgun???

sunnudagur, september 14, 2003

Ég er best! Best, best, best!!!
Búin að sitja með sveittan skallann (get reyndar ekki kallað þetta skalla því hárið sprettur sem aldrei fyrr og löngu kominn tími á klippingu...) í allan dag við að læra!!! Já, búin að eyða heilum sunnudegi við saumavélina og í allskonar útsaum og læti!!! Svo fékk mamma reyndar flog þegar hún gekk hérna framhjá mér áðan en ég sit fyrir framan tölvuna og sauma út á meðan ég vafra á netinu!!! Já, nú er sko gott að ég er ekki karlmaður... ;) Komst reyndar að því í hamaganginum í dag að húsið hérna er of stórt fyrir mig... Nefnilega þegar ég bjó í bænum og mikið gekk á hjá mér var ég með margar vinnustöðvar í gangi... Saumavélin á eldhúsborðinu, útsaumur á stofuborðinu, prjónarnir við hliðina á sófanum og skurðarmottan og hnífurinn á gólfinu. Svo þurfti ég bara að færa mig um einn rass og þá var ég komin á næsta vinnusvæði!!! Mjög þægilegt þegar mikið liggur við... ;) En allavega, í dag komst ég að því að ef ég ætla að koma mér upp svona vinnusvæðum hér þarf ég að dreifa þeim um stærra svæði og þar með að ganga smá spotta á milli þeirra (nú hljómar þetta eins og ég búi í 500 fermetra villu eða eitthvað...), þannig að núna sit ég á hjólastól við stóra borðið í holinu og renni mér á milli tölvunnar og saumavélarinnar og hef útsauminn í fanginu!

Vestmannaeyjar here I come!!! Er að fara með mömmu til eyja! Reyndar líka hinum kennurunum... en fannst bara skemmtilegt að segja að ég væri að fara með mömmu... ;) Hef ekki komið þangað síðan ég fór á Þjóðhátíðina frægu 2000... Kominn tími til að kíkja aftur... ;)

laugardagur, september 13, 2003

Mmmmmmmmmmmmmm
Mikið er notalegt að vera ein heima og gera ekki neitt... Ætti reyndar að vera að gera eitthvað annað en ekki neitt... En það má alltaf gera það seinna... Ég meina, það er ekki á hverjum degi sem ég er ein heima og hef frið til að gera ekki neitt... ;)
Er að fara í leikhús bráðum. Hlakka ekki lítið til. Ætlum að sjá Með fulla vasa af grjóti, búin að langa lengi að fara... náum svo síðustu sýningunni!
Er ekki nammidagur í dag? Ætla allavega að skreppa og kaupa mér kók (ég á sko enn fullt af fríhafnar- og útlandanammi...) í tilefni dagsins...

miðvikudagur, september 10, 2003

Jæja...
Búin að vera voðalega eitthvað drusluleg síðustu daga, rétt svo meikað daginn í vinnunni og varla haft orku til að koma mér heim... Semsagt nánast ekkert annað gert alla vikuna en að vinna og sofa... Samt búin að rusla af allskonar tittlingaskít sem ég ég er búin að vera að ýta á undan mér allt of lengi... Er t.d. loksins búin að ganga frá þessum blessaða skatti sem ég er búin að vera að trassa að borga... Líka búin að rífast soldið í Orkuveitunni og BN, verst bara að ég veit ekki hver býr í íbúðinni "minni" og er ekki búin/nn að borga rafmagnsreikninginn minn ennþá... Hefði gjarnan viljað eiga nokkur orð við þá manneskju! Líka búin að lufsast í bæinn og klára hópverkefnið fyrir skólann, húrra fyrir því!!!
Fór til Önnu um helgina, á Ljósanótt sko. Var rosa gaman þó að djammið hafi ekki orðið eins brjálað og það átti að verða... ;) Hitti fullt af fólki og sá þriðju flugeldasýninguna á ca. mánuði...
Jæja, hef ekkert fleira að segja, enda eiginlega bara búin að vinna og sofa síðan síðast...

föstudagur, september 05, 2003

Kræst!!!
Þetta er ekki einleikið!
Var búin að ausa úr skálum reiði minnar hér en þegar ég ætlaði að publisha fór allt í steik og það týndist allt!!! Það var eins og þetta hefði verið ritskoðað og ekki talið hæft til birtingar... ;)
Þá er það bara tilraun tvö!
Stytt útgáfa af ævintýalegum samskiptum milli mín, Orkuveitu Reykjavíkur og Byggingafélags námsmanna:
Fékk semsagt bréf í dag. Frá "vinum mínum" í Orkuveitu Reykjavíkur en það er ýmislegt búið að ganga á í okkar samskiptum. Þeir voru svo vinsamlegir að tilkynna mér að ég ætti enn ógreiddan orkureikning fyrir júlímánuð og ef hann yrði ekki greiddur fyrir 6. október verði hann sendur í lögfræðing! Málið er bara það að ég flutti út úr íbúðinni um miðjan júní og á því ekki að borga orkureikning fyrir júlí... BN á reyndar ekki minni þátt í þessu ævintýri því það voru þeirra mistök sem urðu til þess að ég fékk reikninginn í upphafi og þeir gátu ekki gubbað út úr sér ástæðunni fyrir eftir dúk og disk. Ég hélt svo að málið hefði endað fyrir um mánuði síðan þegar ég fór með þennan blessaða reikning á skrifstofu BN, en þeir ætluðu að sjá um að hann yrði greiddur. Þarmeð hélt ég að ég væri laus allra mála. En neeiiiii, það var greinilega ekki svo einfalt... Sumir voru bara heppnir að ég fékk þetta innheimtubréf ekki fyrr en eftir lokun í dag og þessir sumir fá líka rækilega að heyra það á mánudaginn!!! Því það eru jú takmörk fyrir öllu en þetta mál er fyrir löngu síðan komið langt útfyrir allt svoleiðis!!!

Annars bíður mín blaut og ævintýraleg helgi á Ljósanótt í Reykjanesbæ með flugeldasýningu, pottarauðvíni og fríhafnarbjór... ;)

miðvikudagur, september 03, 2003

Long time no "see"...
Er ekki í sambandi þessa dagana, er farin að halda að ég sé komin með KRAFT-syndrom... Kem heim gleymi öllu sem ég ætla að gera í skólanum og ekki að kenna. Kem svo heim og fer beint að sofa, úrvinda eftir daginn, og gleymi svo í þokkabót þegar ég kem heim að gera það sem ég gleymdi að gera í skólanum... Vona bara að þetta lagist með tímanum... ;)
Annars halda sumir krakkarnir að ég sé göldrótt... Vann sko á leikskólanum fyrir nokkrum árum og þekki þannig fullt af krökkum í skólanum. En þau virðast nú samt ekki muna mjög vel eftir mér...hehe...
Vandræðin í sambandi við vettvangsnámið mitt virðast nú eitthvað vera að leysast, sem betur fer! Fæ líklegast að kenna hérna heima ef ég tek áheyrn í einhverjum öðrum skóla. Hefði reyndar viljað hafa þetta bara hefðbundið vettvangsnám útí bæ eins og ef ég hefði verið áfram í staðnámi, en það er erfitt að hlaupa burtu í 5 vikur þegar maður er búinn að ráða sig í kennslu...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?