sunnudagur, október 26, 2003
I AM NOT A DUMMIE!
I AM THE MASTER OF THE UNIVERSE!!!
Og það er bíllinn minn líka... 11 ára gamall Hyundai Pony, keyrður yfir 226000 km og MJÖG þreyttur, fór í gegn um skoðun án athugasemda í FYRSTU tilraun! Ég bjóst nú ekki við meira en grænum miða og að greyið myndi tóra út árið, en hann leynir á sér...

laugardagur, október 25, 2003
Úbbs, búnað skemma eitthvað...
Held ég þurfi að fara að lesa um html-un í "Creating Web Pages For DUMMIES"...

Fór í leikhús í dag.
Sá Línu Langsokk!
Geðveikt gaman!!!
Sá Línu síðast fyrir svona 21 ári eða svo og fannst svo gaman að ég vildi ekki fara heim eftir sýninguna... Ætlaði bara að vera eftir og eiga heima hjá Línu!!! Held svei mér þá að það hafi bara verið alveg jafn gaman núna þó ég hafi farið sjálfviljug heim...
Sá eitt af "lömbunum mínum" í leikhúsinu. Fannst soldið sætt þegar hann pikkaði í mömmu sína og galaði "mamma mamma, þetta er saumakennarinn minn!!! Hún er að kenna okkur að prjóna!!!"
Tók aðeins til í gær. Ekki í frásögur færandi nema hvað ég fann hálfan kassa af bjór síðan í sumar... Held að það sé bara staðfesting á því að ég er alltaf að verða latari við þetta, sko bæði við bjórdrykkju og tiltekt... ;)
Og já, þvottavélin mín biður að heilsa. Hún hefur það bara gott á Tálknafirði...

föstudagur, október 24, 2003
Hmmmmm...

Say Anything...
What movie Do you Belong in?(many different outcomes!)
brought to you by Quizilla

fimmtudagur, október 23, 2003
Ég er komin í vetrarfrí!
Ég er komin í vetrarfrí!
Ég er komin í vetrarfrí!
Ég er semsagt komin í vetrarfrí... Helmingurinn af fríinu fer samt fyrir lítið því til að missa færri daga úr kennslu verð ég næstu viku (bara 3 kennsludagar hjá okkur en full vika í Hlíðaskóla) í Hlíðaskóla í áheyrn vegna vettvangsnáms. Er semsagt að fara í langt frí en samt ekki...
Svo kemur Stebbi með familíuna eftir 6 daga!!! Var að spá í að bjóðast til að elda svona namminamm kjúklingarétt í ammælismat handa Sólveigu í tilefni þess að Stebbi og Jóna verða hérna... Kannski maður skelli líka í eins og eina veiðiköku... Veit ekki, hvað finnst ykkur?

þriðjudagur, október 21, 2003
The Cookie Monster strikes again
Ég skal alltaf alltaf alltaf senda Sólveigu í búðina... Pizza í matinn og líka eftirréttur! Hún keypti sko appelsínusafa og cookies alveg eins og við borðuðum alltaf í lestunum í sumar!!! Ekki amalegt það... :)
Fékk líka góðar fréttir áðan. Auðvitað var búið að ganga frá þessum blessaða rafmagnsreikningi, OR bara "gleymdi" að draga kröfuna til baka frá lögfræðingnum...
Verð að hætta, pizzan kallar og svo líka cookies í eftirmat... smjatt smjatt...

mánudagur, október 20, 2003
Þetta er nú ekki einleikið...
Fékk hótunarbréf frá lögfræðingi í dag! Væri nú kannski ekki í frásögur færandi ef þetta væri eitthvað sem ég á að borga... Málið er rafmagnsreikningur fyrir júlí (ég flutti út í júní) sem er skráður á mig vegna mistaka hjá BN og ég er búin að standa í stappi í síðan ég fékk hann við að láta leiðrétta þetta enda á ég ekkert að borga þennan reikning. Um miðjan september var mér svo tilkynnt frá BN að það væri búið að ganga frá þessu og ég þyrfti engar áhyggjur að hafa... Var því ekki mjög glöð þegar pósturinn kom í dag... Svosem bara týpískt fyrir mig...
Hlakka annars til langrar helgar um næstu helgi, en þá er vetrarfrí!!! Jibbí!!!
Svo bara rúm vika í Stebba & Co :)

sunnudagur, október 19, 2003
Held ég þurfi að fara að hengja upp gardínuna í gula herberginu... Vil allavega ekki fá fleiri "stokkera" sem góna á mig á kvöldin...
Freyja kíkti í heimsókn og við höfðum svona vídeókvöld eins og í gamladaga og gláptum á 3 myndir!!! Þegar við vorum búnar að horfa á The Ring (síminn hringdi þegar myndin kláraðist...!) tók Freyja eftir því að það var einhver gaur að labba fram og til baka fyrir utan og glápa inn um gluggann hjá okkur. Hún var alltaf að reyna að sýna mér hann en ég missti alltaf af honum en í eitt skiptið sem ég góndi út um gluggann sá ég hann og hann greinilega mig því hann breytti um stefnu og fór yfir götuna. Stuttu seinna var Freyja aftur farin að sjá hann góna inn um gluggann og þá fór Sólveig að kíkja. Henni tókst svo að fæla hann burtu (hún getur þá bæði blikkað og fælt frá...;)) með því að benda á hann og gala að þarna væri hann!!! En ég held að gardínan verði hengd upp í dag...

föstudagur, október 17, 2003
Búin að komast að því að ég er ekki sú eina sem er óheppin eða gerir hluti sem enginn annar getur gert... Hef allavega enn ekki afrekað það að troða debetkortinu mínu meðfram bílrúðunni og missa það niður í hurðina... En nú hef ég allavega afsökun fyrir því að vera enn með kreditkortið í veskinu... nefnilega ef ég skyldi slysast til að missa debetkortið niður í hurðina...
Var svo að spá... Ætli kínverjar séu með gult hjarta???

þriðjudagur, október 14, 2003
Jæja, það er allavega einhverjum sem finnst notalegt að vera nálægt mér... Gott að vita...
Annars svosem ekkert að frétta. Bara brjálað að gera á öllum vígstöðvum en get þó huggað mig við það að ég skilaði af mér í dag verkefnum fyrir heilt námskeið!!! Þá eru bara 2+ eftir...

föstudagur, október 10, 2003
Vá, aftur komin helgi...
Finnst hafa verið mánudagur í gær...
Ótrúlegt hvað tíminn líður...
Held þetta sé aldurinn...
Ætlaði að eiga rólega helgi og sofa úr mér kvefdrusluna sem er búin að vera að trufla mig í allt haust. Stefnir ekki í það... sé fram á brjálaða verkefnavinnu. Skólinn búinn að sitja á hakanum því ég hef rétt haft orku til að druslast í vinnuna. Punktur. En fyrst maður verður að setja í rallígírinn á annað borð er alveg hægt að gera það með stæl og reyna að láta líta út fyrir að það búi einhver hérna... kominn tími á það líka...
Annars verð ég einhvernveginn að redda stöð 2 í kvöld... Mér varð það á um síðustu helgi að uppgötva Idol... Grenjaði mig svoleiðis máttlausa af hlátri á köflum... ;) Verð bara að halda áfram að horfa... En talandi um sjónvarp... Hvað var eiginlega málið með ER???

þriðjudagur, október 07, 2003
Damn...
Var rosa dugleg og gerði svona "cool quotes"!!! En svo virkaði það bara ekki... Reyni að koma því í gagnið á næstunni...

Vá, held ég verði að fara að koma mér upp svona "cool quote" á síðuna mína...
Kenni sko "ekki nema" ca. 170 krökkum á öllum aldri í hverri viku þannig að það er ýmislegt skemmtilegt sem ég upplifi í stofunni...
Það nýjasta var lítil stelpa sem átti að vera að sauma út en hún bara gat það ekki því hún var með svo ægilega vaxtaverki í bakinu...

sunnudagur, október 05, 2003
Held ég sé við það að setja met í að skemmta mér ekki...
Það var sko vinkonukvöld á föstudagskvöldið. Byrjaði mjög vel með kjúklingasalati, rauðvíni, rugluðu Idol og eldgamalli tónlist... ;) Það sem eftir var kvöldisins varð svo einhvernveginn frekar súrrealískt og ég endaði kl. 23:30 ein heima hjá Gunnu og Sigga þar sem ég horfði á frekar leiðinlega sjónvarpsdagskrá þangað til ég sofnaði...
Eitt gott samt, í tilefni þess að það er loksins búið að ganga frá mínum málum við OR dissuðum við (meira samt Freyja) hana... "Þetta er ömurlegt partý!!!"

fimmtudagur, október 02, 2003
Held ég sé að endurupplifa veturinn sem ég vann á leikskólanum hér um árið... Er búin að vera kvefuð síðan ég byrjaði að kenna og ég held það færist í aukana frekar en hitt... Vona samt það besta því þegar ég var á leikskólanum tók ég allar pestir sem gengu og var meira og minna veik frá september og fram í febrúar/mars... Býð ekki í annan svoleiðis vetur... Er svo líka að kenna þessum krökkum sem voru á leikskólanum þegar ég vann þar, held ég hafi sjaldan skemmt mér eins vel eins og þegar þau spjalla saman í tímum hjá mér! Það eru sko ekki lítið heimspekilegar umræður! Þau eru alveg hreint yndisleg!
Dæmi um það sem hefur komið upp í haust:
A langaði í kött. B sagðist eiga kettlinga heima. A spurði hvort hann gæti kannski fengið kettling hjá B og B játti því. A spurði hvort hann mætti kannski sækja kettlinginn strax eftir skóla. B sagði að það væri ekki hægt því þeir væru svo litlir ennþá að þeir væru ennþá blindir. C spyr, grafalvarleg, hvort hún hafi líka verið blind þegar hún var lítil...
Ég er víst með kennarahár! Þegar ég spurði hver væri eiginlega munurinn á venjulegu hári og kennarahári var svarið það að þegar kennarinn er búinn að vera að berjast við krakkana er hárið hans/hennar orðið svo úfið =kennarahár...
Hvort ætli sé verra að fá unglingaveiki eða hlaupabóluna...?