laugardagur, janúar 31, 2004
Jess, ég á vini!!! Stelpuhittingur heima hjá Gunnu í kvöld :) Verður örugglega samt bara spilað og kjaftað, en hver veit annars hvað okkur dettur í hug.. ;) Þannig að nú er bara að bruna í bæinn á eftir og hafa gaman, Gunna meira að segja búin að bjóða mér gistingu og alles, ekki amalegt það :)
Það er nú aldeilis ástandið á mér í dag... Er bara fegin að restin af familíunni skellti sér í bæinn svo ég hef höllina útaf fyrir mig og mín vandamál... Er búin að vera veik heima síðustu þrjá daga og það er ekki beint til að bæta geðheilsuna. Það er heldur ekki gott fyrir geðheilsuna að finna hvorki lykt né bragð af öðru en hori í langan tíma, jakk! Sit semsagt hérna heima með hausinn fullan af hori, túrverki og ræpu af pensilíninu og reyni að hafa það gott... Er reyndar líka að reyna að klára að tæma draslið mitt úr afaherbergi, en hann kemur einmitt á eftir. Það gengur reyndar ágætlega og búið að koma stærsta hlutanum. Ég segi bara takk takk vinir og ættingjar um allt land sem fórnið ykkur fyrir mig og mitt drasl... ;)
mánudagur, janúar 26, 2004
Bull og vitleysa!
Ég er svo reið, reið, reið, reið... Ég bara næ ekki upp í nefið á mér yfir allri þessari vitleysu!
Horfði semsagt á leikinn á sunnudaginn. Þennan þar sem Tékkar unnu Íslendinga á jafntefli á EM. Þennan sem skekur íslensku þjóðina þessa dagana. Mér fannst leikurinn reyndar vera hálfgerður skrípaleikur... veit samt ekki, kannski er það bara eðlilegt í handbolta að t.d. markvörðurinn sé rekinn útaf... veit ekki, ég er ekki svo mikið inní þessu...
En allavega, ég er ekki reið yfir frammistöðu strákanna OKKAR, heldur viðbrögðunum hérna heima. Dæmi:
Strax eftir leikinn var skipt yfir í beina útsendingu í Sjónvarpshúsinu þar sem íþróttafréttamaður sagði að þátttöku Íslendinga í EM í handbolta væri lokið og ekkert meira um það að segja. Fréttir á næsta leiti.
Mogginn í dag. Stór fyrirsögn þar sem Ólafur Stefánsson biður íslensku þjóðina afsökunar! Afsökunar á hverju segi ég. Ég meina, þeir eru bara mannlegir og það er ekki eins og himinn og jörð farist þó þeir hafi ekki komist áfram. Annað eins gerist nú hjá öðrum íþróttamönnum -og konum sem keppa fyrir Íslands hönd á mótum um allan heim. Og hvað segir íslenska þjóðin ef þeim gengur illa? Ja, það tröllríður allavega ekki þjóðinni í marga daga...
DV í dag. Það lágkúrulegasta af öllu lágkúrulegu! Að mínu mati sorprit dauðans og komið neðar en Séð og Heyrt! Þeir voru með heila opnu kolsvarta. Með litlum stöfum stóð svo að á þessari opnu hafi átt að vera umfjöllun um þátttöku íslenska landsliðsins á EM í handbolta. Þetta finnst mér einum of...
Enn og aftur, strákarnir OKKAR eru nú bara mannlegir og þeim er eðlilegt að gera mistök af og til! En þetta er allavega mín skoðun og kannski er ég bara skrýtin að finnast þetta, vona samt að ég sé ekki ein um þessa skoðun...

Vá, varla búin að fara út úr húsi (nema í vinnuna) síðan einhvern tíman fyrir jól... Bætti það samt rækilega upp núna síðustu viku...
Þriðjudagur. Saumaklúbbur á Selfossi. Rosa gott að borða, mikið talað og mikið hlegið. Ekkert samt saumað... ;)
Miðvikudagur. Annar langi dagurinn í vinnunni þannig að ég hafði ekki tíma fyrir hinn venjubundna síðdegislúr áður en ég var sótt til að hitta bekkinn minn úr Kennó. Hittumst á Carusso. Mikið borðað, mikið talað og mikið hlegið...
Fimmtudagur. Hitti loksins Fanneyju, en hún er nýkomin heim frá Ástralíu þar sem hún var í skóla. Fórum á Pizza þar sem við fengum okkur pizzu og bjór og kjöftuðum helling. Fórum svo á Snúllabar þar sem við drukkum meiri bjór, töluðum meira og hlógum ennþá meira... ;) Langt síðan við hittumst síðast þannig að það var sko nóg að tala um og hlægja að... ;) Hitti þarna "bestu vinkonu mína" (unnum einu sinni saman í tvær vikur og það voru eiginlega tveimur vikum of mikið...) sem ég hélt að ætlaði að gleypa mig... Sagði að ég yrði endilega að kíkja í kaffi einhvern daginn og skoða æðislega hundinn hennar (sem hún reyndar þolir ekki svo ýkja vel sjálf)... Ég sem þoli ekki hunda og drekk hvorki kaffi né te... Held að sú heimsókn yrði dálítið forvitnileg ef hún yrði einhverntíman farin... ;) Sólveig bjargaði okkur Fanneyju svo úr klóm hennar með því að sækja okkur á hárréttum tímapunkti, annars hefði ég örugglega verið dregin í þessa blessuðu heimsókn strax þá um kvöldið... ;)
Föstudagur. Stysti vinnudagurinn. Samt hræðilegur! Brunuðum í bæinn seinnipartinn í árlegt fjölskylduþorrablót, sem að þessu sinni var hjá ömmu Rúrí og afa Sigga, en afi var í leiðinni að halda upp á sjötugsafmælið sitt. Mikið borðað, mis mikið samt af þorramatnum... en klikkaði ekki á árlega brennivínsstaupinu... ;) Mikið talað, mikið hlegið og Trivial spilað fram í rauðan dauðann... ;) Spurning samt hve mikið sumir hafa lagt á sig til að læra spurningarnar utan að... ;) En allavega, mikið mikið gaman!
Laugardagur. Við Sólveig vöknuðum hjá ömmu og afa og ég keyrði hana í vinnuna. Brunaði svo til Egga og Systu til að sækja mömmu og pabba, en þau gistu þar. Komumst þá að því hvað heimurinn er orðinn rosalega lítill... ;) Dóttirin á heimilinu er semsagt komin með nýjan kærasta og bróðir hans er víst giftur systur mömmu! En jæja, við afrekuðum útsölur í Kringlunni þar sem ég fann mér loksins nýja skó :) og líka geðveikar buxur (sem voru reyndar ekki á útsölu en mamma sagði að ég mætti alveg kaupa þær samt... gaman að versla með mömmu ;) ). Skilaði svo mömmu og pabba í matarklúbb eftir að við höfðum heimsótt Döggu frænku og svo brunuðum við Sólveig heim.
Sunnudagur. Fór aftur í bæinn. Borðaði hádegismat á Stælnum, mmmm. Sótti svo mömmu og pabba til ömmu og afa, en áður en við fórum heim tókum við einn húsarúnt í Hafnarfirði. Héldum svo húsarúntinum áfram í Hveró eftir að við komum heim. Alltaf gaman að skoða hús... :)
Svo af því að ég er búin að vera svona dugleg undanfarið að vera ekki heima hjá mér, ákvað ég áðan að halda því bara soldið áfram... Er meira að segja að spá í að skreppa í sund eftir vinnu á morgun!

fimmtudagur, janúar 22, 2004
miðvikudagur, janúar 21, 2004
Var að koma heim, skrapp áðan til höfuðborgarinnar til að hitta bekkinn minn úr Kennó. Hittumst á Carusso, mmmmmmmmmm... Mikið borðað, mikið talað og mikið hlegið... ;) Rosa stuð. Klósettið samt best... þar var að finna ýmislegt sem kemur kvenmanni vel á ögurstundu... ;) Hárlakk og froða, bómullarskífur og dömubindi takk fyrir! Ekki amalegt það... ;)
mánudagur, janúar 19, 2004
sunnudagur, janúar 18, 2004
aaaaarrrrrrrgggggghh...
Flutningar, jakkedí jakk... er sko búin a fá mig fullsadda af flutningum og öllu sem þeim fylgir! Vissi reyndar þegar ég flutti aftur heim síðasta vor að ég yrði að pakka saman helmingnum af öllu draslinu mínu, sem er ekki nú þegar uppi á háalofti eða dreift um allar trissur, núna eftir jólin því afi er að koma til okkar. Á þeim tímapunkti var þetta bara seinni tíma vandamál og ég hafði engar áhyggjur... En núna er þetta semsagt ekki lengur seinni tíma vandamál, heldur verð ég að tæma heilt herbergi fyrir mánaðamót... Ekki skemmtileg tilhugsun að tæma heilt herbergi, sérstaklega ekki þegar maður býr í einu og hálfu herbergi og á drasl sem fyllir tveggja herbergja íbúð...
...þannig að nú bíð ég spennt eftir að sjá hvað gerist í íbúðamálum á næstunni! Það er smá plott í gangi, en ég lærði af biturri reynslu fyrir jól að tala ekki of mikið um svoleiðis fyrr en hlutirnir eru komnir á hreint... þannig að nú held ég mér saman þangað til ég veit meir... Susssssssssss...
En talandi um að læra af biturri reynslu...
Þetta hef ég ekki alltaf vitað, en veit svo sannarlega í dag...:
- Aldrei að skreppa í dagsferð til Húsavíkur og byrja á að taka bensín ef aukalyklarnir að bílnum eru í Hveragerði...
- Brúnir pappírspokar eru ekki gerðir úr súkkulaði...
- Gangstéttir (sérstklega þessi í Mjóddinni) virka eins og sandpappír á hné og olnboga...
- Það getur verið gott að vera með GSM, t.d. þegar maður ætlar að sjá Lion King í bíó...
- Þa er hægt að skera sig á skóreim...
- Ekki fikta með rafmagn ef það er möguleiki á að það sé kónguló í grenndinni...
- Ef maður skellir skúffu á puttann, þá er mjög gáfulegt að opna hana aftur áður en maður kippir að sér höndinni...
- Og talandi um skúffur, ekki hlaupa á opna skúffu, sérstaklega ekki í vinnunni...
- Passa kreditkortið í útlöndum...
- Mosquitoflugur elska mig...
- Dúfur hata mig...
- Ekki liggja í tvo tíma á vindsæng úti á sjó sama dag og maður skiptir niður í sólarvörn nr. 4...
- ...

föstudagur, janúar 16, 2004
Úrslitin í Idol í kvöld!
En ég ætla ekki að tala um það hér því ég hef bara horft þrisvar á Idol og kem að öllum líkindum ekki til með að horfa í kvöld...
...og það er margt annað sem ég ætti frekar að tala um hér. T.d. hvað það er ótrúlega erfitt að gefa hálfum skólanum einkunnir... eða að ég og vinur minn Gustavsberg erum búin að endurnýja vinskapinn (erum reyndar búin að þekkjast síðan ég man eftir mér en við urðum vinir fyrir lífstíð eftir að ég kom heim frá Krít sumarið 2001)... eða að "lömbin mín" eru komin með nýtt gullkorn... ja, eða bara eitthvað allt annað...
...en kannski tala ég bara ekki um neitt...

miðvikudagur, janúar 14, 2004
Æææææææ
Fann þetta í síðustu tiltekt...
Kona án karlmanns er eins og strengjalaus gítar
Grænhöfðaeyjar
Ekki gott, ekki gott...

sunnudagur, janúar 11, 2004
Af hverju...
...á ég ekki svona?
...dettur rassinn alltaf fyrst úr uppáhaldsbuxunum?
...lendi ég alltaf í einhverju asnalegu sem kemur ekki fyrir neinn annan...?
...?

fimmtudagur, janúar 08, 2004
Hahaha...
Ég hélt að ég gerði tilraunir sem hafa misjafnlega takmarkaðan tilgang... en þetta hefur mér aldrei dottið í hug!!! Hrein snilld!

miðvikudagur, janúar 07, 2004
Friðarspillir...
Ég hef grun um að einhverjum hafi fundist ég vera orðin full afslöppuð... Allavega ætlaði ég að fara að setja geisladisk í spilarann fyrir nokkrum mínútum en um leið og spilarinn opnaðist hristist allt og skalf! Ekki það sem ég átti von á og jarðskjálfti var ekki beint það sem mig langaði til að finna. Ég æpti svoleiðis að mamma kom hlaupandi og hélt að eitthvað hefði komið fyrir mig... ;)
Ég er sko ekki mjög jarðskjálftavæn...

mánudagur, janúar 05, 2004
...ekki ónýtur... :)
Var að enda við að fá aðra afmælisgjöf! Nefnilega frítt flug frá Icelandexpress til Köben :) Þurfti reyndar sjálf að borga heimferðina, en samt...
...Svo beware Stebbi og Jóna, here I come!!!

Erfiður dagur... en samt....
Það er nú ekki tekið út með sældinni að snúa sólarhringnum til baka eftir jólafríið... vægast sagt erfiður dagur í dag!
Samt tvennt sem bætti hann upp! Pabbi á afmæli í dag svo það var kjúlli ala pabbi í matinn, mmmmmmmm... og líka kökur og kleinur og fleira gott, mmmmmm... Svo mætti hann með stóran pakka - handa mér!!! Saumavélin mín er semsagt loksins mætt á svæðið!!! Ekki lítil gleði það ;) Er búin að horfa á vídeóið sem fylgdi (held það sé gert fyrir heiladauða...) og fikta dáldið í gerseminni. Loksins get ég farið að sauma rauða flauelspilsið sem mig er búið að langa í svo lengi :)
Takk takk takk allir sem gáfu mér umslag í afmælisgjöf, pakkinn frá ykkur er algjört æði!!!

sunnudagur, janúar 04, 2004
Duuuuuuuuuuh...
Er búin að spila Gettu betur nokkrum sinnum í jólafríinu. Ótrúlegt með suma hvað þeir geta verið einhvers staðar allt annars staðar en þeir líta út fyrir að vera...
Dæmi um svör sama spilarans í einu spili:
-Hvað flytja burðardýr oftast nú til dags? Timbur...?
-Hvað eru margar tölur í lottóinu? 5...?

fimmtudagur, janúar 01, 2004
Gamlárskvöld
Skellti mér í veiðidressið sem ég fékk í afmælisgjöf, rosa glöð yfir að það væri ball hérna á sjálft gamlárskvöld. Auðvitað þurfti Sólveig að reyna að skemma stemninguna og koma með athugasemd: Hva, hvern ætlarðu svo að veiða hérna??? Ég kunni nú alveg svar við því... Við höfum báðar heimsótti vini í höfuðborginni og djammað með þeim á gamlárskvöld, hvers vegna ætti þetta ekki líka að virka öfugt, það er að einhverjir hér eigi vini sem búa ekki hér en koma hingað til að djamma...? Jæja, dreif mig allavega með Freyju á ball og varð fyrir miklu menningarsjokki! Við mættum um 2 og þá voru eiginlega fleiri dyraverðir en ballgestir. Fólkið fór ekki að mæta fyrir alvöru fyrren uppúr kl. 3! Ok, það var gamlárskvöld, en samt... Svo var það fólkið sem var þarna. Var með hálfgerðan tremma yfir öllum "litlu krökkunum" sem streymdu inn, krakkar jafn gamlir og yngri en krakkar sem við pössuðum í gamla daga! En jæja, er víst orðin hálf þrítug... ;) Það er samt skemmst frá því að segja að veiðigræjan virkaði ekki... Ég vil meina að það hafi ekkert með mig að gera en ég er með tvær hugsanlegar skýringar... Ég notaði nefnilega vitlaust ilmvatn (úbbs) og svo var víst Hellisheiðin lokuð þannig að allir vinirnir sem ég ætlaði að veiða komust víst ekki hingað... ;)
En til að bæta upp aflaleysið vaknaði ég (eftir annað djammið í röð) hress og spræk og ekkert þunn!!! Er farin að hafa áhyggjur af því að vinur minn Gustavsberg sé farinn að sakna mín... ;)