<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, apríl 29, 2004

Stress?
Ég var að enda við að prenta út lokaritgerðina mína! Loksins! Ætla svo að bruna í bæinn eftir vinnu og láta binda hana inn og skila henni. Það verður ekki leiðinlegt.
Er svo núna að hamast við að klára síðasta lokaverkefnið mitt, ætla að reyna að klára það í kvöld svo ég geti skilað því líka á morgun. Mikið hlakka ég til!
Er orðin dáldið tæp á tauginni eftir hamaganginn í dag og síðustu daga við lokaverkefnavinnu. Skilaði einu síðasta föstudag, sem er nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég klúðraði því hér um bil og það rækilega. Fékk samt séns og nýtti mér hann í botn. Er samt greinilega dáldið stressuð yfir því verkefni því mig dreymdi einkennilegan draum í fyrrinótt. Kennarinn sem kenndi þetta námskeið sem ég klúðraði lokaverkefninu í kom til mín og sagði að ég væri fallin. Ég hafði nefnilega ekki búið til nógu góðan cappuchino fyrir hana... Ég var svo reið og sár að ég labbaði bara í burtu. Daginn eftir fór ég til hennar og þá viðurkenndi hún að hún hefði verið frekar ósanngjörn og þess vegna væri hún til í að endurskoða einkunnina... ef ég gæti búið til almennilegan cappuchino handa henni...
Ég er nú ekki í lagi, eða hvað?

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Kraftakelling
Eins og svo oft áður, sérstaklega á þriðjudögum, kom það í minn hlut í dag að elda kvöldmatinn. Ég skrapp því í búðina áðan og varð þá vitni að dátlu skemmtilegu. Ég var búin að borga og var að setja vörurnar í poka þegar afgreiðslukona kom fram af lagernum. Sú sem hafði afgreitt mig fór þá að tala um að það væri svo þröngt við kassann, hún þyrfti alltaf að troða sér til að komast inn fyrir. Sú nýkomna sagði nú ekki mikið mál að bjarga því, tók svo um endann á afgreiðsluborðinu (þetta er svona stórt ferlíki með færibandi og alles) og lyfti því takk fyrir frá gólfinu! Hún bara færði allt heila klabbið eins og ekkert væri sjálfsagðara! Þetta er sko kona að mínu skapi, sjálfbjarga með stæl!
Vildi gjarnan segja nánar frá kraftakellingunni en ég verð að fara og taka lasagnaið mitt úr ofninum. Mmmm...

sunnudagur, apríl 25, 2004

Alveg óvart...
Ég fór í leikhús í kvöld, alveg óvart. Það var þannig að mamma var að fara með fleira fólki og ein forfallaðist á síðustu stundu þannig að hún stóð uppi með auka miða. Ég greip tækifærið til að komast í burtu frá lærdómnum (þó ég þurfi að vinna fram á nótt í staðinn) og sé ekki eftir því! Sáum Sekt er kennd í Borgarleikhúsinu. Verkið gerist á bókasafni og er vægast sagt dáldið spes. Skemmtilegt samt. Alveg óvart var svo leikhústvenna í kvöld, það er að við sáum tvö leikrit! Sekt er kennd fyrir hlé og eftir hlé var Draugalestin sem er reyndar líka vægast sagt dáldið spes. Skemmtilegt samt. Kvöldið var semsagt mjög skemmtilegt en um leið mjög einkennilegt...

Það lítur ekki út fyrir neina veiði hjá mér í dag, til þess er einfaldlega of mikið að gera. Ég stal samt smá tíma frá verkefnavinnunni til að setja inn myndir frá 25 ára ammælinu mínu um jólin. Já, þar sem ég klikkaði sjálf á myndatöku þurfti ég að sníkja myndir hjá Önnu og allt tekur víst sinn tíma, held að þetta séu einu myndirnar sem voru teknar þetta kvöld.

laugardagur, apríl 24, 2004

Þunnur þrettándi...
Áfengiseiningarnar sjö í gærkvöld (venjulega set ég markið við þrjár) sögðu svo sannarlega til sín í dag... Var reyndar ekki fárveik eins og ég átti von á, en þetta var samt frekar þunnur þrettándi... Samt vel þess virði því ég skemmti mér mjög vel í gær þó að ég hafi ekkert veitt og geti þar af leiðandi ekki rukkað Gunnu sem sagðist myndu borga mér vel ef ég hözzlaði eitthvað...
Það er reyndar búið að bjóða mér í veiði á morgun og boðinu fylgdi loforð um greiðslu fyrir fenginn, það er að ég fái borgað ef mér tekst að veiða eitthvað. Sjáum nú hvernig það fer, en kannski ég fari í þetta sinn vopnuð færi og beitu... ;)

Happdrætti Háskólans - vænlegast til vinnings!
Fékk skemmtilegt bréf í póstinum í dag sem sagði að ég hefði unnið í happdrættinu um daginn. Heilar 4000 krónur! Það munar um minna.
Eftir takmarkaðan nætursvefn síðustu nótt og kennslu staight frá 8-12:30 var ég orðin frekar þreytt. Asnaðist samt til að fá mér kók með hádegismatnum og þarmeð var fyrirframplanaður lúr dagsins úr sögunni, gerði heiðarlega tilraun til að leggja mig en það virkaði ekki. Eldaði gómsætan kvöldmat, tilbrigði við kjúklingabaunatacolasagne sem heppnaðist svona líka vel. Náði samt að brenna mig þokkalega við eldamennskuna, bara típísk ég... Við Freyja fórum svo á generalprufuna sem Sólveig bauð okkur á á Nakinn maður og annar í kjólfötum hjá leikfélaginu. Ágætlega skemmtilegt stykki, Sólveig stóð sig mun betur en sumir aðrir en samt fannst mér skemmtilegast að það skuli vera frumsýning á morgun (eiginlega í dag)... Við ætluðum svo að vera latar og tókum vídeó en þar sem við drukkum tvær rauðvínsflöskur með myndinni vorum við í dúndurstuði þegar henni lauk og skelltum okkur því á Snúllabar. Þar héldu uppi stuðinu Frikki og Ásgeir með sinn hvorn gítarinn og eiga þeir hrós skilið fyrir frammistöðu sína! Það var samt ekki mikið af fólki þarna sem við þekktum, en Finnbogi sjálfur heiðraði okkur þó með nærveru sinni í einhvern tíma. Þess má geta að bjórinn á Snúlla smakkast einkar vel og við vorum í stöðugu sambandi við Gunnu sem var að skemmta sér í bænum og hélt að það væri meira stuð hjá henni, jeah right... Var allavega frekar svekkt að þurfa að fara heim kl. 3, en þá lokar allt hér í sveitinni... Vá, hef ekki verið svona drukkin síðan kannski ég hélt upp á 25 ára afmælið mitt um jólin... Er annars eitthvað að frétta af myndunum þaðan Anna?

föstudagur, apríl 23, 2004

Happy, happy...joy, joy...
LOKSINS, ég var að enda við að senda frá mér lokaritgerðina til yfirlestrar!!! Ekki amalegt það! Til að halda upp á það bíður mín núna heitt bað og svo rúmið mitt, enda á ég að byrja að kenna kl. 8 í fyrramálið... Er svo búin að lofa að sýna takta mína í eldhúsinu annað kvöld og í staðinn er mér boðið á generalprufuna á Nakinn maður og annar í kjólfötum þar sem Sólveig ku fara á kostum. Lærin á henni tóku sig allavega nokkuð vel út í Dagskránni... ;) Við Freyja ætlum svo eitthvað að tæta og trylla hér í sveitinni, enda gamla settið að bregða sér af bæ. Helgin verður svo tekin í að klára lokaverkefnin tvö sem eru eftir, stefni á að skila þeim ekki seinna en á mánudag.

fimmtudagur, apríl 22, 2004

Gleðilegt sumar!

Þeir sem elska af mestri einlægni elska súkkulaði

Ég var orðin frekar geðvond í kvöld svo ég ákvað að gera eitthvað í því, fjölskyldunnar vegna. Hef nefnilega fengið að heyra það að ég eigi það soldið til að hvæsa þegar ég er pirruð svo ég hef tekið mig á og reyni núna að þegja bara ef skapið er ekki sem best. Veit samt ekki hvort það er eitthvað betra því mamma sagði áðan að það hreinlega neistaði af mér... Allavega, þá ákvað ég að gera eitthvað í málunum og þar sem ég veit ekkert betra, þegar ástandið er svona, en grenjumynd, kók og súkkulaði eða þá góða göngu í rigningu þá rölti ég niðrá vídeóleigu. The Hours varð fyrir valinu, snilldarmynd sem ég gat gleymt mér og grenjað yfir og losað þannig uppsafnaðan pirring í burtu, auðvitað líka með hjálp Coka Cola og Toblerone súkkulaði.

miðvikudagur, apríl 21, 2004

Bíllaus
Ég á ekki bíl. Í heildina truflar það mig ekki svo mikið, ég get alveg labbað í vinnuna og í búðina og þessa venjulegu hluti. Fyrir nú utan það að ég tími ekki að reka bíl fyrr en ég hef efni á að kaupa mér bílinn sem mig langar í. Það sem truflar mig við bílleysið er það að geta ekki hoppað uppí bíl og keyrt af stað þangað sem mig langar þegar mig langar (muna samt að taka aukalykilinn af bílnum með þegar farið er í dagsferð til Húsavíkur...), það eru alltaf endalausar samningaviðræður við aðra fjölskyldumeðlimi (veit ekki um margar fjölskyldur þar sem 4 fullorðnir deila sama bílnum) ef mann langar að skreppa eitthvað, t.d. bara í bíó (nei, það er ekki bíó í sveitinni). Eins og í kvöld, okkur Freyju langaði að gera eitthvað skemmtilegt saman en hún er bíllaus í bænum og ég bíllaus í Hveró og rútuferðirnar þarna á milli eru orðnar færri en flugferðir á milli Íslands og Danmerkur, þær eru allavega ekki fleiri. Það eru semsagt örlög mín í kvöld að sitja heima á rassgatinu og skrifa ritgerð nema einhver aumki sig yfir mig og sæki mig í einhverja vitleysu...

þriðjudagur, apríl 20, 2004

Hvernig býrð þú?
Hmmm... Frekar þröngt þessa dagana... Bý eins og er hjá mömmu og pabba með búslóðina mína dreifða um allar trissur... Er reyndar búin að kaupa mér íbúð en það verður samt smá bið í að ég flytji sjálf í hana.

Hvaða bók ertu að lesa núna?
Uppvöxtur Litla trés eftir Forrest Carter

Uppáhalds spil?
Catan (landnámsspilið), Trivial stendur alltaf fyrir sínu og það er alltaf hægt að skemmta sér í Party &Co. Annars geta öll spil verið skemmtileg ef þau eru spiluð með skemmtilegu fólki!

Uppáhalds tímarit?
Ég skoða nú ekki mikið af tímaritum, eiginlega bara það sem ég kemst í á bókasafninu eða biðstofum... Einu sinni las samt alltaf Brigitte Young Miss á þýsku og þá aðallega innsendar sögur þar sem fólk sagði frá einhverju neyðarlegu sem það lenti í, ég sá mig sjálfa ótrúlega oft fyrir mér í svipuðum aðstæðum…

Uppáhalds ilmur?
Hmmm, örugglega þegar það er rigning, þá er allt svo ferskt!

Uppáhalds hljóð?
Það er ekkert sem toppar það að liggja inní tjaldi í mígandi rigningu og hlusta á dropana skella á tjaldhimninum…

Hræðilegasta tilfinning í heimi?
Að vera einmanna.

Fyrsta sem þér dettur í hug, þegar þú vaknar á morgnana?
Jæja, hvað eigum við að taka upp í dag? (þetta var fyrir Sólveigu). Annars er ég oft ekki vöknuð fyrr en löngu eftir að ég fer framúr þannig að ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara spurningunni…

Rússibani, hræðilegur eða spennandi?
Hræðilega spennandi!!! Reyndar er rússibani eina tívolítækið sem mér finnst skemmtilegt...

Uppáhalds matur?
Tricky question. Allt sem er gott... ;) Ég borða svo til allt en finnst matur þó misgóður...

Súkkulaði eða vanilla?
Auðvitað súkkulaði! Er ekki líka búið að sanna að það sé hollt???

Finnst þér gaman að keyra hratt?
Hver segir að ég keyri hratt???

Sefur þú með tuskudýr?
Stundum… Þegar ég er einmanna…

Óveður, spennandi eða hræðilegt?
Það fer eftir því hvernig óveður. Það fer líka eftir því hvort maður þarf að fara út í það eða gerir það af eigin hvötum!!!

Hver var fyrsti bíllinn þinn?
Fyrsta og eina bílinn sem ég hef átt átti ég með Sólveigu systur. Það var rauður Hyundai Pony (“Jeep”) ´92. Hann sannaði sig svo um munaði því þegar hann dó núna fyrir jólin var hann keyrður “aðeins” 226000 km og geri aðrir betur!

Áfengur drykkur?
Hmmm... Spyrja mig að því? Ég sem lét fríhafnarbjórinn minn frá í sumar renna út og gaf allar vodkarestarnar sem ég fann í skápnum mínum þegar ég flutti... Drekk semsagt sama sem ekki neitt þó mér finnist voða gott að fá mér smá rauðvín eða hvítvín með matnum stöku sinnum eða einn, tvo bjóra þegar tilefnið er gott...

Í hvaða stjörnumerki ertu?
Steingeitin rokkar ;)

Er glasið hálf tómt eða hálf fullt?
Það fer eiginlega eftir því hvort það var verið að bæta í það eða taka úr því…

Uppáhalds kvikmyndir?
Æ það eru svo margar. Ég er mjög hrifin af breskum og dönskum myndum þessa dagana. La Vita e Bella hefur verið í uppáhaldi síðan ég sá hana. Virgin suicides er líka rosagóð bara svo rosalega margar... Annars hef ég alltaf verið veik fyrir Lion King...

Uppáhalds búð?
Engin ein sérstök en allar búðir sem selja eitthvað til heimilisins (þá meina ég allt frá gólfefnum, verkfærum og hreinlætistækjum til hnífapara, hrærivéla og húsgagna) og efnabúðir, þetta eru alltaf skemmtilegustu búðirnar. Svo má ekki gleyma nammibúðum...J

Uppáhalds þættir?
Svooooooo margir... Nicolaj & Julie, ER, CSI, Judging Amy og The Simpsons svo ég nefni einhverja...

Hverju safnar þú?
…ja, sumir myndu segja að ég safnaði drasli… Annars á ég orðið ágætis safn af Miller bjórtöppum (vinir og vandamenn hafa verið duglegir að færa mér tappa…) Ég á líka nóg af allskonar hálfkláraðri handavinnu…

Hvað myndir þú vilja finna upp?
Einu sinni ætlaði ég að finna upp bímtakka í bíl. Það er svona takki sem maður getur ýtt á og þá er maður strax kominn heim eða þangað sem maður ætlaði að fara. Sparar tíma sko... ;) Eftir að ég flutti aftur til mömmu og pabba setti ég bímtakkann samt á “hold” því núna finnst mér æðislegt að vera ein í bílnum og keyra leeeengi því þá hef ég næði til að vera ein með sjálfri mér.

mánudagur, apríl 19, 2004

Í dag...
...er mánuður í að Jóna og stelpurnar mæti á klakann
...er mánuður í að ég fái íbúðina mína afhenta
...seldi ég þvottavélina mína

Fann þetta á www.spamadur.is

Ef fólk fætt undir stjörnu steingeitar hefur það á tilfinningunni að skapið flækist fyrir því, er því ráðlagt að anda efla styrk sinn og ekki síst umburðalyndi gagnvart öðrum. Stjarna þín þráir um þessar mundir að láta faðma sig og elska innilega.

Býður sig einhver fram?

sunnudagur, apríl 18, 2004

Bónorð í beinni!
Heiða vinkona hélt upp á 25 ára afmælið sitt í gærkvöldi. Hófið var í kennarabústað rétt við Flúðir þar sem við grilluðum og höfðum gaman. Þegar allir voru mættir á svæðið hellti Símon freyðivíni í glös til að skála fyrir Heiðu, dró hana svo með sér út á mitt gólf og byrjaði að tala. Hann byrjaði á að segja hvað væri gaman að við værum öll komin og eitthvað í þeim dúr, endaði svo á því að skella sér niður á hnén og spyrja: Heiða, viltu giftast mér? Heiða greyið átti alls ekki von á þessu en sagði auðvitað já og Símon dró hring á fingur hennar.
Ég hef aldrei áður verið vitni að bónorði og bara séð svoleiðis í bíómyndum þar sem það er yfirleitt væmin vella að mínu mati. Ég átti allavega ekki von á að viðbrögð mín yrðu eins og þau voru í gær. Ég sat eins og auli, grenjandi af gleði, og vissi ekkert hvernig ég átti að vera. En stemningin var fljót upp á við aftur, enda grill, heitur pottur, hljómborð og tveir gítarar í húsinu.

laugardagur, apríl 17, 2004

Það passar, kominn tími til að taka nagladekkin undan bílnum og þá byrjar að snjóa. Fór í bæinn í gær og það var allt hvítt á Hellisheiðinni. Þegar ég vaknaði í morgun snjóaði úti og núna er snjór á stéttinni fyrir utan. Samt er ég að fara í afmælisgrillpartý í sumarbústað rétt hjá Flúðum í kvöld. Hef það reyndar eftir afmælisbarninu að það sé enginn snjór þar. En ég er allavega búin að búa mér til dýrindis kryddolíulegnar kjúklingabringur ala Sigrún og risastóra grillkartöflu til að skella á grillið. Mmmmm. Kannski maður kippi líka með sér salsasósu til að setja punktinn yfir i-ið? Ég held það bara.

Svarta dagmamman
Þegar mæður og annað kvenfólk hittist býst ég við að stundum sé rætt um börnin og það sem þeim tengist. Sú var allavega raunin í gær þegar við hittumst nokkrar kvensur yfir pastarétti og súkkulaðifondú. Kjöftuðum um allt milli himins og jarðar og á endanum barst talið að dagmömmum og hve dýrar þær eru. Ein sagði það varla borga sig að vinna úti þar sem hún kæmi til með að borga um 70 þúsund á mánuði í dagvistunargjöld, þar af 47 þúsund í dagmömmuna þegar yngra barnið kæmist að hjá henni. Önnur sagðist þá vera mjög heppin, hún borgaði ekki nema 27 þúsund á mánuði, en dagmamman hennar væri reyndar svört... Þá kom dáldið skrýtinn svipur á þá þriðju í hópnum, hún var ekki alveg viss hvernig hún ætti að túlka þessar fréttir. Þess má þó geta að umrædd dagmamma er í raun ekkert svartari en ég og þú...

fimmtudagur, apríl 15, 2004

Vá, er satt að segja farin að finna fyrir dátlu stressi þessa dagana. Er á trilljón og tuttugu að klára öll lokaverkefnin í skólanum, þar með talda lokaritgerðina sem ég þarf eiginlega að vera búin með fyrir þriðjudag. Þar sem enginn vinnufriður er heima á daginn gerði ég í páskafríinu heiðarlega tilraun til að læra á nóttunni og sofa á daginn. Komst þá að því að það er ekki svefnfriður heima á daginn frekar en vinnufriður þannig að þetta féll um sjálft sig. Þess vegna ér ég eiginlega flutt á bókasafnið og þjóðfræði/þjóðhjáttadeildin á bókasafninu er flutt með mér inn í lesherbergi þar. En ekki nóg með tímabundna búsetu mína á bókasafninu, ég virðist líka vera alveg gríðarlega eftirsótt þessa dagana. Saumaklúbbur annað kvöld og 25 ára afmæli á laugardaginn. Það er því kannski ekki svo skrýtið að ég finni fyrir smá stressi og ekki síður skrýtið ef það heyrist ekkert frá mér næstu vikuna eða svo.

þriðjudagur, apríl 13, 2004

IF YOU COULD BUILD A HOUSE ANYWHERE, WHERE WOULD IT BE?
Góð spurning. Ég væri örugglega passlega búin að byggja húsið þegar ég væri búin að skipta um skoðun og langaði að hafa það annars staðar…

WHAT'S YOUR FAVORITE ARTICLE OF CLOTHING?
Íþróttaföt! Fyndið þar sem ég er ekki þekkt fyrir að vera íþróttatýpa…

FAVORITE PHYSICAL FEATURE OF THE OPPOSITE SEX?
Pottþétt augun! Hendurnar líka, það skiptir mig alveg rosalega miklu máli að hann hafi almennilegt handtak! Svo segir hárið líka talsvert, en það má alltaf laga það ef það er ekki í lagi...

WHAT'S THE LAST CD THAT YOU BOUGHT?
Svooooo margir…

WHERE'S YOUR FAVOURITE PLACE TO BE?
Rúmið mitt, Hveragerði, fallegi staðurinn, Súðavík á sumrin og klósettið í Lyngheiðinni.

WHAT'S YOUR FAVOURITE PLACE TO BE MASSAGED?
Ef það vildi nú bara einhver nudda mig...

STRONG IN MIND OR STRONG IN BODY?
Hehe, I´m an Icelandic Viking Woman... Ætli það sé ekki bara soldið sitt af hvoru tagi...

WHAT TIME DO YOU WAKE IN THE MORNING?
Púff, fer eftir því hvaða dagur er og hvað er á dagskránni þann daginn... Er samt þekkt fyrir að vera kannski ekki sú morgunhressasta...

WHAT'S YOUR FAVOURITE KITCHEN APPLIANCE?
Ég hef alltaf verið skotin í KitchenAid hrærivélum þó ég eigi reyndar ekki svoleiðis grip sjálf…

WHAT MAKES YOU REALLY ANGRY?
Óþekkir og illa uppaldir krakkar!

IF YOU COULD PLAY ANY INSTRUMENT, WHAT WOULD IT BE?
Gítar, ekki spurning!

FAVOURITE COLOR?
Erfið spurning. Fyrir nokkrum árum var allt blátt í kringum mig, ekkert annað komst að. Undanfarið er ég svo búin að vera að uppgötva nýja og skemmtilega liti eins og grænan, rauðan, appelsínugulan og bleikan.

WHICH DO U PREFER, SPORTS CAR OR 4x4
Einu sinni var BMW Z3 draumabíllinn, en núna langar mig eiginlega meira í jeppa... Mest langar mig samt í Golf!

DO YOU BELIEVE IN AFTERLIFE?
Veit ekki, held samt að það gæti verið til í einhverju formi.

FAVOURITE CHILDREN'S BOOK?
Ég elska Bangsímon, en Benjamín dúfa hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi.

WHAT IS YOUR FAVOURITE SEASON?
Vorið, þegar allt vaknar til lífsins og svo sumarið.

WHAT'S YOUR LEAST FAVOURITE HOUSEHOLD CHORE?
Ég ryksuga ekki!

IF YOU COULD HAVE ONE SUPER POWER, WHAT WOULD IT BE?
Hókus pókus og ég þarf ekki að taka til og þrífa...

IF YOU HAVE A TATTOO, WHAT IS IT?
Neibb, ekkert svoleiðis. Mig langaði einu sinni en þegar ég sá mig fyrir mér sjötuga í sundi þá hætti mig að langa í tattú...

CAN YOU JUGGLE?
Neibb, held ekki... Held ég myndi rota bæði mig og aðra nærstadda þannig að ég hef ekkert verið að reyna…

WHAT'S YOUR FAVOURITE DAY?
Frídagar...

WHAT'S IN THE TRUNK OF YOUR CAR?
Ætlar einhver að gefa mér bíl???

WHICH DO YOU PREFER, SUSHI OR HAMBURGER?
Hamborgari, ekki spurning! Þó mér finnist fiskur almennt góður langar mig ekkert að smakka hann hráan…

jessjessjessjessjessjessjessjesssssss...
Ég er búin að sauma!!! Búin að sitja meira og minna allt páskafríið með sveittan skallann og sauma eins og brjálæðingur til að ná að skila verkefninu á réttum tíma. Búin að misþyrma höndunum á mér illilega, margar blöðrur, mikið sigg, mikið stungið og annar úlnliðurinn eitthvað úr lagi genginn... EN ég er búin að sauma! Á núna bara eftir að skrifa skýrslu um gripinn og svo skutlast með þetta í bæinn á morgun. Ætla sko að skila þessum eðalgrip í eigin persónu, annað eins meistarastykki hefur sko aldrei sést! Enda smæla ég allan hringinn í kvöld... ;)

sunnudagur, apríl 11, 2004

Gaman í gær, gaman í gær!
Fór í bæinn í gær. Dró Gunnu með mér að snatta. Fórum fyrst í Office1 í Skeifunni til að kaupa blek í prentarann minn. Brunuðum svo beint í Smáralindina þar sem ég, sveitapían, barði mig í hausinn þegar ég gekk fram á eitt stykki Office1, og reyndar líka BT. Týpísk ég. Röltum um og skoðuðum helling og versluðum smá. Keyptum svo pínu innflutningsgjöf handa Önnu, Alla og Kristjönu og kíktum svo aðeins á þau, en þau voru einmitt að flytja í næstu götu við afa og ömmu! Ég semsagt kíkti á Önnu OG Kristjönu á leiðinni til Önnu Kristjönu!!! Haha... Já, ferðinni var svo haldið áfram til Keflavíkur í grillveislu. Fór með Önnu og Kolbrúnu til frænda hennar Önnu. Þar var sukkað út í eitt! Byrjuðum á grillmat og þá má ekki gleyma gómsæta grillaða hvítlauksbrauðinu... mmmmmmm... Svo var það grillaður banani með piparmyntusúkkulaði og ís með. Svo stútuðum við risa (þá meina ég RISA) páskaeggi og átum okkur til óbóta, kjöftuðum, hlógum og spiluðum Kana fram á nótt! Brjálað stuð! Lykilorð kvöldsins er tvímælalaust súkkulaðisviti...

Aumur er ástlaus maður. Hmmm...

Ég er púki, hefði eiginlega átt að fá púkaegg í dag... Fyrir mörgum páskum kenndum við Stebba bróður lexíu. Soffía Helga frænka bjó í Danmörku og var í heimsókn hjá okkur um páskana það árið. Eins og venjulega var þá ýmislegt brasað og hrekkigenin fengu ærlega útrás. Svo rann páskadagur upp. Hjá okkur var sú regla að enginn mátti byrja á páskaegginu sínu fyrr en eftir að hafa borðað almennilegan morgunmat. Við stelpurnar (ég, Sólveig og Soffía) drifum okkur fram í eldhús að borða um leið og við vöknuðum en Stebbi var eitthvað latur og nennti ekki framúr enda páskaeggið hans á náttborðinu. Hann kallaði því á okkur innan úr herbergi og bað okkur um að færa sér seríos í rúmið. Við héldum nú ekki, en eftir augnagotur, pískur og tíst tilkynntum við honum að seríosið hans væri alveg að koma. Hrekkigenin voru farin að minna á sig. Við settum seríos á disk og mjólk útá, stráðum svo vel af salti yfir allt saman. Svo færðum við Stebba herlegheitin í rúmið og fýttum okkur aftur fram. Það þarf varla að taka fram að það liðu ekki margar sekúndur áður en Stebbi kom hlaupandi inn í eldhús og spýtti gúmmulaðinu í vaskinn, ekki mjög hress með uppátækið... En við náðum honum framúr og hann bað aldrei aftur um að fá morgunmatinn í rúmið.

föstudagur, apríl 09, 2004

Ein ég sit og sauma
inní litlu húsi
enginn kemur að sjá mig...


Eins og venjulega er ég á síðustu stundu að gera alla hluti. Á að skila 100% verkefni á þriðjudaginn og samkvæmt nýjustu útreikningum á ég "aðeins" eftir svona 18-25 tíma til að klára það. Og samt er ég nokkuð langt komin... Búin að sitja með sveittan skallann í allan dag og sauma út. Reyndar líka í gær. Og í fyrradag... Ástandið er reyndar orðið þannig að þrír fingur eru nánast ónothæfir því þeir eru útstungnir og allir í blöðrum og ég finn að það er ekki langt í sinaskeiðabólgu. En það þýðir ekki að gefast upp, ég get bara sjálfri mér um kennt að vera ekki löngu byrjuð á þessu blessaða verkefni og að hafa ekki áttað mig á hve tímafrekt það yrði. Þannig að þessa dagana sit ég meira og minna ein inní herbergi með kveikt á sjónvarpinu og sauma eins og ég eigi lífið að leysa. Hugsa á meðan: þett´er bráðum búið, þett´er bráðum búið...

fimmtudagur, apríl 08, 2004

Eldhúsmellur
Ég held ég hafi mína víðfrægu tilraunagleði í eldhúsinu frá báðum foreldrum mínum. Í kvöld var mamma einmitt með tilraunastarfsemi og eldaði skrýtinn rétt úr rauðsprettu. Þetta smakkaðist reyndar mjög vel og ekki skemmdi hvítvínið sem við drukkum með. Viðurkenni reyndar að ég varð bara nokkuð hífuð af þessu eina glasi sem ég drakk...
En talandi um rauðsprettu... Mamma og pabbi hafa alltaf unnið frekar lengi á daginn og matartímar fjölskyldunnar því oft á tíðum frekar seint. Dag einn fyrir dáldið nokkrum árum hringdi mamma heim og bað mig um að sjá um matinn. Það var rauðspretta í ísskápnum og ég átti að velta henni uppúr hveiti og steikja hana. Á þessum árum hafði ég nú enga gríðarlega reynslu í eldamennsku, en áhugann vantaði ekki. Ég dreif mig því beint í eldhúsið til að undirbúa matinn. Ég byrjaði á því að sækja fiskinn og finna til það sem ég ætlaði að nota. Sótti mér svo hníf og byrjaði að roðfletta fiskinn... Þeir sem hafa prófað að roðfletta rauðsprettu vita væntanlega að það er ekki svo auðvelt... Þessi aðgerð kostaði mig semsagt blóð, svita og tár, svo ekki sé talað um ómældan tíma. Hélt samt ótrauð áfram því ég hafði jú lofað að sjá um matinn. Maturinn var svo passlega til þegar mamma og pabbi komu heim, glöð að þurfa ekki að elda. Ég beið spennt eftir viðbrögðum við eldamennskunni og þau létu svo sannarlega ekki á sér standa. Mamma skar í fiskinn, stakk upp í sig einum bita og spurði svo: Hvað, er ekkert roð?
Þar sem ég læri yfirleitt af reynslunni veit ég núna að annað hvort steikir maður rauðsprettu með roðinu eða sleppir því bara að steikja rauðsprettu eins og ég hef ákveðið að gera...

Gargandi snilld, gæsahúð og gleði!
Rás 2 rokkar! Ég er búin að sitja sem límd við útvarpið síðustu tvo tíma eða svo og hlusta á tónleikana með Damien Rice sem voru á Nasa um daginn. Magnað! Verst bara að ég vissi ekki að þeir yrðu spilaðir í dag og missti af byrjuninni þar sem ég var ekki heima hjá mér, annars hefði ég svo sannarlega tekið þá upp. En allavega, ég heyrði þá næstum alla og hafði gaman af, mjög gaman.

miðvikudagur, apríl 07, 2004

Þetta verður maður nú að sjá!
Muna ekki allir eftir Derrick? Ég man allavega eftir honum enda horfði ég á hann frá því ég man eftir mér og þar til hætt var að sýna hann. Ég stúderaði hann reyndar ekki eins vel og nokkrir af strákunum sem voru með mér í þýsku í FSu. Þeir voru búnir að komast að því að þeir gátu séð það mjög snemma í þáttunum hver væri morðinginn því hann talaði alltaf í grænan síma... Ég hef reyndar ekkert spáð í Derrick síðan þarna í FSu, fyrr en ég fletti Mogganum í morgun. Þar sá ég nefnilega að Derrick er kominn aftur! Reyndar í teiknimynd, en það þarf ekkert að vera verra. Þetta hlýtur að vera hrein snilld, mig langar mest að skella mér bara til Þýskalands og skreppa í bíó...

Ég og mínar sérviskur...
Í gegnum tíðina hef ég tamið mér að vinna öll mín verkefni heima hjá mér. Einu sinni fannst mér best að liggja á maganum uppí rúmi og reikna en þegar dæmin fóru að þyngjast og það varð algengara að ég sofnaði ofan í bækurnar fór ég að hugsa minn gang og ég fór að læra við borð, oftast samt eldhúsborðið því þar var jú mesta traffíkin. Svo flutti ég að heiman og saknaði þess að hafa ekki alla í kringum mig þegar ég var að læra. Þá kom sér vel að flest verkefnin voru skrifleg og ég átti fartölvu sem ég gat transporterað hvert sem var. Ég fann þá snilldarlausn að planta mér í húsbóndastólinn með tölvuna í fanginu og kveikt á sjónvarpinu. Horfði svo með öðru auganu á imbann á meðan ég surfaði á netinu og skrifaði ritgerðir heilu og hálfu næturnar. Núna er ég svo flutt aftur heim í traffíkina sem ég saknaði svo áður. Er búin að átta mig á því að ég saknaði hennar ekki svo mikið lengur, núna sakna ég húsbóndastólsins og sjónvarpsins. Því þó að ég hafi getað breytt þessari eldhústraffíksáráttu í húsbóndastólssjónvarpsáráttu þá hef ég ekki getað losað mig við þá áráttu að þurfa að læra heima hjá mér. Ég get einfaldlega ekki lært annarsstaðar. Þetta kemur sér frekar illa þessa dagana því það er akkúrat ekkert næði hérna á daginn. Ég er því búin að snúa sólarhringnum við fyrir páskana svo ég geti lært þegar mesta næðið er, á meðan hinir sofa. Mér finnst það reyndar kannski ekki svo slæmt því mér finnst best að sofa á daginn. Engu að síður er það frekar einmannalegt þegar það vantar húsbóndastólinn og sjónvarpið...

þriðjudagur, apríl 06, 2004

Hvernig væri heimurinn án mín...?
Þessa dagana er ég í því að gera góðverk, jafnvel fyrir fólk sem ég þekki ekki baun. Mamma hringdi í mig áðan og bað mig um að finna bók sem ég fékk í jólagjöf, matreiðslubókina Úlfar og fiskarnir, og athuga hvort ekki væri þar að finna uppskrift af lúðusúpu. Jújú, uppskriftin var þar. Mamma á það reyndar til að hringja úr vinnunni með frekar skrýtnar spurningar þannig að ég beið spennt eftir því hvað kæmi næst. Þá hafði verið hringt í hana frá bókasafninu á Hvolsvelli þar sem stödd var kona í miklum vandræðum. Hún var að fá fullt af matargestum og var búin að týna uppskriftinni sem hún hafði skrifað niður úr þessari bók. Ég semsagt hringdi á Hvolsvöll og las uppskriftina fyrir bæði bókasafnskonuna og konuna sem vantaði uppskriftina og ég þekki ekki baun...
Hvar væri þessi kona í dag ef ég hefði ekki bjargað henni...?

mánudagur, apríl 05, 2004

Það sem maður lætur hafa sig útí...
Gerðist barnapía í dag og er með því komin í dýrðlingatölu hjá Jóhönnu. Tómas og Agnes voru reyndar voða góð og eins allir vinirnir sem voru í heimsókn... Ég var plötuð með í körfubolta (já, ég spilaði körfubolta!) og það er skemmst frá því að segja að Tómas rótburstaði mig svo rækilega að annað eins hefur sjaldan eða aldrei sést. Ég er samt mjög stolt af öllum þremur stigunum sem ég skoraði... Rölti svo með tvær stelpur og hund (já, ég fór út að labba með hundinn! ...eða kannski frekar hundurinn með mig...) í bakaríið til að kaupa brauð í hádegismatinn. Þar fyrir utan er ég búin að lita, spila, horfa á fimleikaæfingar fram og til baka og margt fleira sem ég geri venjulega ekki svo oft. En Jóhanna... getnaðarvörn, my ass...

sunnudagur, apríl 04, 2004

Ef maður ætlar að gera betur en vel fer oft verr en illa...
Þegar ég vaknaði í morgun var það fyrsta sem ég sá kraninn á ofninum í herberginu mínu. Ósköp venjulegur ofnakrani svosem en það sem ég rak augun í var tenging kranans við ofninn, róin og smá rörbútur ómálað og sást í svona hvítt píparateip til að þétta svona dót. Einu sinni ákvað ég nefnilega viku fyrir jól að mála herbergið mitt. Þar sem ég geri hlutina annað hvort almennilega eða sleppi því alveg þá var þetta gert með stæl. Öll húsgögn og bara allt úr herberginu var flutt fram í holið, meira að segja skápurinn var skrúfaður í sundur og fluttur fram. En það var ekki nóg. Ég heimtaði að ofninn yrði líka tekinn af til að hægt væri að mála hann almennilega svo og vegginn á bak við hann. Þessa fyrstu nótt framkvæmdatímabilsins máttum við vakna á 2-4 tíma fresti til að tæma balann sem var settur undir lekann úr ofnakrananum og daginn eftir ræstum við út pípara til að redda málunum. Þar sem ég var á annað borð að fara að mála og því búin að ryðja öllu út úr herberginu var alveg tilvalið að nota tækifærið og korkleggja gólfið í skápagatinu þar sem var löngu búið að rífa niður heimasmíðaða skápinn. Ég lagðist því að fjóra fætur, skrúfaði niður krossviðsplötu og límdi korkinn ofaná, pússaði svo niður lakkið á restinni af gólfinu og lakkaði allt upp á nýtt. Um að gera að gera þetta almennilega fyrst ég var byrjuð á annað borð... Svo var herbergið málað, ofninn settur aftur á og ég flutti dótið aftur inn tveimur dögum fyrir jól við mikinn fögnuð mömmu... Og allt leit vel út í fyrstu... En þar sem ég kýs að sofa í köldu herbergi er mjög algengt að glugginn sé opinn og skrúfað niður í ofninum. Þess vegna tók það margar vikur að finna það út að þegar ofninn var settur á eftir framkvæmdirnar gleymdist að vegna leka höfðum við fengið pípara til að skrúfa fyrir eitthvað þannig að það var ekki hægt að hækka hitann á ofninum... Það kom reyndar ekki að sök þar sem ég hækka hitann á honum afar sjaldan. Það var ekki fyrr en Sólveig braut kranann af í einhverjum fíflalátum með Stebba næstum ári eftir að ég málaði að pabbi notaði tækifærið þegar hann skipti um krana og lagaði ofninn. Þess vegna er ómálað og ljótt á milli ofnsins og kranans...

Ákvað annars þar sem ég átti að vera að skrifa eins og eitt stykki lokaritgerð að gera vorhreingerningu á herberginu mínu. Eins og áður hefur komið fram hef ég einstaka þörf til að gera hlutina betur en vel þegar ég loksins læt verða af því... Ég (sem hendi aldrei neinu þar sem það vantar í mig hendigenið) ruddi ótrúlega miklu drasli í ruslið eða í kassa upp á loft og burstaði, barði, viðraði og skrúbbaði og allar græjur. Í öllum hamaganginum tókst mér svo að rústa á mér heila hnénu þannig að frekari aðgerðir fá að bíða til morguns. Er samt nokkuð ánægð með afrakstur dagsins!

laugardagur, apríl 03, 2004

Jæja, hvað eigum við að taka upp í dag?
Ég á eina uppáhalds spólu, þá meina ég kasettu. Hún er síðan í febrúar 1984 og á henni er meðal annars að finna lög eins og Stjáni saxófón, Holiday, Blue moon on monday, Radio GaGa, Relax og fleiri skemmtileg. Síðustu vikur hef ég verið að heyra Stjána saxófón spilað nokkuð oft í útvarpinu og ekki fundist það leiðinlegt. Í dag heyrði ég svo Holiday í útvarpinu og þá fór ég að hugsa um þessa spólu. Hún er orðin 20 ára og kannski aðeins farin að slappast. Mig langar svo til að halda upp á það sem á henni er, kannski jafnvel færa hana yfir á geisladisk. Ég bara veit ekki hvernig ég að að gera það og á heldur ekki þær græjur sem mig grunar að þurfi í verkið, getur kannski einhver hjálpað mér?

Ég fór á vídeóleiguna í gær og tók mér spólu, City of God. Hvílík snilldarmynd! Kippti með mér eintaki af Myndböndum mánaðarins, bestu klósettlesningu sem ég veit. Þegar ég fletti í gegn og skoðaði topp 20 listann aftast í blaðinu komst ég að því að ég er búin að vera einstaklega léleg að taka spólur í vetur. Fyrir nokkrum árum var ég alltaf búin að sjá svona 4 til 14 myndir af þeim 20 sem nefndar eru en núna var ég aðeins búin að sjá 1. Eina mynd! Það eru ekki nema 5% af listanum! Þegar ég fór að hugsa málið fann ég tvær ástæður fyrir þessu. Bæði er ég búin að vera að reyna aðeins að spara og svo hef ég líka bara haft nóg annað að gera. Sé reyndar fram úr því í nánustu framtíð því eftir mánuð á ég að vera búin að skila öllu af mér í skólanum! Semsagt eftir mánuð er ég búin í skólanum!

föstudagur, apríl 02, 2004

Ert´að kidda mig?
Það er ekki svo ýkja langt síðan auglýsingar fyrir tónleika Deep purple fóru að sjást. Pabbi lýsti því yfir að hann ætlaði sko ekki að fara að borga svona og svona mikið fyrir að standa og horfa á þessa kalla spila... Við Sólveig vissum samt það þau langaði bæði að fara. Við ákváðum því að bjóða þeim á tónleikana. Þarmeð upphófst mikið laumuspil en pabbi og mamma áttu ekki að fá að vita neitt fyrr en miðarnir væru komnir í hús, Sólveig meira að segja búin að vakta póstkassann alla vikuna en miðarnir eru enn ekki komnir. Pabbi kom svo heim í kvöld, passlega til að sjá í fréttunum röðina sem var fyrir utan Hard Rock í dag og tilkynnti okkur glaður í bragði að hann væri að fara á þessa tónleika...
Niðurstaða: Ég er trúlega að fara á Deep Purple tónleikana!

Þar sem ég virðist gjörsamlega vera að tapa mér í tónleikaflóðinu sem tröllríður landinu þessa dagana rölti ég upp á bæ á leiðinni heim úr vinnunni í dag og sótti um vinnu fyrir sumarið. Er frekar bjartsýn á að fá þetta, en maður verður samt bara að bíða og sjá...

ÉG ER KOMIN Í PÁSKAFRÍ!!!
Það fer reyndar að mestu leyti í ritgerðasmíð og saumaskap en þess á milli skal þó slakað á og étið ótæpilega af súkkulaði og öðru góðgæti. Það er víst síðasti séns því eftir páska er á dagskránni að skella sér í smá átak svo maður líti nú vel út í útskriftinni...

fimmtudagur, apríl 01, 2004

Það er gott að eiga góða að!
Það sannaðist svo sannarlega í dag. Ég var búin að sitja heima, lasin og bíllaus, og reyna að kaupa miða á Placebo á vefsíðu Icelandair í 40 mínútur, en þegar ég reyndi að kaupa miða kom alltaf This page cannot be displayed. Ég var orðin úrkula vonar um að fá miða þegar Jóna datt inn á msn. Ég notaði tækifærið og lét hana prófa síðuna og þar sem hún komst áfram keypti hún bara fyrir mig miðana alla leið frá Svíþjóð!!! Ekki amalegt það! Ég hringdi reyndar út til þeirra því ég vildi ekki gefa þeim kortanúmerið mitt á msn-inu og Stebbi kláraði kaupin fyrir mig. Svo nú á ég von á glaðningi í pósinum einhvern næstu daga! Takk takk Stebbi og Jóna fyrir hjálpina!!!

Fékk reyndar fleiri gleðifréttir í dag. Ég er búin að leysa vandamálið sem stoppaði mig í að halda áfram með verkefnið sem ég átti að skila næsta mánudag. Frétti svo líka að það væri búið að fresta skiladegi um rúma viku. Ekki leiðininlegt það! Svo fékk ég líka comment á lokaverkefnið mitt frá leiðsögukennaranum mínum og henni leist svona líka vel á það sem komið er. Þannig að ég er alveg í skýjunum í dag!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?