<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, maí 30, 2004

Ó boy...
Þessa stundina er ég á snilldar tónleikum! Já, hún Soffía brillerar við píanóið með frumsamin lög og texta, aðallega um viðburði dagsins þó einhver skáldskapur sé innan um. Eitt lagið var til dæmis óður til Sigrúnar frænku (það er til mín) um hve yndislegt veðrið var í dag. Veit ekki hvort það hafði einhver áhrif á þá tónsmíð að ég fór með Soffíu í heljarinnar gönguferð á róluvöllinn í góða veðrinu í morgun. Önnur lög hafa meðal annars fjallað um prinsessuna Dagnýju Rósu (frænka okkar sem Soffía hefur ekki hitt lengi), afmælisveisluna (ferminguna hans Kjartans) sem við vorum í svo um strákana sem leika sér í grasinu alla daga vikunnar og kisur koma þar líka við sögu... Og tónleikarnir halda enn áfram...
Soffía er semsagt snillingur og nýtur sín í botn í heimsókn hjá ömmu og afa þar sem hún fær óskipta athygli. Í gær fórum við til dæmis í dýragarðinn í Slakka í Laugarási. Hún var reyndar hálfhrædd við dýrin en hafði mikinn áhuga á leiktækjunum sem voru á staðnum. Fórum svo annan hring að skoða dýrin og þegar amman tók hana í fangið jókst hugrekkið um helming og hún leyfði sér meira að segja aðeins að stríða gríslingunum... Fórum svo í Skálholt á heimleiðinni því Sólveigu langaði svo að sjá fornleifauppgröftinn. Soffía var voða spennt að hlusta á Sólveigu segja frá gömlu húsunum og ýmsu í sambandi við þau. Hún vildi óð og uppvæg fara í undirgöngin til að komast nær uppgreftrinum og fannst rosa spennandi að labba undir kirkjunni á steinum eins og voru einu sinni hafðir fyrir gólf í húsunum... Hún horfði svo dolfallin á mynd sem sýndi hvernig talið er að Skálholtsbæirnir hafi verið og benti á fólkið og sagði að það hefði einu sinni átt heima í þessum húsum. Túristarnir sem voru þarna í skoðunarferð voru steinhissa á því hversu áhugasöm hún var um þetta. Soldið hissa horfi hún svo á ömmuna, innan um alla túristana, og sagði: Það er einhver á Íslandi sem sagði NO... Eftir kirkuheimsóknina settumst við svo inn í bíl og þegar Soffía var sest galaði hún: Krakkinn er kominn!... Hún er bara fyndin...
Tónleikunum lauk rétt í þessu með því að prímadonnan galaði yfir allt: Tack for dagen, alle klappe for meg!

fimmtudagur, maí 27, 2004

ómægod
Fór á Pixies í gær. Snilld! Var reyndar eins og símamella í gær, en ég eyddi þremur klukkutímum í að reyna að koma út miðanum hennar Baddýar. Það tókst nú fyrir rest, en ekki samt fyrr en um hálf 6, semsagt á síðustu stundu. Soffía Helga ákvað að koma með eftir að hafa blikkað mömmu sína til að passa fyrir sig. En Pixies voru góðir, mjög góðir!
Eftir tónleikana vorum við svo svangar að við skruppum á Subway. Gerðumst við þar leiðinlegir kúnnar þegar við sáum á matseðlinum að kjúklingabringan væri ekki til. Já, það stóð á matseðlinum að hún væri ekki til! Við þurftum auðvitað að fá að vita hvers vegna það stæði á matseðlinum að hún væri ekki til og fengum þau svör að það væri kvóti á hve mikill kjúklingur væri sendur til landsins á hverju ári og að sá hvóti væri búinn fyrir þetta ár... Reyndar fengum við líka að vita að kjúklingurinn kláraðist á hverju ári! Kjúklingurinn kæmi nú samt aftur í sumar þar sem nýtt kvótaár byrjaði á sumrin. Við spurðum svo, meira reyndar í gamni en alvöru, hvort það væri þá ekki bara hægt að nota íslenskan kjúkling, en það má víst ekki því þetta er Subway og þar verður allt að vera eins á öllum stöðum... Enduðum þá á því að spyrja aumingjans stelpuna hvort grænmetið væri þá kannski líka útlenskt eins og kjúklingurinn...

Jæja, líkamsræktin fyrir alla vikuna, ef ekki bara lengri tíma, átti sér stað í morgun. Var plötuð með í hjólaferð með heilum árgangi því einn lærði eiginlega bara að hjóla í gær og var frekar svona valtur auk þess að kunna hvorki að beygja né stoppa á hjólinu... Hljóp semsagt með hópnum lengst upp í dal og til baka(upp og niður Gossabrekkuna og alles), haldandi í hjól stráksins, reynandi að láta hann halda jafnvægi og sjá til þess að hann kæmist eitthvað úr "sporunum". Tók satt að segja talsvert á...

þriðjudagur, maí 25, 2004

Rétt í þessu var ég að missa fimm kíló. Af áhyggjum sko. Ég er semsagt búin að finna leigjanda! Nú er bara að drífa í því að klára að mála og þrífa aðeins betur svo daman geti flutt inn um helgina. Hún á reyndar nóg af húsgögnum sjálf þannig að mig vantar enn geymslupláss fyrir eins og einn sófa, hægindastól og ruggustól. Einhver sem vantar að fá svoleiðis lánað í eins og eitt ár eða svo? Og virkilega enginn sem langar á Pixies annað kvöld?

Hmm, ef ég var stíf og stirð í gær þá er ég pikkföst í dag... Held semsagt að göngutúrinn minn í gær hafi verið aðeins of mikið af hinu góða... Ég ætlaði sko að taka strætó frá Bústaðaveginum og vestur í bæ. Ég rétt missti af þristinum þannig að ég hoppaði upp í sjöuna þegar hún kom. Hún fór samt bara niðrá Lækjartorg og þegar þangað kom voru allir strætóar vestur í bæ nýfarnir. Ég viðurkenni fúslega að vera ekki mjög sátt við strætókerfið og ég veit fátt leiðinlegra en að bíða eftir strætó. Ég þrammaði því af stað frekar en að hanga og bíða. Það var reyndar bara fínt að fá smá göngutúr í góða veðrinu í vesturbænum. Ég fór nú samt örugglega einhverja krókaleið, enda hef ég aldrei áður labbað frá Lækjartorgi og vestur á Keilugranda. Tók samt ekki nema kannski 20-25 mínútur. Nokkuð gott held ég, bara svipað og Lækjartorg-Háteigsvegur þegar ég bjó þar eða Þingholtsstræti (þegar ég bjó þar)-Kennaraháskólinn.

By the way, vantar einhvern miða á Pixies annað kvöld eða vill einhver koma með okkur á Pixies annað kvöld? Vegna óviðráðanlegra orsaka eigum við semsagt einn miða á lausu.

mánudagur, maí 24, 2004

Phhhh...
Kræst, í dag er ég með harðsperrur dauðans, gráar strípur og eina svarta hönd... Helgin hafði þessi áhrif á mig. Eyddi laugardeginum í að hjálpa ömmu og afa að flytja. Fyrst að bera allt draslið niður af þriðju hæð og út í bíl og síðan troða því í lyftu upp á fjórðu hæð. Auðvitað með tilheyrandi stigahlaupum og skemmtilegheitum. Er því í dag öll lurkum lamin og er búin að finna vöðva sem ég vissi ekki einu sinni að væru til, hvað þá að hægt væri að fá harðsperrur á þá staði... Komst svo að því í morgun að ég vissi ekki hvort væri verra að labba upp stigana í vinnunni eða niður þá... Gráu hárin eru tilkomin vegna málningarvinnu í íbúðinni minni. Já, ég er að lappa upp á hana svo ég geti komið henni í leigu. Þrír skoðuðu í dag og allavega tveir ætla að skoða á morgun. Svo þarf ég bara að ákveða mig... Svarta höndin er svo einhverjum fíflum að kenna... Ég tók mig semsagt til í góða veðrinu í gær og fíflahreinsaði garðinn minn. Ég var satt að segja búin að gleyma hvað fíflamjólk er ógeðsleg, jakk...

laugardagur, maí 22, 2004

Hard working woman
Síðustu dagar hafa verið frekar annasamir svo vægt sé til orða tekið. Þar sem ég er búin að vera ofurþreytt síðustu vikur og sofa allt frá einum og upp í þrjá tíma yfir daginn, fyrir utan venjulegan nætursvefn, voru það talsverð viðbrigði að hætta því svona einntveirogþrír á miðvikudaginn og setja í rallýgírinn. Á miðvikudagskvöldið ætluðum við að skreppa í bæinn og heilsa upp á Jónu, Soffíu og Karólínu sem komu til landsins fyrr um daginn. Við "stelpurnar" vorum svo bíllausar því pabbi var að parketleggja hjá ömmu og afa þannig að ég dreif mig með vinkonum Sólveigar á nærfatakynningu. Fór svo með þeim heim til Rakelar þar sem við drukkum rauðvín og fleira og spiluðum. Ég fann reyndar marbletti á einkennilegum stöðum eftir þetta kvöld en ég kenni átökunum við rauðvínsflöskuna um þá, enda var hún svo þröng að það þurfti þrjár til að ná honum út. Tappanum sko... Jæja, endaði svo með stelpunum á Snúllabar þar sem við vorum svotil einar að djamma. Við reyndar skemmtum okkur, og greinilega öðrum líka, svo vel að einn hljómsveitarmeðlimanna lét færa okkur bjór á línuna! En síðasta færsla gefur kannski ágæta mynd af þessu sérlega skemmtilega kvöldi...
Ég var satt að segja hissa á hvað ég var hress þegar ég vaknaði í vinnu klukkan hálf níu á fimmtudaginn eftir að hafa farið pissfull að sofa þremur og hálfum tíma fyrr... Ég fann svo hvernig þynnkan helltist yfir mig eftir því sem leið á morguninn og í hádeginu var ég vægast saagt frekar slöpp. Fór nú samt með í bæinn eftir hádegi og afrekaði að fara í þrjár heimsóknir, að þrífa smá sófa og að taka á móti lyklunum af íbúðinni minni! Ekki léleg frammistaða miðað við heilsufarið... Hafði engan tíma til að "sofa úr mér" yfir daginn þannig að ég rotaðist um leið og ég lagðist niður þegar ég kom heim um miðnætti.
Mætti í vinnu klukkan 8 á föstudaginn og sat þar yfir í tveimur prófum plús allt hitt sem ég náði að gera áður en ég þurfti að ná eittrútunni í bæinn. Þurfti nefnilega að sækja bílinn til pabba svo ég gæti svo farið aftur heim og sótt mömmu og Sólveigu svo við kæmumst í útskriftina hennar Birgittu -í bænum. Það var því soldið span á okkur og eftir veisluna fórum við og þrifum í nýju íbúðinni hjá ömmu og afa sem var ógeðsleg eftir iðnaðarmennina þannig að við vorum ekki komin heim fyrr en um miðnætti, dauðþreyttar.
Í morgun vorum við svo mætt í Hafnarfjörðinn klukkan 9 til að flytja með ömmu og afa. Það var múgur og margmenni þarna þannig að þetta gekk nokkuð fljótt. Eyddum svo seinnipartinum í að koma þeim fyrir í nýju íbúðinni, klára að þrífa og taka upp úr kössum. Mér fannst soldið skemmtilegt að sjá lyftuna í nýju blokkinni. Blokkin er 5 hæðir en í lyftunni eru takkar frá 0 og upp í 9. Ég þorði nú ekki alveg að ýta á einhvern takka hærri en 5, enda stóð Schindler á "lyklaborðinu"... Ég var því dáldið að spá hvort það væri eitthvað tengt Schindler´s list, viðurkenni þó þá dauðasynd að hafa ekki séð þá mynd ennþá. Geri það kannski við tækifæri fyrst lyftan hans er í blokkinni hennar ömmu. Annars ætla ég ekkert að fara að vera fastagestur þarna, í lyftunni sko. Það gildir nefnilega alveg það sama um lyftur og ryksugur í mínu tilfelli, ef ég get brjargað mér án þess að nota það þá geri ég það!
Núna er ég svo komin heim, en ekki á leiðinni í bólið því Bogga kíkti í heimsókn, alla leiðina frá Ameríkunni! Ekki svo oft sem ég sé hana þannig að núna geng ég fyrir síðustu dropunum af auka-auka-orkunni minni... Svo er mæting í íbúðina mína á morgun til að sparsla og mála. Ætla samt að leyfa mér að sofa aðeins út fyrst, hlakka ekki lítið til...

fimmtudagur, maí 20, 2004

kj´dfisdjalsidgjatr
Kræst, er pissfull... samt það fyrsta sem ég gerði var að kveikja á tölvunni... Hmmm... Veit satt að segja ekki alveg hvað ég er að gera hérna... ;)
Annars fór ég á TROY í gær. Satt að segja stórkostleg mynd!!! Ekkert minna um hana að segja... Annars sat Sólveig við hliðina á Hössa úr Quarashi sem grenjaði víst eitthvað... þannig að Sólveig var svo hissa að hún grét ekkert... en ég var með tárin í augunum... Annars hrikalega átakanleg og damatísk mynd! Okkur datt bara í hug Tinna þegar við sáum Romeo & Juliet í bíó um árið... og Tinna grenjaði svo að við hálf bárum hana út í bíl og hún var með ekka alla leiðina heim...
Kvöldið í kvöld var svo dáldið spes, en þó MJÖG skemmtilegt! Fór með Sólveigu á nærfatakynningu (tók reyndar brækurnar með mér á djammið...) og hittum þar vinkonur hennar. Sóttum rauðvínið mitt heim og drukkum það á meðan við spiluðum Party & co. Brjálað stuð hjá Rakel, samt best þegar við vorum þrjár að reyna að opna seinni rauðvínsflöskuna... ;) Enduðum svo á Snúlla þar sem var brjálað stuð að vanda og ég lánaði húslyklana mína eftir að hafa opnað fyrir okkur Sólveigu eftir djammið... ;) Bara gaman... Stóð annars varla í lappirnar á meðan ég fann eitthvað handa okkurð að éta fyrir svefninn og ég held svei mér þá að Sólveig sé sofnuð fyrir framan ofninn í stofunni eftir að hafa gert heiðarlega tilraun til að hengja upp úr þvottavélinni... ;)
Allavega, góða nótt! Vona bara að ég geti mætt í vinnuna kl. 9 í fyrramálið...

mánudagur, maí 17, 2004

Allt að verða vitlaust!
Það er bara allt að verða brjálað... Ég á reyndar kvöldið í kvöld til að slaka aðeins á fyrir komandi törn, held ég eyði því fyrir framan imbann eins og venjan er á mánudagskvöldum ;)
Dagskráin næstu daga er svo á þessa leið:
þriðjudagur 18. maí. Forsýning á Troy! Vann á dögunum tvo miða á þessa (vonandi) stórgóðu mynd. Takk takk KBbanki!
miðvikudagur 19. maí. Jóna, Soffía og Karólína koma til landsins! Býst við að maður skreppi í bæinn að heilsa upp á þær mæðgur, varla annað hægt.
fimmtudagur 20. maí, uppstigningardagur. Ég fæ íbúðina mína afhenta! Ekki leiðinlegt það... Býst við að vinir og vandamenn kíki kannski á gripinn áður en ég kem henni í leigu...
föstudagur 21. maí. Birgitta stúdent, veisla í Kópavoginum.
miðvikudagur 26. maí. PIXIES! Engin frekari útskýring nauðsynleg...
Eftir þessa törn hægist aðeins á, en þó er talsvert um að vera næstu vikurnar. Kjartan Helgi að fermast um hvítasunnuna, útskrift hjá Freyju 5. júní og svo auðvitað útskriftin mín 12. júní! Var reyndar að enda við að bóka sumarbústað vikuna 11. - 18. júní! Það er semsagt grill og heitur pottur í Brekkuskógi fyrir þá sem vilja fagna þessum tímamótum með mér...

sunnudagur, maí 16, 2004

Tóm þvæla og vitleysa...
Gærkvöldið var eitt bilaðasta kvöld sem ég hef upplifað lengi, skemmti mér samt mjög vel í öllu ruglinu. Brunaði til Önnu í Keflavík seinnipartinn í gær þar sem við bökuðum pizzur og horfðum á Júróvisjón með Sollu, vinkonu Önnu. Skemmtum okkur mjög vel yfir bæði keppninni og stigagjöfinni og hlógum okkur máttlausar á köflum. Ruslana mátti vel vinna en önnur lög sem lentu ofarlega áttu alls ekkert heima þar sem þau lentu. Jónsi fékk það sem hann átti skilið að mínu mati, hef oft heyrt hann syngja betur. Gísli Marteinn fær plús í kladdann fyrir skemmtileg komment á keppendur og lög. Eftir keppnina sátum við svo þrjár (brjálað partý sko...) og sötruðum bjór og kjöftuðum þangað til við fórum á Duus. Leigubílstjórinn fær stóran plús fyrir að vera skemmtilegur og eiga flottan bíl. Brjálað stuð á Duus, en þar hélt uppi fjörinu kall með skemmtara. Við þekktum svotil engan þarna en hittum samt eitt stykki óæskilegan x-boyfriend og "bræðurna" Kára og Kára... Rugluðum rækilega í þeim "bræðrum" og enduðum á að taka leigubíl með þeim í einhverja íbúð sem þeir höfðu. Það var reyndar frekar fyndið því Anna var að spá í að kaupa akkúrat þessa íbúð þegar hún keypti sína. Hún tók því smá sýningatúr fyrir okkur hin... Hittum á sama leigubílstjórann og fyrr um kvöldið sem hló að ruglinu í okkur og Kárunum. Kárarnir buðu upp á bjór og Playstation, kræst, og við röfluðum þá í kaf áður en við stungum af heim, búnar að gera góðverk dagsins. Ja, við reiknuðum allavega með því að þeir færu ekki aftur niðrí bæ til að sækja sér fleiri stelpur þannig að við ákváðum að við hefðum bjargað þarna einu til tveimur hjónaböndum með því að fylgja þeim "heim" og stinga svo af...

laugardagur, maí 15, 2004

Júróvisjón
Gleðilega Júróvisjón í kvöld!
Ég verð í Keflavík í kvöld. Held svei mér þá að það sé bara orðið Júróvisjónþema hjá mér að vera aldrei tvisvar á sama stað að horfa á keppnina... Það er allavega ár og öld síðan ég horfði á hana hér í Hveró, en hef undanfarin ár prófað hina ýmsu staði, bæði innan lands og utan... Ég ætla ekki að spá neinu um sætaskipan, en ég giska þó á að Jónsi verði einhversstaðar fyrir miðju.

En gjörsamlega ótengt Júróvisjón...
Brandari dagsins er í boði Fréttablaðsins og ég held að einungis fáir útvaldir ná honum... þið (útvöldu) vitið hvað ég meina... "Örugglega 25 og Bensinn var bestur!"...

föstudagur, maí 14, 2004

Celebration!
Já, nú er svo sannarlega tilefni til að fagna! Fékk tvær einkunnir í dag, 8,5 og 9! Var áður búin að fá eina 7,5 en á enn eftir að fá einkunn fyrir lokaritgerðina. Ég verð að segja að ég er mjög sátt við þessar einkunnir. 7,5-an og 8,5-an voru báðar eitthvað sem ég var um það bil búin að reikna með miðað við það sem ég lagði í verkefnin. Aftur á móti kom 9-an mér mjög svo á óvart. Hana fékk ég nefnilega fyrir námskeiðið sem ég klúðraði hér um bil eins og það lagði sig og þar að auki dreymdi mig um daginn að kennarinn hefði fellt mig. Umsögnin sem ég fékk með þessari 9 var líka stórskemmtileg, en orðrétt segir þar meðal annars "Aðal taskan er sérlega vel unnin í alla staði, eiginlega ótrúlega góð. Þvílík þolinmæði - það er góður kostur sem mun nýtast þér vel." Halelúja... Viðurkenni reyndar að undir lokin var það ekki þolinmæði sem varð til þess að ég kláraði heldur mín margfræga þrjóska...

fimmtudagur, maí 13, 2004

Damn...
Þá er það komið á hreint. Von mín um júróvisjónpartý aldarinnar er orðin að engu. Upphaflega átti ég að fá íbúðina afhenta 15. maí en því var svo breytt í 20. maí. Ég hringdi áðan til að tékka á þessu og ég fæ lyklavöldin þann tuttugasta. Ég var samt búin að vera að vona að fólkið hringdi í mig til að segja að ég fengi íbúðina fyrr, það er fyrir júróvisjón... Var búin að sjá fyrir mér tóma íbúð, fullt af fólki, júróvisjón pizzur og bjór... og ekki slæmt að geta labbað í bæinn eftir herlegheitin... og ekki verra að geta labbað aftur heim...
En auk þess að vera íbúðarlaus á laugardagskvöldið verða vinir mínir dreifðir um allar jarðir það kvöld. Jóróvisjónið mitt er því í frekar lausu lofti eins og er. Eins og staðan er í dag stendur valið á milli rólegheita hér í Hveragerði, djammi í Keflavík eða að ég fari beinlínis og leiti mér að partýi í Reykjavík...

Í dag er sá merkisdagur að það eru akkúrat 11 mánuðir síðan ég hætti að naga neglurnar. Það er ekki lítið sem ég er stolt af því. Ég er samt minna stolt af þessari mynd... Soffía Helga, mér finnst þetta ekki fallega gert af þér! Árni á aftur á móti hrós skilið fyrir að hafa ekki sett inn á síðuna sína myndbandið af mér úr afmælinu hennar Guðbjargar.

miðvikudagur, maí 12, 2004

Flashback
Er þessa stundina að hlusta á Rás 2. Þeir eiga heiður skilinn fyrir að spila reglulega upptökur frá hinum og þessum tónleikum. Núna er til dæmis verið að spila fyrri hlutann af tónleikunum með Damien Rice sem voru 19. mars. Þvílík endemis snilld sem það var og ég fæ enn gæsahúð við að hlusta á þetta. Hvað er líka annað hægt...?

Annars fer ekki á milli mála að Eurovision nálgast óðfluga. Fór á laugardagskvöldið til Árna og Guðbjargar ásamt Freyju, Gunnu og Önnu. Kvöldið snérist upp í að hlusta á gömul Eurovisionlög og leita að öðrum á netinu, án árangurs þó. Hlustaði svo á forkeppnina áðan og varð satt að segja hálf undrandi á lagavalinu sem komst áfram þó svo að ég hefði sjálf valið nokkur þeirra áfram. En laugardagskvöldið er frátekið fyrir almennilegt Eurovisionpartý. Þegar ég segi almennilegt þá meina ég að það verður að slá út það sem ég upplifði í fyrra... Írskur pub á Ítalíu þar sem við horfðum á útsendingu frá Þýskalandi. Eftir keppnina enduðum við svo á gítarpartýi niðri á strönd.
Það er bara spurning um hver ætlar að halda fyrir mig partý og hvar... Einhver tilboð?

Talandi um tilboð. Fékk email áðan þar sem mér var tilkynnt að ég hefði unnið tvo miða á forsýningu á Troy 18. maí. Vill einhver koma með mér?

sunnudagur, maí 09, 2004

Vá, heilt ár...
Í dag er merkisdagur. Það er nefnilega heilt ár síðan ég byrjaði að blogga! Á þessu ári hefur margt gerst og í 235 færslum hef ég sagt frá hinu og þessu misgáfulegu og misskemmtilegu. á þessu eina ári er ég til dæmis búin að skoða 11 lönd í þremur utanlandsferðum. Ég er búin að flytja, kenna í heilan vetur og klára skólann minn um leið. Ég keypti mér íbúð, varð guðmóðir og náði þeim merka áfanga að verða 25 ára. Þar fyrir utan er ég svo búin að lenda í ýmsum ævintýrum og hremmingum og því má með sanni segja að þetta ár hafi verið mjög viðburðaríkt...

laugardagur, maí 08, 2004

Ég var að átta mig á dátlu...

Ég veit að ég verð seint talin vera rekstrarfræðingur - en viðrekstrarfræðingur, það er aftur á móti annað mál...

þriðjudagur, maí 04, 2004

Það er ýmist of eða van...
Ég get ekki sagt að ég hafi verið dugleg í djamminu í vetur. Þessa dagana er ég aftur á móti frekar upptekin við að bæta upp djammleysi vetrarins. Átti þrælskemmtilegt föstudagskvöld um síðustu helgi, partý, stripp (ekki samt ég), ball og læti. Næsta helgi ætti ekki að verða verri, bæði kvöldin bókuð. Er að fara á föstudaginn í óvissuferð með kennurunum og það þarf enginn að segja mér það að það verði ekki stuð þar... Svo ætla ég að bregða mér í borgarferð á laugardaginn og skella mér í partý, hver veit hvernig það endar... snakk, Gunna, snakk... ;) Við þurfum semsagt að segja bless við Gunnu því hún er að fara í Þórsmörk þar sem hún ætlar að vera í allt sumar. Hún kemur reyndar heim eins og aðra hverja helgi til að djamma, enda var hún búin að lofa mér almennilegu djammsumri, en það er alltaf gaman að hafa ástæðu til að lyfta sér upp. Til að bæta um betur er ég svo búin að bóka eitthvað um hverja einustu helgi fram í miðjan júní! Það verður að segjast að það er nokkuð langt síðan ég hef verið svona bissí...

mánudagur, maí 03, 2004

Ertu ennþá alltaf svona óheppin?
Ég hef það alvarlega á tilfinningunni að ég sé að ganga í gegn um einhvers konar óhappahrinu í líkingu við þá sem ég upplifði fyrir akkúrat tveimur árum. Sú hrina byrjaði 1. maí 2002 með því að ég hljóp á opna skúffu í vinnunni, en það orsakaði vænan skurð rétt fyrir neðan hné fyrir utan það að hnéð var tvöfalt, blátt og marið. Í heila viku þar á eftir slysaðist ég svo til að gera einhverja gloríu á hverjum degi, svo sem að brenna mig á maganum við það að taka köku úr ofninum, saga í putta með járnsög og klemma annan putta á skúffu og gleyma að opna skúffuna áður en ég kippti puttanum upp þannig að það fór stykki úr honum...
Ef grunur minn er á rökum reistur þá byrjaði óhappahrina þessa árs 30. apríl þegar keyrt var aftan á mig þegar ég var á leiðinni að skila lokaritgerðinni. Það fór þó betur en á horfðist og bæði ég og bíllinn erum í góðu standi ef frá er talinn smá stirðleiki og stífelsi í hálsi mínum og herðum... Í gær tókst mér svo að sparka svo rækilega upp undir svona samanbrotið útileguborð (hitti auðvitað beint á einhverja festingu) að önnur stóra táin er núna skemmtilega rauð, helaum og talsvert stærri en hún ætti að vera... Í dag var það svo reyndar frekar hversdagslegt óhapp, en á lærum mínum má glöggt sjá að borð, kommóður og fleiri húsgögn á heimilinu eru flest í sömu hæð - og ég er dugleg að ganga á þau. Í dag hljóp ég semsagt á jarðskjálftabyrgið (stórt og massíft heimasmíðað borð sem gegnir hlutverki tölvuborðs, saumaborðs, borðstofuborðs þegar risaveislur eru haldnar og síðast en ekki síst jarðskjálftabyrgis og ekki veitir af hér í Skjálftagerði...) okkar...
Svo er bara spurning hvort eitthvað gerist á morgun. Ef svo er þá tel ég grun minn á rökum reistan, annars ekki.
Það var samt soldið fyndið þarna 2002... Svona viku eftir hrinuna hringdi vinkona mín í mig frá Húsavík. Það var reyndar meðal annars hún sem ég ætlaði að heimsækja þegar ég fór í fræga bíltúrinn til Húsavíkur og það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom þangað var að brjóta bíllykilinn... En allavega, viku eftir fyrrgreinda óhappahrinu hringdi hún í mig og eftir ágætis spjall spurði hún, grafalvarleg, Ertu ennþá alltaf svona óheppin?

laugardagur, maí 01, 2004

Hljóðkútur
Ég er búin í skólanum! Skilaði síðustu verkefnunum í gær og því er ekkert eftir annað en að mæta í sparifötunum í Háskólabíó 12. júní! Ekki leiðinlegt það.
Það var samt dáldið leiðinlegt í gær þegar ég fór í bæinn til að skila lokaritgerðinni. Ég var rétt komin upp Kambana og það var vörubíll á undan mér. Allt í einu sé ég hljóðkútinn og pústið og allt heila klabbið hrynja undan vörubílnum og koma æðandi á móti mér. Bílstjórinn virðist samt ekki hafa tekið eftir neinu því hann brunaði bara áfram. Ég klossbremsaði og rétt slapp við að rústa bæði bílnum og sjálfri mér með því að bruna á ferlíkið. En Adam var ekki lengi í Paradís... Bíllinn á eftir mér var ekki eins fljótur að bremsa og ég og klessti því aftan á mig. Bíllinn "minn" slapp reyndar alveg held ég en hinn fór frekar illa. Ég var í stresskasti, enda á leiðinni að skila lokaritgerðinni og átti eftir að láta binda hana inn. Náði því nú samt á góðum tíma en var frekar tens og upptjúnuð þar til ég var búin að láta hana af hendi.

Sótti svo Fanneyju og tók hana með mér austur. Hún dró mig með í partý hjá Elínborgu, svaka stuð. Fórum svo á Lionsballið á Örkinni og skemmtum okkur konunglega. Það skemmdi ekki fyrir að hafa ærlega ástæðu til að fagna...
Vaknaði svo í morgun frekar stíf og stirð í hálsinum, Var talsverðan tíma að átta mig á því að það gæti verið vegna hljóðkútsins í gær. Held samt að það sé ástæðan frekar en eitthvað slamm eða fíflagangur á ballinu... enda geri ég aldrei neitt svoleiðis...

Jæja, nú ætla ég svo sannarlega að njóta þess að gera ekkert af viti í dag og fá ekki neitt samviskubit yfir einhverju sem ég ætti að vera að gera. Ég þarf nefnilega ekki að gera neitt.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?