<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, júní 29, 2004

Varúð - sjálfstæðar konur!
Ég fílaði mig alveg í botn í kvöld! Sólveig fékk lánaðan sendiferðabíl sem er alveg ekta kallavinnubíll, allavega dáldið groddalegur... Við þurftum nefnilega að koma sófa í bæinn, sækja tvo stóla í bænum, skila sófanum og öðrum stólnum til Gunnu og Freyju og taka hinn stólinn með okkur heim. Allavega, Sólveig fékk sendiferðabílinn lánaðan og af því að hún hefur keyrt hann soldið áður var hún tilnefnd sem bílstjóri ferðarinnar. Við vorum sko bara tvær í þessum transporteringum. Við fíluðum okkur í botn á leiðinni, allir sem við keyrðum framhjá góndu inn í bílinn á þessar tvær stelpur á þessum groddabíl. Bara gaman og ennþá skemmtilegra þegar við sungum hástöfum með Stjörnunni, íslensku útvarpsstöðinni... Jæja, fyrst var að koma sófanum upp á 3. hæð til Gunnu og Freyju. Sófinn er gamall svefnsófi og kannski þess vegna nokkuð langur og þungur eftir því. Við vorum allavega fjórar að drösla sófanum upp, en upp komst hann! Hefði reyndar alveg viljað eiga þessa athöfn á myndbandi - það hefði trúlega dugað að tvær drösluðu honum upp, en þröngur stigagangur og handrið gerðu það að verkum að það þurfti að lyfta sófanum hátt, hátt á hverjum stigapalli, og á meðan hlógum við eins og vitleysingar. En já, upp komst hann! Það var svo öllu léttara að sækja stólana tvo og koma öðrum þeirra upp á 3. hæð til stelpnanna. Fíluðum okkur ekki verr á heimleiðinni, uppgefnar en ánægðar með árangurinn. Þegar leið á heimleiðina vorum við svo farnar að passa ágætlega í þennan groddabíl, ropandi í kór eins og ég veit ekki hvað. En það er allavega eitt ljóst eftir þessa ferð okkar: Það þarf sko engan karlmann þegar sjálfstæðar konur eru annars vegar...

Það varð nú lítið úr garðvinnunni hjá mér í dag en ég hef nú samt ekki setið auðum höndum. Fékk mér heljarinnar göngutúr með mömmu. Höfðum meðal annars viðkomu í Heilsubúðinni, á Listasafni Árnesinga (mér fannst sýningin þar reyndar frekar framúrstefnuleg fyrir minn smekk) og í Bónus. Er svo búin að sitja sveitt við tölvuna og setja inn nýjar myndir, meðal annars frá útskriftinni! Í kvöld erum við Sólveig svo búnar að fá lánaðan sendiferðabíl og ætlum að fara að transportera með húsgögnin okkar sem eru út um allar trissur. Erum nefnilega að missa geymsluplássin okkar um mánaðamótin og erum að flytja húsgögnin á nýja geymslustaði. Stuð, ekki satt?
Annars ætti ég nú að fara að hætta þessu og fara frekar að elda matinn svo við komumst af stað á skikkanlegum tíma...

mánudagur, júní 28, 2004

Eftir mestu letihelgi í manna minnum tók ég mig aðeins á í dag, ekki seinna vænna þar sem þetta er mín síðasta heila sumarfrísvika. Gæsluvöllurinn bíður mín svo á mánudaginn og alla virka daga næstu 6 vikur þar á eftir frá 13-16:30. Um miðjan júlí er það svo bara að bretta upp ermarnar og byrja að skúra skrúbba og bóna, eitthvað tímabundið og annað vonandi ekki svo tímabundið...$$$ ;)
Allavega, snattaði pínu í morgun og skrapp svo seinnipartinn í bæinn og verslaði hrífu og grasklippur, fór með filmu í framköllun og sótti Sólveigu í vinnuna. Fór svo með Sólveigu í heljarinnar göngutúr eftir kvöldmat. Held ég geti bara verið ánægð með afköstin í dag. Á morgun stefni ég svo á að róta eitthvað í garðinum og setja inn eitthvað af myndunum sem ég fékk í dag.

sunnudagur, júní 27, 2004

Ég held ég sé hreinlega að drepast úr leti. Naut þess rækilega í botn að vera ein í húsinu frá hádegi í gær til hádegis í dag. Byrjaði á að kjósa, stoppaði svo til að taka spólur og versla aðeins í Bónus (haha, já nú bý ég sko í stórborg!) og labbaði svo heim í rokinu. Gerði svo frekar mikið af ekki neinu það sem eftir var... Kláraði bók sem ég var hálfnuð með, horfði á tvær myndir og vítaspyrnukeppnina á milli Hollands og Svíþjóðar, pantaði pizzu og át hana næstum því alla, hékk soldið á netinu og fór seint að sofa. Vaknaði svo "eldhress" fyrir klukkan 7 í morgun... Þá var lítið annað að gera en að klára pizzuna (það er ekki til betri morgunmatur en pizza og kók!) og horfa á aðra mynd... Sofnaði svo smá stund og horfði svo á enn eina myndina, en þá voru mamma og pabbi líka komin heim. Toppaði svo letina núna áðan með því að liggja klukkutíma í sjóðandi heitu baði með Air - Talkie Walkie á fóninum, það gerist ekki betra!
Nú held ég reyndar að það sé svo komið að ef ég ríf mig ekki upp á rassgatinu þá grotni ég endanlega niður í sófann eða eitthvað álíka þannig að ég held að það sé kannski ekki svo vitlaus hugmynd að rölta niðreftir og skila spólunum frá í gær...

föstudagur, júní 25, 2004

Vaaaaaaaaááááá...
Vá vá vá. Fór á Deep Purple í gær, sé sko ekki eftir því! Við fórum 12 saman, við Sólveig, mamma og pabbi, 3 systur mömmu og makar þeirra og foreldrar eins makans! Partý á undan og allar græjur! Skemmtum okkur hreint út sagt stórkostlega. "Fánar" stóðu svo sannarlega fyrir sínu og Deep Purple voru hreint út sagt stórkostlegir! Ég er reyndar ekki stærsta manneskja sem fyrirfinnst á landinu þannig að ég sá ekki svo ýkja mikið af sviðinu, sá svona einn og einn haus ef ég stóð á tám. Pabbi aftur á móti gnæfði yfir hópinn og sá mjög vel, á kafla var hann meira að segja með beina lýsingu á því sem var að gerast á sviðinu... En aftur, ótrúlega stórfenglegir tónleikar!
Á heimleiðinni eftir tónleikana var ég með frekar sáran hausverk. Held að hluti af honum sé vegna tónleikanna, ég meina, hvers vegna að vera búin að safna rokkarahári ef maður slammar svo ekki almennilega á rokktónleikum...? Aðalástæða hausverksins er samt, að ég held, sú að ég skallaði bílinn allrækilega þegar ég settist inn í hann eftir tónleikana... Eins gott bara að strákurinn sem sat í bílnum við hliðina og horfði á tilraun mína til að rota mig var ekki sæti strákurinn sem ég sá á tónleikunum...

miðvikudagur, júní 23, 2004

Lazyboy, eða kannski frekar Lazygirl...
Ég nýt þess svooooo að vera í sumarfríi að það hálfa væri nóg. Er búin að vera á flandri hingað og þangað og prófa í leiðinni hluti sem ég hef ekki prófað áður. Á mánudaginn fékk ég t.d. afsalið af íbúðinni minni, ég hef aldrei gert svoleiðis áður! Í gær fór ég í sund í Keflvík, það hef ég heldur aldrei gert áður! Ég horfði líka á hluta Danmörk-Svíþjóð á risaskjá, það hef ég svo sannarlega aldrei gert áður! Og Harry Potter og fangann frá Azkaban hafði ég heldur aldrei séð fyrr en í gær. En það besta (vonandi verður gaman) er samt ekki fyrr en annað kvöld en þá á að skella sér á Deep Purple!!! Það hélt ég nú aldrei að ég ætti eftir að gera, en mér er nú greinilega ekki alls varnað (fótbolti á risaskjá og alles ;))...
Er svo búin að vera í algjöru letikasti hér í dag. Hafði það nú reyndar af að rölta í vídeóleiguna í rigningunni og kaupa kók og taka spólu. Þar fyrir utan hef ég nú gert mest lítið nema horfa á spóluna og jú, hjálpa mömmu við að forða baðherbeginu frá að flytjast niður í kjallara... Ég lagði mig sko í hádeginu og vakna svo við skelfingaróp í mömmu, þá hafði hún gleymt sér í tölvunni á meðan hún lét renna í bað... Það var semsagt stórfljót í baðherberginu sem btw hefur aðeins málað timburgólf, ekki mjög gott... En með snörum handtökum náðum við að afstýra stórslysi svo enn um sinn þurfum við ekki að skríða niður í kjallarann til að létta á okkur...

mánudagur, júní 21, 2004

Trallalallalallala...
Ég fíla mig í alvöru eins og ég sé í útlöndum þessa dagana. Glampandi sól og steikjandi hiti og sumarfrí, þetta gæti ekki verið betra! Eyddi deginum í dag bongóblíðu í höfuðborginni þar sem við mamma snöttuðum pínu, heimsóttum Stebba og Jónu, röltum upp og niður Laugaveginn, skoðuðum sýninguna á Austurvelli, sólböðuðum okkur við tjörnina, keyptum okkur ís í Álfheimaísbúðinni sem er núna í Fákafeni og flúðum svo inn í Kringlu sem var næstum því tóm vegna veðurs. Þegar pabbi og Sólveig voru búin að vinna fengum við okkur eitthvað í svanginn og kíktum svo til Palla og Dísu til að kveðja Stebba & Co. sem fara heim á morgun. Ég ætla reyndar að keyra þau út á völl á morgun þannig að það voru eiginlega bara hinir sem þurftu að kveðja...
En snattið okkar mömmu í morgun var reyndar ekkert pínu. Ég fékk nefnilega afsalið af íbúðinni minni í dag! Ekki leiðinlegt það!

Þrátt fyrir sumar, sól og eintóma gleði er eitt sem hryggir mig mjög. Í gær var fullt hús af fólki hér, allir að koma og hitta litlu fjölskylduna frá Svíþjóð, og í öllum hamaganginum gleymdi ég að láta taka upp fyrir mig þáttinn um Da Vinci lykilinn sem var á stöð 2 (við erum nebblega ekki með stöð 2). Ég semsagt missti af honum. Ég er ekki svo heppin að einhver eigi hann og vilji sýna mér, eða hvað???

Eitt enn. Hvað á ég að gera um helgina? Einhverjar hugmyndir?

föstudagur, júní 18, 2004

Jæja, þá er kindin komin til byggða eftir viðburðaríka viku í sveitinni. Flökkukindin er orðin kennslukind! Ég er semsagt hérmeð orðin kennari!
Vikan var mjög viðburðarík. Beint eftir útskriftina á laugardaginn var brunað í sveitina þar sem við grilluðum og höfðum gaman, spiluðum og fórum í heita pottinn. Í "góða veðrinu" á sunnudaginn kom hálf ættin í sunnudagsbíltúr í sveitina og fengu að launum kræsingar "ala ég og mamma", mér skilst að þær hafi verið vel þess virði að skreppa í bíltúr fyrir... ;) Soffía frænka varð eftir í sumarbústaðnum þegar hinir fóru heim og Anna og Kolbrún gistu líka. Á þessum rúma sólarhring sem við vorum fjórar í húsinu sáum við Anna að það er greinilega erfitt að vera 4 og 5 ára, sérstaklega ef menn eru að hittast í fyrsta sinn og þurfa dáldið að stjórna í kringum sig. Þrátt fyrir ágætis árekstra, sem sumir enduðu með tárum, voru þær duglegar að leika og skemmtu sér bara vel held ég. Alla vikuna var svo fólk að kíkja í heimsókn til bíllausa einbúans í sveitinni og fór það svo að alla vikuna held ég að ég hafi farið þrisvar út fyrir sólpallin við bústaðin... Vikan var bara leti út í gegn og mér fannst það æði! Áttum svo æðislegan og óvenjulegan 17. júní, það var nefnilega ekki rigning heldur glampandi sól og þrátt fyrir hífandi rok var skjól í pottinum sem við héldum að mestu til í þann daginn. Enda er ég ágætlega steikt "ofaná og undir og allt í kring"...

Árni, samsæri ykkar boltasjúklinga og RÚV um að gera mig að fótboltaáhugamanneskju þessa viku sem ég var í sveitinni fór út um þúfur. Tvær meginástæður eru fyrir því. Da Vinci lykillinn var lesin á tveimur dögum (ein magnaðasta bók sem ég hef lesið!) og svo fannst skjár1 á sjónvarpinu.

laugardagur, júní 12, 2004

Glaumur og gleði
Loksins, loksins er runninn upp sá dagur sem ég hef beðið eftir í fjögur ár! 12. júní 2004 og ég er formlega búin með Kennó. Útskriftin sjálf verður reyndar ekki fyrr en eftir hálfan sólarhring eða svo, en samt... Búin að fara upp í bústað með fullt af mat og dóti og búin að prófa pottinn, hann er í fínu standi ;) Þá er bara eftir að leggja sig aðeins fyrir átökin...
Hlakka svo ekki lítið til að vera viku í sveitinni, bíllaus og 17 km frá næstu búð. Held það verði hreint út sagt stórkostlegt að kúpla sig aðeins frá hamaganginum hérna heima og byrja sumarfríið með stæl!
Vona bara að ég sjái sem flesta um helgina eða þá í vikunni, jú nó mæ nömber or ver tú get it...

fimmtudagur, júní 10, 2004

Frankenstein
Ég veit satt að segja ekki lengur hvort ég bý á Íslandi eða ekki. Það er allavega ekki oft sem ég hef upplifað svona frábært veður dag eftir dag hérna á klakanum. Það liggur við að þetta sé að verða eins og í interrailinu okkar Sólveigar í fyrra, sól og 25-30 stiga hiti alla daga. Í gærkvöldi var ég svo orðin samlit bleika bolnum sem ég var í... Það var reydnar ekki bara sólin sem gerði það að verkum heldur líka litun og plokkun hjá Sólveigu og tveir laukar sem ég saxaði niður strax eftir þá píningu. Grét blásvörtu á meðan...
Útgangurinn á mér minnti mig eilítið á eina tilraunina sem Sólveig gerði á mér... Það er nefnilega alltaf kvöl og pína fyrir mig þegar kemur að því að plokka augabrúnirnar. Ég veit fátt eins sárt og svo er Sólveig alltaf extra lengi því ég hnerra út í eitt á meðan hún pínir mig. Eitt skiptið ætlaði hún að leysa þessi vandamál í eitt skipti fyrir öll. Hún ákvað að vaxa á mér augabrúnirnar, þá yrði það bara vont einu sinni og ekki meir og ég myndi ekkert þurfa að hnerra - vonandi... Ég var mjög fús að taka þátt í þessari tilraun enda tilbúin í hvað sem er til að losna við þessar píningar. Aðgerðin tókst mjög vel, hún var eldsnögg að þessu og ég hnerraði ekkert. En eitthvað var samt ekki í lagi. Húðin var ekki alveg sátt við vaxið og því varð ég eldrauð og svo bólgin að ég gat varla opnað augun. Í þokkabót höfðu hárin í augabrúnunum tekið extra vel við litnum svo þær voru margfalt dekkri en venjulega. Það versta var að ég átti að mæta í vinnu 3 tímum seinna. Það voru gapandi munnar sem mættu mér þar, stelpurnar áttu ekki orð yfir útliti mínu. Þess má svo geta að Sólveig hefur ekki fengið að endurtaka þessa tilraun... Í staðinn notar hún "gömlu góðu" aðferðina sem orsakar bara hnerra, sársauka og slæma ökkla...

miðvikudagur, júní 09, 2004

Sumarið er komið
svon´á það að vera
sólin leikur um mig
...


Já, nú er sumarið svo sannarlega komið. Allavega eru freknurnar mínar mættar á svæðið... Annars er ég búin að vera í klössn frá toppi til táar í dag! Byrjaði í morgun á því að fara í klippingu og litun, rosa skvísa ;) Sat úti í hádeginu og las og náði mér í nokkrar nýjar freknur. Fór svo til Sólveigar sem var svo góð að bjóða mér í hand- og fótsnyrtingu svo nú er ég svaka skvísa! Hún ætlar svo að bæta um betur og lita mig og plokka í kvöld. Sólveig er sko besta systir mín...

mánudagur, júní 07, 2004

Crash, boom, bang...
Ég lofaði mömmu að opna bókasafnið í dag og leysa þær af í svona klukkutíma því þær voru á fundi. Ekkert mál, hef gert það nokkuð oft áður. Ég mætti á réttum tíma og gerði klárt til að opna, ennþá ekkert mál. Var á góðum tíma með að hafa allt til þannig að ég opnaði aðeins fyrr en opnunartíminn segir til um, allt í lagi með það.
Svo byrjaði fólkið að koma, og það kom fleira fólk, og svo enn fleira. Jújú, ég hafði svona nokkurnvegin undan þangað til útihurðin festist. Þá fyrst byrjaði ballið. Hjá mér var nefnilega stödd kona með börnin sín fjögur en því miður hafði það yngsta rölt út á stétt rétt áður en hurðin festist þannig að núna var litla barnið lokað úti og mamman, hin börnin þrjú, ég og hitt fólkið sem var statt á safninu vorum lokuð inni.
Upphófst nú mikil ringulreið og panik og allir snérust í kring um sjálfa sig á meðan barnið grét fyrir utan. Hurðin opnaðist ekki nema 15 sentimetra og engin leið að opna hana meira, sama hvað var reynt. Með símann á eyranu að hringja út um allan bæ (því auðvitað náðist ekki í mömmu) til að redda hurðarpumpunni (en við töldum okkur vera búin að finna út að hún væri meinið) gramsaði ég þar til ég fann einhver verkfæri sem við gátum notað. Fyrir rest náði ég nú í manninn sem setti upp hurðarpumpuna á sínum tíma og á meðan hann hristi hausinn í síman og hafði ekki hugmynd um hvað gæti verið að voru safngestir í óða önn að skrúfa hurðarpumpuna af hurðinni. Það tókst nú fyrir rest og ég sleit sambandinu við pumpukallinn.
En þá kom smá babb í bátinn. Hurðin var ennþá föst þó pumpan væri farin af. Og enn grét barnið úti á stétt. Og enn streymdu safngestir að en enginn komst inn. Þá fékk mamman þá stórkostlegu hugmynd að fara út um hina hurðina og sækja barnið. Já, það er nefnilega önnur hurð á bókasafninu en í öllum hamaganginum og ringulreiðinni mundi enginn eftir henni... Hún kíkti nú aðeins á föstu hurðina í leiðinni fyrst hún var komin þarna hinum megin við hana. Og auðvitað fann hún sökudólginn sem var lítill steinn sem hafði laumað sér undir hurðina og fest hana svona hrikalega. Það voru fagnaðarfundir þegar barnið hitti mömmuna aftur og aðrir safngestir komust inn og út. Svo var stöðugur straumur af fólki þar til mamma kom og tók við stjórninni, mér til mikillar ánægju.
En það er ekki allt búið enn! Því þegar við ætluðum að skrúfa pumpuna aftur á hurðina var það ekki hægt. Pumpan var orðin svo vanstillt af öllum hamaganginum að hún gat ómögulega tollað kyrr í réttri stellingu á meðan við skrúfuðum og svo neitaði hún bara alveg að hlýða. En nú sé ég hann Hannes viðgerðakall koma labbandi þannig að pumpan ætti að vera orðin fín þegar ég labba hér út eftir ævintýri dagsins... Hjúkk...

Allt að ske...
Það er allt að verða vitlaust á þessum bæ. Er á fullu að klára að ganga frá fyrir sumarfrí í vinnunni. Það gengur samt allt of hægt, kannski því ég er svo mikið annað að brasa... Ég þarf til dæmis að opna bókasafnið á eftir og vera eitthvað þar. Hringdi svo í Helgu frænku í gær til að segja henni af pottapartíinu um helgina. Lofaði henni í leiðinni að passa Skugga í tvær vikur í ágúst. Ég er semsagt að verða kisumamma í forföllum ;) Ég benti Helgu reyndar á að ég gæti líka farið fyrir hana til Spánar svo hún gæti verið heima með Skugga sínum... Henni leist nú kannski ekki svo mjög illa á hugmyndina en hafnaði henni samt...
Svo er jafnvel á dagskránni að fara í Bása síðustu helgina í júní! Hef ekki farið þangað síðan rigningahelgina frægu sumarið 2001... Ég er mjög bjartsýn á veðrið þessa helgi, það getur alla vega ekki orðið verra en síðast!
Fyrstu helgina í júlí er svo búið að plana fjölskylduútilegu. Sko með mörgum fjölskyldum. Mér er boðið að vera með og kannski ég bara drífi mig ef ég fæ ekki annað og betra tilboð.
Eitthvað er ég búin að heyra rætt um Þjóðhátíð en veit ekki hversu mikil alvara er í því. Held samt að blanka konan ætti frekar að sitja heima og spara, ég kláraði líka eiginlega Þjóðhátíðarkvótann sumarið 2000 þegar ég tók hátíðina með stæl. Eftir þá helgi lofaði ég sjálfri mér að fara aldrei aftur á Þjóðhátíð, sérstaklega ekki ef ég þyrfti aftur að sofa í tjaldi í dalnum. Síðan þá hef ég reyndar rekið mig á, oftar en einu sinni, að maður á aldrei að segja aldrei... ;) Svo er líka reyndar nógur tími til að vinna í lottóinu áður en kemur að Þjóðhátíðinni ef fólkið mitt ætlar að fara.
En nóg af bulli, kannski ég vinni smá svo ég komist kannski einhverntíman í sumarfrí...

sunnudagur, júní 06, 2004

Bjútíkvín
Vá, ég er búin að standa í stórhreingerningu og flutningum í allan dag! Afi er semsagt farinn vestur þannig að við mamma þrifum herbergið hans hátt og lágt og ég er hálf flutt þangað inn. Það á eiginlega bara eftir að sækja sófann og tengja græjurnar og ljósið sem drap mig næstum fyrir ári síðan. Núna ætla ég að muna að hafa slökkt þegar ég fer að tengja... Í öllu þessu stússi er ég svo búin að vera alveg "gorgeus". Byrjaði reyndar að bjútíast í gærkvöldi, sprangandi um á náttfötunum og í nýju skónum. Þeir eru nebblega dáldið þröngir yfir tábergið þannig að ég er að ganga þá til svo ég verði ekki ónýt í útskriftinni. Hélt því semsagt áfram í dag, í druslugallanum með úfið hár og í spariskónum, rosa smart! Það er líka allt annað líf að vera í þeim núna og í útskriftinni á ég eftir að geisla af fegurð... vá... Í nýja dressinu, nýju skónum, nýklippt (vonandi, er ekki enn búin að panta tíma) og svo ætlar Sólveig að splæsa á mig litun og plokkun (hún gerir það reyndar alltaf) og handsnyrtingunni sem hún lofaði mér þegar ég hætti að naga neglurnar fyrir ári síðan næsta sunnudag. Semsagt svaka beib ;)

Linkur
Haha, ég var að vafra á netinu og fann link á síðuna mína! Það kemur mér reyndar í sjálfu sér ekkert á óvart að Baddý skyldi linka á mig, en samt bjóst ég ekkert við því. Er mikið að spá hvort þetta hafi gerst eftir að ég, í góðmennsku minni, lánaði henni húslykilinn minn um daginn... ;)

laugardagur, júní 05, 2004

Congratulations!
Freyja vinkona er hér með orðin meinatæknir. Til hamingju með það Freyja! Í tilefni dagsins færðum við vinkonurnar henni pakka, engan venjulegan pakka frekar en venjulega... ;) Við löbbuðum okkur nebblega inn í apótek í dag og báðum um stærstu sprautuna sem til væri. Bundum hana svo utan á pakkann og fylltum hana af dularfullum vökva. Við erum jú vel upplýstar um það sem hún gerir í vinnunni daman... En nóg um það... Eftir að allir gestirnir voru farnir úr veislunni sátum við Freyja og spjölluðum eins og svo oft. Við komumst þá að því að við erum eiginlega orðnar soldið gamlar þó við séum jú ungar í anda... Við kynntumst til dæmis þegar við vorum í 6 ára bekk, en það eru 20 ár síðan það var! Svo erum við báðar farnar að sjá börnin sem við pössuðum keyra framhjá okkur! Og svo erum við báðar komnar með háskólapróf! Ja, ég fæ mitt reyndar ekki formlega fyrr en eftir viku, en samt... Ég held að það sé bara alveg ágætis árangur þegar maður er "ekki nema" 25 og 26 ára.
En aftur, til hamingju Freyja!

fimmtudagur, júní 03, 2004

Algjört bíó
Soffía frænka er búin að vera í heimsókn hjá okkur í heila viku. Hún segist vera flutt í Veislugerði. Það er sko veisla í hvert mál í bakaríinu hjá ömmu Hlíf og afa Jóni... Við Soffía bökuðum meira að segja köku í dag til að borða eftir kvöldmatinn. Þegar kom að kökunni hafði hún svo enga lyst því hún borðaði svo mikið af mat. Ég held reyndar að hrísgrjónin og sósan hafi toppað þetta, daman hefði borðað sósuna beint upp úr sósukönnunni ef henni hefði verið rétt skeið...
Ég er líka búin að vera í nokkuð mörgum hlutverkum þessa viku. Ég er til dæmis búin að vera hættuleg kanína í hættulegri holu, mamma, amma (því ég sit stundum og prjóna) og prinsessa. Reyndar er búið að uppfæra mig núna því ég er ekki lengur prinsessa heldur er ég orðin drottning! Ekki slæmt það. Ég slapp samt alveg við að vera lokuð í búri en það hefur verið mjög vinsælt hér síðustu daga. Þessa stundina er svo afinn dottinn í barndóm og er að kenna Soffíu að búa til felligildru úr þvottabala, steikarspaða og sláturgarni til að veiða öll ljónin og bangsana. Veit ekki alveg hvort þeirra skemmtir sér betur... Hún tilkynnti allavega mömmu sinni í símann í dag að hún ætlaði sko ekkert að fara til hennar aftur fyrr en á sunnudaginn...
Haha, nú er hún búin að veiða fullt af dýrum í gildruna, búin að gera ferðabúr úr þessu og dregur það um allt hús, voðalega upptekin. Hún er svo niðursokkin í þennan leik að ekkert okkar fær það af sér að koma henni í bælið... Býst því ekki við skemmtilegheitum í fyrramálið þegar við þurfum að draga hana með okkur í vinnuna...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?