sunnudagur, ágúst 29, 2004
Skór
Hvað er eiginlega málið með svarta karlmannsskó? Fór á Selfoss í gær og þegar ég keyrði til baka frá Selfossi sá ég eitt stykki skó á miðjum veginum. Nokkrum metrum seinna lá svo annar skór! Hugsaði svosem ekki meira um þessa skó fyrr en í kvöld. Skrapp í bæinn til að sækja Sólveigu. Var rétt komin yfir brúna yfir Elliðaá þegar eitt stykki svartur skór stóð úti á miðjum vegi! Veit ekki alveg hvað er í gangi...
Annars er það að frétta af tölvunni minni að "aðeins" 30 stýriskrár eru sýktar af vírusum... Ekki svo mjög góðar fréttir. Núna er samt að hefjast tilraun til að bjarga greyinu, vona bara að hún takist því annars held ég að hún lendi á spítala...

laugardagur, ágúst 28, 2004
Eplið og eikin
Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni sagði vitur maður eitt sinn. Held svei mér þá að ég sé meira en lítið skyld honum föður mínum. Þeir sem þekkja hann spyrja allavega sjaldnar en aðrir hvar ég fái mínar furðulegu hugmyndir sem ég framkvæmi stundum (ganga frá Hafnarfirði til Reykjavíkur til að athuga hvað það taki langan tíma, borða súrar gúrkur og súkkulaði, setja hlaupbangsa í örbylgjuofn og fleira...). Ég skrapp á Selfoss í dag og þegar ég kom til baka mætti mér skemmtileg sjón. Í rigningunni og rokinu stóð pabbi uppi á þaki, klæddur pollagalla og stígvélum, bundinn við sjónvarpsloftnetið og vopnaður háþrýstidælu! Markmið dagsins er semsagt að háþrýstiþvo allt þakið! Spurning hvort loftnetið heldur ef hann dettur, en það er víst bara ein leið að komast að því...
En við eigum fleira sameiginlegt en þennan áhuga á tilraunum. Ég held það sé óhætt að segja að við séum bæði dálítið óheppin. Það kemur allavega frekar oft (að mínu mati) fyrir að við komum heim, búin að saga í putta, með gat á hausnum, hálf rotuð eða eitthvað álíka. Pabbi var til dæmis að smíða hús í fyrradag og húsið bara réðst á hann! Er algjör töffari í dag með plástur á gagnauganu og frábært glóðarauga! Ég hef nú samt ekki slasað mig neitt að ráði undanfarið (nema kannski kennaraborðsmarbletturinn á lærinu, hann er samt að skána), en var nú samt ágætlega óheppin í dag. Setti upp netið í nýju tölvunni minni í morgun, var svo nýbúin að þvi að ég var ekki búin að setja upp LyklaPétur, þegar BÚMM, kominn vírus! Ég sem ætlaði að eyða helginni í að setja restina af dótinu upp í nýju tölvuna, en sit víst núna við gömlu tölvuna mína og mun gera það þar til eftir helgi. Bara típískt fyrir mig.

mánudagur, ágúst 23, 2004
Súðavík
Þá er ég komin heim úr Súðavíkurferð sumarsins. Flaug með Guðmundi frænda til Ísafjarðar á föstudaginn. Hann var reyndar hálf svekktur yfir að fá sæti við hliðina á mér, það er erfitt að höstla við hliðina á svona sætri frænku... ;) Ég held reyndar að ÉG hafi ekki skemmt þessa höstltilraun alvarlega því það var engin frambærileg handa honum í vélinni.
Í Súðavík var restin af stórfjölskyldunni búin að koma sér vel fyrir, bæði í fjölskyldusetrinu og húsinu sem við leigðum því við vorum svo mörg - vorum 18 í mat mestalla helgina! Við tók svo undirbúningur fyrir veisluna, en tilefni ferðarinnar var áttræðisafmæli afa. Fengum lánað samkomuhúsið og það þurfti að gera fínt þar, undirbúa veislumatinn og fleira. Báturinn sem afi, pabbi, Rúnar og Valur eru búnir að vera að gera upp síðustu fjögur sumur var svo sjósettur með viðhöfn á laugardaginn. Ekki slæmt að geta róið út í fjörðinn til að veiða í soðið. Mikið búið að róa og veiða og ég er alveg hissa á hvað ég gat, en ég hef ekki róið síðan á Apavatni forðum daga. Ég finn reyndar alveg að ég var að gera eitthvað sem ég er ekki vön að gera, en er samt með ótrúlega litlar harðsperrur!
Heimferðin tók dálítið á á köflum þar sem ég var í bíl með Soffíu Helgu og strákunum hennar. Þeir kunna alveg að framkalla hávaða sko... og að sitja í bíl í 6 klukkutíma er kannski ekki alveg það sem litlum pjökkum finnst skemmtilegast að gera... Ég komst samt á leiðarenda, ekki samt fyrr en um hálf eitt í nótt og þá átti ég eftir að þrífa á heilsugæslunni. Dreif mömmu og Sólveigu með í það á meðan pabbi tæmdi bílinn. Geymdi svo bókasafnið þangað til í hádeginu í dag. Það var svo sannarlega þreytt Sigrún sem mætti í vinnuna í morgun, fegin því að krakkarnir mæta ekki í skólann fyrr en á miðvikudag...

föstudagur, ágúst 20, 2004
Long time, no see...
Mikið að ske, mikið að ske. Búin að fá nýju tölvuna í hendurnar. Allskonar fifferí í sambandi við fjármögnunina en þegar maður á góða systur og frábæran þjónustufulltrúa í bankanum þá er allt hægt! Það endaði reyndar með því að pabbi keypti líka tölvu á sama stað... Allavega, nýji gripurinn er ekki kominn alveg í gagnið ennþá, aðallega sökum anna undanfarinna daga. Við systurnar sýndum svo smá ljóskutakta við uppsetningu á nýju gripunum, en það er allt komið í lag. Nú á bara eftir að klára að hlaða inn forritunum og tengjast netinu og þá er hægt að fara að flytja gögnin á milli. Það verður nú samt ekki gert fyrr en eftir helgi þar sem ég á pantað flug til Ísafjarðar kl. 17:15 í dag. Afi er áttræður og það á að fagna því í Súðavík um helgina.
Ég fór líka á námskeið í þæfingu á þriðjudag og miðvikudag, rosa gaman. Sýndi þar meðal annars stórgóða takta með því að standa nánast úti á götu, í sólinni og rokinu, veifandi efninu sem ég bjó til til að þurrka það svo ég gæti saumað úr því og klárað að þæfa það. En útkoman var stórkostleg, þó ég segi sjálf frá, og margir búnir að dást að gripnum...

mánudagur, ágúst 16, 2004
Láttu mig vera fíflið þitt!
Við Sólveig fórum í bæinn í dag. Skoðuðum bæði tölvur og tölvusölumenn... ;) Fundum flotta tölvu, ekki samt í sömu búð og við sáum sæta tölvusölumanninnn... Niðurstaðan er sú að ég skellti mér á eina líka! Við fengum sko magnafslátt af því við keyptum tvær. Það á reyndar eftir að ganga frá greiðslu á herlegheitunum og því erum við ekki búnar að fá gripina afhenta, en það gerist allt á morgun.
Fór og hitti doksa í dag. Hann sagði mér að ég væri ekki lengur bara með ofnæmi fyrir grasi, heldur líka birki, hundum og fíflum. Svo ef þú ert fífl, vinsamlegast láttu mig vera!

sunnudagur, ágúst 15, 2004
Blómstrandi dagar
Ég held ég hafi sjaldan tekið eins lítinn þátt í Blómstrandi dögum eins og þetta árið. Meira að segja þegar ég hef verið að vinna hef ég samt oft tekið meiri þátt en núna. Samt var ég heima og ekki að vinna! Ég náði nú reyndar að fara á jazztónleika með Smáaurunum á Snúllabar á fimmtudagskvöldið og skemmti mér þrælvel. Kíkti svo smá stund í íþróttahúsið á föstudagskvöldið, en þar voru meðal annars Í svörtum fötum að spila. Náði rétt restinni eftir að hafa eytt kvöldinu í þrif helgarinnar. Laugardagurinn fór svo í endalaust snatt og snúninga til að byrja með, enda búin að lofa að hjálpa Katrínu með skreytingar í kirkjunni fyrir brúðkaupið þeirra Jóhönnu og Mikka. Byrjaði á að fara með Katrínu og finna rósir, kaupa borða og gera tilbúið til að skreyta kirkjuna, sem við gátum ekki farið inn í fyrr en eftir klukkan 3. Skaust svo á Selfoss til að kveðja Dóru Hönnu & Co., en þau eru að flytja til Danmerkur. Brunaði til baka til að komast að því að þetta drægist eitthvað í kirkjunni. Við vorum því orðnar soldið stressaðar þegar við byrjuðum að skreyta þar tuttugu mínútur yfir 4, en brúðkaupið átti að byrja klukkan 5! Við vorum rétt að klára þegar Mikki mætti á svæðið! Brúðkaupið var flott, brúðhjónin flott, veislan flott og maturinn góður. Ekki skemmdi það heldur stemninguna að fá flugeldasýningu í tilefni dagsins. Fór samt snemma heim, útkeyrð, og er ekki búin að gera neitt í dag. Ekki neitt nema horfa á tvær vídjómyndir. Along came Polly og Secondhand Lions. Báðar mjög skemmtilegar og Secondhand Lions alveg frábær!
Á morgun fer ég svo og fæ (vonandi) að vita hvaða andskoti er búinn að vera að hrekkja mig meira og minna síðasta árið eða svo... Svo, stay tuned...!

miðvikudagur, ágúst 11, 2004
Ég er svooooo dugleg!
Vaknaði snemma í morgun og brunaði í bæinn til að bera á sólpallinn minn. Verst bara að ég fæ ekki að njóta hans fyrr en næsta sumar... En það er annað mál, ég meina, hvað eru 9 mánuðir og 20 dagar á milli vina...? Sólveig má reyndar eiga það an hún druslaðist með mér og hjálpaði mér. Ekki að pallurinn sé svona stór, mig langaði bara ekki að fara ein.
Rétt náði til baka í Hveró til að mæta í vinnuna, sem var mun skaplegri en í gær. Hitamælirinn hjá okkur sýndi nefnilega "ekki nema" 27 gráður... en í gær sýndi hann yfir 29 gráður... Er svo líka búin að fara og skúra, það er ekki beint það sem mig langar að gera í svona veðri en ég réð mig víst í þetta.
Er annars eðlilegt að á Íslandi sé hægt að liggja í sólbaði fram yfir kvöldmat?

þriðjudagur, ágúst 10, 2004
Feelin` hot hot hot...
Ég hélt ég myndi deyja í dag. Reyndar í gær líka, en það var öðruvísi. Í gær var ég kolstífluð og þrútin í öllu andlitinu af sennilega ofnæmi. Pantaði loksins tíma hjá ofnæmislækni fyrir mánuði síðan og mátti bíða í fimm vikur. Kemst semsagt að í næstu viku. Í dag var ég mun skárri en þá var það hitinn sem var hreinlega að drepa mig. Komst lifandi frá bæjarferðinni í morgun með því að bruna yfir Heiðina með bílrúðurnar skrúfaðar niður og versla í Kringlunni, þar sem ég var nánast eini viðskipatvinurinn. Það var verra með Gæsluvöllinn eftir hádegi þar sem við urðum að vera úti með krakkana í hitanum. Mælirinn hjá okkur fór á tímabili umm í 30 gráður og líðan okkar var í samræmi við þá tölu og að við vorum hlaupandi á eftir krökkunum. Eða kannski meira skríðandi úr skugganum og lufsast áfram ef eitthvað var. Hitinn var svo rosalegur að við gátum ekki einu sinni látið krakkana borða úti í garði þar sem þau eru vön, heldur sátum við á tröppunum fyrir framan húsið, en þar var skuggi og nokkuð þolanlegt að vera.
Svo af því að hitinn var nú ekki alveg búinn að drepa mig þegar ég kom heim þá plantaði ég mér á bikininu út á pall og steinrotaðist þar. Flatmagaði svo í sólinni fram að kvöldmat, en hann borðuðum við úti þrátt fyrir að hafa hvorki borð né stóla. Lá svo áfram, fáklædd og fín, úti á palli og las til hálf níu, þar til ég fór í hinar vinnurnar tvær. Held svei mér þá að það hafi bara verið heitara úti en inni þegar ég fór inn að klæða mig til að fara að skúra núna áðan. Ótrúlegt veður alveg.

sunnudagur, ágúst 08, 2004
busy, very busy...
Það er margt búið að ganga á síðustu daga. Sat í eldhúsinu á fimmtudagsmorguninn og fletti mogganum í rólegheitunum á meðan ég borðaði morgunmatinn. Heyrði þá þennan líka svakalega dynk innan úr stofu svo ég stökk af stað til að gá hvað væri í gangi. Sá þá þessa líka ógeðslegu hvítu slummu á stofuglugganum og ljóta tauma leka niður úr henni eftir öllum glugganum. Fékk svo grun minn staðfestan þegar ég leit út um gluggann. Þrjá metra frá slummunni lá dauður fugl. Hann hefur ekki verið á lítilli ferð miðað við dynkinn, slummuna á glugganum og fjarlægð hans frá slummunni. Jakk, jakk, jakk.
Á föstudaginn var ég voða dugleg og fór með bílinn sem ég er með í fóstri þessa dagana í olíuskipti og fleira sem ég var beðin um að gera. Verkstæðiskallinn tilkynnti mér þegar ég sótti bílinn að honum hefði fundist bíllinn full hávær þannig að hann hefði ætlað að sjóða aðeins í pústið í leiðinni. Hann gerði það nú samt ekki þar sem hann sagðist ekki hafa fundið neitt til að sjóða í...
Frá verkstæðinum brunaði ég beint á Selfoss þar sem ég fjárfesti í dýrindis bleiku tjulli og fleiru skemmtilegu til að nota um helgina. Rétt náði svo til baka til að mæta í vinnuna klukkan eitt. Fór beina leið þaðan í næstu vinnu, kom svo heim rétt til að borða og hafa mig til. Næsta stopp Reykjavík. Gunnu tókst að plata mig með á djammið og Freyja slóst svo í hópinn. Þegar ég kom inn í íbúðina hjá þeim tók á móti mér stórkostleg hallæristónlist, en Gunna hafði þá beðið hana um að setja elsta diskinn sinn í. Við hlustuðum semsagt á Algjört must, Pottþétt 4 og Heyrðu 5 og skemmtum okkur konunglega. Enduðum svo niðri í bæ. Ég er samt enn handviss um að ég hafi verið plötuð á djammið á fölskum forsendum...
Vaknaði hjá Gunnu og Freyju klukkan átta á laugardagsmorguninn eftir lítinn svefn. Þurfti að keyra Gunnu á Selfoss svo hún kæmist með rútu inn í Þórsmörk. Dreif mig þá heim til að sauma bleika tjullpilsið. Var svo mætt með stelpunum til að gæsa Jóhönnu klukkan hálf eitt. Jóhanna var dressuð upp í bleika tjullpilsið ásamt ýmsu fleiru skemmtilegu. Verð samt að segja að hún skar sig of lítið úr fjöldanum í miðbæ reykjavíkur... Stuðið hélt áfram fram á nótt, en ég hélt heim, örmagna, áður en liðið hélt niðrá Snúlla enda ósofin og ekki búin að djamma tvo daga í röð síðan sautjánhundruð og súrkál...
Það var svo æðislegt að sofa út í morgun. Vaknaði passlega til að mæta á ættarmót hjá Rúnari og Ingu. Systkini ömmu og þeirra afkomendur. Komumst að því að hópurinn hefur ekki hisst síðan 1990... Ætlum að bæta úr því og láta ekki líða svona langt þangað til næst... Brunuðum beint þaðan í einsárs afmælið hans Breka töffara. Er svo gjörsamlega búin núna þannig að ég ætla bara að skríða uppí með góða bók...

miðvikudagur, ágúst 04, 2004
Svona vaknar maður almennilega!
Þegar ég vaknaði í morgun byrjaði ég á því að lufsast, enn hálfsofandi, inn í eldhús til að fá mér að borða. Það sem svo beið mín þegar ég opnaði ísskápinn var ekki beint það sem mig langar til að takast á við nývöknuð... Stór (þá meina ég huge) og myndarleg hrossafluga var á útsýnisflugi inni í ísskápnum! Þó að mér detti stundum í hug að prófa einhvern andskota eða borða einhvern óþverra þá langaði mig satt að segja ekkert í hrossaflugu í morgunmat. Því tók heljarinnar barátta við að ná kvikindinu út, en hún var nú ekki alveg á því. Slagurinn endaði þó fyrir rest með sigri mínum þannig að ég gat notið morgunmatarins án félagsskaps flugunnar. En þó að þessi slagur hafi unnist er stríð mitt gegn flugum heimsins ekki unnið enn og þær herja á mig sem aldrei fyrr...

sunnudagur, ágúst 01, 2004
I´ve got a new name. Now my name is Rottweiler...