miðvikudagur, september 29, 2004
Hmm
Bændur tala um að féð komi rýrt af fjalli þetta haustið. Ég get ekki verið sammála. Er búin að endurheimta kindina mína hér til hliðar en hún er víst dáldið feitari en hún var þegar hún týndist... Kannski hún hafi bara borðað svo mikið að hinar kindurnar hafi ekki fengið neitt...?

Sparnaðarráð
Það ku henta mjög vel að fara til Antwerpen á sunnudegi því þá eru allar búðir lokaðar og maður getur skoðað mörgæsirnar í dýragarðinum...
Hefði gjarnan viljað vita þetta í fyrrasumar... ;)

sunnudagur, september 26, 2004
That´s what friends are for
Átti gott spjall við Önnu á msn-inu í gærkvöldi. Hún stendur í flutningum þessa dagana, reyndar aðeins fyrr en mig minnti að til stæði. Ég lét nú ekki segja mér það tvisvar, sníkti bílinn hjá mömmu og pabba og brunaði beina leið til Keflavíkur þar sem ég hélt Önnu selskap ekki síður en að hjálpa henni að pakka. Skil bara ekkert í henni að vera ekki löngu búin að biðja mig um aðstoð...

laugardagur, september 25, 2004
Oh, happy day...
Loksins, loksins, loksins er ég að blogga á nýju tölvuna mína, en það er í fyrsta skipti síðan ég keypti hana um miðjan ágúst... Hún gerði sér nefnilega lítið fyrir og fyllti sig af vírusum og allar okkar aðgerðir til að reyna að lækna hana fóru út um þúfur. Hún endaði því á spítala, alveg í rúst. Ekki gott. En allt er gott sem endar vel og þetta ævintýri endaði mjög vel að lokum þó það hafi verið tvísýnt á köflum. Ég allavega þurfti ekki að borga neitt fyrir viðgerðina því vírusvörnin sem átti að vera uppsett í tölvunni þegar ég fékk hana var víst bara ekkert uppsett og því fór sem fór. En hér er ég svo komin, alsæl, með nýja tölvu sem virkar og hægt að gera fullt af skemmtilegum hlutum í... Á örugglega eftir að sýna góða takta hérna í nánustu framtíð... ;) Gæti hreinlega bara ekki verið glaðari en í dag, en fyrir utan nýju tölvuna mína sem svínvirkar á ég líka nýjan síma sem svínvirkar! Hreint ekki svo slæmt.

föstudagur, september 24, 2004
Það er ekki laust við að ég sé hálf þunn í dag... Í sorginni sem ríkti á heimilinu þegar ljóst varð að við fengjum ekki miða á Damien Rice ákvað ég nefnilega að leggjast ekki í kör, heldur mæta á aðal- og baráttufund Kennarafélags Suðurlands og árshátíðina líka. Sem ég og gerði. Við áttum góðan fund en ég er nú samt ekkert of bjartsýn eftir hann. Kennarabústaðirnir á Flúðum standa svo alltaf fyrir sínu, og eins grillmatur, bjór og heitur pottur. "Ballið" stendur nú ekkert uppúr enda fór ég tiltölulega snemma aftur upp í bústað undir því yfirskini að hita upp pottinn fyrir hina... Bara rosa gaman en þó ekkert í líkingu við það sem ég býst við að ég hefði upplifað á Damien Rice!
mánudagur, september 20, 2004
Er þetta hægt?
Ég er snillingur! Þar sem ég er búin að tala um í nokkra mánuði að taka til uppi á háalofti, það er að fara í gegnum kassana sem ég er búin að hlaða þarna upp í gegn um árin, fannst mér tilvalið að eyða helginni í það. Ég er reyndar ekki alveg búin enn, en tel það þó stórmerkilegt afrek að ég (ég hendi aldrei neinu enda vantar í mig hendigenið) skuli í dag hafa farið með fullan bíl af drasli í gáminn! Já, ég er búin að fylla ÞRJÁ svarta ruslapoka af drasli og er ekki búin enn! Þessi tiltekt hefur þó kostað mig blóð, svita og tár, já og líka ljótan marblett og rækilegt stresskast... Það kemur samt svörtu ruslapokunum þremur ekkert við...
Aðstæður til að komast upp og niður af háaloftinu eru ekki beint til fyrirmyndar. Beint fyrir neðan opið er bókahilla og þar fyrir framan frystikista. Til að komast upp þarf ég að príla upp valtar tröppur (svona sem er svo hægt að leggja saman), skáskjóta mér upp í gatið og hífa mig svo upp á handleggjunum. Mér finnst þetta í sjálfu sér ekkert mál, enda er ég soddan klifruköttur og hef alltaf verið. En áður en ég kemst svo langt að hífa mig upp þarf ég að ýta hleranum til hliðar og það heppnast ekki alltaf í fyrstu tilraun. Uppi á lofti er nefnilega eiginlega ekki gólf heldur bara þverbitar með einangrunarull á milli og þar sem kassarnir eru hafa nokkrar spýtur verið lagðar þvert á bitana til að mynda smá gólfflöt. Hlerinn fyrir opinu er svo bara þykk spónaplata sem þarf að ýta til hliðar og passa að hún lendi þvert á bitana sem eru við opið. Stundum tekst það ekki í fyrstu tilraun og þá þarf að juða plötunni til og frá þangað til hún er komin á réttan stað, og standa á meðan í völtu tröppunni og halda sér í. Það var einmitt það sem ég var að gera í gær þegar klemmdi mig. Nei, nei, puttarnir eru allir í fínu standi nú er ég með virkilega ljótan og sáran marblett á innanverðum framhandleggnum sem lenti á milli bitans og plötunnar...
Hélt að með þessu væri ég sloppin og ekkert fleira gæti gerst... en þið þekkið mig nú nógu vel til að vita að það er frekar hæpið... Ég fór allavega upp á loft að gramsa og umstafla kössum til að finna mína. Var búin að taka svo fínt til þarna uppi að það sást í smá gólfflöt á einum stað þannig að ég ákvað að standa þar til að ná innar í staflana. Ekki góð hugmynd. Það vildi ekki betur til en svo að ég steig í gegn um spýtuna! Mér brá svo rosalega að ég æpti upp og hlunkaðist aftur fyrir mig ásamt nokkrum kössum. Lenti sem betur fer ekki á milli bitanna heldur á nýfundna gólfinu, annars hefði ég komið niður í baðherberginu... Var satt að segja frekar stressuð og skjálfhent eftir þessa lífsreynslu og átti ekkert sérlega auðvelt með að rétta kassana niður um opið. Er samt alveg búin að jafna mig eftir þetta ævintýri, fyrir utan frekar auman og bláan handlegg... En ef þetta er ekki típískt fyrir mig þá veit ég ekki hvað!

Verkfall!
Einhvernvegin finnst mér ég hafa fullorðnast talsvert nú í kvöld. Ég er semsagt komin í verkfall í fyrsta, og vonandi eina, sinn! Ég man eftir verkfallinu sem var fyrsta árið mitt í fjölbraut. Jú, auðvitað fannst mér frekar slæmt að missa úr kennslu í 6 vikur eða hvað það var nú langt, en ég hafði svosem alveg nóg annað að gera... Kippti mér í rauninni ekki svo mikið upp við þetta og var ekkert mikið að spá í þetta almennt. Fannst bara gott að geta sofið aðeins lengur á morgnanna og vakað lengur á kvöldin...
En nú er semsagt komið annað hljóð í strokkinn, ég sjálf orðin kennari og komin í verkfall. Verkfall sem ég satt að segja kvíði fyrir, aðallega vegna verulegrar tekjuskerðingar meðan á því stendur, og ekki mátti ég nú við því með mín skítalaun. Ég held nú samt að ég geti talið mig heppna, enda nýkeypta íbúðin í útleigu og stendur næstum undir sér þó að það sé nóg af öðrum reikningum til að borga. Ég stend samt fast á mínu og er til í langt verkfall ef það er það sem þarf til að fá mannsæmandi laun! Ég komst nefnilega að því um daginn að þriggja ára háskólanám (í mínu tilfelli 4 ár og 110 einingar í stað 90 (sem reyndar skila mér engu í vasann)) hækkuðu launin mín um heilar fjórtán þúsund krónur á mánuði! Mér finnst löngu kominn tími til að kennarar fái laun í samræmi við það sem þeir eru að vinna en er ansi hrædd um að til þess að af því verði þurfi hugarfarsbreytingu í öllu þjóðfélaginu. Undanfarið hef ég lesið óteljandi lesendabréf og greinar í dagblöðum landsins og á ekki til orð yfir því sem í sumum þeirra stendur. Ég verð svo reið þegar ég les þessa vitleysu, finnst ótrúlegt að fólk skuli hafa svona ranghugmyndir, já eða fordóma, gagnvart kennurum og þeirra starfi!

laugardagur, september 18, 2004
Peningaguðinn kemur til bjargar... enn og aftur...
Já, það er greinilega einhver þarna uppi sem passar peningana mína. Það er nú frægt orðið þegar hann bjargaði mér frá gjaldþroti á Benidorm um árið með því að láta ræna kortinu mínu og oftar en ekki er það þannig að ef ég sé föt eða skó sem mig langar í er það ekki til í mínu númeri. Fyrir þetta þakka ég Peningaguðinum. Þó að hann hafi oft á tíðum komið mér til hjálpar var ég ekki alveg sátt við inngrip hans í dag þegar hann sparaði mér sexþúsundkall. Það seldist nefnilega upp á Damien Rice á 20 mínútum og einmitt klukkan tuttugumínúturyfirtíu í morgun stóð ég enn í langri röð fyrir utan Skífuna. Bömmer. Fyrirgefið, þið hin sem ekki fenguð miða, mér þykir leitt að Peningaguðinn minn sé farinn að skipta sér af fleirum en mér...

sunnudagur, september 12, 2004
Hendi- söfnunar- og troðslugen...
Ég fór í fjársjóðsleit upp á háaloft í dag og er búin að vera að fara í gegn um kassana sem ég tók niður. Af nógu var að taka enda alþekkt að söfnunargenin mín eru ríkjandi og ég búin að troða eins og ég mögulega get upp á loft (troðslugenið sko). Það var mjög skemmtilegt að skoða þetta gamla dót og kalla fram skemmtilegar minningar. Fann eitt og annað skemmtilegt, eins og 51 gamlan bíómiða, fullan kassa af plastpokum (veit það það er meira uppi...) og fleira skemmtilegt. Það ótrúlega er að ég er búin að henda eins og mér sé borgað fyrir það! Ég sem hendi yfirleitt aldrei neinu (hendigenið er sko víkjandi)... Ég hlýt bara að vera komin með hita... ;) Enn er samt langt í land og ætla ég mér að fara í gegn um alla gömlu kassana mína áður en ég flyt næsta sumar. Segi bara gangi mér vel...

laugardagur, september 11, 2004
The new me!
Rakel var að klára að klippa mig og er ég núna allt önnur manneskja! Sé eiginlega eftir því að hafa ekki tekið svona fyrir/eftir mynd. Er semsagt rosa fín núna :) Þurfti reyndar að ryksuga mig rækilega eftir klippinguna því ég var öll í hárum, en ég fékk í kaupbæti fínt nudd við appelsínuhúð. Já, ryksugur eru til margra hluta nytsamlegar... ;)

Allt að ske!
Fór í kaupstaðarferð í dag. Sótti myndir í framköllun og læt ég eitthvað af þeim hér inn á næstu dögum. Heimsóttum svo ömmu og afa í Hafnarfjörðinn. Þau búa rétt við Reykjanesbrautina en samt fórum við hvorki meira nér minna en sex hringtorg frá því við beygðum út af brautinni og þar til við komum heim til þeirra! Amma og afi eru tiltölulega nýflutt og enn að klára að koma sér fyrir. Það er því ekki óalgengt að þau gauki einhverju að manni þegar við kíkjum í heimsókn. Meðal þess sem mér áskotnaðist í dag var þetta líka forláta innkaupanet svo nú verð ég flottust í öllum bænum þegar ég fer að versla! Annað sem ég græddi var risastór pottur, alveg hreint tilvalinn í föndrið mitt! Nú get ég því verslað með stæl og föndrað út í eitt!!!
Ég er orðin frekar úfin enda löngu kominn tími á klippingu. Það verður nú samt trúlega bætt úr því í kvöld, en Rakel er jafnvel væntanleg í heimsókn með skærin sín! Ekki slæmt þegar systir manns er snyrtifræðingur og vinkona hennar er dugleg að munda skærin... ;)
Allt að verða vitlaust í vinnunni. Verið að pressa á mig að taka meiri kennslu, held ég smelli mér bara í það. Það munar um 4 yfirvinnutíma á viku. Líka búin að lofa að leysa af á bókasafninu í næstu viku. Held ég gleymi "hinni hurðinni" ekki aftur...
Alveg er það ótrúlegt að allt skuli gerast á sama tíma. Í mars fór ég á stórkostlega tónleika með Damien Rice. Auðvitað var það sama kvöld og árshátíð Hveragerðisbæjar og valdi ég tónleikana fram yfir hana. Nú er Damien Rice að koma aftur í september og í þetta sinn er hann ekki einn á ferð. Mig dauðlangar að fara en auðvitað eru tónleikarnir á sama tíma og haustþing kennara á Suðurlandi. Það er því enn á ný spurning um að velja og hafna.

föstudagur, september 10, 2004
...og alltaf minnkar heimurinn...
Árlegi Pizzahut hittingur okkar Freyju og Sigrúnar Sigurjóns var í gær. Rosa góð pizza og rosa stuð eins og alltaf. Rúntuðum aðeins um höfuðborgina eftir pizzuna og í leiðinni sýndi ég Sigrúnu hvar nýja íbúðin mín er. Þegar við komum þangað kom svipur á Sigrúnu og hún spurði hvort ég hefði keypt af Jennýju... Sigrún hefur semsagt komið þarna inn og leist bara vel á ;) Jenný er nú samt ekki náskyld frænka Sigrúnar eins og ég hélt þegar ég sá svipinn á henni, heldur eiga þær bara sameiginlega vinkonu. Frekar fyndið engu að síður.

fimmtudagur, september 09, 2004
Hvaða hvaða...
Var að lesa bloggið hennar Sólveigar. Þar blasti við risafyrirsögnin "Er ég að breytast í Sigrúnu systir eða er ég bara vinsæl..." Ég veit ekki alveg hvað hún meinar með þessu, en mér finnst þett EÐA þarna ekki setja góða merkingu í þetta...
Hún talaði reyndar líka um Sigrúnu Sigurjóns sem vinnur í sama húsi og Sólveig. Það fyndna við það er að hún vinnur í Þjónustumiðstöð bókasafna þannig að mamma hittir hana alltaf öðru hvoru. Ennþá betra finnst mér samt við allt þetta er að Sigrún var í fjölbraut með okkur Freyju og árlegur hausthittingur okkar þriggja á PizzaHut er einmitt í kvöld!

mánudagur, september 06, 2004
Aðstoð óskast!
Átakið hófst af fullum krafti í dag. Skellti mér í konupúl og púlaði svo um munaði. Komst svo varla niður eftir tímann til að skreppa í heita pottinn, það hófst þó að lokum. Það er svo spurning hvort ég komist framúr í fyrramálið... eða hvort ég þurfi aðstoð...

sunnudagur, september 05, 2004
Það er aldeilis gott hverfi sem ég er á leiðinni að setjast að í...
Hundakonan var líka á Snúlla í gær. Verð að fara að passa mig svo ég lendi ekki í sama flokk og hún...
Áhugaverða auglýsingin á Barnalandi, þessi sem spurði hvort þú berðir barnuið þitt, er ekki lengur þar inni. Spurning hvort auglýsendurnir hafi áttað sig á hvað stóð þarna...?

WAR OF THE WORLDS
Fór með Freyju að djamma í kvöld. Fórum á Snúlla. Var bara nokkuð mikið stuð verð ég að viðurkenna, jafnvel þó staðurinn hafi verið hertekinn af Færeyingum, sem kl. 10 á mánudagsmorgun ætla að undirrita vinarbæjarsamkomulag við Hveragerði, og "litlu krökkunum" sem við pössuðum "í denn"... Erum samt enn á lífi og er það gott.

föstudagur, september 03, 2004
Bakkabræður... Eða kannski bara búálfur?
Fór í saumó í gær hjá Freyju og Gunnu. Fannst soldið fyndið þegar Gunna sagðist ætla að setja gumsið í ofninn en kom svo strax aftur inn í stofu, skrýtin á svipinn og spurði Freyju hvort hún hefði sett það inn... Hvorug mundi eftir að hafa sett gumsið í ofninn!
Mamma fór áðan í búðina til að kaupa hvítlauksbrauð með pastanu sem átti að vera í matinn. Hún var rétt komin aftur hérna inn úr dyrunum þegar hún fattaði að hún gleymdi að kaupa hvítlauksbrauðið... Ég skaust þá út í búð en þegar ég kom til baka með brauðið hafði mamma þær fréttir að færa að við hefðum trúlega bara borðað pastað í síðustu viku, það var allavega ekkert pasta til í húsinu... Pabbi fór þá og keypti pasta. Spurning hvað búðarkellingarnar halda um þessa skrýtnu fjölskyldu...
En kannski meiri spurning hvort það sé ég sem hef þessi áhrif á fólk???

fimmtudagur, september 02, 2004
Sexy bitch
Nú er það sko harkan sex! Ætla að fjárfesta í þriggjamánaðakorti í Laugasporti og fara að taka á mínum málum. Í leiðinni á að fara að borða skynsamlegar og nammi og kók aðeins um helgar. Tek það nú samt fram að þó að mánuðurinn hafi byrjað mjög vel í þessum efnum þá byrjar átakið sjálft ekki fyrr en eftir helgi, aðallega vegna þess að kortin eru á tilboði í næstu viku og svo er saumó í kvöld... ;)
Markmiðið með þessu átaki er eiginlega tvíþætt. Annars vegar er það sparnaðarherferð. Ég er ekki búin að vera nógu dugleg að borga niður yfirdráttinn minn og ef ég held áfram eins og hingað til get ég ekki flutt í íbúðina mína í júní eins og planið var. Ég þarf því að taka á honum stóra mínum og hætta að eyða peningum í sukk. Hinsvegar er það löngu vitað að ég er of þung. Kílóin búin að vera að bætast á mig, eitt og eitt, síðustu árin og ég hef svo til ekkert gert við því. Núna finn ég svo að ónýta hnéð mitt er alveg til í að bera uppi aðeins færri kíló en það gerir í dag, þannig að þá er bara að drífa sig í ræktina og vona að hnéð mótmæli ekki of kröftuglega því sem það fær að reyna þar. Hef reyndar þrisvar áður gert tilraun til að fara í ræktina eða annað álíka og það hefur gengið misvel. Einhverntíman á fjölbrautaskólaárunum ætlaði ég aldeilis að taka pallaleikfimi með trompi - hætti að nenna að mæta þegar hálft námskeiðið var eftir... Stuttu seinna átti að slá í gegn í spinning - sama sagan, gafst upp. Í fyrrahaust prófaði ég svo jóga og líkaði mjög vel. Það var samt kennt á Selfossi og ég var bíllaus þannig að það fór eins og í fyrri skiptin... En nú skal þetta takast! Ég ætla að mæta allavega tvisvar í viku þessa þrjá mánuði og eftir það líta út sem aldrei fyrr!!!

miðvikudagur, september 01, 2004
BERÐ þú barnið þitt...?
Ég fer nokkuð oft inn á Barnaland, enda talsvert af vinum og vandamönnum með síður þar inni. Nýlega rakst ég þarna á auglýsingu sem stakk mig soldið í augun. Auglýsingin virkar eins og flettiskilti og byrjar svona: Berð þú barnið þitt stundum alla nóttina? Næst kemur upp: Þegar það grætur og er lasið? Og að lokum sést: Við höfum lausnina! Smelltu hér og sjáðu, svo er hægt að skoða síðuna sem verið er að auglýsa. Ég er búin að pirra mig á þessari blessaðri auglýsingu í nokkra daga, enda auglýsingin frekar tvíræð að mínu mati. Eða kannski er ég bara ofurdugleg að sjá eitthvað annað út úr orðum en þau eiga að merkja... Mér finnst allavega ekki gáfulegt að spyrja fólk hvort það berji börnin sín... Hvað finnst ykkur?