sunnudagur, nóvember 28, 2004
Leti... eða ekki leti...
Ég er ekki búin að fara út úr húsi í dag. Ekki svo oft sem það gerist. Ég er samt ekki bara búin að liggja í leti þó að ég hafi sofið til hádegis, lesið hálfa bók eða svo og prjónað slatta á meðan ég horfði á Krónikuna. Ég er nefnilega líka búin að setja í þrjár þvottavélar og hengja upp úr þeim og þvo fullan bala af handþvotti! Þar fyrir utan er ég líka búin að hnoða upp í fyrstu smákökurnar, en á þessu heimili er það hefð að baka piparkökur fyrsta sunnudag í aðventu. Þar sem hrærivél er ekki til í húsinu var handaflið notað á tvöfalda uppskriftina og ég verð nú bara að viðurkenna að ég kann mikið betur við þá aðferð en lætin í hrærivélinni... Jæja, ofninn er að verða heitur og piparkökudeigið bíður...

laugardagur, nóvember 27, 2004
Í dag...
...er ég búin að skera fullt af laufabrauði. Það þýðir bara eitt, jólin eru að koma!
...var árleg folaldaveisla fjölskyldunnar, nammi namm...
...eru akkúrat þrjár vikur þangað til ég fer út til Stebba og Jónu. Hlakka ekki lítið til...
...er akkúrat mánuður í 26 ára afmælið mitt. Hef það nú samt á tilfinningunni að það verði ekki eins hresst og það síðasta. Í boði verða allavega ekki kellingapizzur og Sölvaball...

föstudagur, nóvember 26, 2004
Shit happens - lausn dularfulla flugumálsins
Er ég ein um að finnast það ekki eðlilegt að heyra suð í flugum í nóvember? Ein slík, stór og feit, hefur lagt mig í einelti meira og minna í allt haust. Hélt reyndar að hún hefði gefist upp um daginn þegar ég rak hana frekar harkalega út úr baðherberginu þar sem ég vildi vera í friði í baðinu mínu.
Ég hef löngum verið þekkt fyrir mikla framleiðslu á k-vítamíni. Þar fyrir utan lenti ég í óskemmtilegri reynslu á Krít fyrir nokkrum árum og síðan þá hefur meltingarstarfsemin ekki verið alveg eins og hún á að vera. Shit happens, í bókstaflegri merkingu, hefur svo verið frasi vikunnar.
Í gær var staðan þannig að ég hélt ég kæmist ekki heim úr vinnunni, svo rosalegir voru skítaverkirnir. Þegar ég loksins komst heim ruddist ég inn um dyrnar og hlammaði mér á Gústa. Þvílík gleði! Ég var samt varla sest þegar gamalkunnugt hljóð barst mér til eyrna. Helv... flugan var mætt aftur.
Þar sem ég er kennari lagði ég saman tvo og tvo og fékk þannig út lausn flugumálsins... Auðvitað sækir flugan bara í skítalyktina...

Music non stop when I close my eyes...
Fór á tónleika í kvöld. Ekki hægt að sleppa því þegar sjálfur Jón Ólafsson mætir í Hveragerði. Hreint út sagt frábærir tónleikar! Ekki skemmdi það heldur fyrir að Helgi Valur spilaði aðeins á undan Jóni. Ansi góður bara. Má reyndar líka alveg vera það, verandi Trúbador Íslands...
Í heildina vægast sagt stórkostleg skemmtun!
Og Jóna, ég skemmti mér svo sannarlega fyrir þig líka, jafnvel líka fyrir Stebba og stelpurnar...

sunnudagur, nóvember 21, 2004
Ég gleymdi einu...
Er soldið búin að vera að spá í að flytja inn á Freyju eftir áramót. Margt samt sem þarf að taka mið af...
Freyja býr í Reykjavík...
Ég vinn í Hveragerði og er ánægð í mínu starfi þó það sé ekki beint hálaunastarf, tími varla að sleppa því...
Ég á íbúð í Reykjavík sem ég stefni á að flytja í í júní þannig að ég þyrfti hvort sem er þá að ákveða hvað ég geri í vinnumálum...
Ég á ekki bíl og hæpið að ég hafi efni á að kaupa slíkan og reka hann eins og er, hvað þá ef ég fer að leigja með Freyju...
Ég gæti átt möguleika á að keyra á milli með öðrum...
Ég er búin að búa hjá m+p hálfu ári lengur en ég reiknaði með þegar ég flutti þangað aftur eftir að hafa búið ein...
Ég veit ekkert hvað ég á að gera...
Ég veit bara að ég þrái ekkert heitar en að standa aftur á eigin fótum og lifa lífinu "my way" (no hard feelings m+p)...

Helgin
Afmælishelgi dauðans er nú afstaðin. Búin að fara í ÞRJÚ afmæli um helgina! Geri aðrir betur. Eins árs afmæli Kristjönu, tveggja ára afmæli Axels og svo varð Tinna 24 ára. Er í þessum þremur afmælum búin að klára afmælisveitingakvótann fram að áramótum. Ekki gott, ekki gott. Næsta afmæli er nefnilega eftir 12 daga og eftir það verður fjandinn fyrst laus því stór hluti frændfólks míns virðist hafa verið borið í þennan heim í desember og janúar!
Afrekaði svo, fyrir utan öll afmælin um helgina, að fara í tvö partý á föstudaginn! Fyrst Idolpartý hjá Sólveigu með pizzum og nammi og allskonar ógeði. Rosa stuð. Svo var tölt í Eskihlíðina þar sem við Freyja héldum partý fyrir Gunnu og Bjössa sem flugu frá Brussel til að mæta í partý! Gunnupartý klikka sko aldrei.
Ég komst reyndar að sotlu um helgina sem kætti mig ekki beint... Fékk sjóðheitar fréttir af Snúlladjamminu sem var um daginn... Sumir virðast nefnilega muna dáldið betur eftir mér en ég eftir þeim... Og þessir sumir smjatta, skilst mér, talsvert þessa dagana... Ojbara...

mánudagur, nóvember 15, 2004
Hjálp!
Þarf virkilega að leggjast undir feld og taka afdrifaríka ákvörðun á næstu dögum. Vantar af þeim sökum sárlega móralskan stuðning. Þið vitið hvar mig er að finna.

laugardagur, nóvember 13, 2004
föstudagur, nóvember 12, 2004
Nú er það svart!
miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Þeir létu dæluna ganga...
Bókasafnið er að flytja og ég er búin að vera aðeins með puttana í því. Var í dag að taka bækur upp úr kössum og raða í hillur. Skemmti mér konunglega við að lesa titlana og fann nokkra mjög skemmtilega. Þarna var til dæmis saga Olíuverslunar Íslands, Olís, og titill bókarinnar var alveg frábær, sérstaklega með tilliti til meints verðsamráðs olíufyrirtækjanna: Þeir létu dæluna ganga!

laugardagur, nóvember 06, 2004
Alveg einstök tilfinning!
25 millur í pottinum í kvöld! Gæti svosem alveg gert eitthvað skemmtilegt við þær... Rölti þess vegna niðreftir í rigningunni (held barasta að það sé að koma annað syndaflóð) og keypti lottómiða. Var auðvitað blaut inn að beini þegar ég kom aftur heim, en það var bara allt í lagi því ég veit fátt betra en að labba lengi úti í rigningunni og rennblotna, fara svo úr blautu fötunum þegar heim kemur og skríða undir sæng og horfa á eitthvað skemmtilegt í imbanum. Alveg hreint einstök tilfinning!
Reyndar er held ég að það sé bara tvennt annað sem toppar það að labba úti í rigningunni. Annars vegar að liggja inni í tjaldi í mígandi rigningu og hlusta á regnið bylja á tjaldhimninum. Hins vegar er það að sitja í heitum potti með bjór í hönd og horfa upp í stjörnubjartan himininn.
Á ekki einhver heitan pott???

föstudagur, nóvember 05, 2004
Helgin framundan
Tvennt á tæru varðandi helgina. Annars vegar ekkert djamm! Hins vegar hef ég ákveðið að eyða helginni í rólegheitum heima og kynnast sjónvarpinu mínu betur... jú og reyndar kannski líka sjálfri mér aðeins... ;)
Lærði annars ýmislegt af ævintýrum síðustu helgar...
- Sólveig er vinur í raun!
- Það er ekki endilega slæmt að hafa ekki hugmynd um hvern maður á að forðast eftir skandaliseringu...
- "Shit happens"...