<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, desember 28, 2004

Lazy Daisy
Svona á sko jólafrí að vera! Ég er ekkert búin að gera í dag annað en að sofa og horfa á Simpsons í "lange baner"... Ekki einu sinni búin að klæða mig ennþá og kem trúlega ekki til með að gera það úr þessu... En mikið þurfti ég á svona alvöru letidegi að halda til að ná upp smá orku fyrir komandi átök... Jólaboð á morgun, Sölvadjamm á fimmtudag og svo bara gamlárs! Spurning samt hvað maður djammar mikið með sára hálsbólgu og glæsilega viskýrödd...
Fékk annars skemmtilegan pakka í dag, afmælisgjöf alla leið frá Belgíu! Pakkinn innihélt auðvitað belgískt súkkulaði fyrir sjálfan súkkulaðigrísinn. En í pakkanum var líka geisladiskur og ég bókstaflega öskraði af hlátri þegar ég sá titilinn... Spurning bara hvort maður trúi orðið á tilviljanir... Í Belgíu er semsagt til hljómsveit sem heitir Sioen og gaf út disk með því skemmtilega nafni See you naked...

mánudagur, desember 27, 2004

Ég á afmæl´í dag
ég á afmæl´í dag
ég á afmæl´ún éeg
ég á afmæl´í dag...

Jamm, daman orðin 26! Finnst það eiginlega bara fyndið...
Ekkert djamm í þetta skiptið en aldrei að vita nema ég taki það út um áramótin...
Planið fyrir daginn er að byrja á að leggja mig í nokkra tíma, fara svo í búðina þegar hún opnar og leggjast í ærlegt dekurbað eftir það. Svo á ég von á Stebba, Jónu, Soffíu og Karólínu í heimsókn og ég ætla að elda rosa góðan mat handa allri familíunni. Lofaði reyndar að hafa ekki stórsteik þannig að kjúklingarétturinn hennar Gunnu sem klikkar aldrei varð fyrir valinu, enda klikkar hann aldrei... ;)

Er annars ekki beint í toppformi eftir Svíþjóðardvölina. Smitaðist nefnilega af s(p)ænsku veikinni... Ég slapp reyndar nokkuð vel með "bara" slæma hálsbólgu og hrikalegan hósta á meðan aðrir voru líka með háan hita og að kafna úr kvefi. En þrátt fyrir hósta, veik börn og svefnlitlar nætur var rosalega notalegt að vera hjá Stebba & Co. um jólin! Reyndar soldið skrýtið að prófa svona mikið nýtt og upplifa öðruvísi jól en ég er vön, en mjög gaman samt. Gæti meira að segja til gamans kallað þessi jól ýmsum skemmtilegum nöfnum, eins og til dæmis útsölujólin ógurlegu, jólin sem ég prófaði allt þetta nýja, jólin með Jóni eða s(p)ænsku jólin... En allavega... Stebbi og Jóna, takk fyrir mig! Og allir hinir líka, takk fyrir mig!

föstudagur, desember 17, 2004

...gleði ríkja skal í bænum...
Já, það er sko allt að ske. Er á trilljón að klára það sem ég þarf að gera fyrir brottför á morgun. Er að þvo sjöttu vélina síðan í gær og held að það sé nýtt met á heimilinu, en eitthvað verður maður að hafa hreint til að pakka niður... Er semsagt að yfirgefa landið á morgun og sný ekki til baka fyrr en annan í jólum.

Er annars búin að vera súperglöð í dag. Það er sko leynivinavika í vinnunni og orðsendingin sem ég fékk frá leynilegum vini mínum í dag fyllti mig þvílíkri gleði og stolti að ég held bara að ég nái mér ekki niður næstu daga! En fyrst ég er að tala um gleði og stolt þá var ég um daginn að fletta tímariti og á einni síðunni blasti við mér hvorki meira né minna en mynd af listaverki eftir mig! Reyndar er líka mynd af verki eftir mig að finna hér á netinu, þannig að nú er maður sko bara orðin fræg...

Gleðileg jól!

miðvikudagur, desember 15, 2004

Tæm flæs...
Já, tíminn bókstaflega gufar upp þessa dagana! Síðasti kennsludagur hjá mér fyrir jól er á morgun, svo bara jólaböll og læti. Flýg svo til útlanda á laugardag. Er reyndar búin að gera svotil allt sem ég þarf að gera fyrir brottför nema auðvitað pakka og svo þarf ég reyndar að þvo þvott svo ég hafi eitthvað til að pakka niður... Kláraði síðustu jólagjafakaupin í dag og er búin að senda öll jólakort. Er í kvöld að ganga frá síðustu heimagerðu jólagjöfunum, þær semsagt kláruðust á tíma. Í dag framkallaði Sólveig mig líka (litaði og plokkaði), þannig að með jólaklippingunni er ég þá orðin rosa skvísa... Meira að segja með strípur eins og Bratz...

Annars ætlaði ég eiginlega að nýta mér aðstöðu mína hér og auglýsa smá... Freyja er nefnilega að flytja um mánaðamótin janúar/febrúar og þá verða húsgögnin mín heimilislaus. Er ekki einhver þarna úti sem vill taka að sér svefnsófa, tvo hæfindastóla, sófaborð og þrjá eldhússtóla frá enda janúar og fram í byrjun júní?

sunnudagur, desember 12, 2004

Dáldið duló...
Ég er farin að halda að ég sé svona voðalega óþekk eitthvað. Síðustu daga er ég búin að vera að spyrja pabba hvað hann langi í í jólagjöf og hann segist ekki langa í neitt nema þæg og góð börn... Sama svar og síðustu tuttuguogeitthvað ár eða svo... Til að kóróna það þá heimsótti Stekkjastaur mig ekki í nótt.
Ég held að þetta sé eitthvað gruggugt... Eða er ég kannski svona óþekk?

laugardagur, desember 11, 2004

...jólin er´að koma...
Ég get ekki sagt annað en að tíminn líður allt of hratt þessa dagana. Vika þangað til ég fer út og hellingur sem ég þarf að vera búin að gera þá, en eins og svo oft áður er ég á síðustu stundu með hlutina... Er samt nokkuð viss um að þetta reddist eins og venjulega þannig að ég hef engar áhyggjur... Ég er allavega búin að redda flestum jólagjöfunum og baka eina smákökusort. Hver veit nema mér takist að hrista aðra fram úr erminni um helgina... Fór svo í jólaklippinguna í morgun, næstum því rosa skvísa núna... verð það sko á miðvikudaginn, en þá ætlar Sólveig að setja á mig andlit... eða þannig sko...
Á reyndar eftir að finna eins og tvö herbergi eða svo áður en ég fer, en það er á dagskránni um helgina... alveg eins og jólagjöfin sem ég á eftir að klára að prjóna...
Ég hafði mestar áhyggur af laugardeginum eftir viku, brottfarardeginum sjálfum. Á sko að mæta í vinnu um morguninn og svo er hangikjör og fínerí í hádeginu. Er hrædd um að ég missi af öllu gúmmulaðinu, flugvélin mín fer nefnilega um tvöleytið... En ég held að þetta verði allt í þessu fína, hef meiri áhyggjur af meintri skautaferð á fimmtudaginn... Hvernig ætli það sé að sitja fótbrotin í flugvél...?

miðvikudagur, desember 08, 2004

Konur og epli
Fékk soldið skemmtilegan tölvupóst um daginn, læt hann flakka...

Women are like apples on trees.

The best ones are at the top of the tree.

Most men don't want to reach for the good ones because they are afraid of falling and getting hurt.

Instead, they just take the rotten apples from the ground that aren't as good, but easy...

The apples at the top think something is wrong with them, when in reality, they're amazing.

They just have to wait for the right man to come along, the one who's brave enough to climb all the way to the top of the tree.

Share this with other women who are good apples, even those who have already been picked!


Now Men.... Men are like a fine wine.

They begin as grapes, and it's up to women to stomp the crap out of them until they turn into something acceptable to have dinner with...

laugardagur, desember 04, 2004

"Hey, þessi gleymdi að fara í buxur"...
Fanney hélt upp á afmælið sitt í gær. Mikið stuð, mikið stuð. Partý fyrst og enduðum svo á Hressó þar sem við skemmtum okkur mjög vel, allavega svona framan af... Fljúgandi bjórglös, kýlingar og slagsmál eru reyndar ekki efst á óskalistanum þegar maður vill skemmta sér. Við enduðum semsagt annars skemmtilegt kvöld úti á stétt í Austurstrætinu ásamt bjórhellingar- og kýlingafólkinu, allir að reyna að tala alla til á meðan beðið var eftir löggunni sem reyndar aldrei kom. Ég hafði nú ekkert endilega reiknað með að þurfa að standa úti í einhverju rugli í klukkutíma þegar ég klæddi mig fyrr um kvöldið. Ég var því ekki bara illa klædd heldur líka berfætt í litlu skónum mínum í snjónum og kuldanum. Ég varð þó ekki úti, enda Real Icelandic Viking Woman!
Eftir að hafa elt uppi og í hálftíma rætt og rökrætt við einhverja gaura sem flæktust inn í þetta leiðinlega atvik varð ég þess vís að hvorki sást tangur né tetur af fórnarlambinu. Ég var nú samt ekki alveg ein á báti því við nánari athugun fann ég Fanneyju á heljarinnar spjalli við dyraverðina á Hressó, held svei mér þá að þeir ætli bara að ráða hana í dyravörslu... Jólakjóllinn hennar ku samt ekki vera ideal klæðnaður fyrir dyravörð þó að leðurjakkinn hafi víst bjargað einhverju.

Tvennt sem mér finnst ég þurfa að koma á framfæri eftir þetta...
...Ég er ekki "þessi sem gleymdi að fara í buxur"...
...Ég er ekki fórnarlamb í sögunni, ekki bjórhellari og ekki kýlari...

fimmtudagur, desember 02, 2004

Hvar varst þú?
Fyrsti "home alone" dagurinn búinn. Naut hans í botn. Skrapp á Selfoss eftir vinnu og lagði mig svo, var nefnilega ekki mjög fersk eftir kennsluna í dag þar sem ég fór ansi seint að sofa og vaknaði kl. 4 í nótt til að keyra restina af familíunni í rútuna sem fór með þau út á flugvöll. Ég er semsagt minn eigin herra, með einbýlishús og bíl til einkanota, næstu daga.
Það besta sem ég veit þegar ég er ein heima er að sukka vel. Kvöldið í kvöld var einmitt svoleiðis. Slísíburger og nóg af kókakóla og súkkulaði yfir sjónvarpinu. Dagskráin heillaði mig reyndar ekki meira en það að ég leigði mér mynd. Good bye Lenin varð fyrir valinu í kvöld og sé ég ekki eftir því vali. Alveg hreint frábær mynd!
Viðurkenni að hugurinn hvarflaði eins og 14 - 15 ár til baka á meðan ég horfði. Hallærislegur klæðnaður og asnalegar hárgreiðslur komu upp í hugann og svo man ég upp á hár hvar ég var 9. nóvember 1989. Þá sá ég fall Berlínarmúrsins í kvöldfréttum þegar ég var í heimsókn hjá ömmu Soffu á Borgarspítalanum.

Manst þú hvar þú varst?

miðvikudagur, desember 01, 2004

SMÁkökubakstur...
Ég stóð áðan og bakaði úr restinni af piparkökudeginu síðan á sunnudaginn. Fór þá að hugsa um eftirminnileg bökunarafrek mín og annarra. Þau eru nú orðin nokkuð mörg og fjölbreytt.
Það skemmtilegasta held ég að sé þegar Sólveig bakaði súkkulaðibitakökurnar... Hún var alveg handviss um að hún væri að baka súkkulaðibita formköku. Hún gerði deigið, sem var reyndar frekar illviðráðanlegt, kom því í tvö formkökuform og skellti í ofninn. Á meðan kökurnar bökuðust tókust fjölskyldumeðlimir á um það hvort heiti uppskriftarinnar væri súkkulaðibitakaka eða súkkulaðibitakökur, en Sólveig var handviss um að hún væri að baka súkkulaðibitaköku. Og ekkert múður með það! Jæja, svo voru kökurnar tilbúnar. Formin reyndar óvenju þung og erfitt að ná kökunum úr þeim. Kökunum var leyft að kólna aðeins svo auðveldara yrði að skera þær. Þegar til kom var reyndar ómögulegt að skera kökurnar og ef mig minnir rétt var það buffhamarinn sem við notuðum til að berja okkur bita af kökunum. Sólveig hafði semsagt bakað tvær súkkulaðibitaSMÁkökur...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?