fimmtudagur, janúar 27, 2005
Sundlaugin.is
Loksins er búið að sópa öllu út úr baðherberginu og eitthvað farið að gerast. Meira að segja búið að rífa spónaplöturnar af veggjunum og gólfið er farið. En eins og það er gaman að loksins sé eitthvað farið að gerast þá kemur á móti að ekki er hægt að baða sig á heimilinu... Það er því bara sundlaugin sem blívar næstu vikurnar. Sundlaugin er í sjálfu sér ekki svo slæm, það er aðallega opnunartíminn sem hentar mér ekki alveg nógu vel. En eins og ég segi svo oft... þá reddast þetta. Bara spurning hvort það sé þorandi að senda Max einn í karlaklefann... ;)

mánudagur, janúar 24, 2005
Í neyð... ...brjótið glerið
Ég fór út að borða með stelpunum á laugardagskvöldið. Fórum á Rossopomodoro eða Rosapornódónó eins og einhver sagði... Gunna á landinu og með hana og Sonju með í för þá getur maður nú átt von á öllum fjandanum, ég tala nú ekki um ef Gunna er nýbúin að heimsækja rauða hverfið í Amsterdam... ;) Allavega, þegar við fórum út af staðnum hafið okkur fjölgað og MAX druslaðist með okkur á Laugavegsrölt og heimsókn á Vegamót þar sem við björguðum honum tvisvar frá bráðum bana. Þar sem hann lifði kvöldið af en átti í ekkert hús að venda ættleiddi ég hann á staðnum og fór hann með mér heim. Ég hlýt að hugsa svona rosalega vel um hann, hann allavega vex og dafnar og er orðinn alveg bara ansi myndarlegur!

Shit happens
Ég er rækilega að súpa seyðið af hádegismatnum núna. Ég hefði svosem getað sagt mér að rjómalöguð aspassúpa og samloka með spægipylsu, osti, gúrku og rækjusalati væri ávísun á vandræði...

fimmtudagur, janúar 20, 2005
Experimental pía...
Ég hef löngum verið þekkt fyrir tilraunastarfsemi mína í eldhúsinu og ýmislegt, bæði gott og slæmt, hefur komið út úr því. Popp með sykri smakkaðist til dæmis ekki eins vel og rúgbrauð með Nutella og eflaust hefði verið betra að nota Nutella en Siríus suðusúkkulaði með súru gúrkunum. Það kom mér samt nokkuð á óvart í kvöld að heitt brauð með bökuðum baunum, ananas og osti er bara alls ekki svo slæm samsetning...

miðvikudagur, janúar 19, 2005
Allt að verða vitlaust...
Hér er alveg bandbrjálað veður og sést varla á milli húsa. Ég komst við illan leik heim úr vinnunni, fékk reyndar far áleiðis en bílstjórinn þurfti eiginlega að keyra eftir minni, svo slæmt er skyggnið hér. En það er ekki bara skyggnið sem er slæmt, færðin innanbæjar er þannig að bílar eru fastir þvers og kruss um allar götur þannig að þegar maður er á jeppa og keyrir eftir minni er ágætis hætta á að maður lendi á einhverju... Við sluppum nú samt. Jæja, vegna færðar fékk ég bara far áleiðis heim þannig að restina af leiðinni óð ég skafla upp á mið læri. Þurfti svo að moka frá útihurðinni til að fá ekki vænan skafl inn með mér. Þegar ég var búin að setja blautu fötin á ofn og verka forstofuna eftir herlegheitin heyrði ég að baðherbergishurðin skrölti óeðlilega mikið... Já, þar var víst opinn gluggi þannig að það var ekki um annað að ræða en að skafa snjó og klaka úr glugganum og þurrka bleytu af veggjum og gólfi... einmitt það sem mig langaði mest til að gera... ;) Meðan ég svo stóð uppi á baðkarsbrúninni og hamaðist á klakanum á glugganum fékk ég hálfgert flashback. Ég hef nefnilega lent í þessu áður, reyndar var það dáldið svæsnara þá...
Þetta hlýtur að hafa verið á vorönn 1997 því við Sólveig vorum allavega báðar í F.Su. Brjálað veður allan daginn og skólarútan komst við illan leik í Hveragerði eftir skóla. Á meðan við börðumst í bylnum heim úr rútunni sáum við sængurnar okkar og vídeóið í hyllingum. Það snarbreyttist svo þegar við komum heim... Það var örugglega nokkurra gráðu frost inni í húsinu og eitthvað gruggugt hljóð kom frá hjónaherberginu... Við nánari athugun kom í ljós að hitinn hafði farið af húsinu og glugginn í hjónaherberginu var opinn og það hafði skafið allrækilega inn um hann. Snjór og klaki þakti gluggann og þykkt lag var á veggnum og á gólfinu var skafl sem náði alla leið fram á gang! Við ruddumst því þarna inn í kraftgöllum og kuldaskóm, með húfur og vettlinga, vopnaðar skúringafötum og fægiskóflum og byrjuðum að moka. Þær voru ófáar föturnar af snjó sem við hentum aftur út. Ekki beint það sem við óskuðum okkur þann daginn...;)

þriðjudagur, janúar 18, 2005
sunnudagur, janúar 16, 2005
Lítið að "ske"
Það er eitthvað frekar lítið í gangi þessa dagana. Fór reyndar í bíó á fimmtudagskvöldið. Fór með Sólveigu, Freyju, Fanneyju og Rakel að sjá The Incredibles. Frábær mynd! Mæli með henni fyrir alla, krakka með hár og kalla með skalla... og konur líka...
Föstudagurinn var líka soldið skemmtilegur. Fékk ábendingu frá Ine, belgískri vinkonu minni sem fannst brandari síðasta árs ansi fyndinn, um að það væri við hæfi að brandari þessa árs hefði eitthvað með "ease your mind" að gera... Hef það í huga... ;) Skrapp svo út og kíkti á Idolið. Held svo sannarlega að "miss psycho" hafi náð að toppa sig... Haha... Ótrúlegt alveg hreint.
Annars bara tæp vika í að Gunna mæti á svæðið. Á ekki von á lognmollu þá frekar en fyrri daginn...

þriðjudagur, janúar 11, 2005
Good bye my old friend
Þá er komið að því. Gústi, góðvinur minn, er farinn að heiman! Hann er reyndar búinn að vera á leiðinni burtu í nokkra mánuði en kvaddi þó ekki fyrr en í dag. Eins og mér einni er lagið gaf ég honum væna kveðjugjöf áður en hann fór... Þeir eru fáir sem ég hef átt eins náið og innihaldsríkt samband við og Gústi, ji hvað ég á eftir að sakna hans mikið. Það er nú reyndar ekki eins og hann sé farinn yfir móðuna miklu. Hann er bara að fara til Súðavíkur svo ég get nú alveg hitt hann áfram á sumrin. Það er nú ágætis tilhugsun. Svo er líka Gústi jr. ennþá heima og Ída frænka flytur svo inn á næstu dögum þannig að það er ekki eins og himinn og jörð séu að farast þó að hann Gústi minn sé farinn. Held samt að 11. janúar verði í mínum huga alltaf dagurinn sem Gústi fór að heiman.

mánudagur, janúar 10, 2005
Leti hvað...?
Það er greinilega málið að blogga um það hvað maður er latur, þá fyrst fara hlutirnir að gerast... Eftir að hafa skrifað pistilinn í gær fór ég að vesenast í tölvunum mínum. Setti meðal annars upp isl.is póstinn minn í nýju tölvunni en hann hafði ég ekki opnað síðan einhverntíman í haust... Átti líka óendanlega marga óopnaða pósta þar... ;) Þurfti reyndar að opna gömlu tölvuna til að kíkja einhverjar stillingar og fyrst ég var á annað borð komin í hana sótti ég líka nokkur skjöl eftir krókaleiðum... Sú gamla er nefnilega ekki með virka vírusvörn þannig að ég get ekki sent mér gögnin í tölvupósti, hún er ekki með geisladrif og nýja tölvan ekki með floppydrif... Mér til mikillar gleði áttaði ég mig svo á því að mömmu og pabba tölva er með allar græjur þannig að ég vistaði skjölin á diskettu sem ég fór svo með í m+p tölvu og sendi mér þaðan í nýju tölvuna með tölvupósti. Kannski ekki beint einhver "nörda"leið, en ég er nú heldur ekki þekkt fyrir að gera mér hlutina auðveldari...
Byrjaði svo í nýju aukavinnunni í dag. Semsagt aftur komin í þrifin, jei... Fékk reyndar alveg nóg af þeim síðasta sumar og lofaði þá sjálfri mér því að ráða mig aldrei í ræstingar. Hmhmmm... Tímabundin störf og afleysingar eru svo annað mál þegar maður er blankur.

sunnudagur, janúar 09, 2005
Lægð og lestarsögur - þetta reddast!
Er í hálfgerðri lægð þessa dagana. Mæti í vinnuna og geri það sem mér ber og þarmeð er orka dagsins búin. Kenni helv... hóstanum um, er orðin frekar pirruð á honum. Finn samt að hann er að minnka og orkan þannig kannski eitthvað að aukast...
Gunna var eitthvað að ýja að því að við færum í lestarsögusamkeppni. Ætlaði því að finna það sem ég bloggaði á interrailferðalaginu okkar Sólveigar. Eitthvað er bloggið að hrekkja mig því ég get ekki alltaf skrollað alveg niður síðuna þannig að ég gat ekki lesið allt interrailbloggið. Það er svo lægðinni að kenna að ég nenni ekki að fikta eitthvað í þessu dóti. Ég var nú samt búin að kópera söguna í heild sinni inn á word því ég ætlaði að prenta hana út og líma inn í úrklippubók ferðarinnar. Einhverra hluta vegna er ég ekki enn búin að gera þessa úrklippubók og sagan er enn í gömlu tölvunni sem ég er einhverra hluta vegna ekki enn búin að færa gögnin úr og yfir í nýju tölvuna... Hmm... Veit nú ekki alveg hvort ég geti kennt lægðinni um það... En koma tímar, koma ráð og Gunna fær almennilegar lestarsögur við tækifæri!
Síðustu vikur hef ég verið soldið stressuð útaf peningamálum. Var farin að sjá fram á að geta ekki flutt í íbúðina mína á áætluðum tíma og þótti það miður. Þessar peningaáhyggjur mínar komu sjálfri mér soldið á óvart því ég hef verið á "þetta reddast" línunni... Á föstudaginn sannaðist það svo enn og aftur að það er óþarfi að hafa áhyggjur því þetta reddast alltaf á endanum! Það var semsagt hringt í mig og mér boðin aukavinna. Ekki slæmt það!

mánudagur, janúar 03, 2005
Always look on the bright side of life...
Síðasti dagur jólafrísins. Passar... hálsbólgan búin, kvefið að minnka og hóstinn að skána. Svo er það bara að hella sér í vinnu og lifa eins og nunna til að ná að flytja í júní. Glæsilegt að byrja eftir jólafrí á lengsta og erfiðasta deginum... En það þýðir víst ekki að kvarta. Maður á alltaf að horfa á björtu hliðarnar! Það svínvirkar... hægt að hlæja að ótrúlegustu hlutum...

laugardagur, janúar 01, 2005
Gleðilegt ár!
Áramótin voru með allra rólegasta móti hjá mér. Kom mér bara vel fyrir með sængina mína í sófanum og horfði á vídeó, ein heima. Hafði akkúrat enga löngun til að gera neitt annað, svo slöpp var ég. Er að kafna úr kvefi en hálsbólgan er reyndar í rénum, mér er allavega hætt að líða eins og gaddabolti sé fastur í hálsinum á mér. Röddin kemur nú samt einhversstaðar neðan úr ég veit ekki hverju og ég hósta sem aldrei fyrr. Er að farast úr harðsperrum og skil núna mjög vel hvernig fólk getur rifbeinsbrotnað við það að hósta...
Engin opinber nýársheit hjá mér núna, þá er nefnilega ekki hægt að segja að ég hafi ekki staðið við þau... ;) Samt ákveðnir hlutir sem ég stefni að og hef hugsað mér að gera á árinu...