<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, febrúar 27, 2005

Oh, ég er svo klár!
Var alveg extra dugleg að spara á þegar útsölurnar voru og keypti mér ekki neitt, vegna þess að mig vantaði í sjálfu sér ekki neitt. Svo kláruðust útsölurnar og viku seinna eða svo kláruðust líka fötin mín... eða þannig lagað sko... Botninn datt úr uppáhalds gallabuxunum mínum, sundbolurinn fór í tunnuna (eða það sem eftir var af honum...) og ég er svo til búin að ganga niður úr gönguskónum mínum... Hmmm... Það gengur náttúrulega ekki að eiga ekki sundbol þegar maður fer nánast daglega í sund (baðherbergisleysið sko)... Og það gengur heldur ekki að eiga ekki almennilega skó þegar maður gengur í og úr vinnu næstum á hverjum degi... Og það er satt að segja frekar slæmt að eiga bara kvartbuxur og "pípara"buxur um miðjan vetur... Þannig að ég brá mér í borgarferð á laugardaginn. Reyndar bara til Reykjavíkurborgar, en gaman að segja þetta þar sem svo margir eru einmitt í einhverjum borgarferðum núna um helgina (París, London, Glasgow...). Fjárfesti bæði í gallabuxum og sundbol en læt skóna bíða í bili. Heimsótti líka Súfistann í Hafnarfirði. Ótrúlega fyndið að koma þarna inn eftir ca. eitt og hálft ár. Sama starfsfólk, sömu kúnnar... Sumir þeirra meira að segja heilsuðu mér eins og í "gamla daga"! Ótrúlega skrýtið alveg.
Annars er ég alveg svakalega sexý þessa dagana! Fór til doksa fyrir helgi og honum að þakka lít ég út eins og versti dópisti... Olnbogabótin upp á miðjan upphandlegg og niður á miðjan framhandlegg er í öllum regnbogans litum og auðvitað er ég helaum í þessu öllusaman. Bölvuð brussa þessi læknir að geta ekki tekið smá blóð svo vel sé. Bíð svo spennt eftir að fá að vita hvort ég er bara bölvuð drusla, aumingi og letingi eða bara eitthvað allt annað...

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Má ég eiga eitt úr töskunni þinni?
Á leiðinni heim úr vinnunni í gær heyrði ég hátt og snjall HÆ! úr garði nágrannans. Ég leit auðvitað við og heilsaði hinum 5 ára nágranna sem bað mig um að stoppa, hann væri á leiðinni til mín. Það var ekki laust við að ég væri dálítið forvitin að vita hvaða erindi hann ætti við mig. Ég beið á meðan hann klöngraðist yfir girðinguna hjá sér með kúbein í höndunum og tók sér svo góðan tíma í að líta til beggja hliða áður en hann gekk yfir götuna til mín. Ég átti nú von á einhverju skemmtilegu, en Má ég eiga eitt úr töskunni þinni? var nú samt ekki það sem ég bjóst við að kæmi... Við tók mjög svo einkennilegt, en jafnframt skemmtilegt, samtal um hvað væri nú í blessaðri töskunni, hvers vegna einmitt það væri í henni og hvers vegna ég gæti ekki gefið honum eitthvað af því. Samtalið endaði svo á því að nágranninn dröslaði kúbeininu sínu aftur yfir götuna og kominn hálfa leiðina yfir girðinguna galaði hann á eftir mér SJÁUMST!
Skemmtilegur gaur og enn skemmtilegri uppákoma. Bíð bara spennt eftir að hitta hann aftur...

fimmtudagur, febrúar 17, 2005

Viltu kaupa frímerki?
Gærdagurinn var ansi skemmtilegur. Er búin að vera að pirra sjálfa mig á því undanfarið hvað hárið á mér er orðið druslulegt og ljótt. Tími bara ekki í klippingu eins og er. Í gærmorgun var lubbinn svo enn rafmagnaðri og druslulegri en venjulega þannig að ég skellti honum í tagl. Algjörlega óundirbúið lenti ég svo í Reykjavík seinnipartinn, með fullt af vinnudrasli á bakinu og enn með druslulegan lubbann í tagli. Byrjaði á að hitta Freyju sem byrjaði á að hrósa klippingunni minni. Hmmm. Skruppum í surpriseheimsókn til Sólveigar og spurðum hana hvort hún vildi kaupa frímerki... Enduðum svo í surpriseammæli hjá Önnu, en þar fór Signý að tala um hvað ég væri fín svona með dökkt hár og topp. Hmmm... Reyndar hef ég verið dökkhærð og með topp í næstum því ár og fór síðast í klippingu um miðjan desember. En eftir gærdaginn held ég að það skipti ekki meginmáli hvernig hárið er á litinn, hvernig klippingin er eða hversu rytjulegt hárið er, bara ef það er í tagli! Held þessvegna að ég spari mér klippinguna og kaupi mér bara nokkrar teygjur í staðinn...

laugardagur, febrúar 12, 2005

Ég er flutt!
Reyndar bara á milli herbergja, en það er nú samt alveg heilmikið fyrirtæki - ég tala nú ekki um þegar þarf að transportera húsgögnum, hreinlætistækjum (baðherbergið er enn í vinnslu og klósett og baðkör því á víð og dreif um húsið...) og allskonar dóti á milli þriggja herbergja... Já, nú er sko herbergið mitt endanlega orðið að geymslu og ég flutt í Sólveigar herbergi því afi er kominn aftur í gula herbergið. Ég er semsagt búin að koma mér ágætlega fyrir í minnsta herberginu í húsinu með sjónvarpið mitt og vídeóið og þarf ekkert að fara þaðan aftur fyrr en ég flyt í mína íbúð í júní. Það eina sem ég er soldið að spá hvort ég þurfi að vera hrædd um er rúmið hennar Sólveigar sem ég semsagt kem til með að sofa í á næstunni. Það er nefnilega bæði með höfða- og fótagafli... Það er nú svosem kannski ekkert óvenjulegt við það, mitt rúm hefur bara hvorugt og ég á það til að sofa með fæturna standandi útúr rúminu til fóta. Þar að auki fékk ég einu sinni glóðarauga af höfðagafli umrædds rúms... En þar sem ég horfi alltaf á björtu hliðarnar þá reddast þetta eins og allt annað, enda eru ekki nema rúmar 15 vikur í að ég fái íbúðina mína!!!

föstudagur, febrúar 11, 2005

Lurkum lamin...
Púff, ég held barasta að ég sé að hrynja... Allur líkamsræktarkvóti ársins uppurinn, bara á síðustu dögum! Byrjaði á miðvikudaginn með því að labba í vinnuna í snjónum. Í hádeginu labbaði ég svo í bakaríið, þaðan út á bókasafn og aftur í skólann. Eftir vinnu fékk ég svo reyndar far heim þar sem ég sótti sundfötin mín og trítlaði svo (ef það er hægt að kalla það trítl í öllum snjónum) niðrá Bæjó að þrífa. Sótti Sólveigu svo á bókasafnið og saman börðumst við í ógeðslegu veðri upp í sundlaug, labbandi. Þaðan löbbuðum við til Siggu sem var með heilsuvörukynningu og svo enduðum við heilsudaginn á því að labba heim í snjónum. Nokkuð hress dagur bara!
Í gær rann svo upp fótboltadagurinn ógurlegi. Í tilefni dagsins mætti ég í slaginn í legghlífum og röndóttum hnésokkum (á ekki annars að reyna að trufla andstæðingana...?). Var búin að sannfæra bekkinn sem ég átti að vera að kenna um að þau ættu að hvetja kennarana áfram en ekki nemendurna... Sem þau og gerðu... Enda vel upp alin sko... ;) Reyndar var það fyrsta sem þau sögðu þegar ég mætti upp á pallana eftir hörku leik (sem við reyndar töpuðum 5:1 eða eitthvað svoleiðis... missti sko töluna á mörkum andstæðinganna...) "hva, af hverju varstu svona hrædd við boltann?"... Hmm... Jæja, þetta tók allavega ótrúlega mikið á, enda hef ég ekki spilað fótbolta síðan vorið 2001 eins og Helga benti mér á... Fyrir nú utan það að stelpurnar í 10. bekk eru greinilega allar að æfa fótbolta miðað við taktana sem þær sýndu! Ég lít reyndar mun betur út eftir þennan leik en ævintýrið um árið... Núna uppskar ég bara heilmiklar harðsperrur (hélt ekki að það væri svona erfitt að spila í 10 mínútur...) og misstiginn ökkla, kalla það nokkuð gott! Jæja, eftir þetta alltsaman var ekkert annað í boði en að labba upp í sundlaug og baða sig. Og svo labba til baka í snjónum. Var svo lögð af stað heim eftir vinnu, labbandi, þegar mér datt allt í einu í hug að rölta á bókasafnið. Heilsaði þar aðeins upp á mömmu og labbaði svo heim. Vegna þess að ég var að koma af bókasafninu labbaði ég upp Þelamörkina en ekki Heiðmörkina eins og venjulega þegar ég er að koma úr skólanum. Þelamörkin er reyndar aðeins ógreiðfærari fyrir gangandi vegfarendur og því labbaði ég bara útá götu. Ekkert mál. Það er að segja þangað til ég skyndilega lá flötum beinum á miðjum gatnamótum... Ekki svo gott mál... Jæja, ég stóð upp, burstaði af mér og labbaði af stað eins og ekkert væri eðlilega, enda áhorfendur að þessari glæsilegu sýningu minni... Var nú samt frekar aum eftir harða lendingu. Á endanum komst ég svo heim að húsi, búin að vaða skafla upp að hnjám, til þess eins að fatta að ég var læst úti og símalaus í þokkabót! Kannski var undirmeðvitundin að reyna að segja mér eitthvað þegar hún sagði mér að koma við á bókasafninu? Það var því ekki um annað að ræða en að labba aftur niðrá bókasafn, sníkja lykilinn hjá mömmu og labba heim aftur. Í þetta skiptið sleppti ég Þelamörkinni og fór fjallabaksleið, enda hvort sem er orðin eins og snjókall. Þegar heim var komin þurfti ég svo að brjótast inn þvottahúsmegin (því það var eini lykillinn sem mamma var með), í gegn um allt draslið þar og var ég næstum höfðinu styttri eftir þá fimleikaæfingu... Ég held ég hafi sjaldan verið eins fegin að vera komin heim. Misstigin á vinstri ökkla (eftir fótboltann), marin á vinstri mjöðm (eftir flugið), aum í vinstri úlnliðnum (eftir flugið) og vinstra hnéð (þetta bilaða) stokkbólgið og stirt eftir alla gönguna í snjónum.
Til að kóróna ævintýri síðustu daga er ég svo enn hóstandi síðan um jól og aftur að fyllast af kvefi, búin að vera hóstandi hnerrandi og snýtandi í allan dag. Frekar ömurlegt. Enda kom ég heim eftir vinnu í dag, setti í þvottavélina fötin sem ég ætlaði í í afmæli í kvöld og ætlaði svo að leggja mig á meðan vélin væri að þvo. Vaknaði svo upp við vondan draum tveimur og hálfum tíma síðar, en þá var klukkan orðin sex og ég átti eftir að láta vélina vinda... En sem betur fer er einn af fáum kostum polyesterefna sá að þau eru mjög fljót að þorna þannig að ég þurfti ekki að fara ber í afmælið...

miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Biluð?
Ég held að við séum endanlega að toppa okkur sjálf þessa stundina. Familían hefur nú löngum verið þekkt fyrir að borða kvöldmat á undarlegum tímum, en ég man nú samt ekki eftir að mamma hafi áður staðið við eldavélina og galdrað fram gúllas (eða annað góðgæti) klukkan 23:15...

Sólveig tönglaðist líka á því áðan á meðan við börðumst í blindhríð í gegn um bæinn þveran og endilangan til að komast í sund að við værum nú þokkalega bilaðar... Ég vildi nú ekki við það una og benti henni á að það væri stór munur á að vera bilaður og að vera bíl- og baðlaus (og þurfa því að labba í sundlaugina til að baða sig, hvernig sem veðrið er)...

Fótbolti!
Annað kvöld er árshátíð elsta stigs og af því tilefni er íþróttadagur hjá þeim í skólanum á morgun. Bekkirnir keppa sín á milli í hinum ýmsu íþróttagreinum og herlegheitunum lýkur svo á fótboltaleik á milli nemenda og kennara. Það lítur allt út fyrir að mér verði fórnað í þetta, veit samt ekki hvort það er verra fyrir mig eða hina sem verða á vellinum um leið og ég... Það er nefnilega ekki bara leti eða áhugaleysi að kenna að ég spila hvorki fótbolta né aðrar hópíþróttir yfir höfuð, heldur er það meira af greiðasemi við sjálfa mig og aðra... Fannst þessvegna mjög fyndið þegar stelpa sem ég vann með fyrir nokkrum árum spurði mig eftir að hafa þekkt mig í nokkra mánuði hvort ég kæmi ekki með henni á fótboltaæfingu... Henni fannst ég svo íþróttamannslega vaxin að hún var alveg viss um að ég væri á kafi í íþróttum! Yeah right...
Allavega, þegar Sólveig heyrði að það ætti að setja mig á völlinn var hún fljót að færa mér fótboltalegghlífarnar sínar, henni fannst það víst vissara fyrir mig...
So, if you don´t hear from me...

mánudagur, febrúar 07, 2005

"Dauð"þreytt...
Hvað þarf maður eiginlega að vera þreyttur til að geta eftir vinnu sofið í tvo tíma þar sem iðnaðarmenn eru á fullu að skipta um lagnir í veggnum sem liggur að rúminu sem maður er sofandi í, með tilheyrandi hávaða...?

sunnudagur, febrúar 06, 2005

Do u wanna smell my breath?
Sólveig og Fanney héldu matarboð í gærkvöldi þar sem hvítlauksbrauðið hennar Fanneyjar sló rækilega í gegn... ;) Ansi skemmtilegt bara og langt síðan ég hef farið á svona svakalegt "bull"-djamm... Eða djamm og ekki djamm... Komst að því á óþægilegan hátt að bjór og hvítlaukur í miklu magni er ekki svo góð blanda í magann minn... Mmmm... Mjög gaman engu að síður og fullt af skemmtilegum "bröndurum" eftir kvöldið. Er ekkert að skrifa meira um þá hér, hægt að lesa þetta alltsaman hjá Fanneyju!

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Stína, Stína símalína... (Dularfulla póstmálið - part III)
Ég hef nú aldrei verið þekkt fyrir að tala mikið í símann. Reyndar finnst mér satt að segja leiðinlegt að tala í síma og geri því eins lítið af því og ég get. Í gær átti ég nú samt heillanga símatörn, en hún var liður í lausn dularfullapóstmálsins. Umrædd símatörn er vafalaust sú alfurðulegasta og sem ég hef upplifað.
Ég byrjaði á að hringja í Íslandspóst. Eftir að hafa beðið í góða stund eftir þjónustufulltrúa svaraði mjög almennileg kona. Hún reyndar hváði þegar ég bar upp erindið og ég þurfti því að segja henni aftur að pósturinn minn hefði upp úr þurru tekið upp á því að berast til systur minnar í öðru bæjarfélagi án nokkurra skýringa. Eftir að hafa rætt þetta mál fram og til baka við konuna og hún búin að sannreyna það að ég er skráð á mitt rétta heimilisfang hjá Póstinum sendi hún tölvupóst um þetta á hina og þessa staði og vonum við báðar að það dugi til að laga þessa dellu.
Næst hringdi ég í Símann, en þeir höfðu sent mér reikninginn minn til Sólveigar. Eftir að hafa beðið í ófáar mínútur eftir þjónustufulltrúa svaraði leiðinlegur strákur sem, eftir að hafa látið mig bera upp erindið, sendi mig áfram á einhverja konu. Hún var nú líka hálf fúl og leiðinleg og fannst vandamál mitt hvorki fyndið né fáránlegt (reyndar er mér löngu hætt að finnast það fyndið, til þess er það orðið of fáránlegt). Hún gat nú samt séð að hjá Símanum er símanúmerið mitt jú skráð á mitt nafn en á heimilisfangið hennar Sólveigar, en hún gat ekki sagt mér hvers vegna það væri svoleiðis eða hvers vegna mitt rétta heimilisfang er í símaskránni á netinu þó að ég sé hjá þeim skráð til heimilis í öðru bæjarfélagi. Hún má þó eiga það að hún breytti þessu fyrir mig.
Þá var það Spron, en það kom einhver dularfullur póstur frá þeim til mín til Sólveigar... Ég beið heillengi í símanum eftir þjónustufulltrúa og næstum búin að skella á þegar loksins var svarað, enda orðin rækilega soðin bæði á eyranu og í hausnum. Konan þar var nú nokkuð almennileg, svona þegar hún var búin að ná því sem ég hafði að segja. Hún gat samt lítið hjálpað mér annað en það að segja mér að ég ætti hjá þeim tæplega fimmþúsundkall á orlofsreikningi sem Fjársýsla Ríkisins hafði lagt inn á í ágúst og september á síðasta ári. WTF is that??? Meira gat hún ekki sagt mér og henni fannst þetta allt mjög furðulegt, enda er ég skráð hjá þeim á mitt rétta heimilisfang og hitt hvergi sjáanlegt þarna. Ég þakkaði henni því pent fyrir, enda ekki á hverjum degi sem maður græðir fimmara...
Þegar ég stóð upp má segja að ég hafi snúist í kringum sjálfa mig, svo soðin var ég orðin eftir þriggja kortera, mjög svo súrrealíska símatörn sem sagði mér ekkert meira um það hvernig póstmálin mín klúðruðust svona. Næsta klukkutímann eða svo var ég nánast óviðræðuhæf og braut heilann ákaft um þennan blessaða orlofsreikning frá Fjársýslu Ríkisins. Mér tókst reyndar, þegar hausinn á mér var við það að brenna við, að leysa dularfulla orlofsreikningamálið. Ég mundi nefnilega allt í einu eftir að hafa fengið launaseðla frá Fjársýslunni þegar ég skúraði á Heilsugælsunni í sumar.
En dularfulla póstmálið er enn ekki upplýst þó að pósturinn minn fari vonandi að rata rétta leið heim til mín eftir þessa súrrealísku símatörn!

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Dularfulla póstmálið - part II
Fyrir um mánuði síðan hringdi Sólveig systir í mig til að segja mér að ég ætti póst hjá henni. Já, bréf til mín var borið út til hennar! Væri nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég bý í Hveragerði og hún í Reykjavík og í rauninni ekkert sem tengir okkur saman annað en að við höfum báðar sama lögheimili... í Hveragerði! Ja, Sólveig lét mig reyndar hafa aukalykla eftir að pósturinn minn var farinn að berast til hennar... en ég tel það ekki með...
Jæja, allt í sambandi við þetta blessaða bréf var mjög dularfullt. Þetta voru reyndar bara "ósköp venjulegir" greiðsluseðlar frá Íbúðalánasjóði, en þeir hafa hingað til borist heim til mín eins og ekkert sé. Þessir voru aftur á móti frekar óvenjulegir að því leyti að búið var að tippexa yfir heimilisfangið mitt (það rétta) og skrifa Sólveigar heimilisfang í staðinn! Þar að auki var búið að troða í umslagið bláum miða sem sagði að heimilisfang greiðenda sé sótt í þjóðskrá við útprentun greiðsluseðla og óskað eftir að tilkynnt verði um breytt heimilisfang til Hagstofu Íslands svo greiðsluseðlar komist til skila... Mjög dularfullt...
Ég fór á stúfana og kannaði málið. Byrjaði á því að hringja í Íbúðalánasjóð. Þar var mér sagt að borist hefði tilkynning frá Póstinum um breytt heimilisfang hjá mér og jú, þeir væru vanir að tippexa yfir og breyta heimilisfanginu þegar svo bæri við. Þótti mér þetta mjög einkennilegt, enda hef ég ekki breytt heimilisfanginu mínu síðan ég flutti aftur í foreldrahús fyrir um 19 mánuðum. Konan sem ég talaði við var aftur á móti mjög glöð að ég skyldi hringja og láta vita og hún breytti þessu til baka á meðan ég talaði við hana. Vona ég...
Næst labbaði ég mig inn á Póstinn í Hveragerði. Í tölvunni þar er ég skráð á mitt rétta heimilisfang og þar sem svo var og ég búin að tala við Íbúðalán taldi ég málið leyst...

WRONG!!!

Fanney hringdi í mig í dag (hún leigir með Sólveigu). Bara svona til að segja mér að ég ætti núna tvö bréf hjá þeim! Reyndar ekki frá Íbúðalánasjóði í þetta skiptið heldur eru það núna Síminn og Spron. Mjög dularfullt alltsaman.
Mission morgundagsins er því að gera aðra tilraun til að leysa dularfulla póstmálið!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?