laugardagur, mars 26, 2005
Nammi og ís eða ís og nammi?
Í gærkvöldi áttum við Sólveig mjög svo heimspekilegar umræður um nammi og ís, ís og nammi, muninn þar á og ástæður hans. Að sjálfsögðu var þetta allt saman brjáluð myndlíking sem ég skil reyndar enn ekki alveg til fulls. Held reyndar að þetta hafi eitthvað með sjálfstæðan vilja og val á karlmönnum að gera, er samt ekki alveg viss. Málið varð samt fyrst flókið þegar meint pottapartý með Sólveigu og Guðmundi frænda (sem átti sér reyndar aldrei stað, að ég held) var farið að skipta máli í ís og nammi/nammi og ís umræðunni. Það besta (eða það versta, fer eftir því hvernig á hlutina er litið) er að Sólveig man ekkert eftir þessari umræðu þannig að ég get ekki spurt hana hver boðskapurinn á að hafa verið, verð því bara að geta í eyðurnar og hlæja soldið að þessu... og að henni...

föstudagur, mars 25, 2005
Pössunarpía nr.1
Nánast frá því ég man eftir mér hef ég verið að passa. Ættingjar, vinir og fólk útí bæ hafa fengið að njóta góðmennsku minnar og oftar en ekki hef ég fórnað djammi eða öðrum plönum til að fara í smá mömmuleik ef ég hef verið beðin um það. Undanfarið hef ég svo verið að færa mig aðeins upp á skaftið í þessum efnum. Er farin að taka að mér að passa fleira en bara börn. Passaði til dæmis bíl í hálfan mánuð síðasta sumar (kom sér reyndar mjög vel þar sem ég á engan bíl sjálf). Ég tek meira að segja orðið að mér að fara í húsvitjanir. Fyrir nokkrum vikum heimsótti ég til dæmis kött (fínt, á engan sjálf), lék við hann og horfði með honum á sjónvarpið því eigandinn hafði áhyggjur af geðheilsu hans ef hann væri einn heima of lengi. Nýjasta verkefnið er svo aðeins stærri pakki. Ég flutti takk fyrir að heiman í tvær vikur til að passa hús, bíl, heitan pott og hund (ágætt þar sem ég á ekki bíl og bý hjá mömmu og pabba eins og er)! Talsverð áskorun það, enda hef ég aldrei verið mikil hundakona. Verð nú samt að segja það að þetta hefur bara gengið alveg ágætlega hingað til og við Glóð erum orðnar ágætis vinkonur.
Um daginn lenti ég svo á spjalli niðrí bæ og þá barst talið að nýjasta verkefninu mínu. Viðkomandi sagði að ég væri bara orðin aðal pössunuarpían í bænum. Mér fannst það soldið fyndið. Sérstaklega þar sem ég er nýbúin að lesa skemmtilega bók sem heitir Kvenspæjarastofa nr.1.
Og þess vegna verð ég héðan í frá Pössunarpía nr.1!

miðvikudagur, mars 23, 2005
Sögur úr sveitinni
Heiti potturinn hefur verið notaður óspart síðan ég kom hingað í sveitina fyrir viku. Fyrstu dagana fór ég reyndar bara í pottinn seint á kvöldin, í svarta myrkri. Þessa fyrstu daga var líka frekar mikið hvassviðri og þar sem mikið bersvæði er hér í kring og einhverjir drulluhólar um 20 metra frá húsinu var skyggnið frekar svart þessa fyrstu daga. Engu að síður naut ég þess að sitja í heitum pottinum í myrkrinu og rokinu og sötra einn kaldan. Fann reyndar að það var smá sandur í pottinum en kippti mér ekki mikið upp við það, fór bara í góða sturtu eftir pottinn. Í gærmorgun voru svo Anna og Kolbrún í heimsókn hjá mér og við ákváðum að skella okkur í pottinn. Ég fékk vægast sagt nett sjokk þegar ég opnaði pottinn þarna í fyrsta skipti í björtu, en við mér blöstu hundruðir lítra af kakósúpu!!! Ég vissi nú að ástandið var frekar slæmt en átti samt ekki von á þessu. En fyrir áhugasama þá er ég búin að skrúbba pottinn og prófa hann aftur og hann er betri en nýr...
Og mamma á eftir að dansa stríðsdans (kannski eins og Stebbi gerði þegar við fengum uppþvottavélina um árið) þegar hún heyrir þetta... Inniskórnir mínir eru dauðir! Ég veit ekki hvað mamma hefur hótað því oft að henda þeim, enda vantaði orðið hluta af botninum í þá og þeir orðnir ansi hreint sjúskaðir. Samt bestu inniskór í heimi. Glóð virðist vera alveg sammála mér um gæði þeirra en hún sótti þá í dag og átti greinilega ansi góða stund með þeim... Allavega þarf ég núna að fara að litast um eftir nýjum...

sunnudagur, mars 20, 2005
That´s life...
Já, svona á sko lífið að vera! Komin í páskafrí og nýt þess í botn.
Stútaði heilli bók í gær. Var nú ekki eins dugleg í dag, komst reyndar ágætlega áleiðis með skattskýrsluna og er mjög stolt af mér fyrir það.
Glóð virðist vera farin að sætta sig nokkurn vegin við að sitja uppi með mig á meðan familían hennar er á Kanarí, hef nú samt grun um að hún eigi eftir að verða ansi glöð þegar þau koma aftur heim...
Potturinn er æðislegur! Tala nú ekki um þegar maður er með einn kaldan í hönd og horfir upp í stjörnubjartan himininn... Viðurkenni reyndar að það er hálf einmannalegt að sitja ein í pottinum og horfa á stjörnurnar...

fimmtudagur, mars 17, 2005
Sveitasæla
Þá er ég "flutt" í sveitasæluna þar sem ég ætla að vera næstu tvær vikurnar. Hús, heitur pottur, bíll og hundur. Vantar ekkert nema kallinn og krakkana... ;) Já, og restina af fríhafnargóssinu (síðan um jólin) sem ég gleymdi að sækja á leiðinni úr vinnunni í dag. Það er nebblega svoooo gott að hafa með sér einn kaldan í heita pottinn...

mánudagur, mars 07, 2005
Alltaf að græða...
Ég sé svo sannarlega ekki eftir að hafa hér um bil sett mig á hausinn fyrir ári síðan þegar ég keypti íbúðina mína. Hélt að fasteignaverðið gæti ekki hækkað meira og taldi mig heppna (og tel mig enn) að hafa fengið 65 fermetra, tveggja herbergja íbúð í litlu fjölbýli á 10 milljónir sléttar. Í gær var ég svo að skoða fasteignablaðið eins og svo oft áður og rak þá augun í samskonar íbúð og mína. Þessi er í eins húsi og mín, tveggja herbergja en aðeins 51 fermetri. Það skemmtilega við hana var að það voru settar á hana heilar 13,2 milljónir! Hvað ætli ég fengi þá fyrir mína...? Ekki það að ég sé á leiðinni að selja hana, þó að ég gæti þá borgað allar mínar skuldir (námslánið líka) og samt átt ágætis útborgun í aðra íbúð, það væri bara gaman að vita það. Stefni svo á að flytja inn í íbúðina mína í júní - og hlakka ekki lítið til!

laugardagur, mars 05, 2005
Pay attention!
Rölti aðeins niður á Laugaveg með Sólveigu í dag. Alltaf gaman að labba með henni þar sem er fólk. Hún þekkir nefnilega alla. Eða næstum því. Og ef hún þekkir fólkið ekki veit hún hvað það heitir eða hvað það vinnur eða þekkir einhvern sem þekkir það...
Allavega. Rölti með Sólveigu í bæinn í dag. Vorum ekki búnar að labba lengi þegar hún galaði: Veistu hver var að labba framhjá okkur? Auðvitað hafði ég ekki grænan grun, enda horfi ég meira á framhjá hverju ég geng heldur en framhjá hverjum ég geng... Allavega, mér tókst að labba framhjá Damon Albarn án þess að sjá hann... og á hæla hans kom Einar Örn og ég tók ekki heldur eftir honum... Held það sé spurning um að fara að fylgjast betur með í kringum sig... Á bakaleiðinni gengum við svo framhjá tveimur úr Maus, eða ég held að Sólveig hafi sagt það... Ég veit reyndar ekkert hverjir eru í Maus þannig að ég veit ekkert hverjir af öllum þeim sem við löbbuðum framhjá voru þessir tveir í Maus...

föstudagur, mars 04, 2005
Konan sem gekk á hurðir
Hurðir eru reyndar ekki svo mikið að flækjast fyrir mér, það eru mikið frekar hurðakarmar, stólfætur, borð og búðarkassar sem verða á vegi mínum. Já, ég átti frekar harkalegan árekstur við búðarkassa í Bónus í gær og ber þess svo sannarlega merki í dag. Ég hefði aldrei trúað því að ég gæti fengið svona stóra kúlu framan á lærið - ég meina, það er nú ekkert sérlega grunnt inn að beini einmitt þarna...