<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, apríl 30, 2005

Frjáls eins og fuglinn...
Ja, eða svona hér um bil. Gerði mér nefnilega lítið fyrir og keypti mér bíl í dag!

miðvikudagur, apríl 27, 2005

Bjartsýnin að drepa mann... eða allavega útvega manni lungnabólgu...
Ég er nú ekki beint þekkt fyrir að vera kaffihúsakona. Ég vann reyndar á kaffihúsi með skóla meira og minna í þrjú ár, en það breytir því ekki að ég er ekki og verð ekki kaffihúsakona. Enda drekk ég ekki kaffi, ekki te og ekki heitt súkkulaði. Og hef aldrei reykt. Svo get ég líka alveg hitt fólk heima hjá mér. Eða heima hjá fólki. Kaffihúsaferðir mínar hafa því ekki verið fleiri en kannski svona þrjár á ári.
Í gærkvöldi hitti ég Freyju og Sigrúnu. Hjá okkur hefur undanfarin nokkur ár ríkt sú ómeðvitaða hefð að hittast á haustin á Pizza Hut, éta á okkur gat, kjafta og fara svo og kaupa okkur ís. Núna ákváðum við að breyta aðeins til, enda Pizza Hut pakkinn orðinn soldið þreyttur. Svo er heldur ekki haust núna. Svo við hittumst á kaffihúsi. Gleymdum samt ekki að fara og fá okkur ís.
Í dag var mér svo alveg óundirbúið boðið á kaffihús. Sex kvensur að kjafta í góða veðrinu. Og þá meina ég úti í góða veðrinu. Við sátum nefnilega úti með kökur, kaffi og kók og kjöftuðum. Góða veðrið var reyndar ekki hlýrra en svo að eigendurnir kveiktu á gashitara úti hjá okkur og færðu okkur teppi. Við sátum svo þarna úti í hnipri undir teppum og gashitara þar til fór að rigna á okkur. Gátum þá fyrst fengið það af okkur að flýja "góða veðrið" og setjast inn. Bjartsýnin svo sannarlega að drepa mann...
Ég er að hugsa um að sleppa því að fara á kaffihús á morgun...

sunnudagur, apríl 24, 2005

Ekki með öllum mjalla
Ég held að það sé nú endanlega ljóst að ég er ekki með öllum mjalla. Þessi helgi er búin að fara í akkúrat ekki neitt, eða það er að segja akkúrat ekki neitt af viti. Ég fór reyndar í sund í gærmorgun, en skammast mín reyndar eiginlega fyrir að segja frá því að ég fór þá út í sundlaugina sjálfa í fyrsta skipti á þessu ári... En síðustu þrjá mánuði eða svo hef ég farið í sund nokkrum sinnum í viku þar sem ekkert er baðherbergið á heimilinu... Jæja, af því ég var nú svo dugleg að druslast út í sundlaugina sjálfa (tek það samt fram að ég synti ekki) þá fannst mér alveg við hæfi að vera góð við sjálfa mig í framhaldi af því. Þegar restin af familíunni fór til höfuðborgarinnar eftir sundferðina naut ég þess í botn að vera ein heima. Tók 450 síðna bókina sem ég byrjaði á á föstudaginn og var búin með um 120 síður af, og gerði mér lítið fyrir og kláraði bókina! Þannig fór sá dagur. Dagurinn í dag er svo búinn að vera soldið í stíl við gærdaginn. Byrjaði á næstu bók og er komin ágætlega áleiðis með hana og er svo búin að leggja mig aðeins inn á milli... Já, hressleikinn alveg að fara með mig...

mánudagur, apríl 18, 2005

Góðar fréttir og slæmar fréttir... og líka frábærar fréttir!
Fékk á föstudaginn þær fréttir að ég er trúlega komin með sumarvinnu. Meira um það seinna, eða þegar það er allt klappað og klárt.
Seint á föstudagskvöldið hitti ég svo Jónu á MSN. Ég átti nú ekki von á því þar sem hjá henni var mið nótt. Hún færði mér þær skemmtilegu fréttir að þær Soffía væru að koma í óvænta Íslandsheimsókn... á morgun (laugardag)! Ekki slæmt það. Ég brást nokkuð snöggt við og á hádegi á laugardag var ég búin að panta miða á Ávaxtakörfuna fyrir okkur Soffíu á sunnudag (í gær). Það var svo rosa stuð hjá okkur frænkum í gær, leikhús, smá bæjarrölt, ís- og bókakaup. Soffíu fannst svo ansi skítt að frænkan þyrfti að fara heim til sín aftur eftir skemmtilegan dag...
Ég er búin að tala talsvert um væntanlegt sumarferðalag mitt. Þar, ansi hátt skrifað, er rokkhátíð í Belgíu, nánar tiltekið í Werchter. Ég var soldið búin að spá í miðakaup þegar Ine, vinkona mín í Brussel, bauðst til að kaupa fyrir mig miða. Í morgun fékk ég svo þær fréttir að allir "combitickets" (gildir fyrir alla dagana og er helmingi ódýrara en að borga inn á hvern dag fyrir sig) hefðu selst upp í gær. Ekki gott. En þessum slæmu fréttum fylgdu svo alveg hreint stórkostlegar fréttir. Það getur nefnilega borgað sig að þekkja mann sem þekkir mann... Við fáum semsagt báðar svona combiticket - fyrir ekki neitt!!!

fimmtudagur, apríl 14, 2005

Flökkukindin strikes again
Já, eftir óteljandi klukkutíma á netinu og svo miklar pælingar að á tímabili var ég við það að brenna yfir er ég loksins búin að bóka flugið mitt. Það sem upphaflega átti að vera 10 dagar til hálfur mánuður í heimsóknir og aflsöppun í Brussel er orðið að rúmlega þriggja vikna reisu um Evrópu. Eða svo gott sem. Ætla að stoppa hjá Stebba og Co. í Svíþjóð bæði á útleið og heimleið og svo er aldrei að vita hvað manni dettur í hug þegar til Belgíu er komið. Það eina sem er búið að fastsetja þar er Rockwerchter en ýmislegt fleira hefur komið til tals, eins og helgi í París eða einhversstaðar í Hollandi eða útlilega í Þýskalandi... það er allavega af nógu að taka úti í hinni stóru Evrópu! So, once and again, Europe - be prepared...

sunnudagur, apríl 10, 2005

Extreme Makeover
Já, beauty is pain eins og einhver sagði einhverntíman.
Í kvöld var semsagt árshátíð hjá vinnunni. Þar sem ég er frekar blönk þessa dagana var tveggja ára gamall kjóll dreginn upp á yfirborðið og hann skyldi ég nota. Á tveimur árum hef ég reyndar "stækkað" örlítið þannig að til að ég kæmist nú í blessaðan kjólinn fór ég í apótekið til að kaupa mér sokkabuxur. Konan sýndi mér fyrst nokkrar tegundir en þegar ég sagði að ég vildi shock-up sagði hún að þá myndi ég nú örugglega minnka um heilt númer. Hún hló svo þegar ég sagði að það væri einmitt það sem ég þyrfti... Jæja, svo var að komast í þetta fyrirbæri. Það tók ekki lítið á og ég er reyndar nokkuð viss um að þetta með að minnka um númer sé ekki beint sokkabuxunum sjálfum "að kenna" heldur orkubrennslu við að troða sér í þær... En kjóllinn passaði svona líka fínt eftir að ég var komin blessaðar Shock-up brækurnar.
Í tilefni dagsins var ég búin að panta Sólveigu í heimsókn til að gera mig fína. Hún bjó til á mig andlit og greiddi mér. Reyndar hefur nýja klippingin vakið mikla athygli og greiðslan því kannski ekki aðalmálið, en samt...
Í fyrirpartýi dáðist mannskapurinn að þessari nýju Sigrúnu (en fyrir þá sem ekki þekkja mig er ég ekkert of mikið fyrir að punta mig dags daglega...) en toppnum var þó ekki náð fyrr en á sjálfa árshátíðina var komið og samstarfskona ein gekk upp að mér, gapandi og með uppglennt augu, og sagði: VÁ, það er bara eins og þú hafir farið í Extreme Makeover!

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Music non stop...
Spurning hvort maður skelli sér ekki bara á þetta í sumar? Þarf þá reyndar að framlengja áætlaða Belgíudvöl mína um viku eða svo, en held barasta að þetta sé alveg þess virði!

Strikamerki
Það er óneitanlega frekar skrýtið, og satt að segja óþolandi svona til lengdar, að hafa allt í kring um sig strikamerkt. Þá er ég ekki að tala um þessi venjulegu strikamerki sem eru á öllum hlutum, heldur er allt strikamerkt hjá mér. Meira að segja tölvuskjárinn sem ég horfi á einmitt núna. Nei, ég er ekki orðin endanlega biluð. Ég er bara búin að trassa það allt of lengi að fara í klippingu... og toppurinn, eins sjálfstæður og hann er, haggast ekki frá augunum. En þetta stendur nú allt til bóta á morgun, ekki seinna vænna þar sem árshátíðin er á laugardag.

sunnudagur, apríl 03, 2005

Flöskudagur
Í dag er sannkallaður flöskudagur hér á bæ. Flöskudagur með stóru F-i. Undanfarið hefur nefnilega safnast upp hjá okkur ótrúlegt magn af flöskum og dósum sem við höfum trassað að fara með í endurvinnsluna, kannski vegna þess að hér er bara tekið við flöskum fyrsta mánudag í hverjum mánuði og þá er yfirleitt enginn bíll á heimilinu. Ég hélt að þetta væru kannski ársbirgðir eða svo, en annað kom í ljós þegar við söfnuðum saman öllum flöskupokunum (sem búið var að koma fyrir hér og þar á ótrúlegustu stöðum) og helltum úr þeim öllum á veröndina. OMG, þvílíkt og annað eins fjall hef ég barasta ekki séð áður! Við tók gífurleg vinna við að kremja, kreista og telja ofan í poka. Klukkutíma seinna var fjallið orðið að 1427 flöskum og dósum í 15 svörtum ruslapokum.
Ég hafði satt að segja lúmskt gaman að þessu ævintýri. Upp úr sumum pokunum komu nefnilega skemmtilegar flöskur, sumar síðan sautjánhundruðogsúrkál, sem vöktu skemmtilegar minningar. Minjagripir frá ýmsum löndum og tegundir sem maður keypti bara einu sinni og aldrei aftur... útaf dátlu...

föstudagur, apríl 01, 2005

Aprílgabb eða ekki aprílgabb...
...hér snjóaði áðan!
...útlit er fyrir að ég fái tæplega 74000 til baka frá skattinum í ágúst!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?