<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur, maí 31, 2005

Ííííííííííííííííhhaaaaaaaaa...
Þá er komið að því... Ég tek við lyklunum að íbúðinni minni í kvöld! Ekki leiðinlegt það...
Annað ekki leiðinlegt. Fór með einum árganginum í göngutúr í morgun. Gengum upp að Hamrinum þar sem við borðuðum nesti og krakkarnir léku sér. Auðvitiað var aðal sportið að fara upp á Hamarinn og leika sér þar. Og auðvitað fór ég líka upp, var komin hálfa leiðina þegar einhver fór að kasta grjóti niður þannig að ég hljóp beint upp það sem eftir var... Púff, ekki gott ekki gott... Fór svo sömu leið niður aftur, bara til að fara annars staðar upp aftur (og svo auðvitað niður líka)... Semsagt slatta hreyfing í morgun, sem er bara gott mál og ekki veitir víst af... Það er bara spurning hvort ég stend í lappirnar í kvöld og morgun... Er reyndar búin að lofa mér í aðra gönguferð á fimmtudaginn, hef grun um að það verði líka einhver fjallganga í þeirri ferð...

sunnudagur, maí 29, 2005

Loftfimleikar og lyftingar
Mér finnst ég hafa verið ansi öflug í dag. Var komin út í góða veðrið klukkan tíu í morgun til að þvo og bóna bílinn! Ekki amalegt það! Er svo líka búin að afreka laaaangan göngutúr upp í dal eins og í gamla daga, klára helgarþrifin í síðasta sinn (hætti um mánaðamótin) og pakka helling!
Guðrún frá Lundi er búin að vera mér ómetanlegur félagsskapur í pökkuninni. Ég er semsagt rækilega dottin í kellingabókmenntir dauðans, eða Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi... Ég er að klára bók númer 2 af 4 og bíð spennt eftir að geta sótt númer 3. Nenni reyndar ekki að lesa þetta heldur er ég með þetta á hlóðbók og hlusta á meðan ég pakka niður eða geri eitthvað annað.
Og talandi um pökkunina... Það er örugglega dáldið fyndið að fylgjast með með mér pakka niður núna. Dótið mitt dreift um allt hús, innan um dót hinna á heimilinu og þar að auki er verið að endurnýja baðherbergið þannig að svoleiðis dót er líka dreift um allt hús og herbergið mitt orðið að geymslu og þar með búið að hlaða dóti fyrir mitt dót... Það eru því ýmsar tilfæringar sem ég þarf að gera til að finna mitt dót, og í hamaganginum í gærkvöldi komst ég í sjálfheldu og mamma þurfti að koma og bjarga mér! Helst hefði ég viljað hafa sendiferðabíl úti á hlaði þangað til ég flyt svo ég geti bara troðið hlutunum inn í hann þegar ég gref niður á þá hér í draslinu... En það er víst ekki allt hægt sem mann langar þannig að það eru bara loftfimleikarnir og lyftingarnar sem gilda...

laugardagur, maí 28, 2005

Relax and breathe... relax and breathe... breathe... breathe...
Það er allt að verða vitlaust á þessum bæ. Næsta vika verður alveg gríðarlega stór hjá mér ef horft er á breytingar og fréttir og skemmtilega atburði. Ég er alveg hreint að farast úr spenningi og get hvorki setið kyrr né nýtt orkuna í að gera eitthvað gáfulegra en að snúast í kring um sjálfa mig...
Ég er reyndar byrjuð aðeins að pakka niður, en helst vildi ég stökkva beint upp á háaloft og drita niður búslóðinni sem hefur beðið þolinmóð eftir mér þar síðustu tvö ár. Það er bara eiginlega ekki hægt fyrr en ég er búin að pakka niður því sem er hér niðri. Og þar sem ég er soldið í "snúastíkringumsjálfamig" pakkanum gengur það kannski ekkert of hratt. Enda trúlega alveg heil vika í flutningana sjálfa. Ég er nú samt búin að afreka það að finna lappirnar undan borðstofuborðinu sem mér áskotnaðist og kaupa sirkling svo ég geti farið að gera þær fínar. Svo er bara að vera tilbúin með sparslið og spaðann þegar ég tek við lyklunum á þriðjudagskvöld svo ég geti farið að mála strax á miðvikudag... Þannig að... ef þú ert ekkert að gera á kvöldin í næstu viku... þá þigg ég alveg alla hjálp sem býðst...

miðvikudagur, maí 25, 2005

Eru karlmenn svín?
Ég heyrði brot af kvöldfréttunum þar sem sagt var frá einhverri kvennaathvarfskonu í Svíþjóð held ég, gott ef hún var ekki bara einhver yfir"maður" í þessu dæmi. Hún á að hafa lýst því opinberlega yfir að karlmenn væru svín. Kellingagreyið fékk víst ekki eins góð viðbrögð við þessum ummælum sínum og hún hefur trúlega búist við og mér skildist að það væri allt vitlaust út af þessu uppátæki hennar.
Ég viðurkenni alveg að mér finnst karlmenn vera svín. Það er að segja sumir karlmenn. Alveg eins og mér finnst sumar konur vera svín (eða á þá að kalla þær gyltur?).
Í gær átti ég alveg ótrúlegan "konurerusvín"-dag í umferðinni í Reykjavík. Brjálaðar breddur og stressaðar jeppajussur sameinuðust í því að svína fyrir mig hvað ofan í annað og notuðu flautuna óspart í stríðinu við mig. En það er varla mér að kenna að umferðin í Reykjavík er eins og hún er með þrengingum og lokunum og endalausum bílalestum. Ég er ekki þeim kostum gædd að geta keyrt í gegn um bíla og þar sem ég er löghlýðinn borgari fer ég ekki yfir á rauðu ljósi og tek ekki framúr á tvöfaldri hvítri línu. En ef helv. jeppajussan hefði flautað einu sinni enn á mig hefði ég ekki hikað við að snara mér út úr bílnum og séð til þess í eitt skipti fyrir öll að hún flautaði aldrei framar! Og kallið mig bara svín fyrir það ef þið viljið...

föstudagur, maí 20, 2005

Electric girl
Það eru engar ýkjur þegar ég segist búa yfir gríðarlega mikilli innri orku. Oft hef ég velt því fyrir mér hvernig ég geti virkjað þessa orku og kannski grætt soldið á því, hef samt enn ekki dottið niður á hagkvæma hugmynd. Það versta við þennan orkubúskap eru fylgikvillarnir eða aukaverkanirnar. Óskemmtileg (stundum reyndar ansi skemmtileg...) hljóð, hvimleið lykt og úfið hár er eitthvað sem ég þekki afar vel. En það er ekki það versta. Verst þykir mér soldið sem ég hef jú orðið vel vör við áður en aldrei þó í eins miklum mæli og eftir að ég fór að vera á bíl að staðaldri. Mér er það nefnilega alveg lífsins ómögulegt að stíga út úr bílnum og loka á eftir mér bílhurðinni án þess að fá svo rosalegt rafstuð að það neistar á milli, og óþægindin eftir því...

föstudagur, maí 13, 2005

Hver er kindin?
Já, hver ætli hún sé...? Ja, það er reyndar hægt að kíkja á hana núna... en hún hefur ekkert skemmtilegt að segja fyrr en í fyrsta lagi um miðja næstu viku því kindin ætlar að bíta gras í Súðavík um helgina...

Vík í gær, Súðavík á morgun...
Já, ég held svo sannarlega að mér hafi vaxið vængir þegar ég keypti bílinn um daginn. Get sko gert allt sem ég vil núna! Í gær skrapp ég í bíltúr til Víkur, skaust bara svona aðeins... Var svo rétt komin aftur í Hveragerði þegar Sólveig hringdi og sagði mér að koma í bæinn núna, hún ætti boðsmiða í leikhús. Maður segir nú ekki nei við svoleiðis boði þó maður viti það ekki fyrr en korter í leikhús. Ég náði nú samt, right on time, og sé ekki eftir því enda Terrorismi alveg hreint frábært stykki! En ég viðurkenni alveg að ég var dáldið þreytt þegar ég kom heim í gær. Svosem ekki skrýtið eftir að hafa, eftir vinnu, keyrt til Víkur, þaðan til Reykjavíkur og svo aftur heim í Hveró...
En bíltúrinn er nú samt ekki alveg búinn... Fékk reyndar hvíld í dag (eftir vinnu sko) en á morgun er það Súðavík sem kallar... Þá leið þarf ég reyndar ekki að keyra ein, við mamma förum saman og getum keyrt til skiptis. En mikið verður nú gott að komast í sveitina.

Og talandi um að "skreppa" ein í smá bíltúr... Það brotnaði enginn bíllykill í þessari ferð...

sunnudagur, maí 08, 2005

Hvað vilt ÞÚ vita um kindina?
Nú er komið að því. Í langan tíma hef ég verið á leiðinni að gera svona hliðarsíðu með staðreyndum um sjálfa mig, semsagt, hver er kindin? Ég er búin að vera að fikta soldið í tölvunni undanfarið og held að nú sé ég komin með eitthvað sem ég get farið að sýna.
Svo nú er tækifærið - ÞÚ getur svalað forvitni ÞINNI og sagt hvað ÞÚ vilt vita um kindina (semsagt mig)! Verið endilega ófeimin að nota commentakerfið eða senda mér póst.

fimmtudagur, maí 05, 2005

050505
Congratz with your big "three O" Stebbi bró!

miðvikudagur, maí 04, 2005

Bad hairday
Það er alveg ótrúlegt hvað ég get sofið á daginn. Ég tala nú ekki um ef ég er ekki alveg í essinu mínu. Í gær var ég frekar þung eitthvað og ætlaði að leggja mig í smá stund. Þá var klukkan um fimm. Ég rumskaði um sjö, kveikti á fréttunum og var sofnuð aftur áður en ég heyrði hvað var í fréttunum. Það næsta sem ég vissi var að klukkan var níu og ég ansi grumpy. Það var því ekki um annað að ræða en að fá sér eitthvað í svanginn og fara svo út að viðra sig eftir svefnmaraþonið. Var komin góðan spöl frá húsinu þegar ég áttaði mig á því að það var slatta rigning... Jæja, það var í sjálfu sér ekkert verra. Aftur á móti var hárið dáldið verra þegar ég vaknaði í morgun eftir að hafa sofnað með það blautt. Það var því ekki um annað að ræða í morgun (því engin er sturtan á heimilinu eins og er) en að troða trilljón spennum í hárið, og það dugði ekki einu sinni til. Held ég hafi sjaldan átt eins slæman hárdag og einmitt í dag, og hef ég nú samt átt þá nokkra.
En nú er ég búin að bjarga á mér hárinu. Er líka búin að gera hitt og þetta til að minnka líkurnar á öðru svefnmaraþoni í dag. Fór heim í hádegismat, fór í sund, fór á Selfoss, kom mér upp byrgðum svo ég geti byrjað að sauma ef mér dettur það í hug... Held samt ekki að mér detti það í hug. Og held ekki heldur að mér detti í hug að fara á ballið í kvöld. Mig langar bara ekki að hitta fullt af fólki. Mig langar bara að keyra eitthvað út í buskann á Rollunni minni...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?