sunnudagur, júlí 31, 2005
Skutlan.is
Fyrir þá sem vissu það ekki, þá er ég algjör skutla! Alveg sko skutla dauðans... skutlan.is!
En svona áður en þið fáið flog þá ætti ég kannski að taka það fram að skutlan.is er eiginlega bara viðurnefni sem ég fékk því ég er einkaskutla sambýlinga minna. Ég á nefnilega bíl en þær ekki og ég er ótrúlega viljug í skutl... sem aftur gerir mig að skutlu...

fimmtudagur, júlí 28, 2005
Can we fix it? Yes we can!
Ég held ég sé að festast í Bubba byggir gírnum. Í gær kláraði ég að bera á skjólvegginn, tók ekki nema fjóra tíma... Setti svo aftur í Bubba byggir gírinn í dag. Að þessu sinni naut ég aðstoðar Fanneyjar, en hún skellti sér í Selmugírinn... Í dag var á verkefnalistanum að skipta um stormjárn á opnanlegu gluggunum. Það reyndist aðeins flóknara en ég reiknaði með og áttum við í mesta basli með stofugluggann. Ekki að við við vissum ekki hvað við vorum að gera, gömlu stormjárnin voru bara orðin svo lúin að erfitt reyndist að skrúfa þau af. Síðasta skrúfan ætlaði bara ekkert af, en eftir um tvo tíma og tvær ferðir í Byko gafst hún upp og á nú skilið pláss í "í neyð brjótið glerið" ásamt bíllyklinum mínum fræga. Ég tek það líka fram að enginn slasaðist við þessa aðgerð þó hárin á hausnum á mér séu kannski aðeins færri en þau voru áður...
Á morgun verður svo Bubbi byggir, part 4, en þá ætla ég að halda upp á endurgreiðsluna frá skattinum með því að fara í Ikea og kaupa mér hillusamstæðu (og auðvitað setja hana saman sjálf). Aftur ætlar Selma aðstoðarkona að sjá til þess að allt gangi nú upp, aðallega held ég að hjálpa mér að troða þessu í bílinn samt...

mánudagur, júlí 25, 2005
Ég er búin að leysa lífsgátuna!
...Why do men fart more than women?
Because women can't shut up long enough to build up the required pressure...
Þetta segir allt sem segja þarf...

sunnudagur, júlí 24, 2005
Bubbi byggir og pönnukökur í morgunmat
Rosalega er auðvelt að kaupa sér vini... Það eina sem þarf að gera er að bjóða upp á pönnukökur með Nutella í morgunmat og allir vilja vera vinir manns. Tala nú ekki um ef maður nennir að baka pönnukökur tvo daga í röð...
Annars er ég búin að vera rosalega dugleg í góða veðrinu. Fara í sund og í Nauthólsvík og rölta í miðbænum, var búin að gleyma öllu því skemmtilega sem maður getur gert í góðu veðri í Reykjavíkinni þegar veðrið er eins gott og það var síðustu viku. Ég notaði reyndar góða veðrið í fleira en bara að slæpast. Ég er nefnilega búin að vera að dunda mér í garðinum mínum, bera á skjólvegginn og klippa tré og fleira. Endinn á skjólveggnum var reyndar pínu brotinn og það er búið að vera að bögga mig í dáldinn tíma svo ég setti í Bubba byggir gírinn, sótti sög og sagaði bara endann af! Ég held ég sé alveg að ganga fram af einum af nágrönnunum mínum, eldri manni, með þessum látum í mér. Hann á ekki til orð yfir framtaksseminni í mér og spurði mig um daginn hvort ég hefði ekki bara átt að verða strákur... Hann samþykkti svo reyndar að maður verði bara að bjarga sér og gera það sem þurfi að gera og sagði svo að ég væri alvöru kvenmaður... Verst bara að hann missti af mér með sögina á föstudaginn...
En ég gerði meira en að sýna Bubbatakta á föstudaginn. Fór með Sólveigu, Fanneyju og Nadíu á Leaves á Nasa á föstudagskvöldið. Bara eitt orð um þá reynslu: Frábært! Og annað orð fyrir kvöldið í heild: shotgun...

þriðjudagur, júlí 19, 2005
Woohooooo...
Í dag, 39 dögum eftir að ég bað um internettengingu og 19 dögum eftir að umbeðin internettenging átti að taka gildi, er ég loksins komin í netsamband - þökk sé "góðri þjónustu" Símans.
Ég kenni Símanum ekki bara um að hafa látið mig halda í heila viku að það væri vegna bilunar í línunni sem ekki komst á netsamband þegar staðreyndin var sú að þeir týndu beiðninni minni um tengingu og sögðu mér svo eftir að þeir áttuðu sig á mistökum sínum að ég þyrfti að bíða aðra viku eftir að verða tengd. Ég kenni nefnilega Símanum líka um ógnvænleg geðvonskuköst mín meðan á þessu stappi stóð og áhrifin sem þau höfðu á nærstadda. Og fyrst ég er byrjuð að kenna Símanum um eitt og annað get ég alveg bætt því við að ég kenni Símanum um líkamlegt ástand mitt í dag. Vegna geðvonskunnar sem fylgdi samskiptum mínum við Símann hef ég nefnilega þurft að finna mér eitthvað til að draga athygli mína frá hugsunum um þessa skítaþjónustu þeirra. Gærdagurinn var sérstaklega slæmur, en það kallaði á róttækar aðgerðir svo ég myndi ekki bara bíta hausinn af næsta manni sem vogaði sér að yrða á mig. Róttækar aðgerðir voru í þessu tilfelli "dálítill" göngutúr, það er að segja Umferðamiðstöð-Keilugrandi-Byko-Húsasmiðjan-Lækjatorg-Laugavegur-Snorrabraut-Kringlan. Í Kringlunni var ég komin í þetta líka fína skap, þangað til starfsmaður Símans sagði mér að vera ekkert að búast við tengingu fyrr en næsta mánudag og það eina sem hann gæti í rauninni gert fyrir mig væri að biðjast afsökunar á að einhver hefði ekki unnið vinnuna sína...
En þó að ég sé mjög óánægð með þá þjónustu sem ég hef fengið hjá Símanum eru víst ekki eintómir slúbbertar sem vinna þar, í þessari martröð hitti ég nefnilega á nokkrar almennilegar hræður sem eiga víst ekki skilið að sitja undir þessum formælingum mínum. Svo fyrirgefiði geðvonskuna þið sem voruð almennileg við mig, þið hin áttuð þetta skilið og meira en það!

miðvikudagur, júlí 13, 2005
Neverending story...
Þá er ég komin heim! Reyndar hér um bil vika síðan, en þökk sé Símanum þá er enn ekkert netsamband í íbúðinni minni. Er satt að segja ekki alveg sátt við þá þessa dagana.
Ég skrapp því til mömmu og pabba í Hveró til að sinna mínum málum. Þar fer sagan endalausa fram, það er að segja endurnýjun baðherbergisins (sem hófst í janúar...) sem enn er ekki tilbúið því nýtt vandamál virðist koma upp í hvert sinn sem annað er leyst.
Ég náði mér í skemmtilegt kvef og hálsbólgu síðustu helgina mína í útlöndunum, einmitt helgina sem rokkhátíðin var. Ég hefði með réttu átt að liggja í bælinu, allavega laugardaginn, en það var ekki í boði. Ég var með viskýrödd dauðans, hóstaði ef ég opnaði á mér munninn og ef ég lokaði honum þá hnerraði ég. Til að toppa þetta lak ég, það er að segja ég hefði þurft að troða tappa upp í nefið á mér. Alveg hreint framúrskarandi skemmtilegur félagsskapur sem ég var. En þrátt fyrir þetta skemmti ég mér frábærlega, eignaðist nýja "vini", fékk soldið "boost" fyrir egóið (í alvöru, ertu frá Íslandi? Vá! Þú ert annar Íslendingurinn sem ég hitti, ég sá nefnilega Björk einu sinni á þessari hátíð, hún var að labba þarna sjáðu...) og lenti í rökræðum um hvort Ísland væri í Evrópu eða ekki... Ansi skemmtilegt bara.
Ansi skemmtilegt líka að hitta Stebba, Jónu, Soffíu og Karólínu aftur, og það verður reyndar líka ansi skemmtilegt að fá þau heim fljótlega.
En þó að alþjóðlega sumarfríið mitt í Belgíu hafi verið ansi skemmtilegt, þá var nú líka ansi skemmtilegt að koma aftur heim. Jafnvel þó að Sólveig og Fanney væru fluttar inn til mín. Sambúðin byrjaði reyndar mjög skemmtilega því þær höfðu keypt handa mér innflutningsgjöf, nefnilega grill! Og þegar maður fær grill þá þarf maður að prófa það... líka þó að það sé séríslenskt sumarveður, það er að segja rigning og rok... Sólveig var semsagt sett út á pall með grillinu (hún er nefnilega einkaprívatgrillarinn minn) á föstudagskvöldið til að vígja gripinn. Og namminamm, þvílíkt sælgæti sem við fengum, held ég sé næstum því ennþá södd eftir allt gúmmulaðið sem við átum...
Fórum svo í grillpartí á laugardagskvöldið. Það breyttist svo í all svakalegt stelpupartý eftir því sem leið á, ég meina, tólf stelpur að fá sér í glas, getið ímyndað ykkur hvað nágrannarnir voru glaðir... Við lentum svo fyrir rest á Hressó og eftir nokkuð mikið drama þar áttum við skemmtilegt pulsupartý á Lækjartorgi... Hápunktur "kvöldsins" var samt held ég þegar við Sólveig komum heim á sunnudagsmorguninn (eftir að hafa mætt nokkrum blaðburðarkrökkum á leiðinni)... Kókópuffs er greinilega best í heimi...

laugardagur, júlí 02, 2005
Hér gerast sko hlutirnir... Ég er ordin fraeg í Belgíu!
Tad kom sko mynd af mér í dagbladinu um daginn. Ég er reyndar í bakgrunni og tad vantar á mig hausinn en ég veit samt ad tetta er ég... Myndin var sko tekin tegar Bernard var grilladur.
Svo man ég nú ekki hvort ég var búin ad segja frá auglýsingu í bladinu... jaeja, tad voru semsagt vidbrögd vid henni... ;)
Og svo af tví ad ég er nú "number 1 fan" Sioen á Íslandi og vinkona Ine tá á ég núna nýjasta diskinn teirra áritadan, en teir spiludu á Rockwerchter í gaer og voru hreint út sagt stórkostlegir! Og já, hljóddaemid sem var í sídustu faerslu eru teir ad staela Björk á tónleikunum í gaer.