föstudagur, ágúst 26, 2005
Dularfulla póstmálið - and the story goes on...
Brunaði til höfuðborgarinnar eftir vinnu í dag. Þar beið mín aldeilis og heldur betur glaðningur... Nefnilega bréf frá Danmörku! Gallinn var bara sá að ég veit eiginlega ekki alveg hvað ég á að gera með þetta bréf... Það er sko stílað á mig nema húsnúmerið er ekki rétt, og reyndar er þetta númer ekki til í götunni minni... En það er ekki allt. Samkvæmt þessu bréfi, sem er frá Metro Kundeservice, á ég nefnilega að hafa verið í Danmörku 25. júlí og ferðast þar með einhverju farartæki án þess að borga eða með ógildum miða... og hana nú! Málið er bara það að 25. júlí var ég á Íslandi og notaði því ekkert samgöngufarartæki í Danmörku á meðan, fyrir nú utan það að mér finnst mjög dularfullt hvaðan þetta fyrirtæki hefur nafnið mitt og heimilisfang... Dularfulla póstmálið er því hér með endurvakið og allar ábendingar og vísbendingar sem gætu leitt það til lykta eru mjög vel þegnar.

föstudagur, ágúst 19, 2005
Veiðiferðin
Eftir vinnu í dag brunaði ég af stað úr Víkinni, enda Stebbi á landinu og því hangikjötsboð í Hveró. Á leiðinni veiddi ég næstum því í matinn... mundi svo að það var verið að bjóða mér í mat þannig að ég þurfti ekki að koma með nesti... Mér finnst beljukjöt heldur ekkert voðalega gott...

miðvikudagur, ágúst 17, 2005
Crazy people...
Nú held ég að ég sé endanlega gengin af göflunum. Eftir 4 tíma svefn í nótt (kettir í Hveragerði kunna líka að breima...) vaknaði ég klukkan hálf 6 og var mætt á Kirkjubæjarklaustur klukkan 9! Þar var ég á fyrirlestri til þrjú og fór þá til baka til Víkur. Fékk þar húslykla í hendur, loksins, en eftir að hafa borið þrífidótið úr bílnum og inn í íbúðina var ég svo þreytt að ég nennti ekki að þrífa... Dreif mig bara til baka til Hveragerðis þar sem við pabbi skrúfuðum í sundur rúm og sóttum sófa í geymslu og ég náði í meira dót upp á háaloft. Afrekaði líka að redda flutningabíl á morgun. Það var því drjúgt dagsverkið í dag... Annars er alveg ótrúlegt hvað ég á hræðilega mikið dót... Búin að fylla íbúðina mína í Reykjavíkinni og á samt alveg nóg til að fara með austur... En þar sannast líka að það borgar sig ekki að henda dóti... ;)

sunnudagur, ágúst 14, 2005
Pez
Ég varð alveg gífurlega svekkt um daginn. Þegar ég vaknaði þann daginn langaði mig svo rosalega í piparmintupez að ég gerði mér sérstaka ferð í búðina til að kaupa svoleiðis. Þar greip ég heldur betur í tómt, ekkert piparmintupez til og hefur víst aldrei verið til... Það var ekki heldur til pezkall í líki elgsins í Madagaskar, en svona eftir á að hyggja man ég satt að segja ekki eftir að hafa séð neinn elg í myndinni... Ég fór hálf miður mín heim úr búðinni og leitaði að Pez á netinu. Fann þar ekkert sem benti til þess að piparmintupez eða pezkall eins og elgurinn úr Madagaskar hafi nokkurntíman verið framleitt. Svona geta nú draumarnir farið með mann...

laugardagur, ágúst 06, 2005
The Hot Spot
Það er sko ekki spurning hver heitasti staður borgarinnar er klukkan 12 á hádegi. Við Fanney brugðum undir okkur betri fótunum í gær og skruppum í bæinn. Eftir að hafa skemmt okkur mjög vel í allskonar útréttingum ákváðum við að enda í Góða hirðinum. Hann opnar klukkan 12 og þegar við mættum þangað klukkan 11:59 var múgur og margmenni fyrir utan dyrnar og þessar tvær mínútur sem liðu þar til hirðirinn opnaði streymdi fleira fólk að. Ég held að ég hafi ekki séð annað eins nema þegar einhverjar búðir auglýsa ofurútsölur eða opnunartilboð, svo mikið var af fólki þarna fyrir utan!
En ég er nú búin að gera fleira undanfarið en að spóka mig í bænum. Ég er búin að taka þátt í svo mörgum flutningum og flutningsþrifum að það liggur við að ég fari að stofna flutningsþjónustu bara. Gámurinn þeirra Stebba og Jónu kom semsagt í gær og auðvitað mætti ég, til í tuskið (tustkaðist reyndar með Jónu í eldhúsinu þeirra í fyrradag, þvílíkur viðbjóður...)! Hafði upp úr krafsinu nokkur húsgögn sem ég tók í fóstur.
Og talandi um húsgögn í fóstri... Eftir bras síðustu daga lítur íbúðin mín núna næstum því út eins og hjá fólki... Ég er búin að kaupa sjónvarpsskáp (restin af hillusamstæðunni er svo væntanleg, vonandi fljótlega) og vinna niður úr slatta af drasli (restin á að lagast í dag). Ég er komin með almennilegt sófaborð, fínan lampa í stofuna og hirslu sem ég get rúllað undir vinnuborðið í holinu (þarf bara að taka draslið undan því svo hirslan komist undir...). Það er búið að hengja upp gardínur í herberginu og stofunni og eitthvað aðeins af myndum. Og ekki má gleyma flotta flöskustandinum sem ég dröslaði með mér frá Svíþjóð um jólin, og það er meira að segja búið að vígja hann! En allavega, þá er að verða ansi heimilislegt hérna þannig að fólki er alveg óhætt að fara að kíkja á kotið...

þriðjudagur, ágúst 02, 2005
Best ever...
I just found out that my goddamn rock solid ghetto shiznit name is...
...Ass Machine Jones, Yo
What's yours?