mánudagur, september 26, 2005
Einstæð móðir
Um helgina lék ég einstæða tveggja barna móður. Niðurstaðan: ég er úrvinda.
Stebbi bróðir varði semsagt doktorsverkefnið sitt úti í Lundi á fimmtudaginn, eða 22. september sem er líka afmælisdagurinn hennar mömmu. Það var því mikill hátíðisdagur. Pabbi og mamma fóru út til að vera viðstödd og Jóna auðvitað líka. Það varð því að redda pössun fyrir Soffíu og Karólínu. Stelpurnar voru hjá hinni ömmunni og Bryndísi frænku sinni til föstudags en þá leysti ég þær af og lék einstæða tveggja barna móður þangað til í gær. Mér var sagt að þetta yrði alveg ágætis getnaðarvörn... en ég er ekki sammála nema að því leiti að ég er ennþá ákveðnari í að finna mér kall áður en ég fer að hlaða niður krökkum... ;) Þetta tók nefnilega vel á þó að stelpurnar hafi verið alveg einstaklega góðar og duglegar hjá frænku, enda er maður ekki í neinni æfingu fyrir svona pakka. Takk fyrir það stelpur! Og til hamingju Dr. Stebbi!

þriðjudagur, september 20, 2005
Klukk!
Ég var víst klukkuð, og það þýðir samkvæmt mínum heimildum að ég þurfi að setja hér inn 5 óþarfar staðreyndir (useless information) um mig...
1. Ég skar mig einu sinni á skóreim...
2. Mér finnst rosalega gott að sofa...
3. "Ég kaupi aldrei neitt nýtt..." yeah right...
4. Það vantar í mig hendigenið...
5. Ég gæti lifað á kóki og súkkulaði...
Hér með klukka ég Fanneyju, Freyju, Gunnu, Sonju og Ingu Dögg.

fimmtudagur, september 15, 2005
GSMblogg
ut rafmagninu og getur yvi ekki klarae ae yvo...
GSMblogg
Bad news... wae er hætt ae framleiea blaan opal! Og fleiri slæmar fréttir... Allar gallabuxurnar minar eru fastar halfyvegnar i yvottavél sem slær alltaf
föstudagur, september 09, 2005
Brandari ársins...?
Í desember í fyrra sagði ég frá skemmtilegri tilviljun sem varð reyndar seinna þekkt sem brandari ársins Umrætt atvik snýst aðallega um geisladisk sem ég fékk í afmælisgjöf nokkru eftir allsvakalegt pottapartý... Nú er ég á nýjum vinnustað í nýju sveitarfélagi þar sem ég þekki næstum því engan. Ég hélt því að ég væri sloppin. Eeeeeeen, þegar ég mætti í vinnu á föstudaginn síðasta fékk ég nett flog... Það var nefnilega búið að hengja upp auglýsingu um fyrsta djamm vetrarins, og surprise, surprise... það er pottapartý! Ég veit eiginlega ekki alveg hvað ég á að halda um tilviljanir, en það er allavega nokkuð ljóst að ef þær eru til þá hef ég fengið margfaldan skammt... Allavega, er að fara að skemmta mér (og öðrum (samkvæmt hefðinni)) í kvöld. Sjáumst vonandi aftur...