föstudagur, október 28, 2005
Annar í heilsurækt
Fólkið í kringum mig heldur að ég sé endanlega að tapa glórunni. Hingað til hef ég nefnilega ekki verið þekkt fyrir íþróttaiðkun, hvað þá íþróttaáhuga, en er núna komin á kaf í allskonar sprikl. Fór í yoga í gær og hef átt frekar erfitt með gang í dag, harðsperrurnar að hrekkja mig. Ákvað svo að skella mér til Reykjavíkur í "góða" veðrinu í dag. Kaupa mér meðal annars nýja gönguskó því ég gekk endanlega niðrúr hinum í kvennagöngunni á mánudaginn. Skildi druslurnar því eftir heima og brunaði af stað í strigaskónum. Ég var varla komin hálfa leiðina í Hveragerði þegar ég ákvað að stoppa þar og halda bara áfram til Reykjavíkur á morgun, svo slæmt var veðrið. Á Selfossi gáfust rúðuþurrkurnar upp og af því að ég er nú einu sinni byrjuð í sportinu ákvað ég að fara bara alla leið í jaðarsportið í leiðinni og keyrði rúðuþurrkulaus í Hveragerði, ansi skemmtileg sú tilraun... Þar skildi ég nú samt bílinn eftir á verkstæði og þrammaði svo um bæinn, þveran og endilangan, á strigaskónum í "góða" veðrinu! Hörku púl alveg enda sumir skaflarnir upp að hnjám...

fimmtudagur, október 27, 2005
Survivor
Ég held ég sé að slá öll mín fyrri met þessa dagana. Á einni viku er ég búin með sem svarar um þriggja mánaða skammti af líkamsrækt... Yoga á fimmtudaginn (hélt reyndar ekki að það væri hægt að fá svona svakalegar harðsperrur eftir yoga) og svo byrjaði heilsuátak á mánudaginn. Þar var tekið hraustlega á, reyndar svo hraustlega að ég var ekki viss um að ég kæmist aftur heim eftir æfinguna... Æfing tvö í heilsuátakinu var svo í gær, svo skelfilega erfið að mér var orðið óglatt í lok æfingarinnar. Slappaði svo vel af í heita pottinum á eftir. Það kemur mér satt að segja dálítið á óvart hvað harðsperrurnar trufla mig lítið. Ég finn mjög vel að ég er búin að vera að gera eitthvað sem ég er ekki vön að gera og er búin að uppgötva vöðva sem ég hélt ekki að væru til, en ég komst samt nokkuð auðveldlega framúr í morgun og það er ekkert skelfilega erfitt að labba upp og niður tröppurnar hjá mér... Jæja, en þetta er ekki búið! Yoga aftur í dag og svo er ég eiginlega búin að lofa sotlu öðru líka... Það byrjar reyndar ekki fyrr en í næstu viku. Ég veit að það er mjög ólíkt mér og það er bannað að hlæja, en ég er búin að lofa að mæta á næstu æfingu í kvennakörfu...

þriðjudagur, október 25, 2005
Ekki er nú öll vitleysan eins
Mikið ógeðslega er lopi vondur á bragðið! Hann er meira að segja verri en græn paprika, en þá er nú mikið sagt því hún bragðast eins og eyrnamergur...

fimmtudagur, október 20, 2005
Tammtammtammtamm...
Alveg er þetta magnað hérna í sveitinni. Stöðug spenna og eftirvænting alla daga, vitandi það að eitthvað muni gerast... Hingað til hefur það verið ýmist rafmagns- eða vatnsleysi (ef það er ekki annað þá er það hitt, ennþá þó ekki bæði í einu), en maður veit svosem aldrei hvað gerist næst...

mánudagur, október 17, 2005
OMG
Hvað ertu að gera?
Hvar ertu eiginlega?
Um helgina setti ég loksins síðustu hurðirnar á hillusamstæðuna í stofunni minni. Það er nú ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég labbaði mig inn í Ikea 29. júlí til að kaupa þessa samstæðu. Fór þá heim með sjónvarpsskápinn og hitt er búið að vera að tínast inn síðan þá. Já, þjónustan hjá Ikea er svo sannarlega til fyrirmyndar... eða þannig.
Skrapp svo (af gömlum vana) í þessa "ekkilenguruppáhalds"búð á laugardaginn. OMG, hélt ég yrði ekki eldri því það voru bara komin jól takk fyrir! Og búðin troðin af fólki sem var eins og hræggammar yfir jólapappír og fleiru. Já, nei takk segi ég nú bara. Mér finnst þetta heldur snemmt.
Ég var semsagt í Reykjavíkinni um helgina. Fanney fór út að borða á laugardagskvöldið og ég var búin að bjóða í saumaklúbb. Á meðan Fanney var að hafa sig til var ég eitthvað að dunda mér í eldhúsinu og sá þá þetta líka myndarlega ryklag ofan á veggnum sem skilur eldhúsið frá stofunni. Ég gerði mér því lítið fyrir, náði mér í tusku og þurkaði ofan af veggnum. Og fyrst ég var á annað borð komin með tuskuna í hönd gerði ég mér lítið fyrir og tók hringinn í stofunni í leiðinni. Var svo að þurrka ofan af síðustu hillunni þegar ég heyrði, nokkuð hvasst, fyrir aftan mig: Hvað ertu að gera?! Fanneyju fannst ég semsagt vera komin inn á hennar verksvið, en hún gat nú lítið gert við því, því ég var búin að þurrka af...
Og talandi um Reykjavík og Fanneyju... Hún var ekki komin heim þegar ég fór að sofa á laugardagskvöldið. Einhverntíman um nóttina rumskaði ég við að ég heyrði í henni, en ég snéri mér bara á hina hliðina og hélt áfram að sofa. Ég vaknaði svo um ellefu í gærmorgun og allt var hljótt. Ég læddist á klósettið og sá í leiðinni að það var rifa á svefnherbergishurðinni, fannst það óvenjulegt en hugsaði ekki meira um það. Skreið svo aftur uppí, kveikti á sjónvarpinu og passaði að hafa það ekki hátt stillt. Kom mér svo vel fyrir uppí með tölvuna í fanginu og horfði á sjónvarpið með öðru auganu á meðan ég flakkaði um á netinu. Allt í einu, mér til mikillar furðu, poppaði Fanney upp á msn-inu hjá mér. Fyrst hélt ég að hún væri að gera at í mér, ég hefði vakið hana með klósettferðinni og hún væri að nördast (við erum nebblega stundum svona tölvunördar saman...) inni í herbergi. Svo sá ég að tölvan hennar var frammi og þá voru fyrstu viðbrögð mín auðvitað að spyrja: Hvar ertu eiginlega??? Ég hafði þá ekki rumskað þegar hún kom heim, heldur þegar hún fór aftur út, nefnilega í vinnuna...

föstudagur, október 14, 2005
VIP í kaupstaðarferð
Ég skrapp í kaupstaðaðinn í dag. Þar beið eftir mér ansi skemmtilegt bréf þar sem mér er í ljósi mjög ánægjulegra viðskipta (við Kreditkort hf.) síðastliðin ár boðin uppfærsla í MasterCard Gullkort. Hver segir svo að það sé alslæmt að vera eyðslukló...?

miðvikudagur, október 12, 2005
Kökukonan
Ég held það sé orðin spurning um hversu heill maður sé á geði þegar maður fer heim í hádeginu og bakar köku svo maður eigi köku með kaffinu eftir vinnu... En mikið var gott að eiga nýbakaða veiðiköku þegar ég kom heim í gær.

miðvikudagur, október 05, 2005
Ekki með á nótunum...
Maður er nú greinilega ekkert alltof vel á nótunum þessa dagana. Í dag er semsagt starfsdagur og ég búin að koma heilmiklu í verk. Búin að fara yfir verkefni, finna ný verkefni og gera soldið fínt í stofunni. Líka búin að sýna listir mínar í íþróttahúsinu, ekki laust við að ég sé dáldið eftir mig eftir það... nefið er allavega hálf aumt eitthvað...
Klukkan 12 var okkur svo tilkynnt að það yrði matur í Ársölum. Jújú, auðvitað mætir maður þegar er boðið í sameiginlegan mat á starfsdegi. Þegar við svo mættum stóðu þar fyrir utan skólastjórinn og skólaliðarnir, allar uppstrílaðar í hvítum skyrtum og með bindi, og óskuðu okkur til hamingju með daginn. Með daginn hvað? Jú, það er nefnilega alþjóðlegur dagur kennara í dag! Og af því tilefni var okkur kennurunum boðið í dýrindis máltíð. Já, og ekki bara máltíð heldur vorum við leyst út með gjöfum og alles! Svo fengum við öll bjartsýnisgleraugu sem skólaliðarnir og Kolbrún voru búnar að föndra handa okkur, en með þeim sjáum við heiminn svo sannarlega í allt öðru ljósi... Ekki leiðinlegt þegar það er hugsað svona vel um mann!