laugardagur, nóvember 26, 2005
Tæm flæs...
Já, tíminn gjörsamlega gufar upp þessa dagana og gráu hárunum fjölgar jafnt og þétt á meðan. Fyrsti sunnudagur í aðventu á morgun. Fór af því tilefni upp á háaloft til að sækja jólaseríurnar mínar. Á víst alveg nokkrar svoleiðis... Kannski maður dundi sér eitthvað við að setja þær upp á milli þess sem ég skrepp í barnaafmæli og á tónleika með Sigurrós. Svo bara rétt um þrjár vikur í jólafríið, ekki slæmt það!

þriðjudagur, nóvember 22, 2005
Ekkert mál, það er trúbador...
Fór á villibráðarhlaðborð á laugardaginn. Vissi ekkert hvað ég var að fara út í því ég hef ekki borðað svona áður. Smakkaði á öllu sem var á boðstólnum (þó að ég viti enn ekki hvað helmingurinn af því heitir) og líkaði svona líka vel. Fannst samt hreindýrið og dádýrið best. Endaði svo með fullt af fínu fólki á pubbnum þar var tekið vel á því (á ýmsan hátt...), en það var allt í lagi því þar var trúbador...

mánudagur, nóvember 14, 2005
Það gerist varla betra
Hún Gunna svíkur sko ekki loforðin sín, það er nokkuð ljóst. Ég fór í bæinn um helgina og Gunna var búin að lofa mér að það yrði komið barn áður en ég færi aftur austur á sunnudag. Eins og eftir pöntun leit svo lítil stúlka dagsins ljós á laugardag. Fékk að kíkja á gripinn áður en ég brunaði af stað á sunnudag og ég held barasta að ég hafi aldrei áður haldið á innan við sólarhringsgömlu barni áður. Ég spurði Gunnu hvort ég þyrfti nokkuð að skila henni aftur... Held ég þurfi bara sjálf að fara að leggja í...
Sukkaði soldið um helgina (eins og vill gerast þegar ég fer útúr þessari daglegu rútínu) og þegar ég fattaði í gærkvöldi að það væri vigtun í dag fékk ég soldinn móral. Það gladdi því mitt litla hjarta þegar mér var tilkynnt að tíminn í dag félli niður, og vigtunin þá líka. Eftir þessar fréttir fór einhver á kennarastofunni að tala um pönnukökur og þá var ég nú ekki lengi að rjúka upp úr stólnum, sækja það sem til þurfti og galdra fram þessar líka fínu pönnukökur! Hrikalega gott alveg og í framhaldinu var óskað eftir því við mig að þetta yrði að vikulegum viðburði. Veit nú ekki alveg hvað vigtin segir við því, en satt er það að það þarf afskaplega lítið til að rífa mig upp í eitthvað svona stuð...

mánudagur, nóvember 07, 2005
To be or not to be...
Hvað gerir maður þegar maður er einn í sveitinni? Nú, maður hefur það bara huggulegt... Plantaði mér í sófann eftir vinnu á föstudag og hreyfði mig varla þaðan það sem eftir lifði dags. Stökk reyndar yfir götuna til að sækja pizzuna sem ég pantaði en annars sat ég bara og horfði á sjónvarpið/vídeó og prjónaði langt fram á nótt. Laugardagurinn var ekki mikið skárri. Rölti reyndar út til að skila spólunni sem ég tók á föstudag, kom svo við niðrí skóla á bakaleiðinni. Var í miðju kafi í tölvunni þegar rafmagnið fór og tók það sem skilaboð um að koma mér heim. Byrjaði á að lýsa íbúðina upp með kertum og auðvitað kom rafmagnið aftur á meðan á því stóð, hafði þau nú samt áfram því það var svo kósí. Eldaði svo um það bil ársbyrgðir af lasagne (er allavega búin að borða tvisvar af því og það er enn nóg eftir í nokkrar máltíðir...), lagði á borð (fyrir mig eina) í stofunni, með servéttum og látum, bjór í glasi (átti ekki rauðvín) og hafði það svo bara kósí ein með sjálfri mér og prjónunum innan um öll kertin. Ég var því alls ekki viðbúin þegar dyrabjallan hringdi um hálf tólf! Fyrir utan stóðu tveir ungir menn sem voru að sækja mig í partý yfir götuna! Til að gera langa sögu stutta varð þetta kósíkvöld mitt að allsvakalegu (og hálf súrrealísku) skralli þar sem allskonar kynlegir kvistir komu við sögu... Er svo búin að vera í stríði við tölvukerfið í allan dag því eitthvað gerðist, sem ekki átti að gerast, þegar rafmagnið fór af mér á laugardaginn. Það tók heillangan tíma, slatta af geðvonsku og eitt stykki viðgerðarmann til að kippa því aftur í lag!