fimmtudagur, desember 29, 2005
Enn í áttaki...
Var að koma heim úr leikhúsinu. Fór með Stebba og Sólveigu að sjá Ég er mín eigin kona og vaaaaaaáááááááá!!! Þvílíkt og annað eins stykki... Alveg stórkostlegt! Og Hilmir Snær hreint út sagt magnaður í þessu! Mæli svo sannarlega með því að fórna eins og einni kvöldstund í að sjá þetta!

Átak?
Í vetur er ég búin að vera rosalega dugleg. Búin að mæta samviskusamlega í hrikalegt púl tvisvar sinnum í viku og borða grænmeti og skyr eins og mér sé borgað fyrir það. Það virkaði svona líka vel, nokkur kíló fuku, vöðvarnir sjást orðið alla leið til London og mér leið bara betur á allan hátt. Og svo kom jólafríið...
Eins og venjulega eru jólin tími jólaboða og annarra átveislna. Í ár var bætt um betur frá fyrri árum. Aðfangadagskvöld var hefðbundið en á jóladag fór ég í skírnarveislu ofan á venjulega hádegishangikjötið, plús það að við gerðum okkur lítið fyrir og klárðum hamborgarhrygginn þá um kvöldið. Annan í jólum var jólaboð hjá afa og ömmu. Eins og venjulega át ég rækilega yfir mig af kræsingunum þar og valt svo heim til mín um kvöldið, svo illa södd að ég hafði varla rænu á að gera það sem ég átti eftir að klára fyrir næsta dag. Þann 27. átti ég nefnilega ammæli og varð hvorki meira né minna en 27 ára. Soldið flott það! Þess vegna, og líka reyndar vegna þess að ég hef ekki verið mikið til sýnis undanfarið og þess vegna takmarkaður fjöldi ættingja og vina komið í heimsókn til mín í "nýju" íbúðina mína, var opið hús hjá mér með kaffi og kökum og fíneríi. Það var nú heldur betur átveisla og hélt hún áfram í dag með konfekti í morgunmat... Svona eiga sko jólin að vera! En ekki nóg með þetta, í dag var nefnilega annað jólaboð. Í þetta skiptið hjá ömmu og afa. Það eru nú þekktar átveislur (ég man enn þegar amma elti Ilku með diskinn þegar Stebbi útskrifaðist því hún átti að fá sér eitthvað að borða...) og hún klikkaði heldur ekki í þetta skiptið! Ristað brauð og graflax í forrétt, Hamborgarhryggur og allt hugsanlegt meðlæti með honum og þríréttaður eftirréttur! Át rækilega á mig gat af öllu þessu gúmmulaði en þegar amma bætti enn um betur og stormaði inn í stofu með haugana af allskonar konfekti og öðru nammi gat gotterísgrísinn hún ég ekki verið þekkt fyrir að sitja hjá... Ég semsagt át þar til ég valt út um dyrnar. Núna sit ég svo heima og plana hvað ég geti nú borðað gott á morgun, því engin átveisla er á dagskránni fyrr en á gamlárskvöld og nýjársdag.
En spurningin er semsagt hvers konar átaki ég er búin að vera í... heilsuátaki eða alveg þveröfugt...

fimmtudagur, desember 22, 2005
Bloggedíblogg
Commentaðu nafnið þitt og ...
1) Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2) Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3) Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4) Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína um þig.
5) Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á.
6) Og ég spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér um þig.
7) Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta inná bloggið þitt, ef þú átt eitthvað blogg !!

miðvikudagur, desember 21, 2005
Jólahúsið
Mér skilst að ég búi í jólahúsi. Það segir Sólveig allavega. Og ég held að Fanney sé sammála henni, henni finnst allavega nóg um allar seríurnar sem ég er búin að setja upp og hristi bara hausinn í gær þegar ég kom með enn eina... Mér finnst þetta nú samt bara notalegt. Meira að segja mjög notalegt. Það vantar bara jólatréð, spurning hvort ég fæ leyfi til að setja upp eins og eitt svoleiðis...
Annars er ég búin að vera voða dugleg undanfarið við að safna í sarpinn fyrir jólin. Búin að kaupa jólakókið, malt og appelsín og jólakonfekt, allt saman á voða fínum tilboðum. Búin að baka eina smákökusort og var að enda við að hnoða upp í aðra. Þarf svo að vera dugleg og baka aðeins meira svo ég eigi nóg með kaffinu á ammælinu mínu. Það er nefnilega ekki nema einu sinni á ævinni sem maður verður 27 ára þann 27. og af því tilefni verður opið hús hjá mér á ammælisdaginn fyrir þá sem langar að kíkja í kaffi. Eða þá sem halda að þeir fái ekki nóg gúmmulaði um jólin (ég fer til dæmis í skírn 25., jólaboð 26., ammælið mitt er 27. og svo er annað jólaboð 28.!), þá sem langar að sjá jólahúsið mitt eða bara þá sem fá aldrei nóg af MÉR... ;)

laugardagur, desember 10, 2005
Life goes on...
Frekar erfiðri viku er að ljúka. Ég var rétt búin að "post"a síðustu færslu þegar mamma hringdi til að segja mér að afi Siggi væri dáinn. Mæli ekkert sérstaklega með því að vera ein, langt í burtu frá restinni af familíunni þegar maður dílar við svoleiðis fréttir. Fólkið í Víkinni reyndist mér reyndar einstaklega vel, en það er nú samt ekki það sama og að vera með fjölskyldunni. Ég segi bara takk, takk við allt góða fólkið sem hjálpaði mér þegar mér leið illa.
En þó að ástvinir falli frá og þó að manni líði illa, þá heldur lífið áfram. Passaði Soffíu og Karólínu frá því seinnipartinn í gær og fram yfir hádegi í dag. Ég held barasta að þær hafi aldrei verið eins stilltar og góðar hjá mér eins og núna. Ég vaknaði ekki fyrr en korter í níu, Soffía ennþá sofandi og Karólína að reyna að brölta uppí til mín. Ég dró hana uppí til mín og hún kúrði ofan á mér í góða stund. Held barasta að það gerist ekki betra.
Ég átti líka gott spjall við Sólveigu og Freyju á msn, svona videósamtal með mynd og hljóði. Þetta var í fyrsta skipti sem ég prófa þetta, geðveikt fyndið en mjög kúl. Spjölluðum í tæpa tvo tíma og þar sem við sáum hvora aðra á meðan (og ég var að prófa þetta í fyrsta skipti) var auðvitað soldið sprell í gangi á meðan... Ég smellti mér til dæmis úr peysunni og sýndi þeim vöðvana sem ég er svo stolt af (eftir allt púlið í vetur). Heyrði þá þessi rosalegu fagnaðar og aðdáunaróp hinum megin. Þetta eru nefnilega greinilega engir smá vöðvar fyrst þeir sjást alla leiðina til London!
En nú styttist í jólin og ennþá styttra í jólafrí. Er búin að lýsa vel upp í kringum mig, bæði í Víkinni og Reykjavíkinni. Held að Fanneyju hafi verið hætt að standa á sama í dag, það liggur nefnilega við að við getum alveg sleppt því að kveikja ljós í íbúðinni þegar allar seríurnar eru í sambandi...

mánudagur, desember 05, 2005
Long time no "see"...
Já, langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna inn og ýmislegt búið að gerast. Fór á tónleika 27. nóv, í Reykjavík á sunnudagskvöldi. Ekki það gáfulegasta sem hægt er að gera þegar maður á að mæta í vinnu í Vík á mánudagsmorgni... En hvað gerir maður ekki fyrir tónleika með Sigurrós? Hreint út sagt magnað alveg! Upplifunin þvílík að ég var með gæsahúð allan tímann. Pottþétt hverrar krónu virði og svefnlaus nótt skiptir engu máli þegar maður fær þetta í staðinn!
Sýndi flotta takta á miðvikudaginn. Svo flotta að það var gert endalaust grín að mér á fimmtudaginn... Ökklinn sem ég snéri í fótbolta í vor og er enn alltaf að hrekkja mig öðru hvoru var semsagt að pirra mig í leikfiminni þannig að ég reyndi auðvitað soldið að hlífa honum. Þá þurfti náttúrulega eitthvað að smella í hinum ökklanum. Það var nú samt ekki meira en það að ég hélt áfram að púla. Þegar ég svo hálf synti heim í ófærðinni eftir leikfimina missteig ég mig nokkuð illa í ökklanum sem small í. Ég var því ansi skrautleg á fimmtudaginn, snúni ökklinn enn að pirra mig og hinn ökklinn misstiginn. Þar að auki fór þetta ástand ekkert sérlega vel í bilaða hnéð, þannig að það hefur örugglega verið ansi skemmtilegt að fylgjast með mér... ;)
Ég var nú samt ekki stórslasaðri en það að á föstudaginn fékk ég lánaða skóflu svo ég gæti mokað bílinn minn út úr skaflinum í innkeyrslunni hjá mér (já, það er sko vetur hér). Þegar ég var búin að losa bílinn fór ég svo og fjárfesti í minni eigin snjóskóflu og mokaði gangstéttina hjá mér. Ómögulegt alveg að vera upp á aðra komin í þessum efnum.
Á laugardagskvöldið komst ég svo að því að það er trúlega kannski bara einhver ástæða fyrir því að fólki finnst ég soldið skrýtin... Var búin að hafa það kósý uppí sófa að horfa á sjónvarpið og prjóna allt kvöldið og um eittleytið var ég orðin svo þreytt að ég ákvað að fara að sofa. Kippti samt með mér bókinni sem ég var nýbyrjuð að lesa, Draumaveröld kaupalkans, og ákvað að lesa nokkrar blaðsíður fyrir svefninn. Það fór ekki betur en svo að klukkan hálf fimm var bókin fulllesin, ég búin að hlæja ótæpilega (var satt að segja soldið hrædd á köflum um að vekja nágrannann...) og farin að halda að ég eigi nú kannski eitt og annað sameiginlegt með blessuðum kaupalkanum...
Svo, sökum þreytu gerði ég ekkert voðalega mikið af mér í gær... Afrekaði það nú samt að búa til ein þrjátíu jólakort og skera mig ágætlega í leiðinni.