þriðjudagur, janúar 31, 2006
Ævintýri
Ég heimsótti mömmu og pabba á sunnudaginn eins og svo oft áður. Og eins og svo oft áður byrjaði ég því að fara inn í eldhús, opna búrskápinn og ísskápinn og skanna innihald þeirra. Þetta er því ekki í frásögur færandi nema fyrir það að í þetta skiptið fann ég bæði kókópuffs og léttmjólk, eitthvað sem ég hef ekki borðað síðan í sumar og langaði allt í einu gríðarlega mikið í. Ég hellti því diskinn fullan af kókópuffsinu og fyllti hann enn betur með mjólkinni. Svo stakk ég fyrstu skeiðinni með herlegheitunum upp í mig... og þvílíkt ógeð! Mjólkin var súrara en allt súrt, og skýringin svosem kannski ekkert skrýtin þegar ég fór að kanna málið... hún var komin mánuð fram yfir síðasta söludag... Eftir þetta ævintýri held ég að ég láti hvorki kókópuffs né mjólk inn fyrir mínar varir á næstunni...

mánudagur, janúar 30, 2006
I am not alone...
Eftir að hafa lesið þetta held ég að ég sé hætt að kvarta yfir fáránlegum óhöppum mínum...

sunnudagur, janúar 29, 2006
Story of my life - framhald
Ég gleymdi áðan að segja frá alveg ekta "my-style" veseni sem ég er búin að vera að vesenast í undanfarnar tvær vikur. Það er semsagt komið framhald af símaveseninu frá því í sumar. Ef það vesen fór eitthvað fram hjá einhverjum þá átti semsagt að flytja adsl tenginguna hennar Sólveigar yfir á símanúmerið mitt um mánaðamótin júní/júlí en tengingin komst ekki á fyrr en eftir miðjan júlí, eftir mikið stapp og streð, en þá var síminn meðal annars búinn að láta mig standa í þeirri trú í heila viku að það væri bilun í símalínunni hjá mér þegar sannleikurinn var sá að þeir höfðu týnt beiðninni okkar! En eftir að tengingin komst loksins á var allt í fína lagi... þangað til fyrir hálfum mánuði... Þá var lokað fyrirvaralaust á tenginguna hjá okkur. Þegar ég hringdi og krafðist svara fékk ég frekar skrýtin svör. ADSL-ið var nefnilega einhverra hluta vegna ekki skráð á mig, heldur á stelpuna sem Sólveig leigði hjá fyrsta mánuðinn sem hún var með nettenginguna. En í millitíðinni er Sólveig búin að fá sér símanúmer og flytja tenginguna á það, segja síðan símanúmerinu upp og flytja tenginguna yfir á mitt númer. Soldið flókið, ég veit... Og kannski þetta hafi bara verið of flókið fyrir þá símamenn...? Ég heyrði þá allavega klóra sér í hausnum á meðan ég reifst og skammaðist í þeim. Ég meina, ég er búin að vera að fá reikninga fyrir þessari tengingu og borga þá reikninga og svo loka þeir allt í einu þegar einhver úti í bæ borgar ekki símareikninginn sinn eða lokar númerinu eða eitthvað. Ég skil allavega ekki hvernig þeir hugsa þarna hjá þessu druslufyrirtæki. Það tók mig allavega nokkuð mörg símtöl við ansi marga einstaklinga að rífast nógu mikið til að þeir vildu taka við uppsögn minni á ADSL tengingunni minni hjá þeim. Ég lá nefnilega veik í Víkinni og ég átti takk fyrir að mæta í verslun þeirra og skrifa undir eitthvað til að segja upp tengingu sem þeir lokuðu óumbeðnir! Nú, eða senda tölvupóst úr netfanginu sem fylgdi tengingunni... málið var bara það að í fyrsta lagi var tengingin í Reykjavík og í öðru lagi var Síminn búinn að loka fyrir tenginguna... Þegar ég var búin að benda símakonunni á það, með nokkrum vel völdum orðum í viðbót, hvarf hún í góða stund úr símanum og tilkynnti mér það svo frekar pirruð að hún væri búin að aftengja mig, en bara af því að aðstæðurnar væru svona. En það er orðið nokkuð ljóst að eina leiðin til að fá einhvern þarna til að hlusta á sig eða að fá eitthvað gert er að rífast og skammast og vera með leiðindi. Það er allavega mín reynsla.
Og í framhaldi af þessu er ég búin að skrá mig í Og1 og bíð bara eftir að tengingin þar taki gildi. Vonandi að mín símamál verði með því vandræðalaus í framtíðinni.

Story of my life...
Það var verið að pumpa mig um áramótasögur... Það er reyndar soldið langt síðan, en ástæðan fyrir því að áramótasagan hefur ekki ratað hingað inn er satt að segja hluti af þessari sögu...
Ég var byrjuð að skrifa söguna um daginn, en þegar ég var komin með tvær A4 síður og sagan enn ekki búin ákvað ég aðeins að frysta hana. Hér kemur svo sagan í styttri útgáfu...
Undanfarin ár hef ég nánast undantekningarlaust verið haldin einhverskonar slæmsku um jól og/eða áramót. Þetta árið var undantekning og því átti að halda rækilega upp á það og djamma feitt um áramótin. Til að gera mjög langa sögu af gamlárskvöldi stutta get ég sagt að það hafi verið mjög gaman þó að kvöldið hafi ekki farið eins og það átti að gera. Í fyrsta lagi kviknaði í hjálparsveitarhúsinu fyrr um daginn (þó að það komi sögunni í sjálfu sér ekki svo mikið við). Í öðru lagi tókst mér að slasa mig... Datt nefnilega ansi illa og meiddi mig í þumalputtanum (í dag, 4 vikum seinna er mér enn illt í puttanum), og fékk svo flugeldaprik af himnum ofan beint í hausinn. Partýhaldarinn sem við ætluðum til fór semma í háttinn eftir að hafa djammað of feitt kvöldið áður og ég átti minn þátt í að reyna að sprengja stórfjölskylduna í tætlur.
Ofan á þetta er ég búin að liggja í flensu meira og minna allan janúar. Ein heima hjá mér í sveitinni í marga, marga daga með ekkert internet, ekkert vídeó (það varð eftir í bænum um jólin) og ekki neitt nema kvefið og drulluna í mér og ríkissjónvarpið. Jei! Var satt að segja orðin létt geggjuð á sjálfri mér. Hef svo rétt haft orku til að druslast í vinnuna síðustu viku og ekki dropa meir. En er öll að koma til þó að ég fáin enn hrottalegar hóstakviður.
En já, árið 2006 byrjaði semsagt með MY style...

mánudagur, janúar 09, 2006
Ertu að verða getulaus...?
Ó, var það náttúrulaus...? Ja, ég held ekki... en ég fór nú samt á tónleikana á laugardaginn. Ansi hreint góðir tónleikar bara. KK góður að venju. Björk var bara Björk, ég sagði þá og segi enn að það er ástæða fyrir því að hún er ekki í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér. Múm voru fínir og SigurRós frábærir, hefði gjarnan viljað heyra þá spila meira. Magga Stína hefur mér alltaf þótt soldið spes, en þarna, á tímabili, hélt ég að hún væri endanlega að tapa sér. Það fór nú samt ekki á milli mála að hún skemmti sér alveg gríðarlega vel þarna uppi á sviði og það smitaði mig allavega soldið. Rass get ég ekki sagt að ég fíli, þeir náðu mér samt alveg þegar þeir tóku Celebrations ásamt lúðrasveit Vesturbæjarskóla. Tónlist Dr. Spock fór eiginlega soldið framhjá mér, ég var nefnilega svo upptekin af bleiku spandexbuxunum hans Proppé... Næstur var Damien Rice, ein aðalástæða þess að ég fór á tónleikana. Hann klikkaði svo sannarlega ekki og var alveg magnaður! Mugison var auðvitað góður og Hjálmar líka. Ég viðurkenni fúslega að ég yfirgaf salinn þegar Ghostdigital byrjaði að spila, hann Einar Örn er einfaldlega of súr fyrir minn smekk. Af þessum sökum missti ég því af Damon Albarn. Næst spiluðu Ham. Ég fíla þá ekkert sérstaklega en fannst þeir samt bara fínir þarna. Egó lokaði svo kvöldinu með sprengingum, látum og nokkrum góðum slögurum. Í heildina hin fínasta skemmtun þó að ég hafi verið ansi lúin og bjórþyrst í lokin. Enda brunuðum við niðrí bæ og redduðum málunum... Bjór og spjall og bjór og hitta fólk og meiri bjór og meira spjall og enn meiri bjór... Þegar þarna var komið gerði ég góðverk kvöldsins, að mínu mati allavega... Ég er samt ekki alveg viss um að viðkomandi hafi verið sammála mér um það, en mér fannst bara algjör synd að sjá þennan líka myndarlega unga mann með buxurnar á hælunum... ;)
Og í lokin, svona til að koma í veg fyrir fleiri klósettbrandara á minn kostnað... Nick Cave var alls ekkert að spila þarna á tónleikunum!!!