<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, febrúar 27, 2006

Alltaf að græða...
...eða ekki... ;) Það var nú samt hringt í mig frá Mogganum um helgina og mér boðin frí áskrift í mánuð. Ég sagði auðvitað já takk, því ég er alin upp með honum (Mogganum sko) og satt að segja sakna ég hans dálítið. Það verður því gaman að rifja upp gömul kynni við hann.

En í önnur mál. Puttinn minn, þessi sem ég rústaði á gamlárskvöld (áður en ég byrjaði að drekka þannig að það er ekki hægt að kenna áfengi um þessa glæsilegu sýningu sem ég hélt við brennuna...), er enn í ólagi. Hann er reyndar mun skárri en hann var en það eru þó enn ákveðnir hlutir sem ég get bara alls ekki framkvæmt vegna hans. Efst á baugi er að mér er alveg lífsins ómögulegt að snúa hurðarhúnunum í vinnunni með vinstri (með bilaða puttanum). Snýtingarnar hjá mér hafa verið hálf klaufalegar frá áramótum (frekar slæmt þar sem ég lá meira og minna í nokkrar vikur með kvef og hálsbólgu) því ég get ekki með nokkru móti snýtt mér með hægri og meira að segja vinstri höndin með bilaða puttanum virkaði betur þó ég þyrfti að þola nokkurn sársauka í leiðinni... Þá er líka frekar sárt að snúa lykli í skrá, renna upp hinum ýmsu rennilásum og opna/loka gosflöskum (með vinstri semsagt) svo eitthvað fleira sé nefnt. Ég varð svo frekar svekkt þegar ég byrjaði í leikfiminni aftur eftir jól og komst að því að ég get ekki lengur lyft sömu þyngd og ég gerði fyrir jól, ekki vegna þess að jólin hafi breytt mér í aumingja heldur vegna þess að bilaði puttinn þolir ekki þyngdina sem liggur á honum þegar ég reyni að lyfta. Er frekar svekkt yfir þessu öllusaman, en þetta reddast... vonandi...

föstudagur, febrúar 17, 2006

Ég var víst klukkuð...
...þannig að það er best að ljúka þessu af...
4 vinnur um ævina: Ölfusborgir, Eden, Súfistinn, grunnskólar...
4 bíómyndir sem ég held uppá: Á voðalega erfitt með að velja einhverjar uppáhalds. Það eru þó alltaf einhverjar sem eru minnisstæðari en aðrar af ýmsum ástæðum... Tel því hér upp: La Vida e Bella, Lion King, Bridget Jones og Nói albinói.
4 staðir sem ég hef búið á: Hér ætla ég ekki að setja nákvæma staðsetningu, heldur bara staði, á sumum þeirra hef ég búið á mörgum stöðum... Hveragerði, Regensburg í Þýskalandi, Reykjavík, Vík.
4 sjónvarpsþættir sem ég held uppá: Ég var orðin þannig að líf mitt stjórnaðist af sjónvarpsdagskránni. En svo flutti ég í sveitina þar sem ég hef bara gamla (góða) RÚV. Þar fylgist ég spennt með LOST, Desperate housewifes, ER, Veronica Mars og mörgum öðrum.
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum: Þeir staðir sem ég hef oftast komið til í fríum eru Danmörk, Belgía, Spánn og Þýskaland.
4 síður sem ég skoða á hverjum degi: Pósturinn minn, bloggsíður, mbl.is og Google.
4 matarkyns sem ég held uppá: Hmmm... Kjúklingur, vatnsmelóna, ananas og súkkulaði.
4 staðir sem ég vildi ég væri á núna: London, Kúba, Belgía, Kínamúrinn.
4 sem ég ætla að klukka: Sólveig, Freyja, Fanney og Helga.

laugardagur, febrúar 11, 2006

Congratulations, Sigrún! Your IQ score is 133
Your Intellectual Type is Visual Mathematician. This means you are gifted at spotting patterns — both in pictures and in numbers. These talents combined with your overall high intelligence make you good at understanding the big picture, which is why people trust your instincts and turn to you for direction — especially in the workplace.

The Classic IQ Test
http://web.tickle.com/invite?test=3001&type=t

föstudagur, febrúar 10, 2006

"Story of my life..."
Kom í bæinn í dag og þá beið eftir mér eitt stykki afmælisgjöf! Dáldið á eftir áætlun, en stórskemmtileg engu að síður. Fanney gerði sér nefnilega lítið fyrir og málaði eitt stykki mynd handa mér! Ansi skemmtileg mynd sem lýsir mér ákaflega vel... ;) Forvitnir eru velkomnir í heimsókn...

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Story of my life...
Æ þessi titill er nú orðinn soldið þreyttur...
...Eeeen ég var passlega stigin upp úr flensunni og búin að vera heila viku í vinnunni þegar ég lagðist aftur. Er í framhaldi af því komin með ógeð á sjálfri mér, það sem hélt mér á lífi síðustu vikuna (meðan ég lá í annað skiptið á nokkrum vikum) voru óvissuspólurnar sem Fanney gerði handa mér á meðan ég var veik síðast og vídeóið hjá henni á meðan. Held að án þeirra hefði ég endanlega gert útaf við sjálfa mig af leiðindum... En annars er það ekki beint heilbrigt að missa röddina gjörsamlega á fimmtudegi, fara á föstudegi (gjörsamlega raddlaus og svo slöpp að ég komst varla þangað) til læknis sem sagði að það væri ekkert að mér, byrja þá um kvöldið að hósta eins og andskotinn og fyllast af svo ógeðslegu kvefi að drullan vall út um öll höfuðop. Því miður var doktorinn ekki við aftur fyrr en viku seinna, næsta föstudag. Þá sagði hann mig vera með sýkingu í öllum andlitsholum og gaf mér einhver lyf. Viku síðar, þegar ég var að klára kúrinn, heimsótti ég hann aftur því mér fannst ég enn vera of slöpp miðað við að vera búin að vera á lyfjum í viku. Hann sagði að það væri ekkert að mér og sendi mig heim. Viku síðar, eða á föstudaginn fyrir viku, var ég aftur farin að "sleppast" skuggalega mikið. Um helgina var ég að kafna úr kvefi, hóstinn að aukast og hálsinn svo sár að það var eins og það stæði hnífur í honum. Ég heimsótti því doktorinn aftur á mánudaginn. Hann útilokaði steptokokka og sagði að ég væri að öllum líkindum með skútabólgu og það ylli trúlega særindunum í hálsinum þannig að hann ætlaði að gefa mér pensilín við því, því það sem ég fékk síðast átti víst bara að vinna á hóstanum... sem var svo enn til staðar... En hér er ég, enn drulluslöpp en allavega risin upp úr bælinu - vonandi fyrir fullt og allt, er allavega orðin ansi pirruð á ástandinu.

Eftir allt þetta ástand þurfti ég svo aðeins að lyfta mér upp þannig að ég gerði mér lítið fyrir og verslaði mér flug til London í páskafríinu! Heilar 11500 krónur fram og til baka og geri aðrir betur!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?