mánudagur, mars 20, 2006
Hann séra Jón og aðrir íslenskir karlmenn
Já, það hafa nú flestir heyrt að í sumum tilfellum er sko ekki sama hvort maðurinn er Jón eða séra Jón... Hún Hulda Sóley vígði mig semsagt til prests á föstudagskvöldið. Litli engillinn sem öskrar víst á alla nema mömmu sína og pabba (skilst mér), skemmti sér konunglega í minni vörslu. Ég fékk sko bros, hjal, hlátur og bara allan pakkann!
En það geta víst ekki allir verið séra Jón. Eftir helgina er ég búin að velta því mikið fyrir mér hvað sé eiginlega málið með íslenska karlmenn. Held barasta að þeir séu sérstakur þjóðflokkur. Fyrir mér eru þeir nefnilega sem lokuð bók. Allavega þeir sem ég hitti á laugardagskvöldið. Laugardagskvöldið var semsagt ansi forvitnilegt. Ég komst meðal annars að því að annað hvort eru Mýrdælingar meira menningarlega sinnaðir eða skemmtanaglaðari en Hvergerðingar, því Halldórskaffi er opið bæði föstudags- og laugardagskvöld en Snúllabar er víst bara opinn á laugardagskvöldum. Og ekki nóg með það, heldur lét kallpeningurinn á staðnum (er ekkert endilega að alhæfa, hitti ekki alla kallpeninga á staðnum) eins og það væri fullt tungl úti, klukkan orðin korter í þrjú (eða þaðan af meira), við síðustu konurnar á jörðinni og þeir ekki talað í marga mánuði. Eða svona hér um bil, nóg hlustaði ég allavega á af rugli og vitleysu. Niðurstaðan er semsagt sú að karlmenn eru, og verða væntanlega áfram, algjörlega óútreiknanlegir.

fimmtudagur, mars 16, 2006
Biluð?
Já, ég held bara svei mér þá að ég sé ekki alveg í lagi. Bilaði þumalputtinn er reyndar mjög hægt og mjög rólega að byrja að geta gert það sem hann gat fyrir áramót og heilsan almennt betri en hún hefur verið síðan um áramót. Sem er auðvitað bara gott mál. Annað sem er ekki alveg eins gott er það að vitlausa hnéð er eitthvað að hrekkja mig. Nei, ekki bilaða hnéð heldur hitt sem á að vera í lagi. Er búin að vera frekar pirruð á því svæði undanfarið en hélt kannski að ég hefði bara átt að teygja aðeins á eftir fína göngutúrinn sem ég fór í um daginn. Í dag fann ég svo stingandi sársauka í hnénu þegar ég stóð upp úr stólnum mínum, veit ekki alveg hvað það á að þýða en held í þá von að þetta hafi verið einangrað tilfelli...
Og af því að það er orðið spurning hvort ég sé biluð eða ekki þá held ég að ég sé að tapa mér í prjónunum... Veitir reyndar ekki af þar sem ég er endalaust að fá nýjar óléttutilkynningar...

fimmtudagur, mars 09, 2006
Nostalgía
Það kennir svo sannarlega ýmissa grasa hjá þeim sem aldrei henda neinu. Eins og flestum ætti að vera orðið ljóst er ég ein þeirra... Stundum tek ég einhver óútskýrð æðisköst þar sem ég hleyp til og frá og linni ekki látum fyrr en ég hef fundið eitthvað forvitnilegt að skoða. Eitt svoleiðist fékk ég í gærkvöldi og endaði það með því að ég fann kassa fullan af bréfum frá Au-Pair og skiptinemaárum okkar vinkvennanna. Ansi hreint forvitnileg lesning verð ég að segja... Það eru samt tvö bréf sem standa uppúr kvöldlesningunni, það er að segja hluti úr tveimur bréfum þar sem eitthvað er verið að efast um geðheilsu mína. Þessum vangaveltum fylgir eitthvað um að ég hafi verið "of feit" eða "of heit" fyrir einhvern og ýmsar pælingar um þetta mál. Eftir að hafa lesið þetta fram og til baka rámar mig reyndar í eitthvað skólaball, án þess þó að vera viss, en get ómögulega munað fyrir hvern ég var of feit... eða of heit...
En forvitnin er gjörsamlega að drepa mig í dag, svo Freyja, ekki áttu þýskalandsbréfin frá mér ennþá???