<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, apríl 29, 2006

Framtakssemin að drepa mig...
Eyddi páskafríinu hjá Sólveigu og Freyju í London. Sannreyndi það að fall er fararheill, því þrátt fyrir að hafa uppgötvað það hálfum sólarhring fyrir bottför að passinn minn var ekki þar sem ég hélt að hann væri og fannst svo að lokum eftir mikla leit á öllu suð-vesturhorni landsins þá var ferðin frábær og ég skemmti mér mjög vel hjá stelpunum. Að undanskildu passamálinu og oggulitlu öðru atriði (það gæti víst verið gáfulegt að skoða flugmiðann uppá að gefa réttar upplýsingar um hvenær eigi að sækja mann á flugvöllinn... Gunna var semsagt ekki lögð af stað þegar ég lenti á klakanum...) gekk ferðin algjörlega stórslysalaust fyrir sig.
Brunaði svo beint af vellinum upp í Brekkuskóg þar sem restin af familíunni var í sumarbústað. Eyddi síðustu tveimur páskafrísdögunum þar í afslöppun, súkkulaðiáti og heitum potti. Fullkominn endir á fullkomnu fríi!

Kom í bæinn í gær og eftir að hafa rölt með Fanneyju um Kringluna án þess að kaupa neitt nema rauðvín með kvöldmatnum (dugleg stelpa...) rann á mig eitthvað óútskýrt æði. Byrjaði á að rútta til í geymslunni hjá mér og í leiðinni gekk ég loksins frá jólaskrautinu sem er búið að standa þar síðan ég tók það niður seint í janúar... Jamm, kannski ekki svo vitlaust að klára að ganga frá því áður en ég þarf að setja það aftur upp... En það var ekki nóg. Setti líka í Bubba byggir gírinn og tók Fanneyju á taugum í leiðinni. Gerði mér nefnilega lítið fyrir og vippaði mér upp á eldhúsborðið og tengdi nýja ljósið sem ég keypti í útlandinu. Geðveikt kúl alveg! Fanneyju stóð nú ekki alveg á sama á meðan ég brasaði þetta og á milli þess sem hún minnti mig á að snerta ekkert sem ekki átti að snerta, fara nú varlega og að ég gæti nú alveg látið fagmann um verkið, þá sá hún samviskusamlega um að taka öryggið af og setja það svo aftur á (eftir talsverðar fortölur af minni hálfu) þegar ég hafði lokið verkinu. Sem heppnaðist by the way frábærlega vel, engin fljúgandi skrúfjárn í þetta skiptið... ;)

föstudagur, apríl 07, 2006

Ef þetta er ekki ég...
Það er sko engin lognmolla í kringum mig og mitt flakk frekar en fyrri daginn. Vaknaði hress í morgun, komin í páskafrí og á leiðinni úr landi. Pakkaði niður því sem ég ætlaði að taka með mér og leitaði að passanum mínum í leiðinni, vitandi það að ég hafði aldrei tekið hann með með mér austur, og fann hann að sjálfsögðu ekki. Gerði ekkert veður út af því, því ég vissi að hann var í bænum, einmitt þar sem ég tók upp úr töskunni síðast þegar ég kom að utan. Keyrði því nokkuð áhyggjulaus af stað. Næsta stopp var Hveragerði þar sem ég sótti allskonar dót til að fara með til Sólveigar. Leitaði lauslega að passanum mínum þar, enn viss um að hann væri á ákveðnum stað í bænum. Þegar ég kom svo til Reykjavíkur og ætlaði að sækja passann minn kom smá babb í bátinn. Hann var bara ekki þar sem ég hélt að hann væri. Þá hófst ofsafengin leit um alla íbúðina, og endaði hún á allsvakalegu panikkasti þar sem enn fannst enginn passi. Þá sendi ég hjálparsveitina mína af stað í leit fyrir austan, og enn fannst enginn passi. Þá var ég orðin ansi stressuð, hringdi í tollstjórann á Keflavíkurvelli og komst að því að það er hægt að fá bráðabyrgðavegabréf fyrir "aðeins" 8300 krónur. Ég fékk nú ekki langan tíma til að melta þessar upplýsingar áður en mamma hringdi og sagðst hafa fundið passann. Og hvar var svo blessaður passinn fyrir rest? Ég virðist semsagt hafa ákveðið eftir síðustu utanlandsferð að ganga frá honum á "vísan stað", tekið hann með mér í Hveró og sett hann á sama stað og hann var áður en ég fór í síðustu ferð. Eflaust skynsamleg ákvörðun á þeim tíma, vitandi það að ég var nýflutt og á leiðinni að flytja aftur, en í kvöld fannst mér hún ekki eins skynsamleg. En passinn er kominn í leitirnar og það er fyrir öllu. Vandræðapakka þessarar ferðar er því vonandi hér með lokið þó ég geti ekki ábyrgst það, enda segir sagan að enn geti ýmislegt gerst...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?