sunnudagur, maí 21, 2006
Congratulations
Það er svo sannarlega tilefni til að gleðjast þessa dagana. Fimmtudagsins 18. maí 2006 verður án efa lengi minnst, allavega í sveitinni. Ekki bara fyrir það að Silvía Night komst ekki uppúr forkeppni Eurovision, heldur kannski aðallega fyrir það að 7. og 8. bekkur fengu tilkynningu um að þau hefðu unnið í samkeppninni "Reyklaus bekkur". Framlag þeirra í keppninni er hreint út sagt frábært og áttu þau svo sannarlega skilið að vinna!
Önnur ástæða til að gleðjast yfir eru úrslit Eurovisionkepninnar í gærkvöldi. Finnar áttu langbesta lagið og því við hæfi að þeir ynnu þetta, enda löngu kominn tími til að almennilegt lag ynni... Við héldum upp á sigurinn (já, við unnum því við héldum með Finnum) með því að skreppa á Palla á Nasa, eins og um það bil hálf Reykjavík. Rosa stuð en allt, allt of mikið af fólki.
Enda þetta bara á einu flottu CONGRATULATIONS til allra þeirra sem finnst þeir eiga það skilið...

þriðjudagur, maí 16, 2006
My new best friends
Síðasta vika hefur verið ansi athyglisverð. Ég eignaðist fullt af nýjum vinkonum og hjá okkur er búið að vera nánast stanslaust stelpupartý síðan. Alltaf rosa stuð hjá okkur!
En þó að ég hafi eignast "new best friends" og eytt talsverðum tíma með þeim undanfarið er ég nú líka búin að afreka ýmislegt annað. Er til dæmis byrjuð að pakka niður fyrir flutninga og svo er slatti að gera í vinnunni þessa dagana. Í kvöld er svo pizzupartý hjá mér. Ég var eitthvað að tala um hvítlaukspizzuna mína um daginn og fólki fannst hún svo spennandi að ég lofaði að bjóða þeim í svoleiðis, er strax komin með vatn í munninn...

föstudagur, maí 05, 2006
Say no more...
Ég komst að því á frekar sársaukafullan hátt í gær hvers vegna mömmur segja alltaf börnunum sínum að það sé bannað að sleikja hnífa. Þess vegna ætla ég að nota skeið næst þegar ég sleiki restarnar úr Nutella-krukku...

þriðjudagur, maí 02, 2006
Allt sem er grænt, grænt, finnst mér vera fallegt...
Fyrir tíu árum síðan er mér óhætt að segja að líf mitt hafi verið ansi blátt. Þá er ég að tala um að ég málaði herbergið mitt blátt og ef fataskápurinn var opnaður var þar nánast ekkert nema eitthvað blátt. Ég var eiginlega blá í gegn, ef frá eru taldar stjórnmálaskoðanir...
Síðustu ár hefur nú heldur dregið úr þessu bláa þema hjá mér og fleiri litir komið inn. Sá sterkasti er grænn, sem er í miklu uppáhaldi hjá mér þessa dagana, þó að hann sé enn langt frá því að verða eins ríkjandi og blái liturinn í "denn".
En þar sem ég er dáldið græn fannst mér skemmtilegt að rekast á þetta próf á netinu. Spurning hvort einhver hefur skoðun á niðurstöðunum...?

| You Are Emerald Green |
![]() |
ahref="
'>'>http://www.blogthings.com/whatcolorgreenareyouquiz/"> What Color Green Are You?