<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, júní 25, 2006

Hvað ert þú að gera hér?
Alla síðustu viku var ég meira og minna eins og undin tuska. Orkan akkúrat engin og því ekki mikið annað gert eftir vinnu en að sofa og liggja undir teppi uppí sófa og dorma yfir sjónvarpinu. Náði samt að afreka þrennt fyrir utan vinnutíma í vikunni. Sótti hjólið mitt á flytjanda (nú þarf bara að pússa það upp og lakka því það ryðgaðra en allt ryðgað...). Fór líka í atvinnuviðtal. Mjög spennandi tilboð en launalega séð þarf ég að hugsa mig aðeins um og reikna dæmið til enda. Svo hitti ég loksins Sigrúnu Sigurjóns sem ég hef ekki hitt síðan einhverntíman síðasta haust. Fórum í föstu liðina og fengum okkur pizzu, ís og spjall. Alltaf jafn gaman.
Í gær afrekaði ég svo ansi mikið miðað við viðburðasnauða vikuna á undan. Byrjaði á handverks- og listasýningu í Hveragerði. Mjög skemmtileg í alla staði og hausinn er fullur af hugmyndum í dag... ;) Brunaði svo þaðan í útskriftarveilslu hjá Heiðu vinkonu þar sem var dekrað við mig (enda síðasti gesturinn og hellingur af gúmmulaði enn á borðinu...). Þaðan fór ég í mat hjá Stebba og Jónu og auðvitað var þar ekki bara matur heldur líka eftirmatur. Var eiginlega orðin soldið mikið södd þegar ég brunaði frá þeim og í næstu útskriftarveislu, nefnilega til Tinnu. Þar átti ég orðið dáldið erfitt með að troða meiru í mig en smakkaði samt smá af þessum glæsilegu veitingum. Spjallaði við fullt af fólki sem ég hef ekki séð lengi og sá stórkostlegt skó- og töskusafn... Það var svo soldið fyndið þegar Sigrún Sigurjóns gekk inn um dyrnar og við störðum hvor á aðra og sögðum báðar: Hvað ert þú að gera hér???

sunnudagur, júní 18, 2006

Once and again...
Eins og svo oft áður er ég búin að vera að ýta á undan mér ýmsum hlutum sem ég hefði eiginlega átt að vera löngu búin að gera. Dótið sem ég kom með að austan í síðustu viku átti til dæmis voðalega erfitt með að rata á rétta staði og það var fyrst í gær sem ég losaði mömmu og pabba við allt draslið mitt þaðan (er búin að vera á leiðinni að gera það í heilt ár...). Í gærkvöldið var íbúðin mín semsagt vægast sagt eins og eftir loftárás... Þar fyrir utan átti ég eftir að gera smá tilraun svo ég gæti gert brúðkaupskjólinn hennar Huldu. Þegar "to do" listinn er orðinn svona langur hjá mér fer ég öll í hnút áður en ég get byrjað á hlutunum. Þess vegna sat ég heima í gærkvöldi, með kvíðahnút í maganum yfir því að ég gæti ekki klárað allt sem ég þyrfti að gera á réttum tíma. Vaknaði svo í morgun eins og ný manneskja. Skrapp í Ikea og fjárfesti í fullt af kössum og boxum, fór svo heim og byrjaði að sortera dót og drasl í kassa, skápa og NOTA BENE: RUSLAPOKA!!! Já, hvort sem þið trúið því eða ekki, þá er ég búin að vera að henda dóti! Og fyrst ég var komin í fimmta gírinn ryksugaði ég íbúðina í leiðinni og dreif mig svo í þæfingartilraunina, sem heppnaðist b.t.w mjög vel. Spurning bara hvort það sé eðlilegt að brenna sig við þæfingu...?

fimmtudagur, júní 15, 2006

Sparaðu hvítlaukinn "listamaðurinn" minn...
Hitti Gunnu eftir vinnu í dag. Fórum í smá verslunarleiðangur og áttum skemmtilegt spjall við konurnar í annarri búðinni. Þeim finnst ég greinilega sannkallaður listamaður (eða listakona ef út í það er farið) því þær mundu greinilega eftir bleika kjólnum sem ég þæfði á námskeiði hjá þeim fyrir um tveimur árum og hvöttu mig til að gera fleiri og selja þá. Sögðu líka að námskeiðskennarinn yrði glöð þegar hún frétti að ég væri að fara að gera annan svoleiðis... Jahérnahér...
Allavega, þegar við komum heim vorum við svangar og einmitt kominn kvöldmatartími. Og þar sem við Gunna komum saman er alltaf gaman... þannig að við fórum í brjálaða tilraunastarfsemi í eldhúsinu. Elduðum kjúklingabringur fylltar með fullt af hvítlauk og steiktum brún hrísgrjón á pönnu með fullt af hvítlauk. Það var semsagt hvítlaukur í matinn hjá okkur. Alveg gríðarlega gott þó að meltingarfærin séu kannski ekki alveg á sama máli. Bjössa stóð heldur ekki á sama þegar hann kom heim og gekk á vegg...

mánudagur, júní 12, 2006

Fall er fararheill
Byrjaði í nýju sumarvinnunni minni í dag. Ekki slæmt það. Önnur hvor vika 8-4 og hin vikan 11-7. Hélt upp á þessi tímamót með því að skella í eins og eina veiðiköku þegar ég kom heim. Ætti reyndar að vera að reyna að koma öllu dótinu mínu sem er hér út um allt einhversstaðar fyrir... en þarf líka að fagna nýju vinnunni minni með stæl. Og þá meina ég líka með stæl því í hamaganginum við að koma kökunni í ofninn gerði ég heiðarlega tilraun til að flaka á mér handlegginn. Það fór nú samt betur en á horfðist, áverkarnir minni en þegar ég missti þvottavélina ofan á mig í flutningunum um daginn og kakan komst ósködduð í ofninn. Nú er því bara að bíða eftir að geta borðað gúmmulaðið og aldrei að vita nema ég nái að henda upp úr einhverjum kössum þangað til það verður.

fimmtudagur, júní 08, 2006

Home sweet home
Jamm, skúraði mig út úr Víkinni um hálf 6 í dag og er komin heim! Er svo gjörsamlega dauðuppgefin eftir daginn að þegar ég var búin að bera allt dótið inn úr bílnum (vá hvað ég á hræðilega mikið dót...) settist ég aðeins í sófann, sit þar enn og er ekkert á leiðinni að breyta því... ;) Þetta getur sko alveg beðið til morguns!
Jæja, meira síðar - er allavega komin heim!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?