<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, júlí 29, 2006

Þá er ég byrjuð aftur...
...að reyna að stúta sjálfri mér... Þessi lota byrjaði á fimmtudag þegar ég missti af tröppu og flaug niður stigann í stigaganginum heima. Sem betur fer var ég neðst í stiganum en ekki efst, þannig að ég slapp með smá brunasár á annarri ristinni. Í dag dúndraði ég vonda hnénu í rúmgaflinn þannig að það er frekar aumt og að verða ansi skemmtilegt á litinn. En þetta var ekki nóg. Ég nefnilega gerði mér lítið fyrir og barði klósettsetu á þumalputtann minn (ekki þennan sem ég rústaði á gamlárskvöld heldur hinn) áðan og hann er eiginlega orðinn soldið stirður og aumur núna. Ég veit svei mér þá ekki hvernig ég fer að þessu öllusaman...

fimmtudagur, júlí 27, 2006

Hrós?
Ég held að Íslendingar séu alltof lélegir við að hrósa hver öðrum. No names, held bara að þetta sé nokkuð almennt hérna. Sumir eru þó duglegri en aðrir (eða á ég kannski að segja hugrakkari?) og segja það sem þeim finnst, sem þýðir líka að þeir hrósa fólkinu í kringum sig. Ég fékk einmitt alveg þrusuhrós í gærkvöldi, meira að segja eiginlega tvöfalt! Ég var fyrst spurð hvort ég hefði verið að gera eitthvað við hárið mitt, klippingu eða eitthvað. Þegar ég neitaði því var ég spurð hvort ég hefði þá látið lita hárið eða eitthvað, viðkomandi aðilum fannst ég greinilega rosa fín um hárið eitthvað. Sem ég fatta ekki alveg... (Komumst eftir þetta spjall að sameiginlegri niðurstöðu um að það hefði verið rjóðar kinnar og upplitað hár sem ruglaði þau í ríminu...) Ég er nefnilega orðin skuggalega loðin um höfuðið og löngu kominn tími á viðhald. Ég bara tími ekki að fara í klippingu... Spurning hvort einhver býður sig fram í verknaðinn???

miðvikudagur, júlí 26, 2006

Allt að verða vitlaust!
Ég er búin að ráða mig í vinnu í vetur!
Ég er búin að kaupa mér flugmiða til Ísafjarðar 10. ágúst.
Ég féll næstum því í freistni og keypti næstum því flug til London um verslunarmannahelgina...

mánudagur, júlí 24, 2006

"Mamma mamma, það vinkaði eitt fólk mér"
Hei fólk! Hvað á að gera um verslunarmannahelgina? Á að fara eitthvað? Vera í bænum? Innipúkinn? Hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera. Er að reyna að ákveða hvort ég ætla til Súðavíkur um verslunarmannahelgina eða helgina eftir...

fimmtudagur, júlí 20, 2006

Rangur misskilningur...
Ég fékk sms í dag. Í sjálfu sér ekkert fréttnæmt við að fá sms. En þetta var öðruvísi. Ég þekkti reyndar ekki númerið sem þetta var sent úr en Heiða kvittaði undir skilaboðin. Ég lagði því saman tvo og tvo og fékk út fimm, það er að segja ég ákvað að Heiða væri komin að austan og væri að senda mér skilaboð úr símanum hans Símonar. Skilaboðin voru boð á spádómskvöld í Nornahúsinu og mér fannst alveg tilvalið að kíkja þangað með Heiðu. Sendi henni því sms um að auðvitað kæmi ég, ef hún segði mér hvar þetta nornahús væri. Fékk svar um hæl. Sendi þá annað sms þar sem ég spurði hana hvort ég ætti bara að hitta hana þar eða hvort við ættum að vera samferða. Viðbröðgin við þessu stóðu ekki á sér og síminn hjá mér hringdi. Það var hún Heiða sem ég var búin að vera að sms-ast við, en henni fannst síðasta sms-ið mitt dálítið einkennilegt þar sem þessi Heiða er ekki Heiða vinkona mín heldur eigandi Nornahússins sem hélt hún væri búin að vera sms-ast við einhvern annan... Frekar fyndið. Eftir að hafa hlegið að þessu góða stund í símann leiðréttum við svo þennan ranga misskilning.

mánudagur, júlí 17, 2006

Loo Read
ÞETTA er algjört must á mínu heimili!

sunnudagur, júlí 16, 2006

Sögulegur viðburður!
Í dag fann ég loksins staðgengla minna heittelskuðu "cat - walking machine". Þeir hafa fylgt mér í nánast hvert fótspor síðustu sex árin, innanlands jafnt sem utan, og því farnir að láta "örlítið" á sjá... Staðreyndin er reyndar sú að fyrir tveimur árum voru þeir orðnir hálf druslulegir og þá ákvað ég að láta þá endast út veturinn og fá mér svo nýja um sumarið. Skemmst er frá því að segja að um sumarið fann ég enga nýja sem hentuðu mér. Mínir ástkæru héngu því utan á mér (af gömlum vana) það sumar og síðasta vetur líka. Í vor ákvað ég aftur að kominn væri tími á nýja, enda þeir gömlu í henglum. Eitthvað gekk nú samt hægt að finna hentuga staðgengla, þannig að ekki var þeim gömlu hent. Í dag gerðist svo kraftaverkið. Ég fann, og keypti, nýja sandala og get því með góðri samvisku kvatt þá gömlu sem fá þá sína langþráðu hvíld...

En svona þar fyrir utan hefur margt á daga mína drifið undanfarið.
Sólveig kom til Íslands. Gunna var gæsuð. Freyja kom til Íslands. Gunna gifti sig. Ég fékk kvef og hálsbólgu. Kvefið fór í augað mitt þannig að ég leit út eins og fílamaðurinn. Augað lagaðist. Kvefið lagaðist og hálsbólgan líka. Við Fanney héldum partý...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?