<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, ágúst 28, 2006

To be or not to be... these are the questions!
Helga byrjaði með svona og nú er röðin komin að mér. Endilega prófið þetta, ég bíð spennt eftir niðurstöðunum!

laugardagur, ágúst 26, 2006

Í fréttum er þetta helst...
Fór til doksa í dag (nei, það var því miður ekki sá sæti...). Varð mjög glöð þegar hann sagði að það væri ekkert sem benti til þess að hann þyrfti að krukka aftur í hnéð. Hann sprautaði nú samt einhverju í það sem átti að minnka bólgurnar og láta mér líða betur. Ég fór svo til Stebba og Jónu til að hjálpa þeim aðeins í flutningunum og þaðan beint í 25 ára ammælispartý til Helgu. Var þá orðin frekar pirruð í hnénu og ákvað að fara heim á meðan ég gæti enn keyrt (nei, ekki vegna ölvunar heldur því hnéð var farið að bólgna allverulega). Ligg svo núna í sófanum með löppina upp í loft, hnéð tvöfalt. Ég hélt eiginlega að bólgan hefði átt að minnka eftir heimsóknina til doksa en ekki aukast, en greinilega ekki í mínu tilfelli...
Læt þetta nú samt ekki stoppa mig á morgun, en þá er ansi margt á dagskránni... Ammælisbrunsh hjá afa, annar í flutingum hjá Stebba og Jónu og svo síðast en alls ekki síst þá er vinnudjamm í nýju vinnunni og ég hef grun um að það verði talsvert stuð á þeim bænum...
Jæja, ætla að skríða í bælið og safna kröftum fyrir átök morgundagsins...

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Allt að gerast...
Það lítur allt út fyrir að ég hafi verið að enda við að ráða mig í aukavinnu í vetur! En meira um það síðar, þegar ég er búin að ganga frá því öðruvísi en í gegnum msn...
Svo er ég að passa hana Skottu. Greyið er að byrja á þessu mánaðarlega (eða hvað sem það nú er kallað hjá köttum). Gengur um vælandi með rassinn upp í loft. Vorkenni henni ekkert smá.
Annars er líkamlegt ástand mitt í dag í samræmi við tilraunastarfsemi gærdagsins. Er semsagt að drepast úr harðsperrum eftir göngutúrinn góða...

mánudagur, ágúst 21, 2006

70 mínútur
Var að koma heim eftir líkamsrækt dagsins. Mér finnst ég nokkuð dugleg að hafa labbað Skálagerði - Keilugrandi á 70 mínútum, og það með búðargluggaskoðun á Laugaveginum...

sunnudagur, ágúst 20, 2006

Bubbi byggir
Það er ýmislegt sem ég tek mér fyrir hendur í þynnkunni... Vaknaði frekar slöpp í dag eftir ævintýri gærkvöldsins. Leit út um gluggann og sá veðurblíðuna og ákvað þá að það væri ómögulegt að eyða deginum í rúminu. Dreif mig á lappir, skrapp í Byko til að kaupa pensil og málaði svo sólpallinn minn, eitthvað sem ég hef ætlað að gera í allt sumar. Ætlaði svo að vera ennþá duglegri fyrst ég var byrjuð. Hófst handa við að skafa málninguna af gluggunum hjá mér svo ég geti farið að mála þá. En veðurguðinum fannst ég víst vera búin að gera nóg í dag, því öll málningin sem ég skóf af fauk á nýmálaðan pallinn. Stutt gaman það. Nú vona ég svo bara að það verði áfram þurrt á morgun svo ég geti bara klárað þetta dæmi. Rosalega verð ég glöð ef það tekst.

Drengurinn með röntgenaugun
Fór með Önnu niðrí bæ eftir brúðkaupið í gærkvöldi. Þegar við stóðum í röðinni fyrir utan Bar11 heyrðum við tvo stráka tala eitthvað um aldur, aldurstakmark og skírteini. Við Anna blönduðum okkur í umræðuna og eftir dáldið spjall spurði annar þeirra hvað við værum svo gamlar. Ég bað hann um að giska, og viti menn... hann hitti á réttar tölur! Merkilegt nokk.

En talandi um aldur. Vorum eitthvað að tala um svoleiðis áðan og mamma sagði eitthvað um að henni fyndist hún ekkert vera að eldast, en aftur á móti fyndist henni börnin hennar (semsagt við) vera orðin svo gömul. Hún er greinilega ekki ein um þá skoðun því ég hef fengið að heyra ýmislegt undanfarið...
Á djamminu um verslunarmannahelgina sagði mér einn að það væri svo mikill móðursvipur á mér (hann leit á mig og sagði svo að ég væri gift, með eitt barn nýbyrjaði í skóla og eitt nýfætt). Maður þarf nú reyndar ekki endilega að vera svo gamall til að eiga barn (allavega hafa börnin sem ég passaði keyrt framhjá mér með börnin sín í bílnum), en samt...
Fyrir vestan um síðustu helgi hittum við pabbi konu. Þau tvö voru búin að spjalla góða stund þegar hún leit á mig og spurði svo hvort ég væri konan hans... Þó að mér finnist ég stundum vera að verða gömul þá hélt ég nú ekki að ég liti þannig út... ;)

Allt eða ekkert...
Það vill ansi oft verða þannig að ekkert spennandi er í gangi þangað til einn daginn er allt að gerast á sama tíma. Í dag til dæmis fór ég í brúðkaup. Rosa flott og rosa stuð. Fór þaðan áður en allt gamanið var búið því ég var búin að lofa mér annarsstaðar. Ætlaði meira að segja að vera á þriðja staðnum líka en það gekk bara ekki upp.
Var að komast að því að næsta helgi verður líka skuggalega þétt bókuð ef ekki bara tvíbókuð. Er ekki alveg búin að ákveða hvað ég geri í því, það er enn bara seinni tíma vandamál...
En talandi um brúðkaupið. Var búin að ákveða að sauma mér kjól fyrir brúðkaupið. Sá svo að tíminn hafði hlaupið frá mér þannig að ég hafði ekki tíma til þess. Náði samt að puðra einu pilsi í gegnum saumavélina, rétt í tæka tíð til að ná í kirkuna. Passaði svona líka vel, þangað til ég ákvað á síðustu stundu að lappirnar á mér væru svo skrautlegar að ég þyrfti að fara í sokkabuxur. Við það minnkaði ummál mitt talsvert þannig að í allt kvöld er ég búin að vera í fullri vinnu við að hysja upp um mig blessað pilsið...

föstudagur, ágúst 18, 2006

Tímamót
Já, í dag er merkilegur dagur. Annars vegar er þetta síðasti dagurinn í sumarvinnunni minni. Á svo sannarlega eftir að sakna stelpnanna.
Hins vegar get ég frætt ykkur á því að þetta fimmhundraðasta færslan mín hér á þessa síðu! Nokkuð gott finnst mér þó að það sé kannski ekki mikið miðað við að þessar 500 færslur hafa verið skrifaðar á rúmlega þremur árum.

En í annað. Ég á í miklu basli með að venja mig af fremur hvimleiðum kæk sem ég hef. Ég nefnilega get ekki látið augabrúnirnar í friði. Hamast á þeim og reiti þær þó að ég sé dauðhrædd um að ég geri með þessu göt í þær. En sama hvað ég reyni að segja við sjálfa mig, alltaf er ég komin aftur með puttana í þær. Veit svei mér þá ekki hvað ég á að gera. Annars, Sólveigu örugglega til mikillar gleði, þá er ég að mestu hætt að nota ökklann á mér sem hrossabrest. Það kemur reyndar eitt og eitt brak, en, og taktu nú eftir Sólveig, það heyrðist ekkert í honum síðast þegar ég fór í litun og plokkun! Og það held ég að sé talsvert afrek...

Hringavitleysa
Ég var að koma úr Hafnarfirðinum. Taldi hringtorgin á leiðinni heim. Leiðin sem ég keyrði innihélt hvorki fleiri né færri en ÞRETTÁN hringtorg! Geri aðrir betur...

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Myndarleg/ur...
Í vor og sumar hefur vonda hnéð verið að færa sig upp á skaftið og hrekkja mig meira en venjulega. Ég get ekki lengur treyst hnénu og án nokkurs fyrirvara getur það tekið upp á að láta undan. Ekki mjög gott, og alls ekki þegar ég er að keyra og þarf að stíga á kúplinguna. Í morgun lét ég svo verða af því að fara á heilsugæslustöðina til að biðja lækni um að senda mig í myndatöku. Og vá, ég sé sko ekki eftir þessari læknisheimsókn! Þegar læknirinn, lítið eldri en ég, opnaði þá kiknaði ég í hnjánum, svo flottur var hann! Ég stamaði út úr mér erindinu, eldrauð í framan (helmingurinn af rauða litnum reyndar afgangur af ofnæmisviðbrögðunum eftir dekrið um helgina) á meðan ég horfði á þennan ótrúlega fallega karlmann. Og hann klikkaði sko ekki. Skrapp fram í smá stund og þegar hann kom til baka sagði hann að það væri laus tími í Domus Medica eftir þrjú korter, hvort ég kæmist ekki í hann? Þetta kalla ég sko þjónustu. Nú bíð ég svo bara spennt eftir niðurstöðunum.

þriðjudagur, ágúst 15, 2006

Og loksins kom vorið...
Já, það er víst ekki annað hægt að segja en að veðrið hafi verið gott í dag. Verst bara að þurfa að hanga inni í allan dag því ekki eru þeir búnir að vera margir, góðu dagarnir, í "sumar".
Annars er það helst að frétta að það er frágengið að ég hætti í sumarvinnunni minni á föstudaginn og byrja svo í nýju vinnunni á miðvikudaginn í næstu viku. Fæ semsagt alveg fjögurra daga "sumarfrí" um næstu helgi! Gaman að því.

mánudagur, ágúst 14, 2006

"Snigglingur"
Já, ég er að tala um mig. Flaug semsagt vestur á fimmtudaginn og eyddi helginni í Súðavík. Reri með pabba út á fjörð um kvöldið og veiddi eins og eina ýsu í soðið. Greyið var reyndar frekar smá í vexti en smakkaðist engu að síður mjög vel. Fór í klippingu á föstudagsmorguninn og ég held svei mér þá að þegar ég stóð upp úr stólnum hafi hálfur haus verið eftir á gólfinu... samt er sko nóg eftir! Skruppum á Ísafjörð og Flateyri þar sem ég fann eitt og annað skemmtilegt til að taka með mér heim. Ótrúlegt alveg hvað er gaman að versla þar sem maður á ekki heima... ;) Það var svo á föstudagskvöldið, þegar ég skrapp í bíltúr á mömmu og pabba bíl (sem ég var btw að keyra í fyrsta skipti þannig að ég kunni kannski ekki alveg á hann) og löggan blikkaði mig því ég var víst ljóslaus, að ég áttaði mig á að ökuskírteinið mitt var víst í bílnum mínum einhversstaðar annarsstaðar á landinum... Snigglingurinn ég! Pabbi heppinn að fá að keyra alla leiðina heim í gær... ;)
Jæja, það er enn eftir... Á laugardaginn skelltum við kellurnar okkur í dekur í sveitinni. Rosalega gott alveg. Komst reyndar að því um kvöldið að ég þoldi ekki maskann sem var settur framan í mig. Í stuttu máli er fésið enn algjört mess...
En á meðan við létum dekra við okkur voru karlarnir látnir passa börnin á bænum og grilla ofan í okkur. Og þvílík veisla! Bakaðar kartöflur, kjúklingabringur, svínakjöt og hefnukjöt. Já, ég smakkaði hrefnukjöt og það var bara mjög gott!

föstudagur, ágúst 11, 2006

Myndablogg 

Tennan tekkti eg a medan hann var a lifi...
Myndina sendi ég


miðvikudagur, ágúst 09, 2006

Súðavík here I come...
Fæ loksins eitthvað smá sumarfrí. Bruna út á flugvöll eftir vinnu á morgun og flýg til Ísafjarðar. Ætla svo að hlaða batteríin í Súðavík um helgina. Hef ekki komið þangað síðan um Hvítasunnuna í fyrra, löngu kominn tími til að fara aftur. Það verður örugglega soldið skrýtið að koma þarna og hafa engan afa Sigga. Hlakka samt til að fara og get ekki beðið eftir að fara í róður og reyna að veiða í soðið...

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Alltaf batnar það...
Mér finnst nú frekar hallærislegt að heyra jólalag í útvarpsauglýsingu í byrjun ágúst. Þetta toppar það nú samt með stæl!

laugardagur, ágúst 05, 2006

Sjálfstætt fólk
Ég fór í Ikea og eyddi smá peningum í dag. Peningaguðinn sá nú samt til þess að ég eyddi ekki of miklu, allavega fór ég bara út með einn hlut af þremur sem ég ætlaði að kaupa. Það virðist því ætla að verða álíka mikið ævintýri að fá þessar hillur eins og var fyrir ári síðan þegar ég keypti hillusamstæðuna...
Ég keypti semsagt stærðarinnar bókahillu í stofuna. Sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég var ein á ferð og þurfti því að koma pakkanum heim á eigin spýtur. Pakkin er nú engin smásmíði og þyngdin á honum eftir því. Mér tókst samt nokkuð vandræðalaust að koma honum í bílinn eftir að vera búin að leggja niður öll sæti og gera aðrar tilfæringar. Erfiðara var að koma ferlíkinu aftur úr bílnum og inn í íbúðina. Mér tókst að rogast með þetta heim að húsi en þar munaði líka litlu að ég missti herlegheitin á stéttina. Kassinn fékk því að standa upp við húsvegg í góða stund á meðan ég safnaði kröftum í næstu atrennu. Sú endaði, sem betur fer, með því að kassinn náði inn á stofugólf og þar situr hann enn... Ýki nú samt ekki þegar ég segi að ef ég hefði þurft að bera þetta einn meter í viðbót hefði eitthvað látið undan, ég eða hillan... Ég geng nú samt ekki alveg heil til skógar eftir þetta ævintýri því mig verkjar í handleggina og það eru einhverjar litabreytingar í gangi, bæði á úlnliðunum og upphandleggjunum... Já, sjálfstæðið svo sannarlega að drepa mann hérna... ;)

þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Titlar
Ég held að ég sé hætt að kvarta yfir óheppni minni. Í leiðinni tek ég ofan fyrir henni Baddý sem hér með hlýtur titilinn óheppnasta manneskja ársins...
Og talandi um titla... Helga frænka krýndi mig í dag frænku ársins! Ekki slæmt, ekki slæmt...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?