þriðjudagur, september 26, 2006
Nú er mér nóg boðið!
Það er ástæða fyrir drauminum um einbýlishús. Nefnilega nágrannar... Ég fékk nýjan nágranna í sumar. Stigagangurinn búinn að anga eins og öskubakki síðan. Nú þekki ég þennan nágranna ekki persónulega, en ef ég læt verkin tala þá finnst mér ég þekkja hann miklu meira en nógu vel...
Í kvöld kom ég heim úr vinnunni klukkan 22, búin að vinna frá því snemma í morgun. Varð að setja í þvottavél því ég átti engan hreinan brjóstahaldara til að fara í í vinnuna á morgun. Skellti þeim því í vélina ásamt einhverju fleiru. Vélin var reyndar upptekin þannig að ég komst ekki að fyrren um 23. Þá var ég orðin ansi þreytt en fann mér ýmislegt til dundurs á meðan ég beið eftir þvottavélinni. Þegar ég svo fór fram í þvottahús til að hengja upp úr vélinni greip ég í tómt, eða svo að segja. Nágranninn hafði tekið þvottavélina úr sambandi í miðju kafi þannig að þvotturinn var ógeðslegur. Við hlið hennar fann ég svo frekar ruglingslegt bréf frá nágrannanum þar sem hann lætur ýmislegt flakka og endar á að segja að það sé bannað að þvo seint á kvöldin. Ok, ég veit að það heyrist soldið þegar vélin er að þvo og því kannski ekki ákjósanlegt að þvo svona seint. EN það er ekki eins og ég stundi það að þvo svona seint og stundum brýtur nauðsyn lög (þó engin séu lögin í þessu tilfelli). Svo hefði til dæmis verið mjög einfalt að labba nokkur skref og benda mér á það væri ekki vinsælt að þvo á þessum tíma (það er mjög einfalt að sjá hver er að þvo) í staðinn fyrir að taka helv. vélina úr sambandi í miðju kafi og afla sér þannig frekari óvinsælda. Þarna var mér nóg boðið. Mig langaði mest að setja vélina aftur í gang, helst á eitthvað langt og extra hávaðasamt kerfi... En ég nenni ekki einhverju meiru böggi frá nágrannanum þannig að ég svaraði bréfinu og bað hann um að hugsa vel til mín, brjóstahaldaralausri, í vinnunni á morgun...
Finnst ykkur ÉG vera sú ósanngjarna í þessu máli?

sunnudagur, september 24, 2006
Að rofa til...
Jæja, það er eitthvað byrjað að rofa til í kollinum á mér. Er búin að taka ákvörðun í sambandi við aukavinnurnar, svefnherbergið orðið mönnum bjóðandi (haha, hægt að misskilja...), restin af íbúðinni örlítið skárri en við síðasta blogg og ég var að koma inn frá því að skafa ónýta málningu af gluggunum hjá mér svo ég geti nú loksins farið að mála þá. Ekki slæmt.

þriðjudagur, september 19, 2006
To be or not to be... workaholic...
Já, það er sko ekkert grín að fara úr því að leggja sig á hverjum degi eftir venjulegan átta stunda vinnudag og yfir í það að vinna allt upp í 14 tíma á dag 6-7 daga vikunnar. Er semsagt búin að koma mér í hvorki meira né minna en tvær aukavinnur og er að vinna 3-4 kvöld í viku, beint eftir hina vinnuna, aðra hverja helgi alla helgina og hina helgina bara laugardag. Semsagt, vinna í 13 daga (+flest kvöld) og frí í einn dag. Sumir segja að ég sé brjáluð en hingað til hef ég blásið á það og kallað þetta sjálfsbjargarviðleitni. Því, mikið rétt, peningar vaxa ekki á trjánum heldur þarf maður að vinna til að eignast þá og ef ég skil dæmið rétt þýðir mikil vinna meiri peninga en lítil vinna...
En já, ég er búin að vera frekar þreytt undanfarið og hef ekki bara kennt mikilli vinnu og litlum svefni um það, heldur líka því að ég er hætt að hafa tækifæri til að leggja mig á daginn, eitthvað sem ég hef gert frá því ég man eftir mér. Er samt viss um að það lagist með tímanum. En svo er annað sem ég efast um að lagist með tímanum og það er áhyggjuefni. Síðustu daga hef ég verið að finna meira og meira fyrir ýmsum gömlum meiðslum. Vonda hnéð er að hrekkja mig talsvert. Ökklinn sem lemstraðist í fótboltaleik á milli kennara og nemenda fyrir einu og hálfu ári eða svo er eitthvað að mótmæla þessa dagana. Þumallinn sem ég rústaði á gamlárskvöld lætur svo sannarlega finna fyrir sér núna og svo bara brakar og brestur í öllum skrokknum. Vá, þetta hljómar eins og ég sé eitthvað brotajárn... sem ég er ekki. Vonandi er ég bara að "afryðgast" eða eitthvað, en ef þetta fer ekki eitthvað að lagast á næstunni er ég hrædd um að ég verði að minnka við mig vinnu. Reyndar er fleira en þetta sem styður það að ég minnki við mig vinnu. Æ oftar böggar hnéð mig við akstur (kúplingin sko, af/á) og ég var eiginlega búin að ákveða að losa mig bara við bílinn og slá fullt af flugum í einu höggi - spara peninga, fá meiri hreyfingu... En það þýðir líka að ég get ekki unnið þar sem ég vinn því það er ómögulegt að komast á milli þessara staða á þeim tíma sem ég hef til þess ef ég er ekki á bíl. Þannig að ef ég losa mig við bílinn verð ég líka að losa mig við vinnurnar mínar. Já, það er svo sannarlega margt í gangi í höfðinu á mér núna og valkvíðinn að gera mig gráhærða (meira en ég er nú þegar... ;))
Í kvöld slæ ég nú samt öllu upp í kæruleysi, ligg í sófanum með afganginn af blushinu frá því um daginn mér í hönd og horfi á draslið sem tröllríður öllu í kringum mig. Mér dettur ekki í hug að lyfta litla fingri til að gera eitthvað í því í kvöld.

föstudagur, september 08, 2006
"Pabbi minn veit hvar buskinn er, hann fór þangað í gær..."
Bara ef lífið væri svona einfalt... Í dag er ellefti dagur í kvefi og ræmu og ég gæfi ansi mikið fyrir að endurheimta heilsuna. Kannski ég reyni bara að hafa uppi á viðkomandi pabba og senda hann út í buskann til að sækja röddina mína... Ætli það sé hægt?

mánudagur, september 04, 2006
Það er allt á floti allsstaðar...
Ég er svo sannarlega búin að standa í ströngu síðasta klukkutímann eða svo. Það fór nefnilega að flæða upp um niðurfallið inni á baði hjá mér. Sem betur fer var ég heima því annars hefði flætt fram á parketið. Þegar ég fór að kanna málið frekar kom í ljós að þvottahúsið frammi var líka á floti. Þá var lítið annað að gera en að hringja á Hreinsibíla, hélt ég... Þeir bara svöruðu ekki í símann. Enginn af þeim sem eitthvað vita um þetta mál hér í húsinu var heima. Fyrir rest, á milli þess sem ég þurrkaði upp eitthvað af vatni, hringdi ég út um allar trissur og náði fyrir rest í Holræsahreinsun og er eiginlega bara að bíða eftir þeim núna. Þori ekki fyrir mitt litla líf að hella vatninu sem ég er búin að þurrka upp (þrjár fullar fötur), hvað þá að fara á klósettið fyrr en það er búið að koma þessu í lag... Ekki beint það sem ég þurfti einmitt núna, ennþá þrælkvefuð og drulluslöpp.