<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, febrúar 26, 2007

Hvað er málið?
Ligg heima með flensu. Er illt í bakinu, með hausverk, hita og svo rosalega hálsbólgu að það er eins og ég sé með gaddabolta í hálsinum og það er átak að kyngja. Gerði heiðarlega tilraun áðan til að gleypa bólgueyðandi verkjatöflu svo mér liði nú kannski eitthvað betur, en það fór ekki betur en svo að taflan festist í bólgna hálsinum... Ekki svo gott sko...

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

X-faktor
Á morgun er öskudagur. Það þýðir að í kvöld þarf ég að fiffa eitthvað átfitt til að skreyta sjálfa mig í vinnunni á morgun. Skrapp þess vegna í Rúmfatalagerinn í dag. Fann þar lager af blöðrum sem ég hafði mikinn áhuga á, sérstakan áhuga hafði ég þó á blöðrupokunum sem ég sá glitta í neðst í hrúgunni sem var, by the way, í neðstu hillunni. Settist því á hækjur mér og hóf að róta í herlegheitunum. Eins og mér einni er lagið tókst mér að fá hálfa hrúguna yfir mig í látunum og var í óða önn að reyna að troða draslinu aftur inn í hilluna, sem gekk reyndar frekar illa því það kom allt aftur á móti mér þegar ég hélt áfram að reyna að róta niður á blöðrurnar sem ég ágirntist, þegar strákur, á að giska fimm ára, settist við hliðina á mér. Stráksi horfði mikið og vel á handlegginn á mér á meðan hann spjallaði við mig um blöðrurnar og kepptist við að moka þeim aftur í hilluna. Spurði mig svo, eftirvæntingin skein úr andlitinu, "Ertað vinní X-faktor?" "Er ég að vinna í X-faktor?" hváði ég, enda ekkert tengd þeim þætti þó ég sé náttúrulega bæði glæsileg og hæfileikarík... ;) "Neeei" sagði ég og horfði um leið á hvernig stráksi varð hálf kindarlegur á svipinn, horfði sem aldrei fyrr á handlegginn á mér og sagði svo "en þú ert með svona X..." Það var ekki fyrr en ég leit sjálf niður á handlegginn að ég skildi hvernig í pottinn var búið, á ofanverðri ermi peysunnar sem ég var í var nefnilega saumað svona líka flott X, ekkert þó skylt þessu hér... Stráksi skildi að hann hafði verið aðeins of fljótur á sér, enda eflaust ólíklegt að starfsfólk X-faktor stundi það að synda í blöðrum á almannafæri, og skipti því um umræðuefni. "Hvar ertu þá að vinna?" spurði hann, með örlítið minni eftirvæntingu en áður. Mér sýndist ég samt vaxa aftur í áliti þegar ég sagðist vinna á leikskóla. "Vinnurðu kannski á mínum leikskóla?" var svo það síðasta sem stráksi sagði áður en pabbinn kom og dró hann í burtu.

mánudagur, febrúar 19, 2007

Hrein og tær snilld!!!
Fékk þetta líka snilldar ráð í pósti í dag, get ekki annað en deilt því með ykkur... Njótið vel!



HOW TO CLEAN THE HOUSE
1. Open a new file in your
PC .
2. Name it "Housework."

3. Send it to the
RECYCLE BIN.
4. Empty the
RECYCLE BIN.
5. Your
PC will ask you, "Are you sure you want To delete Housework permanently?"
6. Calmly answer, "Yes," and press mouse button firmly...

7. Feel better?

Works for me!


sunnudagur, febrúar 18, 2007

Aldrei, aldrei, aldrei...
...aldrei aftur fara á djammið á hælaskóm, sérstaklega ekki nýjum hælaskóm. Það er reyndar deilt um það hvort þeir teljist sem hælar eða ekki, en miðað við aðra skó í minni eigu eru þetta talsvert háir hælar... En í dag er ég semsagt hálf farlama eftir ævintýri næturinnar. Ég missteig mig "bara" svona tuttugu sinnum og hælsærin eru svo slæm að það jaðrar við að þau jafnist á við lappirnar á mér eftir fyrstu dagana í Interrailferðinni góðu... Sem er ekki gott... Að öðru leyti var kvöldið mjög skemmtilegt. Spes, en skemmtilegt!

miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Undur og stórmerki!
Í fyrrinótt var ég sofnuð fyrir miðnætti og náði átta tíma svefni. Í gærkvöldi var ég sofnuð fyrir klukkan ellefu og náði hvorki meira né minna en níu tíma svefni. Ekki nóg með þetta, ég skellti mér í ræktina eftir vinnu í dag!
Ég verð eiginlega að viðurkenna að ég þekki þessa nýju mig ekki sérlega vel en vel líkar mér það sem ég hef séð, nudd í vændum á föstudaginn og bara allt að ske!

sunnudagur, febrúar 11, 2007

Haha
Var að fletta Blaðinu frá í gær (laugardag) og sá þar hvorki meira né minna en mynd af mér!
Verðlaun í boði fyrir þann sem finnur mig í Blaðinu... ;)

föstudagur, febrúar 09, 2007

Home sweet home
Eins og mér finnst rosalega gaman að flakka þá finnst mér ekkert betra en að koma aftur Heim. Já, Heim með stóru H-i. Heim í rúmið mitt. Heim á klósettið mitt. Bara Heim.
Ég var semsagt í Boston um síðustu helgi. Var þar á ráðstefnunni Progress and Challenges in the Behavioral Treatment of Autism. Mjög stíf dagskrá og margt fróðlegt og áhugavert. Hafði líka smá tíma til að hitta Boggu (mjög hentugt að hafa einhvern local með í verslunarferð...) og verslaði líka "pínu"... Í heildina frábær ferð. Það var þó einn (eða fleiri) galli á gjöf Njarðar. Þeir sem þekkja mig vita að ég er ekki lyftukona. Það er að segja þá nota ég stigana ef ég mögulega get. En ég gat ekki notað stigana upp á hótelherbergið því það var á 24. hæð takk fyrir! Frábært útsýni en því fylgdi sjóriða alla helgina eftir allar lyftuferðirnar upp og niður. Hótelið og ráðstefnuhöllin voru svo sambyggð, meira að segja með molli líka þannig að maður þurfti í rauninni aldrei að fara út úr húsi. Það var nú samt þannig að hvergi var opnanlegur gluggi og allstaðar ógeðslegt loftræstikerfi sem gerði mig skrýtna í hausnum. Svo var það hljóðkerfið í salnum í ráðstefnuhöllinni, það bergmálaði svo asnalega að ég var bæði með hausverk og hellu allan tímann sem ég var þar inni. Ég var því með sjóriðu, hausverk og hellu (eða í einu orði frekar undarleg í hausnum) meira og minna alla helgina en þrátt fyrir það tókst mér að innbyrða heilmikinn fróðleik, sanka að mér enn meiri fróðleik á pappír, eiga gæðatíma með Boggu, prófa allskonar mat (amerískan og ekki svo amerískan), sjá hluta af Boston (aðallega út um bílglugga), versla "pínu smá" og yfirgefa veitingastað til að sækja vegabréfið mitt svo ég geti keypt mér bjór með matnum. Geri aðrir betur!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?