laugardagur, mars 31, 2007
Story of my life...
Kökudagur í vinnunni í gær. Ég ætlaði nú ekki lítið að slá í gegn þar með draumtertunni hennar mömmu. Eitt "smávægilegt" atriði gerði það svo að verkum að það varð eitthvað lítið úr bakstrinum hjá mér á fimmtudagskvöldið... Ég hefði reyndar getað sagt mér það sjálf fyrr um daginn að þetta ætti eftir að verða eitthvað skrautlegt. Ég átti nefnilega leið í búðina í hádeginu og verslaði þá það sem mig vantaði í gúmmulaðið, geymdi svo bara pokann í ísskápnum í vinnunni. Eftir vinnu var ég svo komin næstum alla leið heim, gangandi og tímabundin, þegar ég áttaði mig á að ég var ekki með pokann með mér... Það reddaðist nú samt án mikilla vandræða. Ég var frekar þreytt eftir viðburðaríkan dag og ætlaði því eftir kvöldmatinn að skella í köku og fara svo snemma að sofa. En nei, það var víst ekki í boði fyrir mig þetta kvöld. Ég var búin að vigta þurrefnin í skál, skera niður súkkulaðið í fyllinguna, búa til mót úr smjörpappír og í rauninni bara búin að undirbúa allt, mundi meira að segja eftir að kveikja á ofninum. Snéri mér svo við til að skella kökudeiginu saman og heyrði þá þennan líka svakalega hvell fyrir aftan mig. Það var nú ekki margt í eldhúsinu sem gat skapað svona mikinn hávaða þannig að ég leit á eldavélina og sá þá hurðina á ofninum verða að mósaiklistaverki!

Ég var snögg að slökkva á ofninum og forða mér úr eldhúsinu. Eftir að hafa jafnað mig í smá stund og hugsað fram og til baka hvað ég gæti gert í stöðunni ákvað ég að fara í búðina og kaupa tilbúna botna. Á leiðinni var ég enn í svo miklu sjokki að ég fattaði þegar ég var komin langleiðina upp í breiðholt að ég var kannski ekki alveg á réttri leið... Ég fékk samt botna á endanum og þó að ég hafi ekki getað bakað draumtertu fékk liðið stórslysatertu í staðinn... Eftir vinnu í gær fór ég svo og splæsti í nýja eldavél. Hefði reyndar gjarnan viljað nota tækifærið og taka eldhúsið í gegn, en það er víst ekki alveg á fjárhagsáætlun á næstunni þannig að eldavélin varð duga í þetta skiptið. En sagan er ekki enn búin. Eldavélin var nefnilega keyrð heim til mín í dag og gamla tekin. Sökum þynnku var ég ekkert að flýta mér sérstaklega að taka kassann utan af eldavélinni en þegar ég gerði það kom í ljós að enginn rafmagnskapall var með þannig að það er ekki hægt að tengja vélina. Og verslunin lokuð þangað til á mánudag. Nýja eldavélin blokkerar því enn allt eldhúsið hjá mér, ónothæf, og ég kemst hvorki til að vaska upp né tæma ruslið...

þriðjudagur, mars 13, 2007
Afrek!
Það eru dáldið mikið mörg ár síðan ég sá það að ég ætti aldrei eftir að verða afrekskona í íþróttum. Ekki skilja þetta þannig að það hafi einhverntíman verið draumurinn að verða afrekskona í íþróttum, það er samt alltaf gaman þegar vel gengur - sama hvað það er. Ég hef til dæmis afrekað eitt og annað skemmtilegt í gegn um tíðina þó íþróttir tengist því ekki að öðru leyti en því að ég hef slasað mann og annan, og sjálfa mig með, í hinum ýmsu íþróttagreinum. Nei, það eru önnur afrek en glæsileg frammistaða í íþróttum sem ég er þekkt fyrir. Svona eins og að geta slasað mig á hlutum sem enginn annar getur slasað sig á, fá fáránlegar hugdettur og framkvæma þær og svo afrakstur almennrar óheppni, seinheppni og hrakfara. Afrek mín eru semsagt misjafnlega gleðileg fyrir mig þó að aðrir geti eflaust glaðst, og jafnvel hlegið, yfir þeim flestum.
Afrek dagsins er gleðiefni. Í dag fagna ég því að ég hef ekki smakkað eðaldrykkinn Coka cola (eða aðra kóladrykki) í heilar tvær vikur og þykir það talsvert afrek!

föstudagur, mars 09, 2007
WTF
Lenti í smá óhappi í dag. Þegar um mig er að ræða eru það svosem engar fréttir, en í dag held ég reyndar að ég hafi slegið nýtt met í fáránlegu óhappi... Það var nefnilega potað í augun mín í dag. Nei, ekki augað heldur augun... Bæði í einu! Mæli satt að segja ekkert sérstaklega með þessari meðferð og reyndar held ég að það sé kominn tími til að ég fái borgaða áhættuþóknun í vinnunni... Augnapotið bætist hér með ofan á pollabuxnaslysið í janúar (puttinn er enn eitthvað duló...), tilraunina til að sneiða puttann ofaná brauð í haust og fleiri minni atvik.

mánudagur, mars 05, 2007
Viltu Póló?
Ég var ótrúlega dugleg í dag. Kom heim úr vinnunni tuttugu mínútur í fimm. Tók af snúrunni og snaraði mér í íþróttadressið. Var mætt í ræktina á slaginu fimm. Fékk þar leiðsögn um tækjasalinn og púlaði ansi vel og lengi. Var komin heim tuttugu mínútur í sjö, stökk í sturtu og brunaði svo í vinnuna þar sem ég labbaði inn fimm mínútur yfir sjö. Nokkuð vel af sér vikið, finnst mér. Nú er það svo bara harkan sex og ræktin þrisvar í viku eða svo.
En talandi um dugnaðinn í mér (verður maður annars ekki að vera ánægður með sjálfan sig...?), þá hætti ég að drekka kók í veikindunum í síðustu viku! Ég gerði heiðarlega tilraun til að drekka kók, en það var bara svo hræðilega vont að ég tók þá ákvörðun að hætta bara þessari vitleysu og er búin að drekka vatn í tonnatali síðan, og hvað? Jú, mér líður ekki bara betur heldur er ég líka búin að missa einhver kíló í leiðinni! Ekki leiðinlegt það!

laugardagur, mars 03, 2007
Simply the best!
Ég gerðist ansi húsleg í dag.
Surprise, surprise... ég tók grenilengjuna með jólaseríunni inn af skjólveggnum mínum í dag! Reyndar löngu tímabært, eeeeen...
Mundaði líka drullusokkinn í morgun. Niðurfallið í baðkarinu mínu fékk að kenna á mér og sokknum, ekki vanþörf á þegar heil hárkolla situr sem fastast þarna niðri...
Þá er ég búin að brjóta saman þvott sem ég segi ekki einu sinni hvað er búinn að bíða lengi eftir að láta brjóta sig saman. Ótrúlegt alveg hvernig hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér hérna...
Er reyndar líka búin að gera skemmtilegt. Hitti mömmu, Helgu og Sirrý og labbaði með þeim Laugaveginn. Eins gott að ég skildi allan peninginn minn eftir heima, annars hefði ég kannski bara splæst í leðurjakka... ef hann hefði passað sko... Alltaf að græða... ;) Fórum svo á opnun myndlistasýningar hjá Fríðu frænku á Sólon. Rosa flott og rosa gaman.
Svo er ég búin að redda fari fyrir aukarúmið mitt til pabba og mömmu þannig að það er aldrei að vita nema ég fari að púsla saman restinni af fínu hillunum í stofuna mína...