<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, apríl 16, 2007

Gömul geit
Í dag eru hvorki fleiri né færri en nákvæmlega 15 ár síðan ég fermdist! Er maður orðinn gamall eða hvað...? Árin eftir fermingu allavega orðin fleiri en árin fyrir fermingu, fermingarkjóllinn löngu farinn á haugana og fermingarmyndirnar vandlega geymdar þar sem aldrei sést til sólar...

Annars er ég búin að brasa ýmislegt síðasta hálfa mánuðinn eða svo. Á einum og sama deginum tókst mér að leigja út svefnherbergið mitt fyrir sumarið, kaupa nýja eldavél og finna kaupanda að bílnum mínum. Búin að láta tengja eldavélina (betra að sleppa því að gera það sjálf svo það springi ekki fleiri hurðir...), umsnúa stofunni hjá mér, kaupa mér strætókort (eina vesenið við að vera á strætó er að halda sér vakandi á leiðinni...), vinna heilan helling, fara í bíó, á tónleika og framkvæma heljarinnar gæsun svo eitthvað sé nefnt. Líka búin að gera dauðaleit að passanum og finna hann, ætla ekki að lenda í því sama og þegar ég fór til Sólveigar um páskana í fyrra...

mánudagur, apríl 02, 2007

Bíllinn seldur!
Já, gerði mér lítið fyrir í hádeginu í dag og seldi undan mér bílinn! Stefni á að koma mér upp heilum bílaflota í staðinn. Er ekki Volvó nokkuð traustur? Er soldið að spá í gula litnum... Svo vil ég hafa soldið pláss í kringum mig og ekki verra að hafa kannski einkabílstjóra líka... Síðan, svona af því að ég er nú svo afspyrnugóð, þá er ég alveg til í að leyfa fólki að sitja í með mér...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?