þriðjudagur, maí 22, 2007
Blessuð börnin
Þegar maður vinnur með börnum kemst maður ekki hjá því að bæði sjá og heyra ýmislegt skemmtilegt í vinnunni.
Í dag var ég að spjalla við einn soldið mikinn gaur. Allt í einu skipti hann alveg um gír og byrjaði:
Hann: Heyrðu Sigrún. Peysan þín er rosalega flott!
Ég: Takk fyrir það.
Hann: Hún er nebblega sko alveg í stíl við hárið þitt...

fimmtudagur, maí 17, 2007
Stronger than fiction
Mér var aldeilis refsað fyrir það að hreyfa ekki á mér rassgatið í allan dag.
Fór út um kvöldmatarleytið (sem var á nokkuð eðlilegum tíma hjá mér í þetta skiptið...) til að skótast að kaupa mér eitthvað gott að borða þar sem ég er á pabbabíl þessa dagana. Var rétt búin að aflæsa bílnum þegar ég tók eftir því að það var sprungið á honum. Greit. Það var því ekki um annað að ræða en að bretta upp ermarnar og sýna hvað í mér býr... Skipti um dekk á mettíma og aðgerðin gekk eins og í sögu, eiginlega meira að segja bara betur en í sögu. Allavega mun betur en í sögunni sem ég ætla að deila með ykkur...
Fyrir nokkrum árum bjuggum við systur báðar í borginni og deildum forláta kagga. Eðalkagginn okkar var af gerðinni Hyundai Pony "Jeep", en jeppatitilinn hlaut hann fyrir að standa sig einstaklega vel í þeim ævintýrum sem við sendum hann út í. Jeppinn okkar var reyndar örlítið dyntóttur, eins og kannski gengur og gerist með þreytta eðalkagga sem eru búnir að lenda í ýmsu. Helst vildi hann til dæmis láta klappa sér soldið á mælaborðið áður en hann ákvað að fara í gang, honum var meinilla við að keyra Laugaveginn og aðrar götur þar sem þurfti að keyra hægt og stundum hætti hann bara að nenna að keyra og þá drap hann á sér, jafnvel á miðjum gatnamótum. En ég ætla ekki að tala meira um þessa dynti, heldur um vinstra afturdekkið sem lak úr og þurfti reglulega að pumpa í.
Kvöld eitt ákváðum við systur, ásamt Guðrúnu frænku og Önnu vinkonu, að gera okkur glaðan dag. Förinni var heitið í miðbæinn þar sem við ætluðum aldeilis að djamma, en þá var eitt vandamál sem þurfti að leysa. Guðrúnu frænku vantaði nefnilega nokkra daga uppá að vera hleypt inn á skemmtistaði... Við undirbjuggum okkur því nokkuð vel, fannst okkur allavega. En þrátt fyrir undirbúning og góðan vilja komst Guðrún ekki inn á þá staði sem við reyndum við og ekki vildum við skilja hana eftir. Við gáfumst því upp á endanum og fórum heim til mín, í "besta fatahengi bæjarins", enda stutt að fara því ég bjó í miðbænum á þessum tíma.
Þar sem kvöldið hafði að mestu farið í að reyna að finna stað sem við komumst allar inn á vorum við ekki bara edrú, heldur var skemmtanagleðin sem kom okkur af stað fyrr um kvöldið líka runnin af okkur. Það var því ákveðið segja þetta gott og að ég myndi keyra stelpurnar heim. Og þá erum við aftur komin að dekkjavandamálinu litla... Því þegar við komum að bílnum sá ég nefnilega að það var kominn tími til að pumpa í dekkið. Ekki var nú mikið um dekkjapumpur í miðbænum þannig að ég ákvað að fara á Shellstöðina á horninu á Laugavegi og Kringlumýrabraut því þá væri alveg í leiðinni að keyra Önnu heim, sem ég og gerði.
Þegar ég steig svo út úr bílnum til að pumpa í dekkið varð mér það ljóst að það þurfti ekki lengur að pumpa í það, heldur þurfti að skipta um það. Til að bæta gráu ofan á svart byrjaði að rigna þegar ég opnaði skottið til að sækja verkfæri og varadekk. Ég stóð því í rigningu, um miðja nótt, í djammgallanum og hófst handa við að losa hjókoppinn af loftlausa dekknu. Fékk nett sjokk þegar koppurinn fór af því þá sá ég að einn boltinn sem hélt dekkinu var brotinn. Dekkið hékk á boltanum en hausinn var brotinn af. En sjaldan er ein báran stök... Eða kannski er ég bara "stronger than fiction"... Allavega, þegar ég stóð þarna, í rennblautum djammgallanum um miðja nótt og hamaðist við að losa restina af boltunum til að ná dekkinu af heyrðist allt í einu smellur og svo hélt ég á hálfum bolta... Ég hafði brotið annan!
Þó svo að það virðist vera í lagi að keyra með dekkið fest með þremur boltum fannst mér hæpið að halda áfram og keyra burtu á tveimur boltum. Ég hringdi því í Önnu, sem ég var tiltölulega nýbúin að keyra heim. Hún aumkaði sig yfir okkur, og þrátt fyrir að vera ekkert svakalega glöð yfir að vera dregin aftur út í nóttina kom hún og sótti okkur og keyrði okkur allar heim.
Eðal kagginn minn var svo dreginn burt daginn eftir og lappað upp á hann þannig að hann átti enn eftir að lenda í ýmsum ævintýrum áður en hann dó, sama dag og Keikó...

laugardagur, maí 12, 2007
Einvígi aldarinnar
Einhverntíman í vetur, nánar tiltekið í nóvember, skrifaði ég um konuna og veiðistöngina.
Ég bætti því víst aldrei við að helgina eftir veiðina virðist sem einhver annar hafi hangið fastur og slitið sig lausan með látum, allavega var stærsta greinin brotin.
Síðan leið langur tími og ekkert gerðist. Um daginn sá ég svo að einhver hafði greinilega gefist upp á framtaksleysi mínu í trjáklippingum og ráðist á rósina sem var eiginlega orðin að ofvöxnu skrímsli. En þetta gerði bara illt verra.
Þess vegna tók ég mig til í morgun og gallaði mig vel upp. Fór svo út í garð, vopnuð trjáklippum, og réðst á skrímslið. Einvígi aldarinnar tók góðan klukkutíma og fór fram í sól og u.þ.b. 12 metrum á sekúndu. Afraksturinn voru tveir fullir ruslapokar af greinum, ansi margar stungur og rispur á höndunum (þrátt fyrir hanska) og ein grein í augað. Tel ég það nokkuð vel sloppið...
Reyndar er ég búin að ráðast með trjáklippunum á fleira en rósina síðustu daga. Búin að snyrta svona 1/3 af trjánum sem loka garðinum mínum og strípa ljótu trén við skjólvegginn. Samtals 4 pokar með rósinni. Spurning hvort það borgar sig að hleypa mér með klippur á plöntur sem pirra mig... ;) Verð nú samt að viðurkenna að garðurinn er orðinn örlítið huggulegri eftir hamaganginn í mér...

fimmtudagur, maí 10, 2007
Játning...
Það kemur fyrir að ég kippi með mér allskonar svona ókeypis lesefni þar sem það er í boði. Þar sem það er ókeypis eru gæðin líka kannski frekar misjöfn. Myndir mánaðarins enda til dæmis alltaf sem klósettlesefni hjá mér.
Um daginn tók ég eintak af Grapevine með mér heim úr búðinni. Ýmislegt forvitnilegt í því blaði... Þar fann ég meðal annars gaur sem hefur, eins og ég, áhuga á of heitu baði - lýsing hans á hinu fullkomna baði var nánast eins og ég hefði sjálf skrifað hana... Gaman að því!

sunnudagur, maí 06, 2007
Pikkí?
Ég veit ekki alveg hvað er í gangi, en undanfarið hefur stjörnuspáin mín á mbl.is ítrekað átt skuggalega vel við mig. Þegar ég las svo stjörnuspá dagsins í dag tapaði ég mér gjörsamlega og meig næstum í mig af hlátri.
Stelpur, ég tek það fram reglur eru ekkert endilega slæmar og ég er ekki pikkí... Vandlát er rétta orðið enda á maður ekki að sætta sig við hvað sem er!
Stjörnuspá dagsins í dag á mbl.is er svohljóðandi:
Steingeit: Það vantar eitthvað í líf þitt. Það er mögulegt að þú hafir farið á mis við það vegna reglna sem þú settir þér. Reglur finna sér leið í undirmeðvitundina, en þú getur breytt þeim þegar þörf krefur.