laugardagur, júní 30, 2007
Gjörningur
Eftir gærkvöldið þekkja sumir mig sem gjörningakonuna. Ætla svosem ekki að fara að telja upp alla afrekaskrána mína hér en ef einhvern vantar vana manneskju í að frussa grænum Woody´s út um nefið á sér þá tek ég við pöntunum í kommetakerfinu hér fyrir neðan...

laugardagur, júní 23, 2007
Gaman að'essu
Ég fjárfesti í þessari líka dýrindis drossíu í vikunni. Rándýrt kvikindi, en alveg dásamlegt engu að síður. Drossían hefur reyndar aðeins tvö hjól og hefur það hlutverk að koma mér í þokkalegt form í sumar.
Mamma var reyndar frekar skeptísk á þessi kaup mín í fyrstu. Fannst ég vera að borga soldið mikið fyrir eitthvað sem ég gæti fengið fyrir minni pening. Sætti sig við þetta þegar hún sá drossíuna og bætti við að nú þyrfti ég bara að vinna í happdrættinu...
...Sem ég og gerði... Ég fékk semsagt bréf í gær sem sagði að ég hefði unnið í happdrættinu og vinningurinn hefði verið lagður inn á reikninginn minn. Heilar 5000 krónur... ;) Það fyndna var að þetta var lagt inn á mig daginn sem ég keypti blessað hjólið!

laugardagur, júní 16, 2007
Allt er vænt sem VEL er grænt!
Í gærkvöldi fór ég á sumargleði starfsmanna í vinnunni minni. Þema kvöldsins var grænt. Þar sem ég saumaði mér gullkjól fyrir sumargleðina í fyrra þegar þemað var gull, þá gat ég ekki verið þekkt fyrir annað en að sauma mér grænan kjól fyrir kvöldið. Sem ég og gerði...
Ég saumaði mér semsagt eiturgrænan glimmerkjól! Til að kóróna dressið tíndi ég á mig allt grænt sem ég fann á leiðinni út... Glimmernaglalakk í sama lit og kjóllinn (já, stundum er gott að hafa ekki hendigenið...), græn fiðrildi í hárið, forláta græna hálsfesti, grænan jakka og græna tösku. Fyllti sódastreemflösku (svona gamla úr gleri) af grænum Woodys og tók með mér glas með grænum fæti. Meira að segja Prince Charming fékk að fljóta með! Kannski svosem ekkert skrýtið að einhverjar minntust á Fionu þegar ég gekk inn um dyrnar... ;)
Til að gera langa sögu stutta sigraði ég kosninguna um "Grænessuna 2007" með yfirburðum og hlaut að launum kórónu, borða, sprota og glæsilegan ferðavinning...
Ég tel mig hér með hafa sannað þá kenningu að allt sé vænt sem vel er grænt...
Í gærkvöldi fór ég á sumargleði starfsmanna í vinnunni minni. Þema kvöldsins var grænt. Þar sem ég saumaði mér gullkjól fyrir sumargleðina í fyrra þegar þemað var gull, þá gat ég ekki verið þekkt fyrir annað en að sauma mér grænan kjól fyrir kvöldið. Sem ég og gerði...
Til að gera langa sögu stutta sigraði ég kosninguna um "Grænessuna 2007" með yfirburðum og hlaut að launum kórónu, borða, sprota og glæsilegan ferðavinning...
fimmtudagur, júní 14, 2007
Halló!?!
Ég er ekki lyftukona, svo mikið er víst. Í dag fór ég samt í lyftu. Meira að segja frekar ótraustvekjandi lyftu. Alla leið upp á sjöundu hæð. Og lifði það af!
En þar með er bara hálf sagan sögð. Ég fór nefnilega líka niður með lyftunni. Steig inn í hana og ýtti á einn. Til að dreifa athygli minni frá lyftuferðinni leit ég í spegilinn sem var á einni hliðinni og sá að ég var með bólu á hökunni. Auðvitað þurfti ég að fikta svolítið í henni... Í því stoppaði lyftan. Ég sá útundan mér að það var fólk á leiðinni inn í lyftuna þannig að ég hætti snarlega að fikta í bólunni og gekk frekar vandræðaleg út úr lyftunni. Bara til að heyra fólkið kalla á eftir mér að ég vildi kannski fara alla leið niður á fyrstu hæð... Þá fyrst leit ég almennilega upp og sá að ég var stödd á þriðju hæð. Greit. Ekki veit ég hvað fólkið hélt, en mér leið allavega eins og fávita...
Já, það er sko ekki að ástæðulausu sem ég forðast lyftur eins og heitan eldinn...

miðvikudagur, júní 06, 2007
It´s movie time!
Ég var að enda við að horfa á ansi hreint áhugaverða vídeómynd. Það vantaði bara popp og kók til að fullkomna stemninguna! Það var semsagt maður hér í morgun að mynda lagnirnar undir íbúðinni minni. Þegar ég kom heim beið mín svo vídeóspóla með herlegheitunum. Svaka spennó! Næstum eins spennó og þegar við Baddý horfðum á legsigsaðgerð og uppsetningu þvagleggja í vetur...