<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, september 29, 2007

Feels like home...
Það er alltaf fínt að fara í sveitina til mömmu og pabba. Í þetta skiptið er hele familien á svæðinu og margt svipað og í "gamla daga"... Mamman og pabbinn eitthvað að bardúsa í eldhúsinu. Sólveig að spila tölvuleiki með frænkunum sem voru reyndar ekki til í "gamla daga". Ég að slaka á og fíflast með frænkunum sem voru ekki til í "gamla daga". Stebbi sitjandi í sófanum með gítarinn að spila og syngja fyrir viðstadda. Hrikalega notalegt alveg.
Annað sem er hrikalega notalegt... Leikskólarnir á Álftanesi. Fór að skoða þá í gær. Held svei mér þá að ég ætli bara að flytja á Álftanesið þegar börnin mín komast á leikskólaaldur svo þau geti farið á annan hvorn frábæra leikskólann þar. Kannski samt ekki vitlaust að eignast börnin áður en ég fer að skoða þetta eitthvað betur...

miðvikudagur, september 12, 2007

Allt eða ekkert
Hlutirnir virðast loksins vera að skríða upp á við hjá mér. Íbúðin er aaaaaalveg að verða "my style" aftur eftir sumarið, en betur má ef duga skal... Þess vegna tók ég til í fataskápnum mínum í fyrradag. Troðfyllti svartan ruslapoka af fötum sem ég mun aldrei nota aftur. Mikið afrek þar sem það vantar í mig hendigenið. Skemmti mér samt konunglega við þetta enda skutu margar minningar upp kollinum þegar ég fór í gegnum frumskóginn... Ég fann til dæmis skokkinn sem ég saumaði fyrir útskriftarferðina úr fjölbraut og klippti gat á þegar ég var að klippa síðustu endana því ég var svo stressuð eftir að hafa fryst kreditkortið mitt fáum klukkutímum áður en ég þurfti að leggja af stað... Ég fann líka kjólinn sem ég var í þegar Gunna tilkynnti mér formlega að ég hefði endanlega tapað kvenleika mínum, á fjölbrautaskólaballi... Sólveig "lét" mig troða mér í hann og hló sig svo máttlausa því henni fannst ég líta út eins og "the only gay in tha village"...
Í gær var svo Þvottadagur. Með stóru Þ-i. Sem minnir mig á að ég ætti kannski að skreppa fram og taka af snúrunum...
Ég var líka dugleg í dag. Eftir að ég kom heim úr vinnunni gerði ég mér nefnilega lítið fyrir og plöggaði tvær aukavinnur! Já, það er sko allt eða ekkert á þessum bæ!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?