mánudagur, október 22, 2007
Ó vá...
Stjörnuspáin mín á mbl.is hefur nú oft á tíðum verið ansi skrautleg. Held þó að engin þeirra komist í hálfkvisti við spána fyrir daginn í dag...
Steingeit: Amöbur eru hvougkyns, eins og frumur sem skiptast og fjölga sér. Leyndarmálið að upprætingu misrétti kynjanna er að einbeita sér að sköpun og leiða annað hjá sér.

sunnudagur, október 21, 2007
Dularfulla tunglskinið
Um síðustu helgi, nánar tiltekið á laugardagskvöldið fyrir viku síðan, skrapp ég í hús. Svosem ekkert athugavert eða fréttnæmt við það. Aftur á móti blasti við mér mjög svo áhugaverð sjón þegar ég kom út aftur. Niðamyrkur fyrir utan, tunglið í fullum skrúða og mjög svo einstakt tunglskin frá því, ljósrák sem náði frá tunglinu og alla leið niður á jörð. Ótrúlega töff! Alla leiðina heim hugsaði ég um þetta óvenjulega tunglskin og að ég yrði nú bara að ná í myndavélina þegar ég kæmi heim og ná af þessu mynd, þetta hlyti að vera eitthvað einstakt náttúrufyrirbæri... Gleymdi reyndar að taka mynd þegar ég kom heim og var í rauninni búin að gleyma þessu þangað til ég horfði á Spaugstofuna endursýnda á sunnudeginum. Prísaði mig þá sæla yfir að hafa ekki gert meira mál úr þessu blessaða tunglskini... enda átti það sér víst aðra skýringu...

þriðjudagur, október 09, 2007
Moral support, please...
Eitt af því sem mér finnst erfiðast að gera er að taka stórar ákvarðanir. Ég velti mér endalaust upp úr möguleikum og "ómöguleikum" líka ef út í það er farið og snýst í kringum sjálfa mig þangað til ég veit ekki hvað snýr upp og hvað niður. Í þessum tilfellum hugsa ég stundum að kannski væri bara best ef einhver þarna úti segði mér bara hvað ég ætti að gera, held að hlutirnir yrðu þá kannski aðeins auðveldari. Veit það samt ekki.
Síðan ég kláraði Kennó er ég búin að vera ákveðin í að mig langi til að læra eitthvað meira. Stóra spurningin var bara hvað það ætti að vera... Ýmislegt kom upp í hugann, ýmist spennandi, hagkvæmt (græða, græða... ;)) eða bæði. En aftur, svona þrisvar á dag skipti ég um skoðun á því hvað mig langaði að gera... Og þá gerist nú ekki margt...
Um daginn sá ég svo hvað mig langaði að læra. Vakti upp gamlan draum sem ég hafði ákveðið að gera ekkert meira með. Held ég hafi allan þennan tíma verið í afneitun, ekki viljað gera þetta að einhverju meira en bara hobbýinu mínu. En núna er ég viss og þá er bara að skoða skóla... Sem ég er búin að vera að gera undanfarið... Ég er búin að útiloka Ísland þannig að þá eru það bara útlöndin... Er búin að finna tvo mjög svo spennandi skóla. Annar er í London og kostar hrikalega marga peninga. Hinn er í Danmörku og kostar slatta minni pening... Ég féll fyrst fyrir þessum í London, sá seinna þennan í Danmörku og finnst hann líka mjög spennandi, þar er líka í boði mjög svipað og í London. Held ég hallist frekar að Danmörkinni þó að ég sé búin að týna dönskunni minni... Er bara ekki viss um að ég gæti búið í London. Ég hlýt líka að finna dönskuna mína aftur ef ég leita vel...
Nú er ég búin að tappa þessu af mér, þá er það næsta mál. Fimm og hálfur mánuður er soldið langur tími fyrir manneskju eins og mig sem getur gert sig brjálaða með því að hugsa hlutina í þúsund hringi áður en hún ræðst í að framkvæma þá, oft á síðustu stundu. Það er semsagt ekki fyrren í mars sem ég get sótt um, og þá með allskonar fylgigögnum sem ég þarf að útbúa.
Svo er alltaf þessi litla rödd þarna á bakvið einhversstaðar, sem spyr hvort þetta sé nú örugglega rétt ákvörðun...

fimmtudagur, október 04, 2007
Mér finnst rigningin góð...
Þá er Sólveig farin aftur út og ég orðin ein í kotinu. Feels gooooooooood... Búin að brasa ýmislegt síðan hún fór. Er meðal annars búin að vera að skoða skóla á netinu og finna nokkra sem mér finnst áhugaverðir. Eins og er líst mér mjög vel á einn í London tvo í Danmörku. Já, það var kominn tími til að spá í þetta ef ég ætla að viðhalda fjölskylduhefðinni... hehe... Ætla að kíkja á Londonskólann þegar ég fer að heimsækja Sólveigu eftir nokkrar vikur. Spennó!
Svo var ég næstum því búin að kaupa mér íbúð um daginn... Fann hina fullkomnu íbúð á netinu seint á sunnudagskvöldið. Brunaði til Soffíu Helgu og fór með henni og vinkonu hennar í miðnæturgöngu um hverfið hennar (og vonandi væntanlegt hverfi mitt...). Já, vorum á röltinu að skoða hús, utan frá og frá götunni auðvitað, ca. á milli 12 og 1 aðfaranótt mánudags... í rigningunni... Ég veit alveg að það er nú kannski ekki alveg normið, en þeir sem þekkja okkur Soffíu vita nú líka alveg að við erum sjálfar kannski ekki alveg normið ef við getum sagt svo... ;) En já, ég hringdi svo á fasteignasöluna á mánudagsmorguninn bara til að fá að vita að íbúðin var seld. Bömmer! Eeeen... Pollýanna, vinkona mín, segir að það sé einhver önnur íbúð, ennþá betri en þessi, sem bíður eftir mér þarna úti...