þriðjudagur, nóvember 20, 2007
Jarðskjálftar
Ég er alin upp í Hveragerði, eða Skjálftagerði eins og það hefur stundum verið kallað, og búin að upplifa ófáa skjálftana um ævina. Og ég er jarðskjálftahrædd, mjög jarðskjálftahrædd. Því öfunda ég engan þarna fyrir austan núna. Ég veit hvernig það er að vera ein taugahrúga í heilt sumar því jörðin var á stöðugri hreyfingu. Kannski ekki svo stórir kippir, en stöðug hreyfing og kippir inn á milli. Ég veit líka hvernig það er að vera svo taugaveikluð yfir jarðskjálftum að fréttir af skjálfa í Hveragerði eyðilögðu heilt kvöld hjá mér, og ég var ekki einu sinni á landinu... Suðurlandsskjálftann sjálfan, 17. júní 2000, upplifði ég svo íklædd kengúrubúningi standandi á sviðinu í leikhúsi Hvergerðinga. Húsið troðfullt af krökkum og foreldrum sem tróðust út á meðan ég stóð á sviðinu, stjörf af hræðslu að reyna að tala mig í gegnum skjálftann sem aldrei ætlaði að enda. Og vá hvað ég var stressuð eftir þetta. Nokkrum dögum seinna kom aukablað með mogganum, sérblað um Suðurlandsskjálftann, sem ég tók með mér upp í rúm til að lesa fyrir svefninn. Lá semsagt í rúminu, niðursokkin í jarðskjálftablaðið, þegar seinni stóri skjálftinn kom. Þá held ég að ég hafi sett hraðamet í að koma mér út úr húsi, fáklædd og skólaus, og inn ætlaði ég sko ekki aftur. Ég veit satt að segja ekki hvað hefði orðið um mig ef ég hefði verið stödd þar sem húsin fóru verst út úr þessum skjálftum.
En semsagt, fregnir af kippunum þarna fyrir austan fjall undanfarið hafa vakið upp hjá mér einhvern innri óróa. Og eins og mér finnst gott að fara í "sveitina" þá er ég glöð að vera ekki þar núna.

föstudagur, nóvember 16, 2007
Dagur íslenskrar tungu
Í tilefni dagsins var dálítið húllumhæ í vinnunni í dag. Talað um Jónas Hallgrímsson og "gamla daga", farið með íslenskar þulur og íslensk lög sungin. Hápunkturinn var samt, að mínu mati, uppfærsla starfsfólks á sögunni um hana Búkollu. Hreint meistarastykki og spurning hvort við fáum ekki bara Grímuna fyrir frammistöðu okkar... ;) Ansi hreint gaman semsagt í vinnunni í dag.
Krökkunum, sumum allavega, fannst allt þetta tilstand greinilega frekar merkilegt og eftir að hafa skoðað kistil með gömlum leikföngum átti eftirfarandi samtal átti sér stað í hádeginu...
Barn: Sigrún, varst þú til í gamla daga?
Ég: Ja, það fer nú kannski svolítið eftir því hvað við erum að tala um gamla daga...
Annar starfsm.: Ertu kannski að tala um þegar hann Jónas var uppi?
Barn: (þögn) Jaaaá... Varstu til þá?
Ég: Hvað heldur þú?
Barn: Nei, ég held ekki.
Ég: Rétt, ég er nefnilega ekki alveg svo gömul...
Barn: En varstu þá til þegar hann var niðri...?