<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, desember 31, 2007

Nú árið er liðið...
Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Enn eitt viðburðaríkt ár liðið og ég er ekki frá því að það hafi flogið hraðar en þau síðustu... En þó það hafi liðið hratt afrekaði ég nú ýmislegt.

Ég...
...komst í gegn um áramótin án teljandi óhappa...
...fór á ráðstefnu í Boston í febrúar og var þar á 24. hæð á hótelinu, lyftuhrædda konan...
...var spurð hvort ég væri að vinna í X-faktor...
...lenti ítrekað í fáránlegum óhöppum í vinnunni (potað í bæði augun mín í einu, reyndi að gefa börnunum sneið af vísifingri ofan á brauð, skaddaði annan putta með pollabuxum)...
...keypti mér nýja eldavél þar sem sú gamla tók upp á því að springa upp úr þurru...
...seldi bílinn minn...
...átti 15 ára fermingarafmæli...
...skoðaði leikskóla í Prag...
...sá snjókall á Flateyri um Hvítasunnuna...
...klippti trén í garðinum mínum...
...skipti um dekk á pabbabíl...
...hætti í aukavinnunni...
...horfði á lagnirnar undir íbúðinni minni á vídeó...
...leigði út svefnherbergið mitt í sumar...
...vann titilinn Grænessa Sólbrekku með stæl í eiturgrænum glimmerkjól...
...keypti mér hjól...
...frussaði grænu Woody´s út um nefið í afmælinu hennar Gunnu...
...sólbrann illa...
...meikaði´ða næstum því...
...hryggbraut strákinn í mjólkurbúðinni sem átti einu sinni kærustu sem átti afmæli sama dag og ég...
...kom í veg fyrir skógareld á sólpallinum mínum...
...fékk mér tvær aukavinnur í sumarfríinu mínu...
...var næstum búin að drepa mig með Tobleroni, var bjargað með Heimlich...
...missti afa Sigga í Hafnó...
...braut tönn á fílakarmellu...
...missti af Franz Ferdinard því ég var veik heima...
...hýsti Sólveigu þegar hún kom heim til að vinna launalaust á Þjóðminjasafninu...
...fékk mér nýja aukavinnu...
...fann draumaskólann minn...
...sá dularfullt tunglskin sem ég komst seinna að að væri bara friðarsúlan hennar Yoko Ono...
...fékk svo slæma sinaskeiðabólgu að ég fór á Slysó...
...heimsótti Sólveigu í London, hitti Ine þar líka og var með ælupest alla ferðina...
...átti ansi bágt með að halda andlitinu í vinnunni þegar börnin voru að spjalla við mig...
...keypti mér prjónavél...
...seldi hjónarúmið mitt...
...stækkaði íbúðina um helming með því að endurskipuleggja aðeins...
...tók til í skápum og geymslunni og fór með fullan bíl af allskonar dóti í Fjölskylduhjálpina...
...gerði örugglega ansi margt fleira sem komst ekki á þennan lista...

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!

mánudagur, desember 24, 2007

Gleðileg jól!


föstudagur, desember 07, 2007

Græjukelling
Ég hef lengi verið veik fyrir alls kyns tækjum og tólum, eða öðru nafni "græjum".
Þetta byrjaði smátt; úr, vekjaraklukkur, símar, talstöðvar, vasadiskó (já, það er svo langt síðan...) og önnur frekar smágerð rafmagnstæki sem mér fannst mjög merkileg vegna þess að þau "virkuðu" á einhvern hátt.
Næsta skref var að reyna að finna út hvernig þau eiginlega virkuðu... Já, allt sem ég náði í skrúfaði ég í sundur og reyndi að púsla því saman aftur. Oftar en ekki voru nú einhver stykki útundan, en það var nú svosem ekki aðalmálið.
Svo fermdist ég. Fékk að hafa eitthvað um það að segja hvernig græjur ég fékk í fermingargjöf. Þarna voru minigræjurnar að ryðja sér til rúms. En nei, ég vildi sko ekki svoleiðis, því ég vildi græjur með plötuspilara, takk! Þarna var ég líka farin að vera ansi kræf í rafmagnsfikti, enda fannst mér (og finnst enn í dag) allt sem "virkar" (þú ýtir á einn takka og þá gerist eitthvað) mjög spennandi.
Í kjölfarið fór græjunum mínum að fjölga og þær að stækka og verða flóknari. Í dag á ég til dæmis þrjár saumavélar (ein er reyndar antik og ekki í notkun), fjölbreytta flóru af heimilistækum og eitt og annað skemmtilegt í viðbót við þetta.
Nýjasta græjan var svo keypt í dag og bind ég miklar vonir við hana. Hún er reyndar ekki enn komin í hús, en ég get ekki beðið eftir því að fá hana í hendurnar svo ég geti farið að fikta og prófa mig áfram. Þessi græja er hvorki meira né minna en forláta prjónavél!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?