fimmtudagur, febrúar 28, 2008
Samkeppni

Hann Loo Read hefur verið á óskalistanum hjá mér frá því ég sá hann fyrst fyrir tæpum tveimur árum. Ég hélt að hann væri hreinlega búinn til fyrir mitt heimili...

...En svo sá ég þetta snilldar tæki sem færi ansi vel við hliðina á honum Gústa mínum. Ég held barasta að hann Loo Read sé kominn með keppinaut, og það ansi sterkan. Ja, nema ég komi af stað þeirri tísku að hafa tvo klósettrúllustanda á sama baðherberginu (ja, eða þrjá því það er víst einn þar fyrir)...

miðvikudagur, febrúar 20, 2008
Snillingur
Í gær pantaði ég mér pizzu og pizzusendillinn þekkti mig. Ég tók það sem merki um að ég þyrfti að vera duglegri að elda sjálf. Í kvöld ákvað ég því að búa mér til kjúklingasalat. Einfalt og gott. Næst ætla ég samt að sleppa því að hafa augun límd á Ugly Betty á meðan. Ég var semsagt búin að fylla skál af grænmeti og fetaosti, búin að steikja kjúklingabringu og var að skera hana niður þegar mér tókst að grýta grænmetisskálinni í gólfið þannig að olíubaðað grænmeti skreytti hálfa eldhúsinnréttinguna og stóran hluta af eldhúsgólfinu. Greit. Kannski þetta hafi bara verið merki um að það væri kominn tími á almennileg eldhúsþrif...?

þriðjudagur, febrúar 19, 2008
Pizza
Pantaði mér pizzu í dag. Svosem ekki í frásögur færandi, hef gert það oft áður. Kannski of oft...
Það var opið út til að lofta út í stigaganginum. Pizzusendillinn komst þannig inn í húsið án þess að hringja dyrabjöllunni. Ég vissi ekki fyrr en það var bankað á hurðina mína. Þegar ég opnaði stóð pizzusendillinn fyrir utan. Hann horfði á mig, rétti mér pizzuna og sagði: Hæ, já mig minnti að þú ættir heima hér. Spurning hvort það sé ekki bara komið nóg af pizzu í bili...?

miðvikudagur, febrúar 06, 2008
"Sækó bits"
Nú er ég byrjuð fyrir alvöru að vinna í umsókninni minni. Búin að prenta út umsóknina og leiðbeiningar til að fylla hana út. Búin að hringja útum allan bæ til að redda hinu og þessu sem þarf að fylgja. Búin að komast að því að ég þarf að hringja í Lín með krossaða fingur og vona að þeir segi mér að þetta sé lánshæft nám (fann bara annan skólann á síðunni þeirra og námið sem ég er að skoða var ekki listað þar). Búin að liggja yfir heimasíðum skólanna tveggja á netinu og með því búin að hræra illa upp í mér. Báðir hafa nefnilega kosti og galla og ég get ómögulega valið hvaða kosti/galla ég eigi að láta vega hæst þegar ég tek endanlegt val.
Ef ég væri ekki svona hlutaveik myndi ég bara selja allt heila klabbið, dissa alltsaman, stinga af og leggjast í flakk.