laugardagur, mars 15, 2008
Freistingar
Ef ég nú bara gæti skitið seðlum, þá væri nú gaman... Ég keypti mér semsagt rúm í gær, þannig að nú get ég aftur farið að sofa þversum... Svo er er verið að freista mín alveg hægri vinstri þessa dagana. Brussel hér, Glasgow þar, London í sumar, Danmörk jafnvel í maí og þá vonandi líka í haust... Var svo að kaupa mér rúm í gær. Verst bara að allt kostar þetta peninga og það er eitthvað sem ég syndi ekki beint í einmitt núna... Ég ætti kannski bara að fara að tileinka mér The Secret... Sigrún kemst inn í skólann, Sigrún kemst inn í skólann, Sigrún kemst inn í skólann... Sigrún kemst til Brussel, Sigrún kemst til Brussel, Sigrún kemst til Brussel... Sigrún kemst til Glasgow, Sigrún kemst til Glasgow, Sigrún kemst til Glasgow... Veit annars einhver hvort það virkar fyrir svona margt í einu...?

föstudagur, mars 14, 2008
Fljúgandi ferhyrningur
Þrjár stelpur sitja saman og teikna. Ein teiknar forláta prinsessu með kastala í bakgrunni og allskonar annað fínerí. Hinar tvær horfa hugfangnar á og biðja hana svo um að kenna sér að teikna svona prinsessumynd. Sem hún og gerir, fyrst annarri og svo hinni. Stuttu seinna á eftirfarandi samtal sér stað...
Stelpa nr.3: Sigrún sjáðu, þetta er fljúgandi ferhyrningur (bendir á eitthvað fyrirbæri á myndinni sinni, langt frá því að vera ferhyrnt)!
Ég: Ha, hvað sagðirðu?
Stelpa nr.3: Þetta er fljúgandi ferhyrningur!
Ég: Fljúgandi ferhyrningur?
Stelpa nr. 3: Já, svona lítill.
Ég: Svo þetta lítill, fljúgandi ferhyrningur?
Stelpa nr.3: Já. Er hann ekki sætur?
Ég: Jú jú, þetta er voðalega sætur fljúgandi ferhyrningur...
Stelpa nr.1: Sjáðu Sigrún. Ég teiknaði líka fljúgandi ferhyrning (fyrirbærið álíka lítið í samræmi við nafnið og hjá hinni)...
Ég: Jahérna, og hvað er svo eiginlega fljúgandi ferhyrningur?
Stelpa nr.1: Hann er með eitt horn og hann er svona hestur...
Ég: Jaaaaaá, svona EINhyrningur...
Stelpa nr.1: Já, svona fljúgandi einhyrningur...

miðvikudagur, mars 12, 2008
"ken li"
Eins og ég get hlegið mig máttlausa yfir klippum af YouTube, þá finn ég líka alltaf soldið til með fólkinu á þessum klippum. Af hverju? Jú, einfaldlega vegna þess að ég lendi ansi oft í því sjálf að gera mig að algjöru fífli (yfirleitt óvart samt) og er mjög þakklát fyrir það að enn hafi ekkert af þessum gjörningum mínum ratað inn á YouTube. Allavega ekki svo ég viti...
Í gærkvöldi var gjörningurinn minn ansi tilkomumikill. Var búin að vera á spani allan daginn. Á spani í vinnunni, heim að skipta um föt, bruna út í Hafnarfjörð á fund og var á hraðferð út af fundinum og á næsta viðkomustað þegar gjörningurinn átti sér stað. Ég var komin út á mitt bílaplanið þegar samstarfskona mín kallaði á mig. Ég sneri mér við, lyfti höndinni með bíllyklunum eins og var að fara að kveðja hana og vissi svo ekki fyrr en ég lá allt í einu, í sömu stellingu, á bakinu á miðju bílaplaninu og bíllyklarnir laaangt í burtu. Stóð upp eins hratt og ég gat, kallaði á samstarfskonuna (sem stóð með hökuna niðrá stétt) að passa sig, það væri pínu hált... Flýtti mér inn í bíl og spólaði af stað út af planinu, stíf, stirð, helaum í afturendanum og með frekar sært stolt...

þriðjudagur, mars 04, 2008
Ég...
...fann ansi skemmtilega bloggfærslu á rúntinum mínum um daginn. Hún á svo vel við mig að ég hefði alveg getað skrifað hana sjálf. Bara fyndið...
"Vitidi hvad? Tad er gott ad ferdast einn. Eg gekk um kviknakin i herberginu minu adan og svo getur madur prumpad tegar madur vill. Ekki tad ad stelpur prumpi, eg meina bara ef eg myndi einhverntima prumpa. Sem eg geri ekki. Aldrei. Allavega…" (www.sara.is)