sunnudagur, apríl 27, 2008
Sjálfstæðið að drepa mann...
Síðustu vikur hef ég verið frekar pirruð á köflum. Pirringur er reyndar kannski frekar vægt til orða tekið, það væri kannski réttara að segja að ég hafi verið að drepast úr geðvonsku. Og hvers vegna? Jú, vegna þess að ég hafði ekki stjórn á því sem ég var að gera í vinnunni. Þurfti að vinna ákveðið verkefni sem átti ekki að vera neitt mál. Nema auðvitað var það gríðarlegt mál. Eyddi gríðarlegum tíma og ekki minni orku í þetta og fyrir eitt skref áfram fór ég tvö afturábak. Óþolandi. Fagfólk um allan bæ hristi hausinn yfir vandanum og geðvonska mín jókst í hlutfalli við stærð vandans og tímann sem tók að leysa hann. Ég þoli semsagt ekki þegar einhver eða eitthvað kemur í veg fyrir að ég geti gert það sem ég ætla mér. Nú, ef það er mér að kenna að ég get ekki gert það sem ég ætla mér, þá get ég allavega kennt sjálfri mér um og verið fúl út í sjálfa mig. En þarna var vandamálið ekki mér að kenna og þar sem sérfræðingar klóruðu sér í hausnum var ekki von að ég gæti leyst úr því. Það hafðist þó fyrir rest, með hjálp góðra manna og kvenna, og þegar ég var búin að keyra "gullið mitt" á áfangastað gat ég fyrst farið að anda léttar.
Fyrir þó nokkuð mörgum mánuðum fór að bera á rakaskemmdum í vegg í svefnherberginu mínu. Veggurinn leit út eins og það hefði sprungið rör inní honum þannig að ég hringdi í tryggingarnar sem sendu mér pípara. Hann gat sagt mér að þetta væri ekki rör þar sem veggurinn væri burðarveggur. Vandinn lægi í einhverju öðru. Benti mér á að tala við einhvern kall sem myndar lagnir. Sem ég og gerði. Á núna vídeóspólu sem sýnir klósettlögnina mína og drenið undir íbúðinni. Hvorugt átti sök á vandanum. Svo byrjuðu haustrigningarnar og veggurinn versnaði til muna. Var þá ljóst að ónýt útihurð og rigningavatn væru sökudólgarnir. Vatnið semsagt fór inn með hurðinni, inn á gang í sameigninni þar sem það komst í nærliggjandi vegg sem skilur að ganginn og svefnherbergið mitt. Allavega, þegar þetta var ljóst var pöntuð ný hurð í snarhasti. Hún var nú samt ekki smíðuð í snarhasti, við máttum bíða eftir henni í ansi marga mánuði. En nú er hún allavega komin á sinn stað og hætt að leka inn á gang. Og þá var kominn tími á framkvæmdir. Ég var búin að ákveða að þegar nýja hurðin kæmi ætlaði ég að taka herbergið í gegn. Ég þyrfti hvort sem er að krukka helling í veggnum þannig að það væri alveg eins gott að nota tækifærið og henda út ónýta gólfdúknum og skápnum sem var að hrynja.
Og þá kem ég aftur að geðvonskunni. Á föstudaginn fyrir viku síðan fór ég heim eftir vinnu, brjáluð í skapinu því enn einn daginn hafði okkur ekki tekist að leysa vandann. Var þó að vona að hugmyndin sem við fengum þegar við vorum að ganga frá og við ætluðum að prófa á mánudeginum myndi virka. Geðvonskan og pirringurinn eftir vikuna entust mér alla helgina og gerðu það að verkum að ég svaf illa, sem aftur varð til þess að ég varð enn pirraðri. Greit. Mætti í vinnuna á mánudaginn, með smá vonarneista í farteskinu. En enn einn daginn vorum við engu nær. Þannig að þegar ég kom heim á mánudaginn var ég við það að springa. Ég sá að ég yrði að fá einhverja almennilega útrás til að tappa af mér. Ég ákvað því að það væri kominn tími á framkvæmdir. Tæmdi fataskápinn, rogaðist með kvísæsferlíkið fram í stofu ásamt öllu öðru lauslegu sem komst fyrir frammi. Nú er íbúðin ekkert rosalega stór en ég á gríðarlega mikið af dóti þannig að þegar þarna var komið varð ég að ganga ansi varlega um íbúðina sem leit úr eins og eftir kjarnorkustyrjöl. Svo náði mér í verkfæri og réðst á fataskápinn. Hann hafði greinilega verið skrúfaður saman áður en honum var ýtt inn í skápagatið, upp á sökkul, og ég var klárlega ekki að fara að draga hann ein útúr gatinu svo ég gæti skrúfað hann saman. Þannig að með hamri og skrúfjárni hamaðist ég á skápnum, glennti í sundur, barði og togaði þangað til skápurinn lá í snyrtilegum bunka úti í garði þremur tímum eftir að ég kom heim úr vinnunni. Afsakið orðbragðið, en djöfull var gott að fá svona útrás! Mér leið mikið betur eftir þetta. Vikuna notaði ég svo til að fara í gegnum dótið frammi og finna nýja staði fyrir það þannig að í gær var orðið nokkuð snyrtilegt hérna, eða svona eins snyrtilegt og það gat orðið með allt þetta dót í stofunni... Hélt upp á það með því að fara í næsta áfanga í herberginu. Enn voru bókahilla og stærðar skápur eftir í herberginu því það hafði ekki verið pláss fyrir meira frammi. En nú var ég búin að taka til og búa til pláss. Ég tæmdi því mublurnar og bar bókahilluna fram. Skápurinn var bæði stærri og þyngri en svo að ég færi með hann ein fram þannig að ég gerði nokkrar árangurslausar tilraunir til að fá einhvern til að bera hann með mér. Ég var nú ekki alveg til í að fresta framkvæmdum útaf einhverju svona smámáli þannig að ákvað að redda mér bara sjálf. Og það hafðist! Ekki kannski beint með hefðbundnum aðferðum (ef það er hægt að tala um hefðbundnar aðferðir við að flytja skáp), en það hafðist. Þá var ég enga stund að rífa dúkinn af gólfinu og ráðast á vegginn með kíttispaða. Veggurinn var það illa farinn að þegar ég fletti málningunni af hrundi pússingin sjálf af, í duftformi. Ojbjakk. En langþráðar framkvæmdir eru allavega komnar af stað og ég búin að komast að því að allir ættu að eiga svona herbergi til að hamast í. Það er stórkostleg tilfinning!