<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, júní 08, 2008

Úff
Hér hefur ýmislegt gengið á síðan síðast.
Ég komst ekki inn í skólann sem ég sótti um og ákvað í framhaldinu að vera áfram á leikskólanum "mínum".
Ég eyddi Hvítasunnuhelginni í Súðavík ásamt stórfjölskyldunni og fjórum Lettum. Gerði þar flest annað en að sofa og láta mér leiðast... Ég bar húsgögn á milli hæða, setti saman húsgögn, reif vegg, málaði gólf, saumaði lager af gardínum, skrúbbaði stigann og gólfin með gluggasköfu og pottasvampi, tók til, þreif, skúraði, vaskaði álíka mikið upp þessa helgi og ég geri á tveimur mánuðum hér heima..., sigldi út á Álftafjörðinn, fór í nokkrar sendiferðir á Ísafjörð, sprautaði bensíni yfir mig alla og ég gæti haldið endalaust áfram.
Herbergið er enn í vinnslu. Búið að múra í gatið á veggnum sem ég fann þegar ég fletti málnningunni ofan af rakaskemmdunum. Er reyndar búin að fletta málningunni af veggnum eins og hann leggur sig, taka ofninn af, finna fleiri rakaskemmdir og skafa ofan af þeim. Þá er gólfdúkurinn líka farinn. Næsta skref er þá að sparsla í göt og sprungur og það þarf víst að heilsparsla eins og einn til tvo veggi... Þetta mjakast allt hægt og örugglega...
Svo kom Suðurlandsskjálftinn. Ég fann hann reyndar ekki. Skil það ekki alveg því það fundu hann eiginlega allir í kringum mig. En það er líka kannski bara eins gott að ég missti af honum, ekki bara fyrir mig heldur líka fyrir börning og samstarfsfólkið mitt, því eins og Freyja sagði "ég veit hvernig þú bregst við svona"... Úff. Allavega fór helgin á eftir í rústabjörgun í Hveró. Ansi mikið tjón á hlutum (aðallega svona fína dótið í stofuskápnum samt) sem skutluðust út úr hillum og skápum, en húsið virðist vera heilt og húsgögnin, enda allt skrúfað fast í veggina nema borð og stólar. Aðrir sem ég hef hitt og/eða heyrt um sluppu margir hverjir ekki eins vel.
Næst á dagskrá er svo bara að fara að huga að Londonferð og halda áfram að fara í gegnum allt draslið sem flýtur um íbúðina mína því ég reikna með því að Sólveig muni vera með allavega annan fótinn hjá mér í sumar og þá er nú ekki verra að vera búin að búa til pláss fyrir hana...;)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?