<$BlogRSDUrl$>

laugardagur, júlí 19, 2008

Öppdeit
Það er nú svosem ekki mikið að frétta. Fór til london í júní þegar Sólveig útskrifaðist. Rosa gaman og auðvitað lenti ég í smá ævintýrum... Það er ekki almennileg ferð ef maður lendir ekki í ævintýrum sko...
Framkvæmdirnar heima ganga á hraða snigilsins. Að hluta til vegna góðviðrisins, ég hef ekki tímt að djöflast inni í draslinu þegar ég hef getað sólað mig úti, og að hluta til vegna þess að þegar ég hef haft tíma eða verið í stuði til að vinna þá hefur það lent þannig að ég hef verið stopp þangað til einhver utanaðkomandi var búinn að klára sitt. En loksins er farið að sjást í endann á þessum ósköpum. Búin að panta skápinn, stofan er full af parketi og búið að sparsla fyrstu umferð. Restin af íbúðinni er aftur á móti eins og eftir sprengjuárás...
Sumarfríið kom og er næstum því búið, ein vika eftir. Fyrsta vikan fór í að sleikja sólina, sofa og gera akkúrat ekki neitt. Önnur vikan fór í að vinna aðeins hjá mömmu og taka smá skurk í herberginu. Er einmitt hjá m+p núna og það er greinilega enn stórhættulegt að vera á ferli eftir skjáftann... Ég fékk allavega vænt glerbrot lengst upp í hælinn þegar ég gekk hér eftir stofugólfinu. Það er ekki að spyrja að því...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?