<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, október 26, 2008

Andvaka
Ég gafst upp á að reyna að sofna þegar ég var búin að bylta mér í rúminu í næstum tvo tíma. Sá að þetta þýddi ekki neitt. Fór í staðinn að gramsa aðeins... Og já, ég á víst nóg af drasli til að gramsa í... Svo mikið meira að segja að þó að ég gramsi reglulega finn ég alltaf eitthvað sem ég hef ekki séð lengi lengi. Og sú var líka raunin núna. Fann bæði gamlar ljósmyndir sem höfðu ekki ratað í albúm og stílabækur með sögum og ljóðum síðan sautjánhundruðogsúrkál. Ó mæ god og hólí krapp og allt það! Það var alveg óborganlegt að blaða í gegnum þetta en þetta fer beinustu leið aftur þangað sem sólin aldrei skín...

laugardagur, október 18, 2008

Æði pæði...
Ég er í miðju einhverju æði þessa dagana. Hekla og prjóna eins og ég fái borgað fyrir það, er samt ekki að sinna því sem bíður eftir mér hálfprjónað heldur er ég á fullu í alls kyns öðrum tilraunum með alla afgangana sem ég uppgötvaði þegar ég raðaði inn í fína nýja handavinnuskápinn minn um daginn...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?