miðvikudagur, nóvember 26, 2008
Ný færsla...
...í tilefni þess að í dag er mánuður síðan ég skrifaði eitthvað hérna...
Fanney, ekkert af þeim sögum og ljóðum sem ég skoðaði er birtingarhæft á þessari síðu. Ef þú ert gríðarlega forvitin um þetta er samt aldrei að vita nema ég grafi eitthvað af þessu upp og sýni þér næst þegar þú kemur í heimsókn.
Sólveig, myndirnar sem ég skannaði um daginn eru enn í m+p tölvu, hér er það bara þolinmæðin sem gildir.
Fanney, D og D biðja að heilsa... ;)
Annars er bara ekkert að frétta. Ég er enn hóstandi og snýtandi mér í tíma og ótíma og röddin kemur og fer eftir hentisemi. Frekar pirrandi svona til lengdar. Svo er ég búin að skila pabbabíl og því aftur komin á tvo jafnfljóta og strætó. Fólkið í kringum mig fjölgar mannkyninu í gríð og erg á meðan litlu frænkur mínar spyrja hvers vegna þær séu alltaf einu börnin í fjölskylduveislum. Svo er ég búin að hlæja mig máttlausa af alls kyns skemmtilegum, athyglisverðum og furðulegum uppátækjum mínum og annarra undanfarið, svo mikið að ef það er rétt að hláturinn lengi lífið þá ætti ég að verða 120 ára... hið minnsta...