miðvikudagur, desember 31, 2008
Nú árið er liðið...
Fyrir ári síðan skrifaði ég hérna að árið hefði liðið hratt, hraðar en árin á undan. Ég er ekki frá því að þetta ár hafi liðið enn hraðar... eiginlega bara flogið frá mér... En þrátt fyrir stutt ár náði ég nú samt að afreka ýmislegt, misjafnlega gáfulegt að vísu...
Ég...
...átti stórskemmtilegt gamlárskvöld án óhappa...
...braut odd af oflæti mínu og steig fæti inn í World Class... Gerði reyndar meira en það, keypti mér nefnilega kort þar og týndi nokkrum (fáum) kílóum þar líka...
...fann þessi týndu kíló aftur þegar líða tók á árið...
...stúderaði dönskukennsludiska í tölvunni minni...
...fékk "hjálparsveitina" í heimsókn (m+p með verkfæri og drifkraft)...
...bauð familíunni í vöfflukaffi...
...var menningarleg og fór á myndlistarsýningu...
...mokaði snjó...
...áttaði mig á því að ég pantaði kannski of oft pizzu þegar pizzusendillinn var farinn að þekkja mig...
...áttaði mig líka á því að það borgar sig ekki að græja kjúklingasalat í eldhúsinu með augun límd við Ugly Betty á sjónvarpsskjánum, það endar bara með olíuböðuðu grænmeti um allt eldhús...
...eyddi heilum laugardegi úti í garði að bora göt í bjórtappa...
...sótti um skóla í Danmörku...
...komst ekki inn í skólann...
...er ótrúlega glöð yfir að vera ekki námsmaður í Danmörku í dag...
...framdi gjörning á bílaplani í Hafnarfirði og var hálf farlama á eftir...
...sá fljúgandi ferhyrning...
...keypti mér "hjóna"rúm...
...var mjög pirruð í vinnunni, yfir ákveðnum hlutum...
...notaði uppsafnaða geðvonsku í að gera svefnherbergið mitt fokhelt á nokkrum klukkutímum, ein og hjálparlaust...
...eyddi nokkrum mánuðum í að byggja herbergið upp aftur...
...bjó í nokkra mánuði í draslinu í stofunni því svefnherbergið var óíbúðarhæft...
...fór í svakalega vinnuferð til Súðavíkur um Hvítasunnuhelgina...
...fór í bensínsturtu á Ísafirði...
...fór aftur til Súðavíkur í haust til að slappa af og tína ber...
...sultaði eins og enginn væri morgundagurinn...
...fór í björgunarleiðangur í Hveragerði eftir jarðskjálftann...
...fór í útskriftina hennar Sólveigar í London í júní...
...átti dásamlegt sumarfrí...
...vann meira í herberginu mínu...
...á núna nýmálað svefnherbergi með nýjum fataskáp, nýju parketi og nýjum gardínum...
...fór í Hveró mörgum vikum eftir jarðskjálftann og fékk þar glerbrot á kaf upp í hælinn...
...skilaði af mér barninu "mínu" í vinnunni...
...breytti til í vinnunni og fór að vinna með litlu krílin...
...þurfti að velja og hafna þegar partýboðin voru orðin 4 sama kvöldið...
...var stundum andvaka...
...gramsaði og fann gamalt og fyndið dót...
...tók löngu tímabæra prjóna/hekla/saumaskorpu...
...var ægilega löt að skrifa hérna inn...
...var kvefuð nánast sleitulaust frá ágúst til dagsins í dag...
...hef hlegið mig máttlausa af alls kyns skemmtilegum, athyglisverðum, furðulegum og misjafnlega gáfulegum uppátækjum mínum og annarra...
...náði þeim merka áfanga að verða þrítug og fagnaði þeim áfanga með stæl...
...gerði ýmislegt annað sem ekki rataði á þennan lista...
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!