<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, febrúar 13, 2009

Spark í rassinn...
Til að auka líkur á árangri hef ég ákveðið að opinbera þá ákvörðun sem ég tók eftir uppgjör síðustu mánaðamóta.
Ég er semsagt hér með hætt að kaupa kók, nammi og skyndibita. Ekki misskilja og halda að ég sé endilega hætt að borða svoleiðis gúmmulaði... ;) En aftur á móti kemur það sjálfkrafa að þegar ég er hætt að kaupa þetta drasl sjálf þá verður óhjákvæmilega minna um neyslu þess... ;) Sem er reyndar bara gott :)
Ég ætla líka að vera duglegri að borða það sem til er, frekar en að fara í búðina á hverjum degi og kaupa það sem mig langar í þann daginn þegar skáparnir eru fullir af hrísgrjónum, pasta, hrökkbrauði og öðru vel ætu dóti...
Ég ætla líka að hætta að þræða DVD tilboðsrekkana í búðunum... Þarf reyndar ekki að örvænta því ég er með örugglega 200 vídeóspólur í pössun næsta árið eða svo... ;)
Ég ætla ekki að stíga fæti inn í efna- og/eða garnbúðir, heldur nota það sem til er... Sem er meira en nóg... ;)
Ég er semsagt búin að setja sjálfa mig í kaupbann á öllu því sem ekki telst til brýnna nauðsynja! Fyrsta vikan hefur gengið mjög vel og ég er mjög spennt að sjá hvað ég kemst upp með að eyða fáum krónum þennan mánuðinn...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?